Tíminn - 07.11.1987, Síða 4
4 Tíminn
Laugardagur 7. nóvember 1987
Útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
Mercury Topas . . . árg. 1987
Toyota Corolla 1300 . . . . . árg. 1987
Nissan Bluebird . . . árg. 1987
Lada Vaz . . . árg. 1986
Lada station 1500 .... . . . árg. 1986
Renault 9A . . . árg. 1985
Audi 80 cc . . . árg. 1985
Daihatsu Charmant . . . . . . árg. 1982
Saab 900 Turbo . . . árg. 1982
Mazda 323 1100 . . . árg. 1981
BMW316 . . . árg. 1981
Daihatsu Charade .... . . . árg. 1981
Saab 99 GL . . . árg. 1980
Honda Accord . . . árg. 1979
Honda Accord . . . árg. 1979
Auto Bianchi . . . árg. 1977
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 9. nóvember 1987, kl.
12-16.
Á sama tíma:
í Borgarnesi:
Lada station...............árg. 1986
Á Reyðarfirði:
Krani Grove LP 275 ........árg. 1971
Á Neskaupstað:
Lada Lux 1500 .............árg. 1987
í Keflavík:
Honda MB 50 bifhjól .......árg. 1986
Á Stöðvarfirði:
VW Jetta ..................árg. 1985
Á Grundarfirði:
Daihatsu Charmant..........árg. 1979
Á Hvammstanga:
Lada 2130 .................árg. 1982
Datsun pickup .............árg. 1977
Volvo 144..................árg. 1974
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga
g.t. Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna
fyrir kl. 12, þriðjudaginn 10. nóvember 1987.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMULA 3 106 R£VKJAV1K SIMI (9U6BHU
Verkfræðingar
tæknifræðingar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða
rafmagnsverkfræðing eða tæknifræðing til starfa
við áætlanagerð við raforkuvirki. Kunnátta í Fortr-
an-forritun æskileg.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og m.a.
aðgang að stóru tölvukerfi, sem nota má við
áætlanagerð.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
686222.
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
talsímaverði hjá ritsíma Símstöðvarinnar í Reykja-
vík.
Vélritunarkunnátta áskilin ásamt einhverri tungu-
málaþekkingu.
Upplýsingar í síma 26000.
Heilbrigðisráðherra um framtíð Kópavogshælis:
Hælið verði eingöngu
heilbrigðisstofnun
Guðmundur Bjarnason heilbrígðis- og tryggingaráðherra.
í fyrirspurnartíma á Alþingi ný-
lega svaraði Guðmundur Bjarnason
heilbrigðis- og tryggingaráðherra
fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar
(Ab.N.e.) og Svavars Gestssonar
(Ab.Rv.) um hvað ráðherrann hygð-
ist með Kópavogshæli í framtíðinni.
Heilbrigðisráðherra sagði í svari
sínu að það hefði verið stefna heii-
brigðisyfirvalda í mörg ár að allir
sem af hælinu geta útskrifast flytji
þaðan í sambýli eða annað húsnæði,
því Kópavogshælið væri heilbrigðis-
stofnun og eins og á öðrum slíkum
stofnunum væri stefnt að því að
vistmenn dveldust þar ekki lengur
en nauðsyn bæri til.
Rakti Guðmundur síðan efni sér-
stakrar reglugerðar frá 1985 um
skipulag og hlutverk Kópavogshælis
þar sem verkefni þess er sagt vera að
taka til þjálfunar, uppeldis og vistun-
ar vangefna, sem sakir fötlunar sinn-
ar þurfa að dvelja á sjúkrahúsum. í
bráðabirgðaákvæði þessarar reglu-
gerðar er gert ráð fyrir að á næstu 10
árum verði útskrifaðir a.m.k. 75
einstaklingar á sambýli eða viðeig-
andi stofnanir í heimabyggð, þannig
að miðað við núverandi húsakost
verði í framtíðinni ekki fleiri en 100
vistmenn á hælinu.
Reynt hefur verið að framkvæma
þessa reglugerð, en lítil fækkun
orðið þar eð sambýli fyrir erfiða
einstaklinga vantar og mikil ásókn
er um vist á hælinu. Heilbrigðisráð-
herra sagði að skiptar skoðanir væru
meðal sérfræðinga um hversu hratt
unnt væri að útskrifa vistmenn af
hælinu. Hins vegar væri ljóst að
miklar breytingar væru fyrirsjáan-
legar á rekstri Kópavogshælis næstu
10-15 árin og megináherslan yrði þar
á að hælið verði eingöngu heilbrigð-
isstofnun. Þar hefði nýlega verið
ráðinn hjúkrunarforstjóri til að
leggja áherslu á þá stefnu.
Þá sagði Guðmundur: „Hversu
hröð sem þessi þróun verður hafa
ríkisspítalar mikla þörf fyrir húsnæði
Kópavogshælis bæði fyrir öldrunar
og endurhæfingarþjónustu strax og
þar losna pláss. Húsnæði öldrunar-
lækningadeildar í Hátúni hefur verið
sagt upp. Nýverið hefur í stjórnar-
nefnd ríkisspítala verið rætt um
hugsanlega vistun heila- og mænu-
skaddaðra á Kópavogshæli."
„Engar formlegar umræður hafa
farið fram innan stjórnarnefndarinn-
ar um hugsanlega sölu á hælinu eða
lóð þess og hvernig sem mál þróast
er ljóst að ríkisspítalar og heilbrigð-
isþjónustan almennt hefur mikla
þörf fyrir bæði húsnæði og lóðar-
rými,“ sagði heilbrigðisráðherra.
ÞÆÓ
Iðntæknistofn-
un gefin málm-
húðunartæki
Eutectic-Castoplin gaf Málm-'
tæknideild Iðntæknistofnunar ný-
lega málmhúðunartæki í tilefni af 50
ára afmæli rannsókna í þágu ís-
lenskra atvinnuvega. Tæki þessi eru
t.d. notuð við húðun slitþolins lags,
bæði til viðgerða og framleiðslu. Á
næstunni eru fyrirhuguð námskeið í
notkun tækjanna.
Á myndinni má sjá Georg Ranz
frá Castolin sýna starfsmönnum
Málmtæknideildar ITÍ hvernig tækin
eru notuð.
T öf ratöl va komin í
Bókasafn Kópavogs
Tæknin hefur verið tekin í notkun
á Bókasafni Kópavogs, en þar hefur
nú verið tengd ljóspennatölva sem
fylgist með öllum útlánum á bókum,
plötum og myndböndum, auk þess
sem hún reiknar sjálf vanskilasektir
ef skilað er of seint og segir til ef
bókasafnsskírteini er útrunnið. Þá
safnar tölvan og geymir upplýsingar.
um hve oft einstakar bækur eru
lánaðar út og hve lengi þær eru í láni.
Þessi tækninýjung hefur verið í
undirbúningi í eitt ár og byggir hún
á því að bækur, útlánsskírteini og
önnur gögn eru númeruð með svo-
nefndu rimlaletri sem sérstakur
ljóspenni er látinn renna yfir þegar
höndlað er með gögn til og frá
safninu.
Margir nýir möguleikar opnast
með þessu nýja tölvukerfi sem bygg-
ir á skráningu á tölvu Kópavogsbæj-
ar og hlýst mikið hagræði af kerfinu,
en gert er ráð fyrir að stofnkostnað-
urinn við uppbyggingu kerfisins
borgi sig upp á einu ári.
Stefnt er að því að lánþegar og
gestir Bókasafns Kópavogs geti sjálf-
Svíar hafa nú skipt um sendiherra
sinn hér á landi. Nýskipaður sendi-
herra Svíþjóðar á íslandi, hr. Per
Olof Forshell, afhenti forseta
íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur,
ir leitað að bókum og öðrum gögnum
í tölvunni og nota við það mjög
fullkomið orðaleitakerfi, sem einfalt
er í notkun. Auk þess verður hægt
að leita í fundargerðum bæjarráðs
Kópavogs að umfjöllun og afgreiðslu
málaflokka.
trúnaðarbréf sitt á þriðjudag. Utan-
ríksiráðherra Steingrímur Her-
mannsson var viðstaddur afhending-
una.
Svíar skipta
á sendiherra