Tíminn - 06.01.1988, Síða 13

Tíminn - 06.01.1988, Síða 13
Miðvikudagur 6. janúar 1988 Tíminn 13 ÍÞRÓTTIR Molar úr ýmsum áttum -Skotheld aðstaða íþróttafréttamanna í Calgary-Cruyff segiraf sér hjá Ajax en kemur hann aftur? - Blokhin spilar með austurrísku liði - KA 60 ára á föstudaginn - San Antonio Spurs töpuðu í Los Angeles ■ FRÉTTAMENN í SKOTHELDU BÚRI Það er stórhættulegt að vera íþróttafréttamaður og lýsa gangi mála á Ólympíuleikunum í Calgary sem hefjast í næsta mánuði. Það verður 60 ára á föstudaginn. Hyggj- ast KA-menn gera sér glaðan dag í tilefni dagsins og verður bæjarbúum boðið upp á veitingar í KA heimilinu á afmælisdaginn en í lok janúar verður mikil afmælisveisla í Sjallan- Aðstaða íþróttafréttamanna á íslandi þætti varla boðleg fréttamönnum ABC og skotheld er hún sannarlega ekki. Hér skjálfa nokkrir félagar á Valbjarnarvellinum þar sem þeir fylgjast með knattspyrnuleik. Reyndar er venjulega tjaldræfíll til staðar en hann heldur hvorki vatni né vindum. eftir með 10,00. SÆ-2 hefur 9,92 í meðaltal, Trompásinn 9,90, Sörli 9.84, GH Box258 9,84 og Kiddi BJ 9.84. Skammt á eftir fylgja 11 hópar með 9,61 eða meira. Staðan er miðuð við lágmark 4 vikur en enn eru að bætast við nýir þátttakendur. Þá hafa sumir hópanna eina eða fleiri mjög lélegar vikur sem draga meðaltalið niður en úr því geta þeir bætt þcgar líður á vorið því það eru bara bestu vikurnar sem telja... ■ BL0KHIN TIL AUSTURRÍKIS Oleg Blokhin lcikmaður sovéska knattspyrnulandsliðsins hefur ákveðið að halda til Austurríkis og leika þar með 2. deildarliðinu Vor- waerts Steyr. Blokhin sem er 35 ára gamall og var kosinn knattspyrnu- maður Evrópu árið 1975 er þriðji Sovétmaðurinn sem leikur erlendis. Hinir tveir eru Oleg Zinchenko og Sergei Shavlo, fyrrverandi og núver- andi leikmenn Rapid Vín. Blokhin ákvað að flytja sig til Austurríkis þegar hann keppti þar með núverandi liði sínu, Dynamo Kiev á knattspyrnumóti í síðasta mánuði. Dynamo Kiev og Vorwa- erts urðu þar efst og jöfn... ■ SPURS TÓPUÐU FYRIR LAKERS San Antonio Spurs sem Pétur Guðmundsson leikur með í banda- rísku atvinnumannadeildinni í körfuknattleik töpuðu fyrir LA Lak- ers í Los Angeles í fyrrakvöld. Lokatölur urðu 115 stig gegn 133. Önnur úrslit urðu þau að Utah Jazz tapaði 99-107 fyrir Boston Celtics á heimavelli, Cleveland Cavaliers unnu Denver Nuggets heima, 122- 101, Philadellphia 76ers sigruðu Phoenix Suns með 122 stigum gegn 114 á heimavelli og Houston Rock- ets unnu Dallas Mavericks 117-107 hcima... ■ CRUYFF SEGIR AF SÉR - KEMUR HANN AFTUR? Johan Cruyff hefur sagt af sér sem framkvæmdastjóri hollenska knatt- spyrnuliðsins Ajax Amsterdam. Kom afsögnin í kjölfar misklíðar um nýjan samning hans við félagið. Cruyff hafði fyrir nokkru lýst því yfir í blaðaviðtölum að hann væri mjög ánægður hjá Ajax en honum líkaði ekki nýr samningur sem honum var boðinn og sagði því af sér. Kunnugir telja að Cruyff muni hætta v'ð að hætta biðji stjórn félagsins hann um það, hann sjái eftir öllu saman... mætti a.m.k. álykta sem svo eftir að heyra hvaða aðstöðu bandaríska sjónvarpsstöðin ABC fer fram á fyrir íþróttafréttamenn sína. Þeir vilja nefnilega fá skothelt gler í aðstöðu þá þar sem íþróttafrétta- menn sitja og lýsa tvíþraut (skíða- ganga og skotfimi) en reyndar er aðstaða íþróttafréttamanna beint fyrir aftan staðinn þar sem hleypt verður af skotum, að baki íþrótta- mannanna og rétt hjá áhorfenda- stúkunni svo hættan er varla stór- kostleg. Svipaða aðstöðu vilja þeir fá þar sem keppt er í íshokký og vill sjónvarpsstöðin jafnframt láta lífga upp á íshokkýhöllina og færa nokkur tré sem skyggja á við myndatökur af sleðakeppni. Búast má við að gengið verði að öllum kröfum ABC-sjónvarpsstöðv- arinnar sem greiddi 300 milljónir bandaríkjadollara fyrir sýningarrétt- inn... ■ KA HELDUR UPP Á STÓRAFMÆLI Knattspyrnufélag^^_ Akureyrar ■ LEIDDIST AÐ STANDAISTAPPI VIÐ AÐ FÁ LÁNAÐAN B0LTA SVO ÞEIR ST0FNUÐU KNATT- SPYRNUFÉLAG Aðdragandinn að stofnun KA var nokkuð skemmtilegur. Nokkrir strákar höfðu um skeið spilað saman fótbolta á Akureyri á þriðja áratug aldarinnar en þeir áttu engan bolta og fannst orðið torsótt að fá hann lánaðan hjá ungmennafélaginu. Höfðu sumir þeirra þó gengið gagn- gert í ungmennafélagið til að eiga auðveldara með að fá boltann lánað- an. Óánægjan gróf um sig og að lokum ákváðu félagarnir að stofna eigið íþróttafélag sem þeir nefndu Knattspyrnufélaga Akureyrar. Síð- an eru liðin 60 ár og mun félagið í dag eiga nóg af boltum... ■ SPENNA í HÓPLEIKNUM Keppni í hópleik íslenskra Get- rauna er mjög hörð og staðan tvísýn. Eftir tvær vikur verða fyrstu hóparn- ir búnir að ná tilskildum leikviku- fjölda til að eiga rétt á verðlaunum. BIS hefur nauma forystu eftir 18. leikviku, meðaltal 10,07 en Ricki 2001 og Guðjón koma skammt á Getraunahaninn Körfuknattleikur: Tæpt skal það vera íslenska unglingalandsliðið í körfuknattleik sem um þessar mundir keppir í Belfast á Norð- ur-Irlandi tapaði fyrsta leik sín- um á mótinu, mjög naumlega. Leikið var við Skota og var staðan jöfn, 67-67 þegar leiktíminn var úti. Skotamir fengu tvö vítaskot í þann mund er tíminn rann út og tókst þeim að skora úr þeim báðum og tryggja sér sigurinn, 69-67. Leikurinn var mjög jafn all- an tímann, nánast í járnum en Skotar höfðu þriggja stiga for- ystu í leikhléi, 39-36. Rúnar Árnason (UMFG) var stiga- hæstur í íslenska liðinu með 15 stig, Egill Viðarsson (ÍBK) gerði 14, Sveinbjörn Sigurðs- son (UMFG) 12 og Hannes Haraldsson (Val) 10. Auk ís- lendinga og Skota keppa drengja- og unglingalandslið heimamanna á mótinu. -HÁ Pétur Guðmundsson og félagar hjá San Antonio Spurs urðu að lúta í lægra haldi fyrir Los Angeles Lakers eins og þeir gera á þessari mynd. Hér er það A.C. Green hjá Lakers sem nær knettinum á undan þremur leikmönnum Spurs. Innanhússknattspyrna: Stórmót Sl og Adidas Árlegt Stórmót Samtaka íþróttafréttamanna og Adidas verður á Akranesi um næstu helgi, nánar til tekið laugardag- inn 9. janúar. Á mótinu eiga þátttökurétt íslandsmeistarar utan- og innanhúss, bikar- mcistarar, stórlið SÍ og efstu lið 1. deildar uns 8 lið eru komin. Að þessu sinni keppa á mót- inu, í A-riðli: Fram, ÍA, ÍBK og KA og í B-riðli Valur, KR, Þór og SÍ. Keppni hefst kl. 13.00 með leik Valsmanna og SI en röð leikjanna er annars þessi: í A-ÍBK, KR-Þór, Fram- KA, KR-SÍ, Valur-Þór, ÍA- KA, Fram-ÍBK, Valur-KR, Þór-SÍ, Fram-ÍA, ÍBK-KA. Leiknar eru 2x8 mín. í undan- keppninni en í úrslitakeppninni 2x10 mín. Undanúrslit hefjast kl. 17.30. Þá leika 1A-2B og 1B-2A og loks er leikið um sæti 3-4 og 1-2. Skagamenn verða með skemmtiatriði fyrir undanúrslitaleikina. KR-ingar sigruðu á Stórmót- inu í fyrra og unnu þá til cignar bikarinn sem keppt var um og er því nýr bikar í boði. Að- göngumiðaverð er kr. 200 íyrir fullorðna og kr. 50 fyrir börn. 1X2 Spámönnum Tímans hefur ekki gengið sem skyldi í jólatörn- inni, að meðaltali verið heldur slakir í getraunaleiknum. Nýja árið virðist þó heilsa Tímamönn- um betur en öðrum og væntan- lega munu þeir snúa vörn í sókn. Samkvæmt útreikningum nægir Tímamönnum að hafa átta rétta að landsmeðaltali í janúar og sjö í febrúar til að vinna getraunaleik fjölmiðlanna. Standist þeir út- reikningar ekki má alltaf treysta á marsmánuð en sá tími er Tíma- mönnum oftast verulega hag- stæður samkvæmt gamalli þjóðtrú. Snúum okkur að getraunaseðl- inum. Það eru skemmtilegir leikir á honum enda bikarleikir. Biackbum-Portsmouth.......... 1 Blackburn leikur á heimavelli og leikmenn Portsmouth þurfa að ferðast langa leið frá Suður- Englandi. Það verður ekki tekið vinsamlega á móti þeim norður frá og 1. deildariiðið tapar örugg- lega. Derfay-Chelsea...............1 Miðlandaliðið sigrar Lundúna- liðið í hörkuleik á Baseball Ground. Ekkert skorað fyrr en í síðari hálfleik. Huddersfield-Man. City........ 2 Huddersfíeld hefur gengið illa í 2. deildinni og er neðst. Jórvík- urliðið á ekki möguleika gegn piltunum frá Manchester. Leeds-Aston Villa............ 1 Leedsarar eru á uppleið, þeirra lipri og skemmtilegi sóknarbolti (?) er að skila sér í stigum. Miðlandaliðið sér hvítt og gult á móti Leedsurum á Elland Road. 75% líkur á leiðinglegu veðri í Leeds en jafnmiklar líkur á hörkuleik. Newcastle-Crystal Palace.....1 Liðið úr fyrstu deild er á heima- velli og St. James Park er enginn smá heimavöllur. Hvað með það? Jú, heimasigur. Oldham-Tottenham.............1 Nú ærast norðanmennirnir í Oldham, æða út um allan völl og þjarma að Lundúnabúunum. Oldhain sigrar stórliðið og glatt verður á hjalla. Reading-Southampton............X Yfírgnæfandi líkur á jafntefli þótt Southampton verði meira með boltann. Það boðar aldrei gott fyrir þá. Sheff.Wed.-Everton.............X Barátta á Hillsborough þarsem „Uglurnar“ reyna allt til að sigra Evertondrengi en tekst ei. Stoke-Liverpool ...............2 Ekkert stöðvar Liverpool. Það er hreinlega ekki hægt að spá á móti þeim. Svindon-Norwich ...............2 Ekkert slys hér, 1. deildarliðið sigrar örugglega. Watford-Hull...................1 Selur popgoð liðið sitt til klámkóngs? Það er spurning. Leikmennirnir halda þó áfram og sigra enda bikariið. West Ham-Charlton ........... 1 Heimaliðið sigrar í leik sem einkennist af taugaspennu. Menn spyrja sig; Verður drottningin viðstödd? LEIKVIKA19 C C E n > > s 13 cn (0 > o c (0 D) C\i <o :0 c co c c5 Leikir9. janúar1988 i- 5 Q n. Q GL CD co cb 1. Blackburn-Portsmouth 1 1 2 2 1 1 1 X X 2. Derby-Chelsea 1 1 1 X 1 X 1 1 1 3. Huddersfield-Man. City 2 X 2 2 X 2 2 2 2 4. Leeds-Aston Villa 1 X X X 1 1 X 1 1 5. Newcastle - Crystal Palace 1 1 1 1 1 1 1 1 X 6. Oldham-Tottenham 1 2 2 X 2 2 2 X 2 7. Reading-Southampton X X 2 2 1 X 2 2 2 8. Sheff. Wed.-Everton X X X 1 2 X 2 2 1 9. Stoke-Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 2 2 10. Swindon-Nonwich 2 X 2 1 1 1 2 2 1 11. Watford-Hull 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12. Westham-Charlton 1 1 1 1 1 1 1 1 X Staðan: 91 93 108 92 95 94 99 93 97 Aðeins ein röð kom fram með 12 rétta í 18. ieikviku enda úrslit mjög óvænt, aðeins tveir heimasigrar, 5 jal'ntefli og 5 útisigrar. Hópurinn SVEFN úr Kópavogi hafði alla leikina rétta á einni röð og 11 rétta á 15 röðum en alls var hópurinn með 7.776 raðir á opnum grænum kerfisseðli. Alls fengu þeir kr. 653.785.- í sinn hlut en þeir 19 sem voru að auki með 11 rétta fengu kr. 6.930.- hver. Næsta laugardag verða eingöngu leikir úr 3. umferð ensku bikarkeppninnar á seðlinum. Ekki verður framlengt þó jafntefli verði að loknum venjulegum leiktíma heldur leikinn annar leikur. Spá fjölmiðlanna fyrir nítjándu leikviku:

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.