Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 5

Tíminn - 07.11.1987, Qupperneq 5
Laugardagur 7. nóvember 1987 Tíminn 5 Skýring á stööugt aukinni ásókn í Glasgow-ferðir? „Frjáls" föt hækka og hækka Verð tilbúins fatnaðar hefur hækkað um 84% frá því í júlí 1985, þ.e. mánuðinum eftir að vefnaðar- vörukaupmenn fengu langþráð álagningarfrelsi á vörursínar. Aðr- ar vefnaðarvörur hafa hækkað um 64% og skófatnaður um 62%. 1 heild hefur vísitala framfærslu- kostnaðar hækkað um 52% á sama tíma. Verð á tilbúnum fatnaði, eins og það er mælt í vísitölu framfærslukostnaðar, hefur því hækkað um rúmlega 21% umfram almennar verðlagshækkanir á þessu tímabili. Svo litið sé á skemmra tímabil má nefna að frá „þjóðrsáttinni" í febr. 1986 hefur tilbúinn fatnaður hækkað um 48%, en vístialan í heild um 27%, þar til nú í október s.l. Fatnaðurinnn hefur því hækkað 16% umfram vísitöluna. Glasgow-verð ennþá bara í Glasgow Tæpast hefur þessi þróun orðið til þess að draga úr áhuga fólks á Glasgow-ferðum þeim sem kaup- menn eru nú hvað sárastir út í að því er fram hefur komið í fjölmiðl- um. Verð á fatnaði hér á landi virðist enn vera að fjarlægjast „Glasgow-verðið“ í stað þess að nálgast það, eins og svo fjálgleg orð voru höfð um á fréttamanna- fundi Félags ísl. stórkaupmanna fyrr á þessu ári. Erfitt sýnist að skýra hækkanir eingöngu með gengisþróuninni. Á sama tíma og tilbúinn fatnaður hefur hækkað um 48%, önnur vefnaðarvara um 37% og skór um 33% hefur gengi helstu gjaldmiðla breyst sem hér segir: Dollarinn hefur lækkað um 8%, portúgalska myntin staðið í stað (fáum þaðan t.d. mikið af skóm), gengi sterl- ingspundsins hefur aðeins hækkað um 5%, sænska krónan 9%, gjald- miðlar Spánar, Finna, Frakka og ítala hækkað frá 12-15% ogdanska krónan um 17%. Hollenska flórín- an og v-þýska markið hafa hins vegar hækkað í kringum 23%, sem er lang mesta hækkunin frá febrúar 1986. Kaupmenn fögnuðu frelsinu Þessi niðurstaða er ekki síst athyglisverð í ljósi þess að ailt frá 1981 og fram á mitt ár 1985 hækk- aði fatnaðarliður framfærsluvísit- ölunnar nokkurnveginn í takt við vísitöluna í heild. Þann 1. júní fögnuðu vefnaðarvörukaupmenn síðan fullu álagningarfrelsi. „Vefn- aðarvörukaupmenn eru ekki í nokkrum vafa um það að þessi breyting á verslunarháttum á eftir að koma öllum til góða, viðskipt- avinum okkar og kaupmönnum," sagði formaður þeirra á fréttam- annafundi sem félagið hélt af þessu tilefni. ... en hver hefur grætt? Hefur þessi breyting orðið við- skiptavinunum til góða? Svo tekin séu dæmi um þróun framfærsluvís- itölunnar frá því hún var sett á 100 í febrúar 1984 kemur í Ijós að í maí 1985 var hún komin í 135 stig, en fatnaðurinn í henni 131 stig, þ.e. hafði hækkað minna. Síðan hafa hlutirnir heldur betur snúist við sem fyrr segir. Nú í október var framfærsluvísitalan 214 stig, en fatnaðarliður hennar 243 stig. Þarna er unt að ræða fatnaðarliðinn í heild, en verð tilbúna fatnaðarins hefur sem fyrr segir hækkað um- talsvert meira en vefnaðarvara og skór. Svo síðustu dæmi séu tekin þá hækkaði verð tilbúins fatnaðar um 3,78% frá ágúst til september og aftur 4,74% til október. Slíkar hækkanir svara til um 65% hækk- ana séu þær umreiknaðar til heils árs. - HEI Tímamynd: Pjetur. Þróun vísitölu framfærslukostnaðar á undanförnum árum: Matur hækkað 9% umfram vísitölu Mcira en áttfoldun á verði fatnaðar og sömuleiðis matvörum frá 1981 er meðal þess sem við getum lesið úr úr þessu línuriti Hagstofnunnar. Á sania tíma hefur vísitalan í heild rúmlega sjöfaldast, en hún er sá mælir sem t.d. aukning eða niinnkun kaupmáttar er miðuð við á hverjum tíma. Kostnaður við rekstur einkabílsins hefur hins vegar „aðeins" ilmmfaldast á sama tínia. Til samanburðar má geta þess að tímakaup hufnarverka- nianna var talið 24,54 kr. i árs'byrjun 1981. Það þyrfti nú að vera um 225-230 kr. til að duga fyrir sama skammti af mat og fötum í kringum 200 kr. til að hálda meðalkaupmætti, en aöeins um 150 kr. á tímann til kaupa á bíl og bensíni. Þeir sem ganga vel klæddir og snyrtir, og borða mikinn fisk, að ekki sé talað um ef það er á veitingahúsum, en hafa á hinn bóginn misst ökuskírteinið og eiga því ekki bíl - hafa tæpast fundið fyrir góðærinu eða þeirri kaup- ináttaraukningu sem svo mjög hef- ur verið rætt um í ár og í fyrra. Þetta m.a. má icsa út úr þróun vísitölu framfærslukostnaðar á þessu ári og því síðasta. Þeir sem hins vegar sitja heima (rafmagn og hiti) og lifa að mestu á grænmeti með smjöri ásamt sætu kafti og hcimabökuðum kökum, milli þess sem þeir þeysa um á nýju bílunum sinum hafa notið mikilla kjara- bóta. Verðhækkanir mjög mismunandi í nýjasta hefti Hagtíðinda birtist línurit sem vekur athygli á hve vcrðhækkanir hafa orðið mjög svo mismunandi á hinum ýmsu liðum framfærslukostnaðarins, sérstak- lega frá tima „þjóðarsáttarinnar'* í ársbyrjun 1986. Einna mest kcmur á óvart hve verð á fatnaði hefur síðan hækkað mikið umfram flest annað, eða 44%, sem er um 13% umfram hækkun framfærsluvísi- tölunnar. En um þetta atriði er fjallað sérstaklega hér að ofan. Framfærsluvísitalan var sett á 1(X) í janúar 1981. í febrúar 1984 var hún komin í 397 stig, sem þýðir að verðlag hafði að meðaltali hækkað um 297% eða um það bil þrefaldast á þessum 3 árum. Á þessu tímabili fylgdi matvaran nokkurnveginn meðallaginu, sömuleiðis fatnaðurinn og margir aðrir liðir, en t.d. kostnaður við einkabílinn hækkaði heidur minna og sömuleiðis heimilisbúnaður. Helstu frávikin voru gífurieg hækk- un orkukostnaðar, eða 64% um- fram verðbólguna og á hinn bóginn hvað áfcngi og tóbak dróst aftur úr. Framfærsluvísitalan var svo aft- ur sett á 100 í febrúar 1984. í febrúar 1986 hafði hún hækkað í 168, þ.e. um 68% og nú í októbcr s.l. í um 214 stig, seni svarar til rúmlega 27% hækkunar frá febrúar 1986. Huggun harmí gegn 1983 Meðfylgjandi línurit sýnir okkur þróun framfærsluvísitölunnar alit frá 1981 og sömuleiðis þróun 4 iiða hennar, sem samtals mynda um helming útgjaldaiiða vísitöiu- grundvallarins. Sem fyrr segir hækkuðu hclstu kostnaðarliðir vísitöiunnar nokkuð svipað frá 1981 fram í ársbyrjun 1984, nema hvað ríkið var svo „vinsamlegt" að halda áfengisverði niðri á „kaup- ránsárinu" 1983 - kannski til að staurblankur almúginn hefði sér þó eitthvað til huggunar í öllu skuldabaslinu. „Brennivínsveisl- unni“ lauk síðan í ársbyrjun 1984 og verð á áfengi hefur síðan hækk- að verulega umfram annað verðlag (sem síður en svo hefur þó dregið úr neyslunni). Matur hækkað 9% meira en vísitalan Frá ársbyrjun 1984fórhinsvegar að verða töluverður munur á verð- hækkunum einstakra liða vísitöl- unnar. Verð á matvörum tók á rás frá miðju ári 1984 og hækkaði um 9% meira en en almennt verðlag fram að „þjóðarsátt" f byrjun 1986, cn hefur síðan nokkurnveginn fylgt hækkun vísitölunnar í heild. Þessi umframhækkun matvörunnar 1984 og 1985 veldur því að vísitala matvöru er nú í október 232 stig, á meðan vísitalan í heild er214 stig, sem fyrr segir. Okrað á „uppunum“ Segja má að verðhækkanir á fatnaði hafi nokkurnveginn fylgt meðalhækkunum annnars verðlags alltfráárinu 1981,þartilfatakostn- aðurinn tók á rás síðari hluta ársins 1985. Fatnaður hefur síðan verið í fremstu röð í „verðhækkunar- kapphlaupinu", þ.e. hækkað langt umfram flesta aðra liði vísitölunn- ar, með einni undantekningu: Svipaðar hækkanir hafa átt sér stað í lið sem kallast aðrar vörur og þjónusta, en hann spannar hluti .eins og: Snyrtivörur og snyrtingu, ferðavörur og skartgripi, veitinga- húsa- og hótclþjónustu og aðra persónulega þjónustu. Þcssar vör- ur og þjónusta hafa hækkað nánast jafnt og fatnaðurinn, hvort sem litið er á tímabilið frá 1984, eða frá ársbyrjun 1986, eða um 14% um- fram almennt verðlag. „Bíiadellugæjar11 fleytt rjómann Rekstrarkostnaður „þarfasta þjónsins" (einkabílsins) stóð nokk- urnveginn í stað 1984 og hækkanir á honuni voru síðan heldur í lægri kantinum fram að „Þjóðarsáttinni um þarfasta þjóninn“. Þá snar- lækkaði allur einkabílakostnaður. Og þrátt fyrir nokkrar hækkanir framan af þessu ári, tclst rekstur einkabíisins nú í október aðeins tæplega 6% dýrari en hann var í ársbyrjun 1986 og aðeins 65% dýrari en í ársbyrjun 1984. ...en öreigaranir blætt Til að gefa dæmi um hvað þarna er um gífurlegan mun að ræða miðað við annað verölag, þá þýðir þetta t.d. að 200 þús. kr. bíll (bílakostnaður) í febrúar 1984 ætti nú að kosta um 330 þús. kr. Matvara fyrir sömu upphæð hefði hins vegar hækkað í um 465 þús. kr. og fatalager í nær luílfa milljón, eða um 490 þús. kr. Af þessu má að nokkru ráða að lágiaunafóik, sem fyrst og fremst vcrður að treina kaupið sitt í brýnustu nauð- synjar - fæði og klæði - hefur ekki notið þeirrar kaupmáttaraukning- ' ar sem mæld er með framfærslu- vísitölunni. „Bíladcllufólk" má hins vegar hrósa happi. Eini Ijósi punkturinn fyrir þá auralitlu er, að hækkun á upphitun- arkostnaði hefur vcrið álfka lítil og á bílakostnaðinum frá 1984 og raímagnsverðið hefur aðeins hækkað um 20% á hálfu 3. ári. Sfminn er sömulciðis aðeins um 21% dýrari en 1984 (lækkaði á- tímabili) þó hann hafi hins vcgar. hækkað um 30% frá febrúar f fyrra, sem er umfram hækkun vísitölunnar í heild. Ef litið er á allt tímabilið frá 1984 þar til nú í októberbyrjun hafa tveir liðir hækkað iangmcst og m.a. segja ennþá meira en fatnað- urinn - annarsvegar heilsugæsla og hins vegar tóbak. Báðir hafa þessir liðir hækkað í kringum 175%, eða ’sem svarar um 29% meira en vísitalan í heild. Er athyglisvert að „vísitölufjölskyldan" er nú orðið talin eyða meituí tóbak heldur en samtals f hita og rafmagn, eða um 39 þús. kr. á ári. Með aigeru tóbaksbindindi gætu íslendingar því sparað sent þvf næmi að þeir hefðu ókeypis rafmagn og hita, þ.e. ef vægi þessara liða f vfsitölu- grundvellinum er nálægt lagi. Húsbúnaðurinn á meðaltalsnótunum Liðurinn húsgögn og heimilis- búnaður (húsgögn, gólfteppi, raf- magnstæki, búsáhöld, vefnaðar- vara til heimilisnota og fleira) hefur að meðaltali hækkað nokkurnveg- inn í takt við hækkun vísitölunnar í heild, hvort sem litið er á allt tfmabilið frá 1984, eða frá „þjóðar- sátt“. í því sambandi verður þó að hafa í huga að tollar hafa verið lækkaðir á kælitækjum og sjón- varpstækjum á þessu tímabili. Svipað er að scgja um verðhækkan- ir á ferðakostnaði með almenn- ingsfarartækjum, þ.e. að hann hef- ur hækkað svipað og vísitalan t heild frá.1984 þar til nú f október. Til 1986 hækkaði þessi liður minna en vísitalan, en síðan töluvert urn- fram meðalhækkanir f fyrra og f ár. -HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.