Tíminn - 06.01.1988, Page 7
Miðvikudagur 6. janúar 1988 ;
Tíminn 7
F Þáttur 722 frá Sauöárkróki Ff Hylur 721 frá Kirkjubæ Fff Snæfaxi 572 frá Kirkjubæ
Ffm Geiru-Blesa 2562 frá Kirkjubæ
Fm Von 2791 frá Kirkjubæ Hrani frá Hnausum
Fmm Eidri-Stygg frá Svaöastöðum
M Hæra 3525 frá Krossi M^ Oarpur frá Þúfum Mf f Darpur frá Axlarhaga
M^m Fiuga frá Þúfum
Mm » .. Rauöka frá Krossi Mm^ Blesi frá Tumabrekku
Mmm Brúnka frá Krossi
undaneldis á Norðurlandi síðastliðin
tvö sumur.
Stígandi
Stígandi er einnig jarpur, undan
Ösp 5454 frá Sauðárkróki, sem aftur
er undan Sörlasyninum Júpiter 851
frá Reykjum. - Athygli má vekja á
því, að Stígandi er hinn eini þessara
fjögurra fola, sem er afkomandi
Sörla gamla, en bæði Sörli og Goði
eru frændur hans, sem Stígandi er
raunar einnig. í þessum folum er því
um að ræða minni skyldleikarækt en
oft áður hjá Sveini, og er þá aðeins
miðað við mæðurnar.
Eigandi Stíganda er bróðursonur
Sveins Guðmundssonar, Árni Árna-
son á Laugarvatni. Folinn hefur hins
vegar verið alinn upp í Stóðhesta-
stöðinni í Gunnarsholti, og þarverð-
ur hann taminn í vetur. -I kynbóta-
gildisspá þeirri sem birt var í ritinu
Hrossaræktin 1986 fær Stígandi
einkunnina 124 og er þar fjórði
hæstur, en einkunnin byggist ein-
vörðungu á ættarupplýsingum.
Móðir Stíganda, Ösp 5454 er
þekkt kynbótahryssa. Hún var sýnd
í flokki fimm vetra hryssa á lands-
móti 1982 og varð þar í öðru sæti,
hlaut 8.00 fyrir sköpulag og 8.38
fyrir hæfileika og 8.19 í aðaleinkunn,
1. verðlaun. Umsögn um hryssuna
var svohljóðandi: „Fríð og glæst,
fætur þokkalegir, gæðingur".
Enn fleiri folar í uppvexti
Fróðlegt verður að fylgjast með
framgangi Þáttarsonanna að vori, en
varla verða þeir komnir í sýningu
þegar augu manna fara að beinast að
næstu folum, því enn eru ný stóð-
hestsefni á leiðinni, enda heyrir það
nú til hreinna undantekninga ef
hestar eru vanaðir hjá Sveini og
fjölskyldu.
Athygli hefur þegar vakið, að
síðastliðið vor hélt Sveinn flestum
hryssum sínum undir tveggja vetra
fola brúnskjóttan, sem enn hefur
ekki hlotið nafn. Sá er undan Lögg
5648 frá Sauðárkróki sem Guð-
mundur Sveinsson á, og faðirinn er
svo aftur Freyr 931 frá Akureyri,
dóttursonur Sörla 653. Fróðlegt
verður að fylgjast með þessum fola
næstu misserin.
Enn má svo nefna ungfolann Segul
frá Sauðárkróki, sem nú er í uppeldi
Goði frá Sauðárkróki
F Þáttur 722 frá Kirkjubæ Ff Hylur 721 frá Kirkjubæ Fff Snæfaxi 572 fra Kirkjubæ
Ffm Geiru-Blesa 2562 fra Kirkjubæ
Fm Von 2791 frá Kirkjubæ ^m^ Hrani frá Hnausum
Ftnm f^ri.stygq frá Svaöastööum
M Hervör 4647 frá Sauöárkróki Hrafn 802 frá Holtsmúla M^ Snæfaxi 663 frá Páfastööum
Mfm Oörp 3781 frá Holtsmúla
Mm 7 Síöa 2794 frá Sauöárkróki Mmf Sokki 332 frá Vallholti
Mmm Raqnars-Brúnka 2719 frá Sauffárkróki
Hér er Sörli hinn ungi nokkurra vikna gamall
með móður sinni, Hrafnkötlu 3526 frá Sauðár-
króki. Myndina tók Valdimar Kristinsson.
Goði frá Sauðárkróki. Myndin er
tekin ■ maí sl. þegar þeir Gunnar
Bjarnason ráðunautur og Sigurður
Haraldsson skoðuðu folann heima í
Kirkjubæ.
1. Þáttur
EFTIR
ANDERS HANSEN
Ösp 5454 frá Sauðárkróki, móðir Stíganda; hryssa með 1. verðlaun.
Myndina tók Jón Steingrímsson á landsmóti 1982 og það er Björn
Þorsteinsson sem situr hryssuna.
á Stóðhestastöðinni. Hann er brúnn,
sonur Hervars 963 og Hrefnu 3792
frá Sauðárkróki, og hefur hlotið 124
í kynbótagildisspá, aðeins tveggja
vetra. - Þessi hestur er þó ekki í eigu
Sveins Guðmundssonar, heldur
Hrossaræktarsambands Vestur-
Húnvetninga. Það er því ljóst að á
næstu árum munu nýjar og nýjar
„flóðbylgjur" stóðhesta úr ræktun
Sveins Guðmundssonar og fjöl-
skyldu hans berast á land íslenskrar
hrossaræktar.
Gert út á stóðhesta?
Töluverða athygli vakti sumarið
1986, að þeir Sveinn Guðmundsson
og Guðmundur Sveinsson vildu ekki
selja stóðheta sína, þá Otur 1050 og
Kjarval 1025, þrátt fyrir mjög háar
upphæðir sem í þá voru boðnar bæði
af innlendum og erlendum aðilum.
Síðan þá hefur svo þriðji ættbókar-
færði stóðhesturinn bæst í hópinn;
Glaður frá Sauðárkróki, og hefur
hann ekki verið boðinn til sölu. Ekki
mun heldur ætlunin að selja að svo
komnu þá ungfola, sem hér að
framan hefur verið getið um.
Með nokkrum rétti má því segja
að hér sé farið inn á nýjar brautir í
hrossaræktinni, þar sem hrossarækt-
endur „gera út á stóðhesta". Takist
vel til ætti að vera unnt að hafa góðar
tekjur af útleigu hestanna, og ef til
vill verður þetta upphafið að því að
hrossaræktendur reyna að eiga stóð-
hesta sína sem hvað bestum árangri
ná, í stað þess að selja þá, eins og
hefur nánast verið regla undanfarin
ár. - Sala á góðum stóðhesti mun þó
væntanlega áfram verða freistandi
fyrir bændur, að minnsta kosti þegar
verðið er farið að verða í líkingu við
það sem þeir Sikill frá Stóra-Hofi og
Amor frá Kelduhverfi seldust á árinu
1987. Kaupverð hvors um sig var
tvær milljónir króna, og kaupendumir
Hrossaræktarsamband Skagfirðinga
og Hrossaræktarsamband Suður-
lands.
Sörli frá Sauðárkróki
Þattur 722
frá
Kirkjubæ
Hylur 721
frá Kirkjubæ
Von 2791
frá Kirkjúbæ
Fff
Snæfaxi 572 fra Kirkjubæ
Ffm
Geiru-Blesa 2562 fra Kirkjubæ
Fmf
Hrani fra Hnausum
Fmm Eldri-Stygg frá Svaöastöóum
Hrafnkatla 3526
frá
Sauöárkróki
Andvari 501
frá Varmahlíö
Síöa 2794
frá Sauöárkróki
Mff
Hrafn 402 fra Miöfossum
Mfm
Assa 2429 Siguróar frá Brón
Mmf
Sokki 332 fra Vallholti
1 Raqnars-Brónka 2719 frá Sauöárkróki
Hæringur frá Sauðárkróki
Stígandi frá Sauðárkróki
F Þáttur 722 frá Kirkjubæ Ff Hylur 721 frá Kirkjubæ Fff Snæfaxi 572 frá Kirkjubæ
Ffm Geiru-Blesa 2562 frá Kirkjubæ
Fm Von 2791 frá Kirkjubæ Hrani frá Hnausum
Fmin Eidri stygg Svaöastööum
M Ösp 5454 f rá Sauöárkróki Mf Dúpiter 851 frá Reykjum M^ Sörli 653 frá Sauöárkróki
M^m Venus 2870 frá Reykjum
Kápa frá Sauöárkróki Mm^ Blesi 598 frá Skáney
Mnun Sf^a 2794 frá Sauöárkróki