Tíminn - 07.11.1987, Blaðsíða 20

Tíminn - 07.11.1987, Blaðsíða 20
20 Tíminn 32. kjördæmisþing framsóknar- félaganna í Norðurlandskjördæmi eystra veröur haldið í Hrafnagilsskóla Eyjafirði dagana 13. og 14. nóv. n.k. og hefst kl. 20.30 á föstudagskvöld. Sérmál þingsins verða heilbrigð- ismál. Erindi flytja: Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra. Sigurður Halldórsson, héraðslaeknir Kópaskeri. Margrét Tómasdóttir, brautarstjóri við Háskólann á Akureyri. Regína Sigurðardóttir, fulltrúi sjúkrahúss Húsavíkur. Halldór Halldórsson, yfirlæknir Kristnesspítala. Gestir þingsins: Steingrímur Hermannsson, Sigurður Geirdal, Unnur Stefánsdóttir, Gissur Pétursson. Þinginu lýkur á laugardagskvöld með sameiginlegum kvöldverði og dansleik á Hótel KEA. Formenn eru hvattir til að tilkynna þátttöku til skrifstofu KFNE, sími 21180. Þingið er oþið öllu framsóknarfólki. Stjórn KFNE. LFK viðtalstímar Inga Þyrí Kjartansdóttir verður til viðtals, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10-12 að Nóatúni 21. Framkvæmdastjórn LFK Miðstjórnarfundur SUF Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald- inn í Reykjavík laugardaginn 28. nóv. n.k. Dagskrá nánar auglýst síðar. Stjórnin. Umhverfismál Samband ungra framsóknarmanna boðar til umræðufundar um umhverfismál, í Nóatúni 21 miðvikudaginn 11. nóv. 1987 kl. 20.00. Framsögumaður verður Hermann Sveinbjörnsson aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra. Stjórnin. Framsóknarfólk Sauðárkróki Aðalfundur Framsóknarfélags Sauðárkróks verður haldinn að Suður- götu 3, miðvikudaginn 11. nóv. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 3. Önnur mál. Stjórnin. Auglýsing frá landbúnaðarráðuneytinu um innflutning jólatrjáa Að gefnu tilefni vekur ráðuneytið athygli á því, að samkvæmt 42. grein laga nr. 46/1985 er innflutn- ingur jólatrjáa óheimill, nema með leyfi landbúnað- arráðuneytisins. Landbúnaðarráðuneytið, 5. nóvember 1987 A Bílbeltin Jf* hafa bjargað i)ðrnow> lllllllllllllllllllllllillll DAGBÓK lllllllllllllllll Neskirkja • Félagsstarf aldraðra Samverustund í dag, laugardag kl. 15:00. Bingó verður spilað. Keflavíkurkirkja Kristniboðsdagurinn. Sunnudagaskóli kl. 11:00 . Munið skólabílinn. Guðsþjón- usta kl. 14:00. Skúli Svavarsson kristni- boði predikar. Tekið á móti framlögum til kristniboðs. Sóknarprestur Rangæingafélagið Reykjavík Félagið heldur sitt árlega kaffisamsæti fyrir eldri Rangæinga og aðra gesti í safnaðarheimili Bústaðakirkju sunnudag- inn 8. nóv. og hefst það eftir guðsþjónustu í kirkjunni sem hefst kl. 14:00: Félagsmenn eru beðnir að gefa kökur. Félagsvist Breiðfirðingafélagsins Breiðfirðingafélagið verður með fé- lagsvist í Sóknarsalnum, Skipholti 50 A sunnudaginn 8. nóv. kl. 14:30. Óháði söfnuðurinn Samkoma verur í kirkju Óháða safnað- arinskl. 15.00, sunnudag. Dagskrá: Tónlist úr Vesturbænum. Séra Gunnar Björnsson leikur á selló og Agnes Löve á píanó. Ágústa Ágústdóttir sópran- söngkona syngur. Ingimar Sigurðsson járniðnaðarmaður flytur hugleiðingu dagsins. Ljóðaupplestur. Guðrún Þ. Sthepens- cn leikkona les úr Ijóðuni Stefáns frá Hvítadal. Útleggingorðsins: HelgiS. Guðmunds- son, fulltrúi. Eftir samkomuna verður kaffisala í safnaðarheimilinu Kirkjubæ. Safnaðarstjórnin. Kvenfélags Kópavogs Fjáröflunardagurinn er á sunnudag kl. 15:00 í Félagsheimili Kópavogs. Selt verður prjónles, kökur, happdrætti og kaffi með rjómavöfflum. Allirvelkomnir. Nefndin Kvikmyndir i MÍR Kvikmyndasýningar eru á hverjum sunnudegi kl. 16:00 í bíósal MÍR, Vatns- stíg 10. Sýndar eru þessa sunnudaga sovéskar frétta- og fræðslumyndir. Að- gangur er ókeypis og öllum heimill. Safnaðarfélag Ásprestakalls Heldur flóamarkaö laugardaginn 7. nóv. í félagsheimilinu viö Vesturbrún kl. 1 eftir hádegi. Margt góðra muna. Komiö og gcrið góö kaup. Árshátið Svarfdælinga Samtök Svarfdælinga í Reykjavík og nágrenni halda árshátíð sína í Félags- heimilinu á Seltjarnarnesi laugardaginn 14. nóvember. Hátíðin hefst með ford- rykkkl. 19:00ogborðhald hefstkl. 19:30. Góð skemmtiatriði. Veislustjóri er Gunn- laugur Snævarr. Miðapantanir hjá Sólveigu Jónsdóttur í síma 91-11005 laugardag 7. nóv. og sunnud. 8. nóv. kl. 16:00-18:00. Aðalfundur Norræna félagsins í Garðabæ veröur haldinn 10. nóv. n.k. kl. 20.30 í Garöaskóla - kennarastofu - gengið inn hjá Bókasafni að sunnanverðu. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Kaffiveitingar. Komið og kynnist betur félaginu og þiggið með okkur kaffisopa og meðlæti. Norræna félagið í Garðabæ hefur gefið út nýtt jólakort. Myndina, sem er af Garðakirkju, teiknaði Birgir Schiöth. Neskirkja • Fræðslufundur Fræðslufundur verður í safnaðarheimili kirkjunnará morgun, sunnudagkl. 15:15. Dr. Sigurður Örn Steingrímsson fjallar um nokkra valda texta úr Gamla testa- mcntinu. Umræður að erindi loknu. Afmæliskaffi FUJ Félag ungra jafnaðarmanna, FUJ í Reykjavík, er 60 ára sunnudaginn 8. nóv. Af því tilefni verður haldið sérstakt afmæliskaffi í Hótel Holiday-Inn, sem hefst kl. 15:00 á sunnudag. FUJ í Reykjavík er elsta starfandi stjórnmálahreyfing ungs fólks hér á landi. Allir félagar, núverandi og fyrrverandi, eru hvattir til að mæta í Holiday-Inn á sunnudaginn. Stutt ávörp vcrða flutt og boðið upp á skemmtidagskrá. Heiðursfé- lagar verða útncfndir.Afmælisnefnd FUJ Kvenfélag Bústaðasóknar Heldur fund í safnaðarheimili kirkjunnar mánudagskvöld kl. 20:30. Snyrtifræðing- ur kemur í heimsókn. Tónleikar í Saurbæjarkirkju Kulbeinn Bjarnason flautuleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari halda tónleika í Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd á morgun, sunnudaginn 8. nóv. Á efnisskrá þeirra félaga eru ýmis verk frá síðustu 400 árum. Af höfundum má nefna Hándel, Karlheinz Stockhausen og Atla Heimi Sveinsson. Þessir tónleikar eru þeir fýrstu af fjórum, sem þeir Páll og Kolbeinn munu efna til á vestanverðu landinu í nóvem- ber. Laugardagur 7. nóvember 1987 Sýning í Teppabúðinni, Suðurlandsbraut 26 Astrid Ellingsen prjónahönnuður og Bjarni Jónsson listmálari hafa opnað stóra sýningu í húsakynnum Teppabúðar- innar að Suðurlandsbraut 26 í Reykjavík. Astrid sýnir handprjónaða módelkjóla úr íslensku einbandi og peysur úr bómullar- garni. f áratugi hannaði hún prjónavörur fyrir Álafoss og prjónauppskriftir hennar hafa komið í norsku kvennablöðunum Alles og KK ásamt mörgum íslenskum tímaritum. Bjarni sýnir olíumálverk og vatnslita- myndir. Efni margra myndanna er sótt f sjósókn forfeðranna, aðra þætti þjóðhátta og náttúru landsins. Hann hefur haldið margar sýningar hér á landi og tekið þátt í samsýningum erlendis. Árum saman teiknaði hann í námsbækur, gerði bóka- kápur, jólakort, teiknaði í Spegilinn o.fl. I 26 ár vann hann að teikningum í hið stóra ritverk Lúðvíks Kristjánssonar um íslenska sjávarhætti. Hann teiknaði í orðabók Menningarsjóðs, og einnig skýr- ingarmyndir fyrir fræðslunámskeið fisk- iðnaðarins o.fl. Sýningin stendur til 8. nóv. og er opin alla daga til kl. 22:00. Á sunnudag kl. 14:00-22:00. Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra Basar og kaffisala Basar og kaffisala Kvennadeildar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra verður sunnudaginn 8. nóvember nk. og hefst kl. 14. Basarinn og kaffisalan verða að Háaleitisbraut 11-13 en ekki Skipholti 50A eins og áður hafði verið ákveðið. Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra hefur frá upphafi unnið að fjár- öflun til styrktar sumardvalarheimili fatl- aðra barna í Reykjadal í Mosfellsbæ. Basar Húsmæðra- félags Reykjavíkur Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur sinn árlega basar á sunnud. 8. nóv. að Hallveigarstöðum við Túngötu. Mikið úrval af alls konar handavinnu, s.s. sokkum, vettlingum, peysum, húfum, jóladúkum, jólasvuntum, púðum, prjón- uðum dýrum, ísaumuðum jóladúkum o.fl. o.fl. og jólapokar fyrir börnin. Allur ágóði af sölu basarmuna fer til líknarmála. Kökubasar Fjórða árs nemar Kvennaskólans í Reykjavík halda kökubasar í Blómavali Sigtúni sunnudaginn 8. nóvember kl. 14.00, til söfnunar á námsferð til Grikk- lands vorið 1988. Frumsýning Alþýðuleikhússins í Hlaðvarpanum Alþýðuleikhúsið frumsýnir tvo einþátt- unga eftir Harold Pinter, Einskonar Al- aska og Kveðjuskál, í Hlaðvarpanum í dag, laugard. 7. nóv kl. 16:00. Uppselt. Með hlutverk fara: Arnar Jónsson, Margrét Ákadóttir, María Sigurðardótl- ir, Þór Tuliníus og Þröstur Guðbjartsson. Leikstjóri er Inga Bjarnason. Sýningar verða 10 talsins og síðasta sýning þann 29. nóv. nk. Sýningar á Eru tígrisdýr í Kongó? verða í veitingahúsinu ( Kvosinni laugar- dag og sunnudag kl. 13:00. Innifalið í verði er léttur hádegisverður og kaffi. Gallerí Svart á hvítu: Sýning Margrétar Ámadóttur Auðuns í dag, laugard. 7. nóv. kl. 14:00 verður opnuð sýning á verkum Margrétar Árn- adóttur Áuðuns í Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg. Margrét er fædd í Reykjavík 1952. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1970-'74 og við Ecolc des Beaux Arts í Toulouse og París 1974-’79. Margrét hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum hér heima og erlendis. Þetta er fyrsta einkasýning hennar í Reykjavík, en áður hefur hún haldið einkasýningu í Slunkaríki á Isafirði. Myndirnar eru unnar í olíu og acryi á striga. Gallerí Svart á hvítu er opið alla daga nema mánudaga kl. 14:00-18:00. Síðasti sýningardagur er 22. nóvember. Bjöm Birnir sýnir á Kjarvalsstóðum í dag, laugard. 7. nóvember opnar Björn Birnir málverkasýningu á Kjarvals- stöðum. Björn er fæddur 1932. Hann lauk kennaraprófi frá MHl 1952. Björn hefur haldið einkaksýningar áður hér á landi, m.a. á Kjarvalsstöðum 1980. Hann hefur cinnig sýnt erlendis. Sýningunni lýkur 22. nóvember. Nýr meðlimur í Gallerí Grjót Páll Guðmundsson frá Húsafelli hefur bæst í hóp listamanna í Gallerí Grjóti og sýnir hann þar höggmyndir sínar. Páll er fæddur 1959. Hann stundaði nám í Mynd- lista- og handíðaskóla íslands á árunum 1977-1981 og lauk þaðan prófi úr málara- deild. Árið 1985- 86 dvaldi Páll í Þýska- landi og lagði stund á höggmyndalist við Listaháskólann í Köln. Aðalkennari Páls þar var prófessor Karl Burzeff. Páll hefur haldið 10 einkasýningar á höggmyndum og málverkum, þar af 8 á Islandi og 2 í Þýskalandi. Listasafn ís- lands og Listasafnið í Borgarnesi eiga verk eftir hann auk fleiri opinberra stofn- ana. Heimili Páls er á Húsafelli og sækir hann efniviðinn í verk sín, rautt og blátt grjót, í gil ofan við bæinn. Nú er samsýning í „Grjótinu" með Pál í forgrunni. Órn Þorsteinsson teflir þar fram nýjum höggmyndum ásamt cldri verkum úrgrágrýti ogáli. Ófeigur Björns- son sýnir nýja veggmynd úr brenndu jámi, Ragnheiður Jónsdóttir grafíkverk, en Jónína Guðnadóttir og Magnús Tóm- asson gefa sýningunni lit, og sýnir Magnús ný olíumálverk. Tónlistarhátíð i Háskólabíói í dag, laugard. 7. nóv. kl. 14:00 verða tónleikar í Háskólabíói. Þar koma fram erlendir kórar, tveir norskir kórar og einn danskur, og svo Álafosskórinn, stjórn- andi Páll Helgason, Lúðrasveitverkalýðs- ins, stjórnandi Ellert Karlsson, RARIK- kórinn, stjórnandi Violetta Smidova, Samkór Trésmiðafélags Reykjavíkur, stjórnandi Guðjón Böðvar Jónsson. Kynnir verður Jón Múli Árnason. A<>- gangur í Háskólabíó er ókeypis. Leikhúsið í kirkjunni: Síðustu sýningar á leikritinu um Kaj Munk í Hallgrímskirkju Mjög góð aðsókn hefur verið að sýning- um á leikritinu um Kaj Munk, sem sýnt er í Hallgrímskirkju. En nú fersýningum senn að fækka. Verða aðeins örfáar sýningar í viðbót. Næstu sýningar verða sunnud. 8. nóv. kl. 16:00 og á mánudagskvöldið 9. nóv. kl. 20:30. Miðasala er hjá Eymundsson og við innganginn í kirkjunni. Einnig er hægt að panta miða í símsvara allan sólarhringinn í síma 14455. Listsýning frá Hvítarússlandi í húsakynnum MÍR, Vatnsstíg 10, stendur nú yfir sýning á myndlist og listmunum frá Sovétlýðveldinu Hvítar- ússlandi. Sýningin að Vatnsstíg 10 er opin virka daga kl. 17:00-18:30, en á laugardögum ogsunnudögum kl. 14:00-18:00. Aðgang- ur er ókeypis. Sunnudagsferð Útivistar 8. nóv. Kl. 13:00 Ósmelur - Hvalfjaröareyri. Létt ganga á strönd Hvalfjaröar. Bagga- lútartíndir. Brottförfrá BSÍ, bensínsölu. Sunnudagsferð F.í. 8. nóv. Vogar - Vogastapi - Njarðvík. Ekið suður í Voga og gengið þaðan. Létt gönguferð fyrir alla. Fararstjóri Hjálmar Guðmundsson. Farið veröurfrá Umferð- armiðstöðinni að austanverðu. Farmiðar við bíl (600 kr.). Ferðafélag íslands

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.