Fréttablaðið - 23.02.2009, Page 12
23. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
LEIKKONAN DAKOTA FANNING ER 15
ÁRA
„Ég lærði ung að tilhæfulaust
umtal um aðra getur sært þá
sem um er rætt. Oprah Win-
frey kenndi mér að breyta eigin
sársauka í vísdóm og það hef
ég síðan tileinkað mér, því róg-
burður er andstyggilegur.“
Foreldrar barnastjörnunnar Dakotu Fanning fluttu sér-
staklega til Los Angeles til að reyna á leikframa dótt-
ur sinnar. Hún sló í gegn mót Sean Penn í I am Sam árið
2001 og hefur síðan leikið með hverri stórstjörnunni á
fætur annarri í margfrægum myndum.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Ágústu Jónsdóttur
Jaðarsbraut 11, Akranesi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á sjúkrahúsi Akraness
fyrir einstaka umhyggjusemi.
Kjartan Sigurðsson Guðrún Skarphéðinsdóttir
Steingrímur Sigurðsson Þórdís Alfreðsdóttir
Magnús Sigurðsson Svanhildur Skarphéðinsdóttir
Hulda Sigurðardóttir Þorsteinn Pétursson
Eygló Anna Sigurðardóttir Karl Birgir Þórðarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigbjörn Gunnarsson
sveitarstjóri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn
15. febrúar. Útför hans verður gerð frá Akureyrarkirkju
í dag, mánudaginn 23. febrúar, klukkan 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
Jakobs Jakobssonar hjá Knattspyrnufélagi Akureyrar.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilegt íþróttafólk á
Akureyri.
Guðbjörg Þorvaldsdóttir
Guðrún Sigbjörnsdóttir
Hildur Björk Sigbjörnsdóttir Stefán Geir Árnason
Guðrún Ýr Sigbjörnsdóttir Magnús Jónsson
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson Katrín Jónsdóttir
Rósa María Sigbjörnsdóttir
Björn Þór Sigbjörnsson Ástríður Þórðardóttir
Afabörnin Jökull Starri, Sölvi, Egill Darri, Hrafnhildur Ýr,
Eva María og Auður Ýr.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Skúli Sigurðsson
bóndi, Gemlufalli, Dýrafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði, miðvikudag-
inn 18. febrúar. Jarðarförin fer fram laugardaginn 28.
febrúar frá Mýrarkirkju kl. 14.00.
Ragnhildur Jóna Jónsdóttir
Elísabet Skúladóttir
Jón Skúlason Elsa María Thompson
Guðný Ágústa Skúladóttir
Ólafur Kristján Skúlason Ragnheiður Halla Ingadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær bróðir okkar og frændi,
Ragnar Jón Magnússon
fyrrverandi flugvélstjóri
frá Laugahvoli, Vesturgötu 12, Reykjavík,
lést 7. febrúar sl. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 26. febrúar kl.15.00.
Guðbjörg Magnúsdóttir Thorarensen
Anna María Danielsen
og aðrir aðstandendur.
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
Róbert Daði Friðriksson,
lést föstudaginn 13. febrúar sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey.
G. Margrét Óskarsdóttir
Friðrik Pétur Magnússon
Jóna Fanney Friðriksdóttir Hjörtur Karl Einarsson
Þórarinn Friðriksson Elva Ósk Wiium
Unnur Munda Friðriksdóttir Hilmar Þór Hannesson
María Björk Traustadóttir Ólafur Bragi Ásgeirsson
Trausti Hermannsson Sólveig Ólafsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jakobína Jónsdóttir
kennari, Hrafnistu Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu laugardaginn 14. febrúar, verður
jarðsungin frá Áskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 24.
febrúar kl. 15.00.
Jón Þorvaldsson Guðbjörg Jónsdóttir
Baldur Þór Þorvaldsson
Katrín Þorvaldsdóttir
Ingibjörg Rósa Þorvaldsdóttir
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Gyða Hansdóttir,
Háaleitisbraut 36, Reykjavík,
sem lést 10. febrúar sl. hefur verið jarðsungin í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir
góða umönnun og hlýju.
Hans Wium Ólafsson
Eyjólfur Ólafsson Kirstine Ólafsson
Magdalena Margrét Ólafsdóttir Kristján Ásgeirsson
Guðrún Gyða Ólafsdóttir Kjartan Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma, systir,
mágkona og frænka,
Elín Áróra Jónsdóttir
Asparfelli 8, Reykjavík,
sem lést á Landspítala Hringbraut laugardaginn
14. febrúar verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 24. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Bjarni Guðmundur Gissurarsson
Jón Svavar Jónasson Kolbrún Ósk Óskarsdóttir
Ásthildur Jónasdóttir Jónbjörn Björnsson
Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir
Sturla Már Jónasson Kristín Fjeldsted
Jónas Jónasson Gabríela Medina
barnabörn og barnabarnabörn
Margrét Halla Jónsdóttir Hörður Skarphéðinsson
Ásthildur Jónsdóttir
Svanhildur Jónsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
Kristín Sigurðardóttir
fyrrverandi bankastarfsmaður
Stekkjarbergi 10, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 16. febrúar á líknardeild LSH
Kópavogi. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13.00.
Gunnar Þór Júlíusson
Júlíus Þór Gunnarsson Thelma Björk Árnadóttir
Alex Már Júlíusson
Birkir Óli Júlíusson
timamot@frettabladid.is
„Jú, ég held að fólki þyki vænt um
Brynju og í viku hverri koma margir
inn úr dyrunum til að segja hvað þeim
þyki gott að við séum enn hér,“ segir
Brynjólfur Björnsson, framkvæmda-
stjóri verslunarinnar Brynju, sem á
þessu ári fagnar 90 ára afmæli sínu.
„Ömmubróðir minn, Guðmundur
Jónsson, stofnaði Brynju í nóvem-
ber 1919, starfrækti búðina fyrstu
tíu árin í bakhúsi við Laugaveg 24, en
flutti 1929 hingað á Laugaveg 29, þar
sem búðin hefur verið opin í áttatíu ár.
Pabbi keypti svo Brynju 1953 og sjálf-
ur kom ég hingað 1964 og tók einn við
rekstrinum þegar pabbi dó 1993,“ segir
Brynjólfur í elstu byggingarvöruversl-
un höfuðstaðarins.
„Þrátt fyrir stórmarkaði hefur allt-
af gengið vel, enda við verið á ann-
arri línu. Upp á síðkastið hefur líka
komið í ljós að við erum hagstæð-
ari í verði og fáum mikil viðskipti út
á það,“ segir Brynjólfur sem finnst
alltaf jafn gaman að mæta til vinnu
því við Laugaveg sé alltaf líf og fjör.
„Því leiðist manni ekki í mínútu, enda
mikið af gamalgrónum viðskiptavinum
sem gaman er að hafa samskipti við,“
segir Brynjólfur sem hefur alltaf verið
heppinn með starfsfólk og verslað með
vandaða vöru; margt sem fæst hvergi
annars staðar. „Áður unnu menn hér í
sextíu ár, en það var fyrir þá tíð þegar
fólk skipti ört um starf. Ég held það sé
ekki manneskjunni hollt því fólk verð-
ur ekkert ánægðara. Góður vinnustað-
ur og góðir vinnufélagar verða alltaf
dýrmætari en meiri fjárvon hinum
megin við hólinn,“ segir Brynjólfur
sem eftir uppstigningardag ætlar utan
í afmælisferð með starfsfólki sínu. „Þá
verður brotið blað í sögu Brynju því við
ætlum að loka föstudag og laugardag.
Það hefur aldrei gerst í sögunni fyrr.“
thordis@frettabladid.is
JÁRNVÖRUVERSLUNIN BRYNJA VIÐ LAUGAVEG: FAGNAR 90. STARFSÁRI SÍNU
Góðir vinnufélagar dýrmætir
OPIÐ Í 90 ÁR Brynjólfur
Björnsson hefur staðið vakt-
ina í Brynju í 45 ár.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Walt Disney frumsýndi teiknimyndina um spýtustrákinn Gosa
þennan dag fyrir 69 árum. Myndin var önnur í röðinni af hreyfð-
um teiknimyndum hans og frumsýnd í nokkrum RKO Radio Pict-
ures-kvikmyndahúsunum á sama tíma. Handritið byggði Disney á
sögu Carlo Collodis eftir að hafa áður sent frá sér teiknimyndina
um Mjallhvíti og dvergana sjö, sem naut gífurlegra vinsælda.
Sagan segir frá spýtustrák sem blá heilladís lofar lífi drengs af
holdi og blóði ef hann aðeins temur sér að vera hugrakkur, sann-
sögull og ósjálfselskur. Margar persónur úr sögu Collodis
áttu að koma fyrir í upprunalegri mynd
í teiknimynd Disneys, en útkoman varð
önnur þegar framleiðandi Disneys var
óánægður með verkið og heimtaði að
sagan yrði upphugsuð á ný og persón-
urnar allar endurskapaðar.
Flestir gagnrýnendur mátu Gosa strax
sem listaverk sem enn jók á hróður Walts
Disney sem teiknimyndagerðarmanns.
ÞETTA GERÐIST: 23. FEBRÚAR 1940
Walt Disney frumsýnir Gosa