Tíminn - 06.01.1988, Page 19
’Tíminn 19
Miðvikudagur 6. janúar 1988
Mitzi Gaynor leikkona er orðin 56 ára, en hún skartar samt í dökkum hlýralausum
ballkjól, en hcfur silkisjal yfir herðarnar. Mitzi heitir fullu nafni - Francesca Mitzi
Marlene de Czanyi von Gerber og er fædd í Chicago 4. sept. 1931
Þær eru baðar í hlýralausum kjolum, Lisa Stahl (úr The Bold And The
Beautiful) t.v. og Kebrina Kincade (sem er kynnt sem „dulræna konan"
eða sú skyggna). Það vantar ekki pífurnar og blúnduverkið á sparikjólanna
þeirra
Leikkonan Faye Duna-
way vill vera öðru vísi en
hinar. Hún er í kvöldkjól,
sem er hár í hálsinn og
engu líkara en hún sé
með gamaldags þríhyrnu
úr satíni bundna um herð-
ar og brjóst. Hún hefur
þó áreiðanlega enga á-
stæðu til að fela
kroppinn, því að Faye er
með glæsilegustu konum.
Þessi kjól með stutta
röndótta pilsinu er teikn-
aður eftir Cristian Lacr-
oix í New York
Ljóshærða
gengilbeinan
- sem sló í gegn í Matlock-þáttunum
Hlýralausir kjólar
vinsælir
Á nýjum myndum frá Hollywood má sjá, að hlýralausir
kvöldkjólar eru í tísku núna - eða eru „in“ , eins og það er
kallað þar.
Einkum eru það þær yngri sem fylgja þessari tísku, en þó
eru ein og ein af eldri kynslóðinni sem hefur verið það dugleg
í líkamsræktinni, að hún getur státað af fallegum handleggjum
og ávölum öxlum. Við birtum hér nokkrar myndir af
hátíðakjólunum þeirra í Hollywood.
Hún Leann Creel er ekki mikið þekkt
ennþá, en hcrrann hcnnar, hann Kirk
Cameron, er orðinn frægur fyrir leik sinn
■ kvikmyndum og sjónvarpsþáttum (Grow-
ing Pains), þó hann sé nýorðinn 17 ára.
Leann í fallega hlýralausa satínkjólnum og
Kirk í fyrsta smókingnum sínum eru faliegt
par. Þau eru þarna að fara ■ samkvæmi sem
haldið var til ágóða fyrir eyðni-rannsóknir
„Ég var mjög upp með mér
þegar ég fékk fyrst smáhlutverk í
Matlock-þáttunum. Ég lék pönk-
stelpu með tætingslegt hár, f galla-
buxum og jakka með glansandi
málmbólum og skreytingum. Þessi
pía hét Angel, en var nú ekki
englaleg í framkomu. Hún átti að
koma fram sem vitni í réttarhöld-
um hjá Matlock-stjörnunni Andy
Griffith, - óg ég lék eins sannfær-
andi og ég gat. Þetta var æsispenn-
andi!" sagði hún Kari Lizer, 23 ára
gömul upprennandi leikkona.
Nú hefur Kari Lizer verið fas-
tráðin í Matlock-þættina,- en nú
kemur hún fram sem Cassie
Phillips, hressilegur laganemi sem
aðstoðar Matlock lögfræðing
(Andy Griffith).
„Okkur vantaði einmitt svona
ferska og skemmtilega stelpu til að
hressa svolítið upp á sjónvarps-
þættina okkar. Við vorum farin að
hjakka í sama farinu. Hún Kari er
svo upp frumleg og hugvitssöm að
hún finnur allt af upp á einhverju
nýju. „Má ég prófa að hafa þetta
atriði svona," segir hún stundum
og kemur okkur á óvart með miklu
snjallari lausn,“ segir hinn marg-
reyndi leikari Andy Griffith
hrifinn. Hann heldur því fram að
þessi nýja persóna í þáttunum
verði mikil og góð viðbót við fast
starfslið Matlock-þáttanna.
Kari Lizer hafði leikið í skólanum og fékk vinnu í auglýsingamyndum,
en aðalstarf hennar var að ganga um beina á veitingahúsi - þar til hún
komst í Matlock-þættina.
Það fer vel á með þeim Andy Gríffith og Kari
Lizer og þau hugsa gott til samstarfsins í
framtíðinni.