Tíminn - 11.12.1987, Side 12
12 Tíminn
Föstudagur 11. desember 1987
FRETTAYFIRLIT
WASHINGTON - Við-
skiptahalli Bandaríkjannajókst
verulega í októbermánuði, fór
upp í 17,63 milljarða dala og
hefur aldrei verið meiri. Við-
skiptahallinn í september var
14,08 milljarðar dala og hafði
gefið góðar vonir um batnandi
ástand alþjóðaviðskipta en
hallinn sem tilkynnt var um
gær virtist eyða öllum slíkum
vonum.
LUNDÚNIR - Bandaríkja-
dalur lækkaði snarlega í verði
gaanvart öðrum helstu gjald-
miðlum heims eftir að fréttir um
versnandi viðskiptahalla
Bandaríkjanna voru birtar. Rétt
eftir að fréttirnar bárust út
lækkaði dalurinn um nærri tvö
japönsk yen niður í 130,45
yen. Dalurinn féll einnig gagn-
vart vestur-þýska markinu.
BAHREIN - Herþotur iraka
gerðu árás á íranskt olíuflutn-
ingaskip í Persaflóanum og
kveiktu eld í hinu fullhlaðna
skipi.
GAZA - ísraelskir hermenn
skutu palestínskan ungling til
bana er var einn þátttakenda í
miklum mótmælum á Vestur-
bakkanum og Gazasvæðinu.
LUNDÚNIR - Breska
flugfélagið British Airways til-
kynnti um nýtt tilboð í British
Caledonian flugfélagið sem
rekið hefur verið með miklu
tapi. Hið nýja tilboð British
Airways fylgdi í kjölfarið á til-
boði SAS flugfélagsins í British
Caledonian.
JÓHANNESARBORG-
Öryggissveitir Suður-Afríku
skutu fjóra skæruliða Afríska
þjóðarráðsins til bana í hafnar-
borginni Port Elizabeth við Ind-
landshaf.
MANILA - Lögreglan á Fil-
ippseyjum sagoi að fjöldi
sprengjutilræða og sprengju-
hótana í höfuðborginni Manilu
að undanförnu væri veruleg
ógnun við öryggi þeirra sem
koma til borgarinnar í næstu
viku til að vera viðstaddir ráð-
stefnu þjóða suðaustur Asíu.
AÞENA - Að minnsta kosti
tveir menn slösuðust alvarlega
þegar sprengja sprakk í skrif-
stofu viðskipta- og iðnaðarráðs
Grikklands í Aþenu í gær.
Verið var að kjósa nýja stjórn
ráðsins þegar sprengian
sprakk. Enginn lýsti ábyrgo á
hendur sér vegna verknaðar-
ins en vinstrisinnuð samtök
hafa sagst hafa staðið að
sprengjutilræðum í höfuðborg-
inni á síðustu mánuðum.
ÚTLÖND
Þíða í Washington
George Shultz
utanríkisráðherra
Bandaríkjanna sagði í gær í
sjónvarpsviðtali vestur í
Washington að samskipti
stórveldanna hefðu breyst til
hins betra með fundi þeirra
Ronald Reagans
Bandaríkjaforseta og Mikhail
Gorbatsjovs Sovétleiðtoga sem
lauk í gær.
Shultz varaði fólk við að
dæma leiðtogafundinn eingöngu
út frá raunverulegum
samkomulögum en sagði að þótt
engin slík yrðu að veruleika
hefðu samskipti þjóðanna
sannarlega tekið nýja stefnu.
„Ég hvet til þess að við hættum að I
mæna á fortíðina með bakið að
framtíðinni," sagði Shultz og bætti
við að framtíðin f samskiptum risa-
veldanna yrði sannarlega öðruvísi.
Peir Gorbatsjov og Reagan héldu
síðasta fund sinn síðdegis í gær að
íslenskum tíma og seint í gærkvöldi
hélt Sovétleiðtoginn blaðamanna-
fund áður en hann hélt ásamt konu
sinni Rajsu á brott frá Washington.
Reagan ávarpaði svo þjóð sína kl. 2
í nótt að íslenskum tíma.
Fundur leiðtoganna í gær hófst
einum og hálfum klukkutíma eftir
áætlun til að gefa ráðgjöfum meiri
tíma til að fjalla um ýmisleg atriði
sem þeir Reagan og Gorbatsjov hafa
rætt um á fundum sínum í Hvíta
húsinu þessa vikuna.
Hvorugur leiðtoganna virtist taka
það nærri sér þótt fundinum hefði
seinkað og Reagan sagði meira að
segja einn góðan þegar hann tók á
móti Sovétleiðtoganum, sagði þá að
hann hefði haldið að Gorbatsjov
væri farinn heim.
Strax þegar fundinum lauk í gær-
kvöldi að íslenskum tíma komu
Reagan og Gorbatsjov út fyrir dyr
Hvíta hússins og þar sagði Banda-
ríkjaforsetinn, með Gorbatsjov
brosandi við hlið sér, að fundur
þeirra hefði verið mjög árangursrík-
ur. Hann gaf í skyn að eitthvað hefði
gengið í samkomulagsátt um helm-
ingsfækkun langdrægra kjarnorku-
vopna og sagði að fylgja þyrfti því
Moskva:
Tvíburar
skírðir
eftir Ron
og Mikka
Galína og Vyacheslav Sakhar-
ov, hjónakorn í Moskvuborg,
eignuðust tvíburasyni í vikunni
og gáfu þeim nöfnin Mikhail og
Ronald, til heiðurs Sovétleið-
toganum og Bandaríkjaforsetan-
um sem fundað hafa í Hvíta
húsinu undanfarna daga.
Þaö var Komsomolskaya
Pravda, dagblað ungra kommún-
ista, sem skýrði frá þessu í gær og
sagði að tvíburarnir hefðu fæðst
á þriðjudag eða þegar leiðtogarn-
ir skrifuðu undir samkomulag um
eyðingu meðaldrægra og skamm-
drægari kjarnorkuvopna.
„Við eru viss um að börnin
okkar munu lifa í friðsælum
heimi“, sögðu foreldrarnir í
skeyti sem þau sendu þeim Ron-
ald og Mikhail vestur til Washing-
ton.
Reuter/hb
Reagan og Gorbatsjov: Þíða í Was-
hington.
eftir í afvopnunarmálum sem áunn-
ist hefði á þessum fundum.
Gorbatsjov talaði á eftir Reagan
og var einnig mjög jákvæður þótt
hann tæki fram að mikil vinna væri
framundan ætti að takast að semja
um helmingsfækkun langdrægra
kjarnorkuvopna. Sovétleiðtoginn
sagði að hann og Reagan hefðu rætt
á hreinskilinn hátt um mörg vandam-
ál heimsins og lýsti því yfir að hann
vildi koma aftur til Bandaríkjanna
og eiga þess þá kost að sjá meira af
landinu og ræða við venjulega
Bandaríkjamenn.
Mjög líklegt þykir að leiðtogarn-
ir hittist aftur á næsta ári og þá í
Moskvu. Hafa maí og júní verið
nefndir sem líklegir mánuðir.
Reuter/hb
Leiðtogafundurinn:
Kaddafí finnst
lítið til koma
Muammar Kaddafí Líbýuleiðtoga
finnst lítið til leiðtogafundarins í
Washington koma og sagði í gær að
smærri þjóðir yrðu að greiða fyrir
samkomulag risaveldanna.
„Sagan hefur kennt okkur að
smærri þjóðir verða að gjalda þess
þegar risaveldin ná einhverju sam-
komulagi,“ sagði Kaddafí en gaf
ekki nánari skýringar.
Hann sagði þó að viðræður Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga og Reagans
Bandaríkjaforseta í Washington
hefðu ekki verið friðarviðræður
heldur snúist um að eyða nokkrum
vopnum sem hefðu verið hættuleg
þeim sjálfum.
Kaddafí sagði einnig að það væri
barnalegt að fara fram á við stór-
veldaleiðtogana að þeir reyndu að
binda enda á Persaflóastríðið sem
staðið hefur síðustu sjö árin. Slíkt
gætu aðeins stríðsaðilarnir, stjórn-
irnar í Baghdad og Teheran, gert.
Reuter/hb
Mannréttindamál á leiotogafundinum:
„Þú ert ekki ákærandinn
og ég er ekki sá ákærði“
Mikhail Gorbatsjov sagði í Was-
hington í vikunni að hann væri
orðinn þreyttur á gagnrýni Banda-
ríkjamanna á mannréttindamál í
landi sínu og kvaðst Sovétleiðtoginn
hafa sagt Reagan forseta á fundi
þeirra: „Þú ert ekki ákærandinn og
ég er ekki sá seki“.
Gorbatsjov sagði þetta á fundi
sem hann átti í sovéska sendiráðinu
með bandarískum ritstjórum og út-
gefendum. Þar var hann spurður
margra spurninga um mannréttinda-
mál og svaraði að þjóð sín væri
reiðubúin að hlusta á gagnrýni upp
að ákveðnu marki.
„Hvað siðferðislegan rétt hafa
Bandaríkjamenn á því að setja sig í
stöðu kennara. Hver hefur gefið
þeim rétt til að kenna okkur siðferð-
islegar skyldur," spurði Gorbatsjov.
Sovétleiðtoginn kvartaði einnig
undan umfjöllun bandarískra fjöl-
miðla um land sitt og sagði að
Sovétríkin hefðu gert góða hluti í
mörgum málum en oft væri litið
framhjá slíkum staðreyndum.
Washington:
í TUGTHÚSID AFTUR
EFTIR HÓTUN f
GARD G0RBATSJ0VS
Lögreglan í Washington handtók mann í vikunni sem grunaður var um
að hafa hringt í sovéska sendiráðið í borginni og hótað Mikhail
Gorbatsjov Sovétleiðtoga öllu illu.
Talsmaður lögreglunnar sagði að maðurinn hefði verið handtekinn í
nágrenni sovéska sendiráðsins eftir að hringt hafði verið úr símaklefa í
grenndinni.
Sá handtekni heitir Jess Martin og var látinn laus úr fangelsi borgarinnar
í síðasta mánuði.
Reuter/hb
Reuter/hb