Tíminn - 11.12.1987, Page 2
2 Tíminn
Föstudagur 11. desember 1987
Framganga stjórnarfrumvarpa hangir á bláþræði og málþóf í loftinu:
Eitrað andrúmsloft
setur mark á þingið
Mikill hamagangur er nú á Alþingi. Ríkisstjórnin leggur fram
hvert stórmálið á fætur öðru og stjórnarandstaðan gagnrýnir
harðlega vinnubrögðin. Morgunfundur sameinaðs þings í gær fór
mestan part í umræður um þingsköp, þar sem þingmenn
stjórnarandstöðu gagnrýndu harkalega skipulag eða öllu heldur
skipulagsleysið á störfum Alþingis.
Albert Guðmundsson (B.Rv.) var hvað harðorðastur og hótaði
málþófi í þinginu með því að lesa upp úr Islendingasögunum í
þingsal. Þá sagði hann að fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar væri
falsað skjal.
Að loknum fyrirspurnartíma sarg-
einaðs Alþingis voru settir á skamm”-
ir fundir í deildum og þeim síðan
frestað til klukkan fimm til að gefa
nefndum tækifæri til að koma
saman. Það vakti athygli að vart var
fundarfært í efri deild þar sem þing-
menn stjórnarandstöðunnar mættu
ekki til fundar. Albert Guðmunds-
son stóð þar utan dyra og gætti þess
að þingmenn Borgaraflokksins í efri
deild, þeir Guðmundur Ágústsson,
Óli Þ. Guðbjartsson og Júlíus Sólnes
gengju ekki til fundar.
Á fundi efri deildar klukkan fimm
hélt sama dramað áfram. Jón Bald-
vin Hannibalsson fjármálaráðherra
ætlaði að mæla fyrir þremur tengd-
um frumvörpum, um söluskatt,
vörugjald og tolla, í einni framsögu-
ræðu og gerði það reyndar. Stjórnar-
andstaðan var óhress með þessa
framkvæmd og vildi fjalla um hvert
mál fyrir sig. Eftir að fjármálaráð-
herra hafði gengið á snið við tilmæli
flokksbróður síns og forseta efri
deildar, Karls Steinars Guðnasonar,
um að flytja framsögu fyrir hverju
máli, var fundi frestað og þingflokk-
sformenn og forsetar funduðu um
málið.
Deildarfundir voru síðan boðaðir
á ný klukkan hálf níu í efri deild og
klukkan níu í neðri deild og var búist
við næturfundum.
Engir þingfundir verða á morgun,
en nefndir funda og síðdegis þiggja
þingmenn heimboð forseta íslands.
Fundir verða síðan um eftirmiðdag-
inn á laugardag. Þá verður önnur
umræða um fjárlagafrumvarpið á
mánudag, en fjárveitinganefnd skil-
aði breytingartillögum sínum við
frumvarpið í gær.
Nú eru aðeins níu virkir starfsdag-
ar eftir á Alþingi þannig að afgreið-
sla mála verður að vera afar vel
smurð, en miðað við gagnrýni stjórn-
arandstöðunnar og umfang þeirra
stjórnarfrumvarpa sem afgreiða þarf
þá nálgast það kraftaverk ef tekst að
ljúka nauðsynlegum þingstörfum.
T.d. má nefna að einungis atkvæða-
greiðsla um fjárlagafrumvarpið get-
ur tekið fjórar klukkustundir.
Virðist nú einungis tímaspursmál
hvenær þolinmæði stjórnarand-
stöðunnar brestur og markviss mál-
þóf hefjast og í þeim málum bendir
margt til að Borgaraflokksmenn ríði
á vaðið. ÞÆÓ
Frímerkjaheftin nýju með land-
vættunum fjórum.
Landvættirnir
Póst og símamálastofnunin
hefur nú gefið út hefti með 12
frímerkjum af fjórum gerðum að
verðgildi 13 krónur hvert, en það
er almennt burðargjald innan-
lands og til Norðurlanda.
Þessi útgáfa er nýjung í frí-
merkjaútgáfu á Islandi þar sem
ekki eru öll merkin eins í heftinu
og hefti sem þessi hafa yfirleitt
ekki verið gefin út. Nýtt hefti
mun líta dagsins Ijós á næsta ári.
Heftin hafa mælst vel fyrir,
enda eru þau afar hentug í vasa
eða veski. Þau eru til sölu í öllum
pósthúsum og kosta 156 krónur.
Myndefni frímerkjanna er
prýða heftin eru landvættir í
skjaldarmerki íslands: Dreki,
gammur, griðungur og bergrisi.
Ráðhúsbyggingin:
Asinn kostar
420 þúsundir
Asinn viö að koma upp ráðhúsinu við Tjörnina hefur nú þegar
kostað skattgreiðendur í Reykjavík 420 þúsundir aukalega. Sam-
kvæmt tillögu verkefnastjórnar um Ráðhús Reykjavíkur samþykkti
borgarráð að taka næstlægsta tilboði í stálþil fyrir ráðhúsið þó
tilboðið væri 420 þúsund krónum hærra en það lægsta. Eini munur
tilboðsins, annar en verðmunurinn var sá að afhendingartími ódýrari
stálþiljanna sem eru bresk, var lengri, 7-12 vikur í stað 3-5 vikna
afhendingartíma hinna dýrari sem koma frá Þýskalandi.
Borgarráð samþykkti að taka dýr-
ara tilboðinu með þremur atkvæðum
sjálfstæðismanna eftir að tillaga Sig-
urjóns Péturssonar borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins, um að lægsta
tilboðinu yrði tekið, var felld af
sjálfstæðismönnum. Við afgreiðslu
málsins bókaði Sigrún Magnúsdótt-
ir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, að hún teldi óeðlilegt að lægsta
tilboðinu hafi verið hafnað á þeim
rökum einum að afgreiðslufrestur sé
fáeinum vikum lengri. Taldi hún það
dýrar vikur fyrir borgarsjóð.
Þess má geta að samkvæmt reglu-
gerðum Reykjavíkurborgar á Inn-
kaupastofnun Reykjavíkurborgar
að sjá um öll útboð og innkaup á
vegum Reykjavíkurborgar, en sam-
kvæmt tillögu borgarstjóra var sér-
stakri verkefnastjórn falið að sjá um
þau verkefni við byggingu ráðhúss-
ins. - HM
Bréf frá Jóni
Hr. ritstjóri.
í Tímanum í gær, 9. desember
1987, er á forsíðu stór fyrirsögn þar
sem því er haldið fram að ég hafi
brotið samning við Samband ísl.
samvinnufélaga um sölu á hluta-
bréfum ríkissjóðs í Útvegsbanka
íslands hf.
Þessari fullyrðingu yðar mótmæh
ég kröftuglega. Enginn samningur
hafði eða hefur verið gerður um
þetta efni við Samband íslenskra
samvinnufélaga og samstarfsfyrir-
tæki þess. Tilboð Sambandsins og
fyrirtækjanna þurfti sérstakt sam-
þykki viðskiptaráðherra til þess að
samningur gæti komist á og slíkt
samþykki var ekki gefið.
Af þeirri ástæðu er fullyrðing í
blaði yðar í gær með öllu tilhæfu-
laus og „stríðsfyrirsögn" á forsíðu
blaðsins út í hött.
Ég fer þess á leit að þér birtið
þetta bréf í blaði yðar sem fyrst.
Virðingarfyllst,
Jón Sigurðsson.
Jón Sigurðsson.
Tímamynd Gunnar.
Frá fundi S AFF á Hótel Sögu í gær.
Félagsfundur Sambandsfiskframleiðenda ályktar, að:
SAFF, SH og SIF ger i
kröfu um raungengi
Vandi flskvinnslunnar var til umræðu á Hótel Sögu í gær, þegar
seinni dagur almenns félagsfundar Félags
Sambandsfískframleiðenda fór fram. En fann fundurinn leið úr
vandanum?
„Við erum ekki með beina lausn. Við ætlum að setja okkur í
samband við aðra hagsmunaaðila, SH og SÍF og fara í viðræður og
móta stefnu í sameiningu. Við erum með ca 25% verðbólgu,
lánskjaravísitalan hefur hækkað um 20% síðustu mánuði, krónan
hefur hækkað, afurðaverð erlendis hækkaði nokkuð á árinu, en sú
þróun virðist vera að snúast við, þó ekki stefni í verðhrun og sú
fastgengisstefna sem við höfum búið við er ekki í takt við raungengi.
Stjórnvöld tala um að borga ekki til baka uppsafnaðan söluskatt og
setja á launaskatt. Við erum sem sagt að tala um gengisaðlögun,“
sagði Tryggvi Finnsson, formaður SAFF í samtali við Tímann í gær.
Tryggvi sagði að ekki væri verið vinnuplagg fyrir stjórnina til að ræða
að ræða um mikla gengislækkun, en
það sem sameiginleg nefnd hags-
munaaðila myndi ræða, væri hvernig
hægt væri að koma í veg fyrir að
gengislækkunin færi beint út í verð-
lagið, eins og gerst hefur svo oft
áður.
„Það er misgengi milli mynta og
það vegur þyngst. Þegar dollarinn
byrjaði að falla fyrir nokkru álitu
margir að hér væri aðeins um að
ræða loftbólu, en það er nú ljóst að
svo er ekki. Við gerðum því n.k.
leiðir til að komast út úr þessum
vanda“ sagði Tryggvi.
Ályktuninni, eða vinnuplagginu,
var ekki dreift, en í samtali við
Tímann, sagði Ámi Benediktsson,
framkvæmdastjóri SAFF, að álykt-
unin væri á þann veg, að:
„Við erum mjög óhressir með
afkomuna sem stafar af æðandi verð-
bólgu með fastgengisstefnu. Stjórn-
völd hafa enga stjórn á þessum
málum og hafa frekar ýtt undir
verðbólguna með ótímabærum ráð-
stöfunum. Þetta getur ekki gengið.
Hún fjallar líka um að samflot
verði með SH og SÍF og Sambandi
fiskvinnslustöðvanna um að gera
kröfu til raungengis, sem hefur
hækkað um 18% þegar að fast-
gengisstefnan átti að standa, og gera
kröfu um leiðréttingu,“ sagði Árni.
Orðrétt segir svo að lokum í
ályktun félagsfundar SAFF:
„Treysti stjórnvöld sér ekki til að
láta framboð og eftirspurn ákveða
verð á gjaldeyri á sama hátt og
annað íþjóðfélaginu, þá er nauðsyn-
legt að miða gengisskrár við að
grunnatvinnuvegirnir verði reknir
með eðlilegum hagnaði.“
Fleiri atriði voru rædd á fundin-
um, m.a. um að skuldbreytingalán
framleiðenda við ríkissjóð verði
lengd um þrjú ár til viðbótar, staða
sölu- og framleiðslumála, flutn-
ingamál og loks var rætt um hvað
menn sáu á Sjávarútvegssýnigunni í
Laugardalshöll og á sambærilegum
sýningum erlendis, sem gæti bætt
hag fiskvinnslunnar. -SÓL