Tíminn - 07.11.1987, Blaðsíða 23
Laugardagur 7. nóvember 1987
Tíminn 23
Hoffmenn framtíðarinnar
Hoffmenn á
Jake’ L*'sa heldur
Hér veifar Cybill til Ijósmyndara um leið og bíllinn renndi af stað frá
sjúkrahúsinu.
Frá brúðkaupinu:
Þau Cybill og Bruce Oppenheim giftu sig í japönskum sloppum og skáluðu
í kampavíni.
Cybill Shepherd
(í sjónvarpsþáttunum „Hasarleikur")
fæddi tvíbura
.okt.
fHér ‘ji « ÞautZ\T,eÍkarikenZíZrkíUf^ybUl
egar Cybill Shepherd og Bruce Oppenheim, kírópraktor eða
hnykklæknir, gengu í hjónaband s.l. vor lýstu þau því yfir að þau
ættu von á barni. Og til að staðfesta fréttina þá voru tveir litlir
barnavagnar sem skreyting á brúðkaupsborðinu, - ég geng
nefnilega með tvíbura ! sagði Cybill hin ánægðasta.
Stjórnendur sjónvarpsþáttanna
„Moonlighting" - eða Hasarleikur,
eins og þættirnir eru kallaðir á
íslensku, voru ekki sáttir við að
hætta upptöku, og það var reynt að
breyta söguþræðinum þannig að
söguhetjan „Maddie“ - sem Cybill
leikur - væri barnshafandi.
En það gekk ekki vel í sumar
fyrir leikkonuna að standa við sína
samninga. Hún var alltaf meira og
minna lasin og mest hrædd um að
börnin fæddust fyrir tímann.
Cybill varð að taka sér barns-
burðarfrí strax í júní, en börnin
fæddust ekki fyrr en í byrjun
október.
Það var löng og erfið fæðing
þegar tvíburarnir komu í heiminn.
Bruce, eiginmaður Cybill, var auð-
vitað viðstaddur og hann tók upp á
myndband þegar börnin fæddust.
Foreldrar Cybill voru líka viðstödd
fæðinguna og Clementine, 8 ára
dóttir Cybill frá fyrra hjónabandi,
beið spennt á sjúkrahúsinu og fékk
að sjá börnin alveg nýfædd.
Dóttirin fæddist fyrst. Hún var
rúmar 11 merkur og pabbinn, sem
er læknislærður, tók á móti henni.
Sonurinn fæddist stuttu síðar og
var stærri. Hann var um 14 merkur.
Clementine hrópaði upp yfir
sig:“Mikið á ég fallegan bróður og
systur. Ó, mamma, hvað við eigum
gott!“ Allir voru svo ánægðir og
hlógu og grétu í einu, að sögn
föðurins.
Cybill fór heim á 4. degi, og þau
ætluðu að reyna að snúa á blaða-
mennina og ljósmyndarana sem
biðu stanslaust við sjúkrahúsið.
Fengin var kona sem í fljótu
bragði líktist Cybill til að fara út
um aðaldyrnar með sólgleraugu og
tvö burðarrúm og út í bíl sem beið,
- en sjálf fór Cybill og maður
hennar bakdyramegin með börnin
út í annan bíl. En einhverjir ljós-
myndararnir voru það naskir að
þeir sáu til þeirra og náðu mynd
þegar þau voru að renna af stað.
Cybill veifaði til þeirra brosandi út
að eyrum.
Cybill var orðin mjög þung á sér og
leið illa mestallan meðgöngutím-
ann. „Níu mánaða martröð er
lokið með gleði- og hamingju-
stund“, sagði hún eftir erfíða fæð-
ingu tvíburanna
USTIN Hoffman er aUtaf
jafn strákslegur, þó hann
sé kominn á sextugsaldur-
inn og bráðum getur hann kallað
sig sex bama föður. Synd væri
að segja að Dustin líktist hinni
sígildu kvikmyndahetju, hann
er aðeins 168 sm hár, með allt of
stórt nef, andUt eins og ógróið
hraun og siginaxla eins og flaska,
að eigin sögn. Hvað skyldi það
svo gera til, þegar heildin er
einkar aðlaðandi og hæfileikarn-
ir ótvíræðir?
Hann hefur gott skipulag á
öllum hlutum, bæði í starfi og
einkalífi, þó til skilnaðar kæmi
frá dansmeynni Anne Byrne eftir
langt og oftast gott hjónaband.
Fyrir átti hún dótturina Karinu,
sem Dustin ættleiddi seinna.
Saman áttu Dustin og Anne síðan
Jenny, sem nú er 17 ára. Sam-
bandið við dæturnar er prýðilegt,
þó Dustin hafi kvænst aftur fyrir
sjö árum. Sú heitir Lisa Gott-
segen og er nær 20 árum yngri en
Dustin. Þau eiga von á fjórða
barni sínu, en fyrir eru Rebecca,
Jake og Maxwell.
Lisa og Dustin eru einkar
heimakær og vita vel að þau njóta
lífsgæða, sem fáum auðnast. Þess
vegna gefa þau hluta tekna sinna
illa stöddum börnum. Dustin veit
svo sem hvað það er að vera
einmana og fátækur. Það var
ekki fyrr en í menntaskóla, að
dömurnar komu auga á þennan
feimna náunga, sem enn á erfitt
með að skilja, að hann eigi nóg
til hnífs og skeiðar og rúmlega
það.
- Börnin eru framtíð okkar og
það mikilvægasta í lífinu, segir
hann.
- Ég hlakka óskaplega til að
verða faðir einu sinni enn og
hefði ekkert á móti því að gera
eins og Chaplin. Hann var kvænt-
ur í 35 ár og eignaðist átta börn...