Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 3

Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 3
Laugardagur 7. nóvember 1987 Tíminn 3 Gamla fjölskylduhugtakiö - hjón og börn þeirra - aö deyja út? Um 80% frumburða áttu ógifta móður Heimsmeistaraeinvígíð: Jafntefli Tíundu skák heimsmeistaraein- vígisins lauk meö jafntefli í Sevilla í gærkvöldi. Garry Kasparov og Ana- toly Karpov eru því jafnir sem fyrr, nú með 5 vinninga hvor. Þeir hafa báðir unnið tvær skákir og gert 6 jafntefli. Meistararnir sömdu um jafntefli að loknum 20 leikjum í gærkvöldi. -HÁ Hreiðurfær greiðslu- Bæjarfógetaembættið í Hafn- arfirði hefur veitt Hreiðri hf, eiganda fuglasláturhúss ísfugls greiðslustöðvun í fjóra mánuði, frá og með 4. nóvember. Á meðan á greiðslustöðvun stendur, er meiningin að endur- skipuleggja rekstur félagsins og auka hlutafé þess og breyta skammtfmaskuldum í langtíma- skuldir eða hlutafé. Af alls 1.455 frumburðum sem litu dagsins ljós árið 1986 voru það aðeins 310 sem áttu foreldra í hjónabandi, eða aðeins um fimmta hvert barn, en 1.145 sem áttu ógifta foreldra. Af alls 3.908 börnum sem fæddust á síðasta ári var innan við helmingur sem átti foreldra í hjónabandi, samkvæmt skýrslum Hagstofunnar. Hlutfall ógiftra for- eldra hefur farið hraðvaxandi síð- ustu áratugi, þannig að með sömu þróun sýnist stefna í það að gamla fjölskyldugerðin, hjón og börn þeirra fari að verða sjaldgæf áður en langt um líður. Á hinn bóginn varð nánast stökkbreyting á milli áranna 1985 og 1986 hvað varðar fjölskylduað- stæður þeirra ógiftu kvenna sem voru að eignast sitt fyrsta barn. Árið 1985 var nærri helmingur þeirra (501) einar á báti, en ári síð- ar lækkar hlutfall einstæðra mæðra (274) niður í tæpan fjórðung. Einhverjum kynni að detta í hug að að fóstureyðingar ættu þarna hlut að máli, en svo virðist þó ekki vera. í fyrsta lagi voru frumburðir bæði giftra og ógiftra kvenna held- ur fleiri í fyrra en árið áður. Og í öðru lagi fækkaði þá fóstureyðing- um annað árið í röð - voru 683 og hafa ekki verið færri síðan árið 1982. Frumburðir fæddir á síðasta ári voru nær jafn margir og að meðal- tali á árunum 1966-1970. Breyting- ar á fjölskyldustöðu foreldra þeirra eru hins vegar mjög verulegar. Á seinni helmingi 7. áratugarins má segja að reglan hafi verið að annað- hvort voru mæðurnar giftar (37%) eða einstæðar mæður, en í þeirri stöðu voru þá 44% þeirra kvenna sem áttu sín fyrstu börn. Aðeins tæplega 19% frumburða áttu for- eldra í óvígðri sambúð. Á síðasta ári var það hins vegar orðið lang algengasta formið, eða 60%, að- eins um 21% foreldranna var í hjónabandi og tæplega 19% frum- burðanna voru börn einstæðra mæðra. Sem áður greinir varð þó lang stærsta breytingin í þessa átt á síðasta einu ári. En það er ekki bara hjúskapar- staða foreldra frumburðanna sem hefur stórlega breyst. Á síðari hluta 7. áratugarins áttu yfir 70% allra fæddra barna foreldra í hjóna- bandi. Það hlutfall lækkaði í 55% að meðaltali á árunum 1981-1985 og niður í 49% í fyrra. Hlutfall óvígðrar sambúðar hækkaði aftur á rnóti úr 12% á fyrsta tímabilinu, í 29% að meðaltali framan af þess- um áratugog upp í 42% í fyrra. Um 18% af öllum börnum áttu ein- stæða móður síðari hluta 7. ára- tugarins og raunar fór það hlutfall upp í 21% að meðaltali á árunum 1971-75, lækkaði síðan í um 16% framan af þessum áratug og datt svo niður í 9% á síðasta ári. Rúmlega 400 færri börn fæddust í fy'rra en að meðaaltali á árunum 1966-70. Hlutfall fæðinga í fyrra var um 70 börn á hverjar 1.000 kon- ur á aldrinum 15-44 ára, en það hlutfall var 108 börn á fyrrnefnda tímabilinu og 130 börn að meðal- tali á árunum 1961-65, en á þeim árum kom „pillan“ til sögunnar. Fólksfjölgunarhlutfallið hefur ver- ið undir núllinu siðustu 2 árin, sem þýðir að íslendingum fer að fækka áður en langt um líður ef svo heldur áfram. Eins og af áðurgreindu má ráða hefur hjónabandið farið mjög hall- oka á undanförnum áruni, án þcss þó að fólk virðist hafa minni áhuga á að búa saman, nema að síður sé. Franian af 8. áratugnum voru hjónavígslur að meðaltali 1.730 á ári, en hefur síðan stöðugt farið fækkandi, niður í 1.230 í fyrra. Þar af fækkaði konum sem voru að gift- ast í fyrsta sinn úr 1.530 niður í 1.030 í fyrra. Á sama tíma hefurár- legum lögskilnuðum fjölgað úr 344 upp í 543, en fækkaði að vísu aftur í fyrra niður í 498, eða nær sömu tölu og árið 1983. -HEI Landsfundur Alþýðubandalags vill áfram einn varaformann: Voru hugsandi yfir öllum gulu miðunum Landsfundur í fullum gangi. Össur Skarphéðinsson ræðir við Svavar Gestsson undir Ijögur augu. Tímamynd: Pjctur brauðsgerðarinnar'í gær. Enda ekki seinna vænna fyrir menn að gera upp hug sinn varðandi formannskjör. Frambjóðendurnir Ólafur Ragnar og Sigríður sögðust bæði vera von- góð um úrslit kosninganna. Ólafur Ragnar sagði að línur væru verulega teknar að skýrast en vildi ekki tjá sig um það hvort hann teldi sig hafa unna biðstöðu. „Það verður bara að koma í Ijós,“ sagði hann. Sigríður sagði það ljóst að kosningin yrði mjög tvísýn og engan veginn væri hægt fyrirfram að spá í spilin. Viðmælendum Tímans úr hópi landsfundarfulltrúa bar öllum saman um aðekki mætti milli sjáhvor hefði betur í formannskjörinu. „Jafntefli eins og er,“ varð einum að orði en annar taldi að línur skýrðust ekki fyrr en með kvöldinu eða í fyrramál- ið. Varaformannskjör Jafn mikilóvissaríkirmeð kjörva- raformannsins. Mönnum ber þó saman um að líklegustu kandidat- arnir séu nú sem fyrr þau Helgi Selj- an og Svanfríður Jónasdóttir. Þröst- ur Ólafsson hefur og verið nefndur í þessu sambandi, en mönnum þykir hann nú heldur ólíklegur kandidat. En eitt er víst í þessari flóknu sáp- uóperu; kosinn verður nýr formaður Alþýðubandalagsins kl. 10 f.h. í dag og síðan kl. 14 munu landsfundarf- ulltrúar kjósa nýja stjórn og fram- kvæmdastjórn flokksins. Þangað til er mönnum ráðlagt að halda ró sinni. óþh Sveinn Einarsson formaður skólanefndar Leiklistarskólans tekur á móti gjöfinni til skólans úr hendi Dóru Guðbjartsdóttur. Tímamynd: Pjetur Leiklistarskólinn: Gjöf I minn- ingu Guðbjarts Leiklistarskólanum var í gær færð að gjöf peningaupphæð. Gjöfin er gefin í minningu Guðbjarts Ólafs- sonar. Guðbjartur hefði orðið fer- tugur í gær, en hann dó ungur að árum, aðeins 19 ára gamall. Hann hafði þá ákveðið að hefja nám í Leiklistarskólanum og var búinn að undirbúa nám sitt þar með því að sækja leiklistarskóla Ævars Kvaran. Guðbjartur var sonur hjónanna Dóru Guðbjartsdóttur og Ólafs heit- ins Jóhannessonar fyrrverandi for- sætisráðherra. Það voru móðir Guðbjarts, Dóra Guðbjartsdóttir og systur hans, Kristrún og Dóra Ólafsdætur sem gáfu skólanum þessa gjöf, sem notuð verður til kaupa á upptökutækjum fyrir myndbönd. Þess má geta að árið 1967 kom út ljóðabók með ljóðum eftir Guðbjart. Bókin heitir Vor, en það var Andrés Kristjánsson sem safnaði ljóðunum saman til útgáfu. ABS Allaballið hélt áfram á landsfund- inum í gær. Framan af degi ræddu menn lagabreytingar fram og aftur en síðan var liði deilt í 11 starfshópa, hvar fjallað var um stjórnmálaálykt- un flokksins og hin ýmsu þjóðmál. Kosningu um lagabreytingar var beðið með hvað mestri eftirvæntingu og ekki síst örlögum þeirrar laga- breytingar sem kvað á um gjörbylt- ingu á fyrirkomulagi flokksforystu. Sú tillaga gerði m.a. ráð fyrirfjölgun varaformanna flokksins úr 1 og upp í 2 eða 3. Fundurinn samþykkti að vísa öll- um lagabreytingum til sérstakrar laganefndar sem ætlað er að skila áliti sínu eða tillögum til næsta lands- fundar. Þar með er Ijóst að eftir há- degi í dag kjósa alþýðubandalags- menn einn varaformann sem fyrr og sú skipan mála verður fram að næsta landsfundi, eftir tvö ár. Það vakti nokkra athygli hve mjótt varð á munum í atkvæða- greiðslu um þá tillögu að eftirláta laganefnd umfjöllun um breytt fyrir- komulag á forystu flokksins, þ.m.t. fjölgun varaformanna. Samþykkir voru 120 en 96 voru á móti. Gulu miðarnir Það ætlaði ekki að ganga and- skotalaust að greiða atkvæði um áð- urnefndar lagabreytingartiliögur. í rúman klukkutíma mátti gefa að líta langa biðröð alþýðubandalags- manna um salarkynni Rúgbrauðs- gerðarinnar. Þeir biðu ekki eftir brauðum eins og tíðkast sumstaðar fyrir austan. Nei, beðið var eftir litl- um saklausum bréfsneplum sem mönnum var síðan gert að bregða á loft í atkvæðagreiðslu. Með þessu var verið að fyrirbyggja að óbreyttir sakleysingjar af götunni gætu með sínu atkvæði gripið inn í dramatíska atburðarrás í flokknum. Plottað í hverju horni Mikið leynimakk og nef í nef viðræð- ur voru í öllum skúmaskotum Rúg- Þrasakista í Skógafossi Það þurfti ekki mikið brageyra til að sjá að vísukornið um Þrasa- kistu í Skógafossi sem birtist í Tímanum í gær var ekki alveg eins og það átti að vera. í stað orðsins „nóga“ slæddist orðið „góða“. Vís- an er rétt á þessa leið: Prasakista auðug er undir fossi Skóga hver sem þangað fyrstur fer finnur auðlegð nóga. Svo er nú það og biður blaða- maður velvirðingar á þessum mis- tökum sem slæddust inn í textann. -HM

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.