Tíminn - 07.11.1987, Síða 7
Laugardagur 7. nóvember 1987
Tíminn 7
Loðdýr alin á fyrsta
flokks nautakjöti
Refir og minkar landsins hata þaö
ekki slæmt þessa dagana. Loðdýra-
fóðurstöðvar víðsvegar um land hafa
frá því sl. sumar fengið umtalsvert
magn frá sláturhúsunum af bæði
fyrsta og annars flokks nauta- og
ærkjöti ti! að hakka út í daglegan
grautarpott sinna neytenda. Mest af
nautakjötinu er frá 1985 og 1986 en
stór hluti kindakjötsins kom beint úr
sláturhúsunum í haust. Fóðurstöðv-
arnar þurfa að greiða einn lítinn
fimmkall fyrir kílóið af nautakjöti
en sjö krónur fyrir kindakjötskílóið.
Eitthvað hefur framkvæmd á
dreifingu kjötsins til fóðurstöðvanna
farið úr böndunum því að fyrir
stuttu fékk fóðurstöð Brákarey í
Borgarfirði 4 tonn af fyrsta og annars
flokks nautakjöti til blöndunar í
loðdýrafóðurpottinn. En það sem
meira er; kjötið var af nýslátruðu,
árgerð 1987. Fóðurstöðin borgaði
eins og áður fimm krónur fyrir
kílóið. Þess ber að geta í þessu
sambandi að heildsöluverð á 1.
flokks nautakjöti er nú tæpar 272 kr.
Því má áætla raunvirði kjötsending-
arinnar hátt í eina milljón kr. Fóður-
stöðin þurfti hinsvegar að greiða 20
þúsundir fyrir kjötið.
Skýringin á veislu loðdýranna eru
samningar frá því í sumar um að
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
aðstoði framleiðendur mjólkur og
nautgripaafurða við að losna við 500
tonn af gömlu og illseljanlegu
nautakjöti.
Að sögn Jóhannesar Torfasonar
formanns stjórnar Framleiðnisjóðs
er þetta dæmi þannig fjármagnað að
framleiðendur kjötsins fá gert upp
að grundvallarverði. Til að það náist
þarf í kringum 100 milljónir. Afslátt-
ur sláturleyfishafa og kjötverðið
gera í kringum 20 milljónir. Um
Til sölu
TOYOTA
CRESSIDA GL.
ARG. 80.
Ekinn aðeins
65 þús. km.
mjög góðu lagi.
Upplýsingar
í síma
91-685582
ummF
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
áttatíu milljónir koma í raun gegn-
um Framleiðnisjóð, en framleiðend-
ur hafa síðan afsalað sér endur-
greiðslu kjarnfóðurgjalds. „Gert er
ráð fyrir að nettogreiðsla Fram-
leiðnisjóðs verði 15-20 milljónir,
þannig að í raun taka framleiðendur
á sig 65 milljónir kr í þessu dæmi,
þ.e.a.s, beint í gegnum það að þeir
fái ekki endurgreiðslu kjarnfóður-
gjalds eins og ella hefði verið. En
rétt er að taka fram að líta má svo á
að Framleiðnisjóður fjármagni þetta
vegna þess að endurgreiðsla kjarn-
fóðurgjaldsins er miklu hægari en
afgreiðslan á kjötinu", sagði Jóhann-
es Torfason.
Hann sagði ennfremur að þessi
aðgerð hefði verið nauðsynleg til að
ná markaðsjafnvægi. Sér virtist sem
þetta ætlaði að skila tilætluðum ár-
angri. Því væri mjög ósennilegt að
grípa þyrfti síðar til svipaðra að-
gerða. Jóhannes taldi að greiðslur
Framleiðnisjóðs til bænda fyrir slátr-
un ungkálfa væri einnig mikilvægur
hlekkur í jafnvægisleit á markaðnum
því framleiðslan á þessu og næstu
tveimur árum yrði af þeim sökum
mun minni en ella.
Ekki tókst að fá upplýsingar hjá
Stéttarsambandi bænda í gær um
hve stór hluti umræddra 500 tonna
hefði þegar verið settur í loðdýrafóð-
ur, en í lok september var búið að
afgreiða um 300 tonn. óþh
Starfsfræðslunefnd
fiskvinnslunnar
150 REYKJAVÍK - SÍMI 686095
V erkstj óranámskeið
fískvinnslunnar eru
nú í fullum gangi.
Starfsfræðslunefnd fisk-
vinnslunnar hefur skipu-
lagt námskeið fyrir verk-
stjóra í fiskvinnslu og
verða þau haldin nú í
haust og í vetur.
Námskeiðin verða haldin
í Borgarnesi og standa
samtals í sex kennslu-
daga sem skiptast í tvær
þriggja daga annir. Þátt-
takendur mæta í Reykja-
vík á miðvikudagskvöldi
@g eftir stuttan kynning-
arfund er ekið þaðan
með rútu í Borgarnes. Á
laugardagseftirmiðdegi
er ekið til Reykjavíkur og
lýkur námskeiðs-
önnunum þar með
kvöldverði í boði
sj ávarútvegsráðherra
Meðal leiðbein-
enda á námskeið-
unum verða:
Álfheiður Steinþórs-
dóttir sálfræðingur,
40 verkstjórar í tveim 20
manna hópum geta set-
ið hverja námskeiðsönn.
Þátttökugjald er 15.000
kr. fyrir hvora önn. Inni-
falið í gjaldinu er greiðsla
á öllum kostnaði, þar
með töldum ferðum til og
frá Borgarnesi ásamt öll-
um uppihaldskostnáði í
Borgarnesi.
Námskeiðin verða haldin
á eftirfarandi tímum:
1. önn, nr. 2:
4.-7. nóvember 1987 og
vikulega eftir það, eftir
þörfum.
2. önn, nr. 1:
20.-23. janúar 1988 og
vikulega eftir það, eftir
þörfum.
Ekki verður bókað á
seinni námskeið fyrr en
fullbókað er á hin fyrri.
Fram til þessa hefur
framboð á námskeiðum
fyrir verkstjóra fisk-
vinnslunnar verið lítið en
þau námskeið sem nú er
boðið upp á eru gerð
sérstaklega fyrir þá.
Guðfinna Eydal
sálfræðingur,
Gunnar Aspar
verkstjóri,
Magnús Ólafsson
sjúkraþjálfi,
r; J
Rórður M. Þórðarson
tæknifræðingur,
Á fyrri önn verður lögð
megináhersla á samstarf
og samvinnu á vinnu-
stað, líkamsbeitingu og
stjórnun og skipulagn-
ingu starfsþjálfunar.
Magnús H. Ólafsson
mun fjalla um líkamsbeit-
ingu við vinnu og þá
möguleika sem verk-
stjórar hafa í dag til að
viðhalda góðri heilsu
starfsfólks.
Guðfinna Eydal og Álf-
heiður Steinþórsdóttir
munu kenna verstjór-
um markvissa sam-
skiptatækni og fjalla um
samstarf og samvinnu á
vinnustað.
Fórður M. Þórðarson og
Gunnar Aspar munu
síðan fjalla um starfs-
þjálfun og skipulagningu
hennar, en í dag, með
aukinni tækni í fiskiðnaði
og takmörkuðu framboði
af starfsfólki, er þessi
þáttur mikilvægari en
nokkru sinni áður.
Á seinni önn verður
áfram fjallað um sam-
starf og samvinnu á
vinnustað, en einnig um
stjórnunarhlutverk verk-
stjórans, túlkun kjara-
samninga og ýmsa aðra
þætti tengda verkstjóra-
starfinu.
Á kvöldin á báðum önn-
um verður leitast við að
fá sérfræðinga til að
halda fyrirlestra og
stjórna umræðum um
nútíma verkstjórn, fram-
leiðnimál, tækniþróun í
fiskiðnaði, markaðsmál
o.fl.
Verkstjórar eru hvattir til að skrá sig hið fyrsta á skrifstofu
starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar.