Tíminn - 06.01.1988, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.01.1988, Blaðsíða 8
8 Tíminn Miðvikudagur 6. janúar 1988 . Tímiim MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Auglýsingaverð kr. 400 prdálk- sentimetri. Verð í lausasötu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 600.- I I Jákvætt almenningsálit Skýrt hefur verið frá niðurstöðum skoðanakönn- unar sem gerð var á vegum Gallupstofnunar á íslandi í desember sl. um afstöðu almennings til fjögurra íslenskra stórfyrirtækja, þ.e. Sambands ísl. sam- vinnufélaga, Eimskipafélags íslands, Flugleiða og íslenska álfélagsins. Könnun þessi var gerð að tilhlutan Sambands ísl. samvinnufélaga. Skoðanakannanir eru nútímaaðferðir til þess að átta sig á almenningsálitinu í tilteknum atriðum hverju sinni. Engum dylst að það er mjög nauðsyn- legt þekkingaratriði í lýðræðislandi að fyrirtæki, samtök og stofnanir sem vinna í almannaþágu geri sér grein fyrir hvert sé álit þeirra og staða í hugum fjöldans. Að þessu leyti eru skoðanakannanir til góðs. Túlkun skoðanakannana lýtur þó ekki algild- um lögmálum og skoðanakannanir eru ekki stjórn- tæki í sjálfu sér, heldur hafa þær upplýsingagildi sem verður að meta eins og hver önnur málsgögn í réttu samhengi. Það er ánægjulegt fyrir samvinnumenn hversu Samband íslenskra samvinnufélaga kemur vel út úr þessari skoðanakönnun um álit almennings á stórfyr- irtækjum í landinu. Niðurstaðan sýnir að Samband ísl. samvinnufélaga nýtur viðurkenningar sem traust og þjóðhagslega mikilvægt fyrirtæki og ekkert sem bendir til annars en að Sambandið haldi uppi stefnu í viðskipta- og atvinnumálum sem almenningur er sáttur við. Samband ísl. samvinnufélaga er vissulega stórt og umsvifamikið fyrirtæki. En það er um leið eitt af elstu fyrirtækjum okkar unga Nútíma-Íslands. Saga Sambandsins og kaupfélaganna tengist sjálf- stjórnarbaráttu íslensku þjóðarinnar og er samofin henni allt til þessa dags. An samvinnuhreyfingarinn- ar væri ísland hvorki svo vel á vegi statt í verklegum framförum né það velferðar- og lýðræðisþjóðfélag sem það er, ef ekki hefði notið við hugsjóna samvinnuhreyfingarinnar né hins mikla framtaks sem einkennt hefur forystu samvinnufélaganna í meira en 100 ár. Skoðanakönnunin bendir til þess að almenningur er sér þess meðvitandi að Samband ísl. samvinnufé- laga er mikilvægur þáttur farsæls atvinnu- og við- skiptalífs hér á landi. Slíku áliti hlýtur samvinnu- hreyfingin að fagna. Þótt þetta sé meginniðurstaðan, þá er ekki þar með sagt að samvinnuhreyfingin eigi sér enga andstæðinga og hafi ekki við neitt að berjast. Samvinnufyrirtækin þurfa auðvitað að takast á við þá samkeppni sem alltaf hlýtur að verða í frjálsu viðskiptalífi, en einnig munu samvinnumenn þurfa að heyja sitt hugsjónastríð og eiga í baráttu við aðrar þjóðfélagskenningar og lífsskoðanir. Samvinnu- menn eru ágætlega vopnum búnir í slíkri baráttu. Þar geta þeir ekki síst teflt fram langri reynslu í lausn vandasamra þjóðfélagsmála, eins og þau hefur borið að á hverjum tíma, dugmikilli forystu einstakra manna og framtakssemi um nýjungar í verslun og atvinnuuppbyggingu á öllum sviðum. Samvinnuhreyfingin er enn mjög virkt framfaraafl í íslensku þjóðfélagi. Á því er ekkert lát. GARRI II lllllllllllllllllllliw llllllllllllllllllllllllllllllllllll Allir með strætó í Morgunblaðinu sinu í gær las Garri heldur uggvænlegar fréttir af rekstri Strætisvagna Reykjavíkur. Þar segir að samfara vaxandi bíla- eign borgarbúa fækki farþegum með strætó ár frá ári. Þar er m.a. haft eftir forstjóra SVR að tekjur af fargjöldum endist nú verr en hér á árum áður þegar þær hafí farið allt upp í 83% af rekstrarkostnaði. Núna séu þær aðeins um 60%. í ár segir þar að útgjöld SVR séu áætluð 438,5 miljónir og að hlutur tekna af fargjöldum verði 240 milj- ónir. Á móti er svo gert ráð fyrir að borgarsjóður greiði 190 miljónir með rekstrinum og auk þess 56 miljónir til fjárfestinga, í vagna- kaupum og nýrri skiptistöð í Mjodd í Breiðholti. Það kemur einnig fram í fréttinni að 1985 hafi farþegar SVR verið 9,8 miljónir, 1986 hafi þcir verið 9,3 miljónir, en á nýliðnu ári hafi fjöldi þeirra farið niður i 8,6 milj- ónir. Þægilegur ferðamáti Nú vill svo til að Garri er tölu- verður strætómaður og gerir ail- mikið af því að nota vagnana. Hann getur borið um það af eigin reynslu að þegar inenn hafa einu sinni lært á kerfið er sáraeinfalt og raunar mjög þægilegt að fara allra sinna ferða um Rcykjavík í strætó. Þetta á ekki síst við á veturna þegar færö er misjöfn, og þykir honum þá raunar ólíkt þægilegra að hoppa inn í upphitaöan vagn á morgnana heldur en að fara að eyða löngum stundum í það að koma bílnuni i gang, skafa af rúðunum og aka honum síðan af stað köldum, oft á tíðum út í leiðinlega færð og erfið akstursskil- yröi. En þó cr ýmsu ábótavant í leiðakerfinu, og einna óþægilegast er að enn skuli vanta ýmsar mikil- vægar tcngingar á milli stórra og fjölmennra borgarhverfa. Þar er efst á blaði að samgöngur vagn- anna á milli Breiðhoíts, Árbæjar- hverfis og svæðisins í kringum Kleppsveg eru langtífrá nægilega greiðar, því að mestan hluta dags útheimtir ferð á milli þessara staða að fyrst sé farið langleiðina niður á Hlemni með einum vagni og síðan skipt þar yfir í annan. Ef Garri man rétt var fyrir ekki mjög löngu bent á þetta hér i Tímanum, en raunhæf- ar úrbætur hafa samt látið á sér standa. Selja þarf þjónustuna Það er vitaskuld ekki nema ánægjuleg þróun aö bílaeign borg- arbúa skuli vera orðin svo mikil að fólk telji sig ekki almennt þurfa á því að halda að nota vagnana. En þó er að því að gæta að borgarbúar þurfa að grciða fyrir rekstur þessar- ar þjónustu, ef ekki í fargjöldum þá í gegnum skatta sína til borgar- innar. Og það er öllum í hag að hún sé sem mest og best. En hitt er annaö mál að það sem hér er að gerast sýnist vera að strætó hafi ekki staðið sig í sam- keppninni við einkabilinn. Eor- ráðamönnum SVR og borgarinnar hefur ekki tekist nógu vel að bjóða eftirsóknarverða þjónustu og að markaðssetja hana með þeim hætti að borgarbúar færi sér hana al- mennt í nyt. Það sem fyrirtæki úti á hinum almenna markaði gera er að þau keppast um að veita nákvæmlega þá þjónustu sem fólk þarf á að haida og sem það sækist eftir. Síðan auglýsa þessi fyrirtæki þjón- ustu sína og keppa innbyrðis uin það að ná til sín sem flestum viðskiptavinum. Strætó á að vísu ekki í sam- keppni við önnur fyrirtæki á sviði almannaflutninga, en hann á í harðri samkeppni við einkabílinn. í þessari samkeppni þarf hann að standa sig. Til þess að geta það þarf hann meðal annars að bjóða eins örar og tíðar ferðir á milli borgar- hverfa og frekast er kostur, og síðan þarf hann að sclja þessa þjónustu. Til dæmis má minna á að SVR selur auglýsingar bæði inni í og utan á vögnunum. Hvernig væri nú að taka sig aðeins á og auglýsa þjónustuna svo sem í nokkrar vikur á ári utan á sínum eigin vögnum? Þar gæti til dæmis staðið: „Allir með strætó!*1. Garri. VÍTT OG BREITT Guðinn í ósongatinu Einhver merkasti spádómur sem birtur hefur verið um athyglisverða atburði ársins sem er að hefjast er sá, að andlit popparans Michael Jackson birtist í gatinu á ósonlag- inu yfir Suðurheimskautinu. Þá verður trúlega upplit á mörgæsun- um. Að venju hamast fjölmiðlar um allan heim við að birta spádóma í upphafi árs og sumir velja mann ársins sem var að líða og er þar dáfallegur söfnuður, ef allur væri saman kominn, allt frá Gorbatsjov upp í Pálma í Hagkaupi, sem er slíkur töframaður í verslun að græða á lágri álagningu. Áramótaspádómarnir eru flestir hver öðrum líkir. Völvur og spá- menn sjá fyrir jarðhræringar ein- hvern tíma á árinu, frægur maður deyr og veðrið verður ýmist gott eða vont. Sjávarafli eykst eða minnkar og viðsjár verða með mönnum og stjórnmálaflokkum hér og hvar. Rugl og blaður Hvorki Seðlabankinn né Þjóð- hagsstofnun hafa gefið út efna- hagsspár í tilefni áramótanna, en voru reyndar búin að spá þvers og kruss skömmu fyrir áraskiptin og ætti að duga í bili. Þjóðhagsstofnun gaf að vísu út aðvörun um efna- hagsþróun og er hún á þá leið að verði gengið fellt leiði það til aukinnar verðbólgu. Eins muni launahækkanir verða verðbólgu- valdandi. Ef kaupið hækkar og gengið fellt mikið verður verð- bólgustigið enn hærra en ef gengið verður áfram reyrt fast og kaupið ekki hækkað. Þetta eru verðmætar upplýsingar sem fela í sér þá spádóma að margbölvuð verðbólgan muni enn um sinn ríða húsum á þjóðarbúinu sem góðærið hefur leikið svo grátt að útlit er fyrir íslandsmet í við- skiptahalla og skuldir hrannast upp með meiri hraða en vinnulúinni þjóð tekst að aura saman fyrir. Ef góðærið fer ekki að taka enda má allt eins búast við að allt móverkið verði sett á hvínandi hausinn. Orsök og afleiðing í upphafi ársins 1988 urðu merk tíðindi sem engan spámann hafði órað fyrir. Þá stundi Davíð Schev- ing Thorsteinsson þungan í blaða- viðtali yfir fjármagnskostnaði, sem verið hefur að sliga fyrirtækið sem hann veitir forstöðu, Sól hf. í sjálfu sér þykir fæstum mikið þótt framkvæmdamenn beri sig illa undan okurvöxtum sem gleypa of- fjárfestingar með húð og hári. En Davíð er stjórnarformaður lána- stofnunar sem hefur mikið umleik- is og rekur m.a. dótturfyrirtæki sem hefur gríðarleg umsvif í kaup- leigu. Það er eins og manni finnist að hvað reki sig á annars horn þegar stjórnarformaður ört vaxandi pen- ingastofnunar festir sjálfan sig í gildru offjárfestingar og kvartar svo yfir fjármagnskostnaðinum, sem er ekkert annað en það okur- verð sem peningamaskínurnar taka fyrir að lána út fé eða leigja. Svona getur frelsið til að okra og frelsið til að offjárfesta leikið hina mætustu menn. Þessu var sem sagt ekki spáð og margt á eftir að koma í ljós sem völvur og seiðskrattar hafa ekki séð fyrir. Merkileg var spáin sem Stöð 2 lét gera um stjórnmálaþróunina. Stjörnuspámaður las skapferli stjórnmálamanna út úr merki þeirra og nálægð Satúrnusar. Hvaða greind kerling sem er, án allrar spádómsgáfu, hefði sem best gert betur en himinhvolfarýnirinn. En skemmtileg var spá nokkurra stjómarandstöðuforkólfa um líf- daga ríkisstjómarinnar og fram- gang þjóðmálanna. Þeir höfðu enga hugmynd um hvernig nein mál mundu þróast og vom sammála um að annað hvort sæti stjórnin út árið eða að hún félli á árinu. Basta. Best er að spá engu, en hins vegar væri meinalaust að menn lærðu einhvern tíma að velta fyrir sér orsök og afleiðingu og haga gjörðum sínum samkvæmt því. Það er víst til of mikils mælst og þvf réttast að velja flóknar leiðir dulfræða til að skoða framtíðina. En hvað sem dulfræðum líður hefur þó ameríska kvensan sem spáir ásjónu poppguðsins í óson- gatinu hugmyndaflug sem aðrar völvur skortir. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.