Fréttablaðið - 23.02.2009, Síða 6

Fréttablaðið - 23.02.2009, Síða 6
6 23. febrúar 2009 MÁNUDAGUR ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is SVEITARSTJÓRNARMÁL Þrír af fjór- um samflokksmanna Jónmundar Guðmarssonar, bæjarstjóra Sel- tjarnarness, í bæjarstjórn greiddu atkvæði gegn tillögu hans um að veita Rauða ljóninu rekstrarleyfi á Eiðistorgi þar í bæ. Lögreglustjóri á höfuðborgar- svæðinu fór fram á að bæjar- stjórnin veitti umsögn um hugsan- legt rekstrarleyfi. Bæjarstjórinn lagði fram tillögu um að leyfið yrði veitt að uppfylltum fjórum skilyrðum. Afgreiðslu var frestað fram á næsta fund sem var 11. febrúar en þá lagði Guðrún Helga Brynleifsdóttir frá Neslistanum tillögu um að rekstrarleyfið yrði ekki veitt. Samflokksmaður Guð- rúnar Helgu og þrír samflokks- menn Jónmundar greiddu atkvæði með tillögu hennar. „Það er hreinlega sögulegt að svona nokkuð gerist á Nesinu,“ segir Guðrún Helga Brynleifs- dóttir, fulltrúi Neslistans, sem er í minnihluta bæjarstjórnar Sel- tjarnarness. „Þetta veikir vissu- lega hans stöðu. En þetta er einn- ig óskiljanleg málsmeðferð hjá honum því annaðhvort á að hafna umsókn eða verða við henni. Það að breyta henni eins og bæjar- stjórinn gerði þótti mér afar und- arlegt.“ Hún segir enn fremur að það hafi í hennar huga verið óhugsandi að heimila rekstur skemmtistaðar sem er opinn til þrjú að nóttu í húsnæðinu á Eið- istorgi sem er einnig íbúðarhús- næði. „Ég lít alls ekki svo á að þetta veiki mína stöðu,“ segir Jón- mundur. „Þetta er eitt af þeim málum sem fylgir ekki neinni flokkslínu þannig að bæjarfull- trúar hafa einfaldlega sína skoð- un á því alveg óháð því hvort þeir eru í meiri- eða minnihluta.“ Hann segir enn síður nokkuð athuga- vert við það að skilyrði séu sett fyrir því að heimild fáist sam- þykkt. „Það sjáum við til dæmis í Reykjavík þar sem borgarráð og slökkvilið setja skilyrði fyrir slík- um veitingum,“ segir hann. „Mér fannst einfaldlega, sem talsmanni athafnafrelsis, ekki stætt á öðru en að leyfa umsækjanda að spreyta sig og til að tryggja að það væri með viðunandi hætti lagði ég fram þessi skilyrði. Ég taldi, og reynd- ar fleiri bæjarbúar, að þannig væri hægt að tryggja að þessi starfsemi, sem margir bæjarbúar hafa sakn- að, auðgaði mannlífið á ný en í sátt við íbúa á svæðinu.“ Guðrún Helga segir ekki loku fyrir það skotið að viðhorf gagn- vart starfseminni yrði annað ef afgreiðslutími yrði styttur. jse@frettabladid.is Ljón á vegi Rauða ljónsins á Nesinu Samflokksmenn bæjarstjóra Seltjarnarness lögðust gegn tillögu hans um að veita Rauða ljóninu rekstrarleyfi á Eiðistorgi. Mál óháð flokkslínum segir bæj- arstjórinn. Ekki er loku fyrir það skotið að Rauða ljónið verði opnað að nýju. GUÐRÚN HELGA BRYNLEIFSDÓTTIR JÓNMUNDUR GUÐMARSSON FRÁ EIÐISTORGI Útlit er fyrir að Eiðistorg verði ljónalaust enn um sinn en bæjarstjóri segir marga hafa saknað þess rauða. „Tuttugu prósent af raforkunotkun heim- ila fer í lýsingu. Með því að skipta út gló- perum fyrir sparperur, slökkva á eftir sér og nota málningu í ljósum lit má draga verulega úr raforkunotkun til lýsingar. Sparperur nota einungis fjórðung þeirrar orku sem glóperur þurfa til að gefa sama ljósstyrk. Ef öllum perum á íslenskum heimilum yrði skipt út og spar perur teknar í notkun, sparast sem sam- svarar einni 20MW virkjun,“ segir á Náttúra.is. Aðal- steinn Sigurgeirs son í Borgarnesi ætlaði að fá sér sparperu. Hann skrifar: „Ég fór í Húsasmiðjuna í Borgarnesi í leit að einni slíkri. Fann spar peru, E-27 Philips Essential, 18 wött. Verðið á henni var 1.427 kr. og ég hætti við að kaupa hana, fannst hún of dýr. Fór svo í Bónus í Borgar- nesi til að kaupa í matinn og sá þar nákvæmlega sömu peru á 398 kr. Verðmunurinn „aðeins“ 1.029 kr. (358%)!“ Þetta segir okkur að vilji maður byrja að spara með því að nota sparperur, borgar sig að skoða fyrst hvar maður fær ódýrustu sparperurnar! Neytendur: Ekki sama hvar varan er keypt Sparnaður með sparperum SPARPERA Af þeirri tegund sem Aðalsteinn fékk ódýrast í Bónus. Auglýsingasími – Mest lesið Er rétt að friðlýsa Ísland fyrir kjarnorku og umferð kjarnorku- vopna? Já 91,8% Nei 8,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Notaðir þú fæðubótarefni á síðasta ári? Segðu þína skoðun á visir.is DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt Ásmund Jespersen, fyrr- verandi varaformann vélhjóla- klúbbsins Sniglanna, í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir stórhættulegan ofsaakstur. Ásmundur flúði lögreglu ásamt félaga sínum á ríflega tvöföld- um hámarkshraða á Suðurlands- vegi sumarið 2007. Ofsaaksturinn leiddi til alvarlegs slyss. Héraðsdómur hafði áður dæmt Ásmund í átta mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir brotið. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið svo ógætilega að hann hefði ekki getað komið í veg fyrir það að aka yfir höfuð félaga síns þegar sá féll í götuna. Slysið varð til þess að félagi Ásmundar örkumlaðist. Hæstiréttur sýknar Ásmund hins vegar af þeim ákærulið. Ekki sé nægilega ljóst hvort Ásmund- ur ók yfir félaga sinn, og því ekki heldur hvort líkamstjón hans megi rekja beint til þess. Maður- inn er bundinn í hjólastól til lífs- tíðar eftir slysið. Ásmundur hafði áður misst ökuréttindi fyrir ofsaakstur. Í eitt skipti var hann með þrettán ára farþega aftan á hjólinu. Í því ljósi þótti Hæstarétti ekki tilefni til að skilorðsbinda refsinguna. Þá staðfesti Hæstiréttur einnig ákvörðun héraðsdóms þess efnis að hjól Ásmundar skyldi gert upp- tækt til lögreglu. - sh Hæstiréttur dæmir vélhjólamann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ofsaakstur: Fyrrum leiðtogi Sniglanna í fangelsi AF SLYSSTAÐ Umræða um ofsaakstur vélhjólamanna var í hámæli í samfélag- inu þegar slysið varð. MYND/STÖÐ 2 FINNLAND Konum í finnska hern- um hefur fækkað og því vantar konur í herinn. Jyri Häkämies, varnarmálaráðherra Finnlands, stefnir að því að kalla allar konur í herinn og hefur sett starfshóp til að undirbúa lagabreytingu. „Ég tel að það eigi ekki bara að vera karlar í hernum heldur líka konur þó að konurnar megi velja um það hvort þær gegni herþjón- ustu eða ekki,“ segir Häkämies við finnska dagblaðið Hufvud- stadsbladet. Hann vill ekki neyða konur í herþjónustu. „Mörgum konum þætti það undarlegt. Ég vil ekki að við söfnum konunum saman í lögreglubíl.“ - ghs Finnski herinn: Herþjónusta kvenna aukin KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.