Tíminn - 07.11.1987, Blaðsíða 9

Tíminn - 07.11.1987, Blaðsíða 9
Laugardagur 7. nóvember 1987 Tíminn 9 Frá flutningi stefnuræðu forsætisráðherra Tímamynd: BREIN. B MM ! éí ■ ® **■ f mmU 1 S 4:Í hans, ekki síst þar sem áhrif Morgunblaðsins eru minnst.“ Þetta er sérkennileg kveðja til Morgunblaðsins, sem lítur á sjálft sig sem blað allra lands- manna án tillits til stjómmála- skoðana. Þá er þarna hafður uppi sá gamli áróður, að flokks- pólitísk málgögn séu tíma-- skekkja. Haldi einhver að Morg- unblaðið sé ekki flokkspólitískt, jafnvel nefndarmenn í Sjálf- stæðisflokknum, þá eru þeir ein- faldiega ekki læsir. Naflaskoðun sú á Sjálfstæðisflokknum sem Morgunblaðið hefur tamið sér er engin vísbending um að blað- ið hafi yfirgefið flokkinn. Öll saga blaðsins er samtvinnuð sögu flokksins. Það er svo gott og blessað að Morgunblaðið skuli vera stórt, og lætur ekki á sjá í áskrift þótt Albert Guð- mundsson sigli út með sjö þing- menn um borð. En þetta nöldur um tímaskekkju á bara ekki heima í áliti um áróðursmál í Sjálfstæðisflokknum. Þaðerein- faldlega verið að tala um Morg- unblaðið og er þess að vænta að ritstjórar þess láti ásökun um tímaskekkju ekki ósvarað. Það sést nefnilega ekki alla daga að Morgunblaðið er málgagn Sjálf- stæðisflokksins. Þá daga er það blað allra landsmanna. Blöð sem gefin eru út af flokkum njóta nú meira frjálsræðis en nokkru sinni fyrr. Það er vel og vekur réttmætt traust lesenda á þeim. Eigendur flokksblaða skilja þetta, og hafa kannski skilið það lengur hvað Morgunblaðið snertir en annars staðar. Enginn hafði þó búist við að flokksmenn í nefnd hjá Sjálfstæðisflokknum skildu þetta svo vel, að þeir teldu Morgunblaðið ekki til flokksblaða. Með sama hætti er hægt að benda á tengsl DV við Borgaraflokkinn, og eru þeir þó að bera sig til við að vera frjálsir og óháðir, eins og þeir kalla það. Stj órnarandstaðan í bílamálum Helsti vandi þeirrar ríkis- stjómar sem nú situr er veik stjómarandstaða. Það er með ólíkindum hvað þingmenn stjómarandstöðu bera á borð fyrir fólk í umræðum, sem sjón- varpað er út til almennings. Þar eru sagðar bílasögur og sögur af sokkaprjóni, alveg eins og fólk sé komið á kvöldvöku á ein- hverju mannmörgu heimili við upphaf bílaaldar. Og mitt í svona uppákomum er verið að tala um virðuleika Alþingis. Auðvitað sitja þar virðulegir þingmenn og menn bera sig þinglega að í ræðustól, ávarpa forseta o.s.frv. En þegar kemur að ræðuhöldunum sjálfum virð- ist eins og hinn þinglegi þáttur skerðist. Áhorfandi að ræðu- mennskunni fer að velta því fyrir sér eftir kosningabaráttu og langvinnt stríð til að ná sæti á stól í þessu gamla húsi, hvort það geti verið að þangað lendi inn mannskapur, sem hefur ekk- ert að segja og ekkert til mála að leggja. Að minnsta kosti verða sögur af bílum og prjónaskap ekki til að efla vitund um stórt erindi stjórnarandstöðu. Af vit- legum umræðum á Alþingi spretta hugmyndir og vafalaust betri lausnir á málum. En þegar stjómarandstaðan hefur yfirleitt ekkert til mála að leggja verður umræðusviðið þrengra og því geta fylgt einhæfari niðurstöður. Það er því ekki verið að halda því fram að stjórnarandstaðan sé léleg til þess eins að hafa uppi áróður gegn henni, heldur er verið að harma þessa staðreynd í lýðræðislandi, þar sem öll sjón- armið þarf að viðra. Einn reri úti á báti Stjómarandstöðuflokkarnir eru þrír um þessar mundir og Stefán Valgeirsson að auki. Hann er hyggjuþungur að vanda og telur sig standa vörð um landsbyggðina - að manni skilst einn á báti. Stjórnarandstaða Stefáns, að svo miklu leyti sem um hana heyrist, er kannski sú besta á þingi, og sýnir það að ekki þarf stóra flokka til að tala af sannfæringu á þeim bæ. Stef- án hefur orðið illa úti í skoðana- könnun nýverið og þarf það engan að undra. Hann er að vísu ekki í skinnfeldi eins og Ingjald- ur en rær einn á báti, og oft segir fátt af einum. Hins vegar mun Stefán óhikað halda fram sann- færingu sinni og tala máli lands- byggðar. Það gerum við nú öll í raun og veru og málstaður lands- byggðarinnar verður seint yfir- gefinn frekar en málstaður allra landsmanna af þeim sem standa í fararbroddi stjórnmála í land- inu. Við erum ekki endilega samstæð þjóð, eins og dæmin sanna, en við byggjum þetta land og við viljum vinna því sem best, bæði landsbyggð og þétt- býli. Homo sapiens Kvennalistinn sækir í sig veðr- ið og eykur fylgi sitt. Samt er þetta ekki floickur heldur eins- konar stéttarfélag kvenna, sem vilja vinna að sínum málum á stéttarlegum grunni. Líklega hefði Ásmundur Stefánsson náð kjöri á þing ef hann hefði verið kona, svo auðvelt er fyrir konur að vera í pólitík með sín „mjúku“ mál. í stjómarand- stöðu fer ekki mikið fyrir konum á þingi. Þær eru ekki nýtt mannkyn í stjórnmálalegu tilliti, heldur mannkynið, homo sap- iens. Með þessu kvennakerfi mætti eins hugsa sér að örvhent- ir byðu fram í þingkosningum. Konur sækja nú fram til fremstu raða í stjórnmálum og er það mikilsvert og sjálfsagt og eðli- legt. Það er þróun sem felur varanleikann í sér. Kvennalist- inn á aftur á móti velgengni sína að þakka átökum og óánægju innan Alþýðubandalagsins. Þaðan streymir fylgið til kvenna. Svo getur farið að Kvennalistinn komist hátt í tvo tugi prósenta í fylgi fari Alþýðubandalagið í rusl á landsfundinum um helg- ina. Slík fylgisaukning mundi hinsvegar litlu breyta um styrk Kvennalistans í stjórnarand- stöðu. Konur vildu ekki setjast í ríkisstjórn og það er eins og stefnuræða og fjárlög séu frekar til óþæginda á þeim bæ. Mega ekki bera ábyrgð Löngum hefur Alþýðubanda- lagið talið sig allra flokka færast um stjórnarandstöðu. Eins og fram hefur komið er bandalag- inu eins farið og Kvennalistan- um, að þeim er ekki skapað að sitja í ríkisstjórnum. Að vísu hafa þeir álpast í ríkisstjórnir en það hefur orðið þeim dýrt af því fæst er þar mælt af fyrirhyggju eða brýnni þörf fyrir þjóðarhag. Flokkar, sem láta kjósa fulltrúa til Alþingis án þess að hafa það að markmiði að komast í ríkis- stjóm til að geta einhverju ráðið um úrslit þeirra mála, sem boð- uð hafa verið, eru til lítils gagns. Þegar svo við bætist, að í hvert sinn sem einhver ábyrgð er tekin á málum, tvístrast fylgið í allar áttir þá er eitthvað verulega rangt við stefnumið og grund- vallarkenningar flokksins. Kvennalistinn hefur tekið það ráð að biðja að frá þeim verði tekinn kaleikur stjórnarsam- starfs. Og því spyrja menn: Til hvers Alþingi? Alþýðubanda- lagið hefur dregið þann lærdóm af síðustu uppákomum í flokknum, að bandalagið megi ekki með nokkru móti sitja í ríkisstjórnum. Það þýði fylgis- tap og upplausn. Til hvers eru þeir á Alþingi?Þannig ber þetta að sama brunni hjá Kvennalista og Alþýðubandalagi. Báðir aðil- ar vilja vera að vasast í pólitík, en þeir vilja ekki undir neinum kringumstæðum bera ábyrgð á henni. Engu er líkara en bæði þessi samtök álíti, eða telji sig hafa reynslu fyrir því, að fylgj- endur þeirra skorti næga pólit- íska vitund til að leggja megi á þá ábyrgðina. Af fullum trúnaði Nú hafa komið fram á Alþingi bæði stefnuræða Þorsteins Páls- sonar, forsætisráðherra, og fjár- lagaræða Jóns Baldvins Hanni- balssonar. Utanríkisstefna Steingríms Hermannssonar hef- ur líka verið mörkuð, þar sem hæst ber færsla utanríkisvið- skipta undir hans ráðuneyti. Al- þjóð hefur fylgst með orðum og gerðum þessara ráðherra og skoðanakannanir sýna að ríkis- stjórnin nýtur trausts fylgis. Það hlýtur að vera henni bæði gleði- efni og styrkur við úrvinnslu á þeim lausnum, sem bíða fram- undan og miðast helst við að ná fram sáttum á launamarkaði án þess að komi til kollsteypu. Það er afar þýðingarmikið að stjórn- in starfi vel saman og af fullum trúnaði. Nógur tími er til stefnu fyrir sérmálin, þegar líður nær kosningum. Stjórnin er nú við upphaf tímabils sem mun reyn- ast vandasamt og erfitt á köflum. En þegar stjórn nýtur trausts þjóðar þá verður auðveldara að sigrast á vandamálum. Svo mik- ið er víst að það verða ekki framsóknarmenn sem bregðast þessu trausti, hvorki með röfli og upplausn innan flokks, nafla- skoðunum og öðru því írafári, sem mjög einkennir nú aðra flokka, eða með ótímabærum efasemdum á þingi eða innan ríkisstjórnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.