Tíminn - 06.01.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.01.1988, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 6. janúar 1988 Tíminn 3 „Tívolíbomba" austur ( Hveragerði: Yfirtaka þrír skátar rekstur Tívolísins? Meirihlutaeign í Skemmtigarðinum hf., eða Tívolí í Hveragerði, er nú til sölu og einnig húsin tvö sem eru í eigu sama manns, Ólafs Ragnarssonar hæstaréttarlögmanns. Þrír af fimm eigendum Kaupstefnunnar hf., hafa sameiginlega sýnt kaupunum áhuga og eru viðræður hafnar við Ólafog aðra eigendurskemmtigarðsins. Þessir þrír eru Tryggvi páll Friðriksson, framkvæmdastjóri Skipholts hf., Björn Herinannsson, framkvstj. Landssambands Hjálparsveita skáta, og Þorsteinn Sigurðsson, viðskiptafræðingur, sem er kunnur skáti líkt og hinir. Eignir og skuldir Eignir Skemmtigarðsins hf. eru ekki aðrar en leiktækin, kaffihúsið Tunglið og nokkur lítil hús. Skuldir eru him vegar verulegar og því er Ijóst ap ekki er verið að ræða um mikið/annað en að yfirtaka rekstur- inn, ef af kaupum verður. Stóru húsin tvö, sem hýsa skemmtigarð- inn/ eru í cinkaeign Ólafs Ragnars- sopir og seljast því óháð sölu Sjcemmtigarðsins hf. Þau eru þegar k'omin á skrá fasteignasölu og er oskað eftir tilboði, en hugsanlegt éöluverð er ekki tilgreint. Vart mun þó um lægri tölur að ræða en 45 - 60 milljónir fyrir húsin. enda eru þau innan við ársgömul. Ólafur vill út Ólafur Ragnarsson hrl. sagði í samtali við Tímann að hann hafi eindreginn áhuga á að draga sig út úr rekstri þessa hlutafélags og cign- áraðild. Hann staðfesti að skátarnir þrír væru meðal þeirra, sem rætt hafi verið við, en aðrir aðilar hafi einnig komið við sögu. Var hann ekki í nokkrum vafa um að þeim gæti gengið vel í rekstri Tívolísins og þeir hefðu þegar reynslu í viðskiptum, sem gætu nýst vel í rekstri Skcmmti- garðsins hf. Væntanlegir kaupendur Tryggvi Páll Friðriksson, sem hafði orð fyrir þremenningunum, sagði að málin hafi verið rædd, en ekki væri enn búið að taka neina ákvörðun. T.d. væri ekki ákveðið hvort þeir keyptu hluta fyrirtækisins, eða allt, eða hvort aðeins yrði farið út í að taka fyrirtækið á leigu til að byrja með. Margt væri eftir að ræða, ef af þessu verður og málið væri frekar flókið. Bjóst hann við að eitthvað færi þetta að skýrast í næstu viku. Annar af hugsanlegum kaupend- um Tívolísins, Björn Hermannsson, sagði að þeir hefðu miklar og ferskar hugmyndir um það hvernig nýta Opna nýir eigendur Tívolíið í Hverageröi í vor? mætti húsin ogskemmtigarðinn. Þeir hefðu nú þegar nokkra reynslu af rekstri Kaupstcfnunnar hf., sem sér- hæft hefur sig í sýningahaldi. Rekstrarstaðan núna Staða Skemmtigarðsins hf. cr afar bágborin eins og stendur. Er talið að of mikil fjárfesting hafi átt sér stað miðað við eigin fé hlutafélagsins. Af því leiði að tekið liafi verið of mikið fc út úr rekstri garðsins til að greiða niður fjármagnskostnað og hafi það lcitt til mikilla vanskila. T.d. hefur ekki fengist rckstrarlcyfi frá því í nóvember sl. vegna vanskila á sölu- skatti og það verður ekki vcitt fyrr en þær skuldir eru að íullu greiddar cða samið um greiðsluáætlun. Töldu viðmælendur Tímans að ckki væri á því nokkur vafi að góður rekstrar- grundvöllur væri fyrir fyrirtæki af þessu tagi. Pá væri landfræðileg staösetning þess afar góð. Pegar Tíminn hafði samband við Sigurð Kárason, einn af minnihluta- cigendum Skemmtigarösins hf. og Hótcls Borgar, sagði hann að ekkert hafi verið rætt um kaup cöa leigu og ekkert hafi vcriö rætt um brcytingu á eignaraðild yl'ir höfuö. Vildi hann ekkcrt ræða niálið af þeim sökum. Hins vegar hafði hann á orði að Tívolíið yrði opnað í vor og aö vcrið væri aö endurskipuleggja rekstur þess frá grunni. KB Alfreð Þorsteinsson í Byggingarnefnd aldraðra: Aldraðir í Reykjavík greiða milljón meira Aldraðir í Reykjavík greiða að jafnaði 1 milljón krónum meira fyrir tveggja herbergja íbúðir sem tengd- ar eru þjónustukjarna heldur en Kópavogsbúar þurfa að greiða fyrir samsvarandi þjónustuíbúðir. Petta kemur fram í greinargerð með tillögu sem Alfreð Þorsteinsson fulltrúi Framsóknarflokksins í Bygg- ingarnefnd aldraðra í Reykjavík hef- ur lagt fyrir nefndina. Tillaga Al- freðs miðar að því að borgarráð láti fara fram könnun hlutlausra aðila á byggingarkostnaði íbúða aldraðra í Reykjavík, sérstaklega þó þeim þar sem Reykjavíkurborg tengist fram- kvæmdum mcð byggingu þjónust- ukjarna á sínum vegum. í greinargerð Alfreðs kemur fram að verð á tveggja herbergja íbúðum sem fyrirhugað er að reisa á svokall- aðri BÚR-lóð og tengjast þjónustu- kjarna sem Reykjavíkurborg mun byggja á því svæði, er áætlað 4 milljónir króna. Hins vegar hafi tveggja herbergja þjónustuíbúðir aldraðra sem nýlega voru byggðar í Kópavogi kostað um 3 milljónir króna. Bendir Alfreð á að í íbúða- blokk með 60 íbúðum, eins og ráðgert er að reisa á BÚR-lóðinni, geti skakkað40-60 milljónum króna. Telur Alfreð hugsanlega skýringu vera þá að allar framkvæmdir við íbúðirnar í Kópavogi voru boðnar út, en á BÚR-lóðinni hefur einu byggingarfélagi verið úthlutað verk- inu án útboðs. Þá bendir Alfreð einnig á að það sé fremurathyglisvert, aðfyrirhugað er að sama byggingarlclag fái úthlut- að án útboðs, verki við byggingu þjónustukjarnans sem Reykjavíkur- borg mun að fullu greiða. -HM r >röstur i bestur Pröstur Árnason bætti enn einni skrautfjöður í hatt íslenskrar skák- sögu í gær, þegar hann sigraði á Evrópumeistaramóti í skák, 16 ára og yngri. Þröstur tapaði reyndar síðustu skák sinni í gær, en náði þó jafnmörgum vinningum og franskur piltur. Pröstur var síðan úrskurðað- ur sigurvegari, þar sem hann lagði sterkari skákmenn að velli en Frakkinn. Guðríöur Lilja Grétarsdóttir tap- aði skák sinni í gær og lenti í fjórða sæti í kvennaflokki. óþh Alþingi: Söluskattslög afgreidd Atkvæðagreiðsla um söluskattsfrumvarpið fór fram í neöri deild Alþingis í gær, en um málið hafa verið langar umræður að undanförnu. Frumvarpið var síðan sent aftur til efri deildar vegna hreytinga á ákvæðinu um gildistöku laganna, en það felur í sér að lögin taki þegar gildi. Nokkrar umræður urðu um málið í efri deild, sérstaklega um niðurgreiðslur þær, sem draga eiga úr áhrifum söluskattshækkunar á ýmis matvæli. Talsvert varum breytingartillög- ur við frumvarpið og fóru fram mörg nafnaköll. Riðlaðist meiri- hlutinn í nokkrum málum. Sérstak- lega var það áberandi í atkvæðag- reiðslu um breytingartillögu frá Hreggviði Jónssyni (B.Rn.) um að varahlutir, vélar og tæki til skipa yrðu undanþegnir söluskatti, en í frumvarpinu er að finna slíkt ákvæði um flugvéiar. Ólafur Þ. Þórðarson (F.Vf.), Guðmundur G. Þórarinsson (F.Rv.) og Ragn- hildur Helgadóttir (S.Rv.) greiddu öll tillögu Hreggviðs atkvæði og töldu undanþáguheimild fjármála- ráðherra ekki nægjanlega trygg- ingu fyrir að undanþágur til skipa yrðu veittar, og töldu viljayfirlýs- ingu Alþingis nauðsynlega. En fjármálaráðherra taldi nægar heim- ildir vera fyrir hendi og tillöguna því óþarfa. Þá sat enn einn stjóm- arliði, Guðni Ágústsson (F.Su.) hjá við atkvæðagrciðsluna. Þá riðlaðist stjórnarliöið í af- stöðu sinni til ákvæðis, sem veitir fjármálaráðherra heimild til að undanþiggja afruglara söluskatti. Ólafur Þ. Þórðarson og Guðni Ágústsson greiddu tillögu Inga Björns Albertssonar (B.VI.) um afnám þeirrar heimildar atkvæði sitt og Sighvatur Björgvinsson (A. Vf.) og Eggert Haukdal (S.Su.) sátu hjá. Fjármálaráðherra hefur rökstutt þessa heimild sína með því að undanþágan sé liður í byggðastefnu. Tvö önnur frumvörp urðu að lögum eftir skamma'umræðu í efri deild, lög um að færa Útflutnings- ráð og veitingu útflutningsleyfa frá viðskiptaráðuneyti til utanríkis- ráðuneytis. Stjómarandstaðan hefur gagn- rýnt verkefnatilfærsluna mjög á lagalegum forsendum og hefur m.a. beðið Lagastofnun Háskóla fslands um álitsgcrð um málið. ÞÆÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.