Tíminn - 06.01.1988, Síða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 6. janúar 1988
Ný þjóðhags-
spáum
miðjan mánuð
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum setti Þjóðhagsstofnun, um
áramótin, upp einskonar vinnudæmi
þar sem gengið var út frá ákveðnum
forsendum og spáð þannig fyrir um
verðlagsþróun á þessu ári. Gengið
er út frá þvf í öllum framsettum
dæmum, að kaupmáttur haldist
óbreyttur eða svipaður á þessu ári og
hann var árið 1987. Þórður Friðjóns-
son forstjóri Þjóðhagsstofnunar seg-
ir þessi vinnudæmi sett upp í ljósi
þess að þær forsendur sem gengið e'r
út frá séu mjög óvissar. „Það sem við
gerðum, var að setja upp nokkur
dæmi til að sýna hvað gæti gerst á
árinu. Þessi dæmi sýna glöggt að við
getum að óbreyttu verið að tala um
mun meiri verðbólgu á árinu, en
áður var reiknað með“.
Þórður segir að nú sé verið að
skoða alla óvissuþætti til gerðar
nýrrar þjóðhagsspár, sem mun vera
væntanleg um miðjan mánuðinn.
Aðspurður sagði Þórður að óvissa
um kjarasamningana gerði erfitt fyr-
ir um gerð nýrrar þjóðhagsspár.
„Hinsvegar munum við vinna okkar
þjóðhagsspá út frá ákveðnum fors-
endum, og gera skilmerkilega grein
fyrir því að ef þær forsendur breytast
eitthvað, muni aðrir þættir einnig
breytast. Það sem við gerum er að
gefa okkur einhverjar þær forsendur
sem að gætu virst sæmilega raunhæf-
ar, án þess þó að vera að spá í
niðurstöður kjarasamninga.“
Það kom fram hjá Þórði að ekki
liggi fyrir endanlegar tölur um við-
skiptahalla á síðasta ári, „það er
verið að gera upp nýjar tölur fyrir
viðskiptahallann, það liggur þó fyrir
að hann verður meiri en í fyrri
áætlunum,“ sagði Þórður Friðjóns-
son. óþh
Hoffellið SU 80 kemur til heimahafnar í sumar eftir að hafa verið nær alveg endurbyggt í Póllandi fyrir þriðjung af kaupverði nýs togara. Hoffellið var
fyrst se\ Japanstogara sem svo hafa verið nefndir til að fara í slíka endurbyggingu í Póllandi. Tímamynd kb
Ferskfisksala í Hull:
Hoffellið með sölumet
Hoffellið SU 80 hefur sett nýtt
sölumet í Bretlandi, en í gær og
fyrradag voru seld 165.935 kg í Hull
fyrir jafnvirði 16,2milljóna íslenskra
króna. Meðalverð aflans var því
97,60 kr fyrir kílóið. Aflinn skiptist
þannig að af þorski voru 146,8 tonn,
af ýsu 12,4 tonn, af grálúðu 4,7 tonn,
en minna var af öðrum tegundum.
Með þessari sölu sló Hoffellið
fyrra sölumet, en það setti Otto
Wathne NS í haust og var um 88 kr.
hvert kíló.
Hásetahlutur í þessari ferð Hof-
fellsins nemur um 230 þúsund
krónum. Skipstjóri er Högni Skafta-
son en skipið er í eigu Hraðfrystihúss
Fáskrúðsfjarðar hf., sem er í eigu
Kaupfélags Fáskrúðsfjarðar. Að
sögn Gísla Jónatanssonar kaup-
félagsstjóra eru menn að vonum
mjög ánægðir með þessa sölu. Sagði
hann að Hoffellið hafi verið eitt að
selja í Hull og þeir hafi selt á tveimur
dögum. -BG
Ákvörðun hefur verið tekin um þrotabú Hafskips:
Úrskurði skipta-
réttar skotið
til Hæstaréttar
Skiptaréttur Reykjavíkur hefur úrskurðað í máli Ragnars
Kjartanssonar og þrotabús Hafskips. Kröfum Ragnars um greiðslu
viðbótarlauna var hafnað, en kröfur þrotabús á hendur Ragnari
samþykktar. Ragnar Kjartansson sagði í gær að úrskuröurinn yrði
kærður til Hæstaréttar.
Ragnar krafðist 125 þúsund dollara viðbótarlauna miðað við gengi
dollars í desember 1985. Krafa þrotabús á hendur Ragnari og
Björgúlfi Guömundssyni var að upphæð 2,8 milljónir króna miðað
við sama gengi.
Ragnar sagði í gær að hann vildi
að kröfur búsins á hendur sér yrðu
skuldajafnaðar á móti þeirri inni-
stæðu sem hann teldi sig eiga í
búinu. Hann og Björgúlfur hafa gert
þá kröfu að fá alls greidd 650 þúsund
dollara viðbótarlaun vegna ákvæðis
þar um í launasamningi. Áður hefur
þrotabúið samþykkt 400 þúsund
dollara greiðslur.
Þar eftir ’krafðist-Ragnar helmings
mismunarins sér til handa, og telur
sig finna kröfunni stoð í launasamn-
ingi sem viö hann var gerður, þar
sem kveðið er á um laun sem hlutfall
af afkomu félagsins. Skiptaréttur
hefur þar haft annað lag á við
útreikning.
Unglingar í kappakstri
Tveir unglingar, fæddir 1969, misstu réttindi sín til að aka bifreið í
fyrrakvöld þegar upphófst mikill kappakstur milli þeirra á Reykjavíkur-
vegi. Lögreglan fylgdi þeim eftir, þar sem sást til þeirra aka fremur greitt,
og lét mæla hraðann í Garðabæ. Báðir voru mældir á sömu mínútunni, -
var þá annar á 147 km hraða, en hinn á 137 km hraða. Þeir voru stöðvaðir
skömmu síðar og haft af þeim tal.
Viðurkenndu báðir mælinguna og máttu horfa á eftir skírteinum sínum,
en þeir voru sviptir ökuréttindum samstundis. Sá sem framar ók sagðist
hafa orðið var við að bifreið kæmi aðvífandi aftan að sér á mikilli ferð.
Hann hafi því sjálfur aukið hraðann talsvert. Sögðust þeir upp frá þessu
hafa smitast hvor af öðrum og att kappi eftir akbrautinni. Samkvæmt
frásögn lögreglu gekk þar á ýmsu.
Annar þessara fyrrverandi bílstjóra býr á Patreksfirði en hinn í
Kópavogi. Þeir þekktust ekki áður. þj
„Meginkjarni málsins er sá, að um
er að ræða kjarasamning, sem miðar
að bættri afkomu félagsins," sagði
Ragnar. „Við áttum skv. henni að
eiga inni tiltekna innistæðu þegar til
gjaldþrots kom og við höfum eðli-
lega haldið því fram. Hins vegar
segir Valdimar Guðnason, endur-
skoðandi þrotabúsins, að beita hefði
átt einhverri tiltekinni vísitöluvið-
miöun frá 1978, sem veldur því, skv.
hans kenningum. að í stað þess að
við eigum inni hjá búinu á búið inni
hjá okkur. Þarna er um eitthvert
vísitöluformsatriði að ræða. sent
ekki er tekið fram í launasamningn-
um og þar af Ieiðandi teljum við
þetta ekki eiga við.
Á þeim grundvelli kærum við
úrskurð skiptaréttar Reykjavíkur til
Hæstaréttar." þj
Stöðumælavörður við skyldustörf.
Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri:
Stöðumælaverðir
fá áfram vinnu
í framhaldi af fréttum Tímans um
nýskipan í stöðumælavörslu og
stöðuvörslu hafa vaknað spurningar
um afdrif þeirra stöðumælavarða
sem enn eru starfandi. Ingi 0.
Magnússon, gatnamálastjóri, sagði í
samtali við Tímann að það væri ekki
verið að segja þessum mönnum upp
störfum hjá Reykjavíkurborg. enda
væri það andstætt yfirlýstri stefnu
borgaryfirvalda. Ljóst væri að ein-
hverjir stöðumælaverðir myndu
sækja um stöður stöðuvarða þegar
þær verða auglýstar. Allir þeir sem
sæktu um yrðu hins vegar að fara í
gegnum sérstakt námskeið í Lög-
regluskólanum og það gilti einnig
um núverandi stöðumælaverði.
Þó sagðist hann vita til þess að
nokkrir þeirra sem nú gegna störfum
stöðumælavarða. hafi ekki áhuga á
hinum nýju stöðum eða treysti sér
ekki til þeirra starfa. Unnið væri að
því þessar vikurnar að finna önnur
störf hjá borginni sem menn þessir
geti fellt sig við. Sagði Ingi Ú. að þar
væri um að ræða störf við stæða-
vörslu á hinum nýlegu stóru bíla-
stæðum í miðborginni, gangbrauta-
Vörslu og annað i þá veru. Sagði
hann að það væri gott að það kæmi
fram að stöðumælavörðum væri
tryggt fullt atvinnuöryggi. Annað
væri ekki sæmandi, þar sem margir
þessara manna hafa unnið um árabil
hjá borginni og flestir væru þeir
reyndar að komast á eftirlaun innan
fárra ára. KB