Tíminn - 29.01.1988, Blaðsíða 5
Föstudagur 29. janúar 1988
Tíminn 5
Slysavarnafélag (slands 60 ára í dag:
TEKIÐ í SPOTTANN,
STRENGT Á KLÓNNI
Það eru liðin 60 ár frá því að borgarar í Reykjavík komu saman á
almennum fundi í Bárubúðinni til að stofna björgunarfélag í þeim tilgangi
að sporna við sjóslysum. Um aldamótin missti íslenska þjóðin marga
menn í sjóslysum og ekki var óalgengt, vegna skorts á björgunartækjum,
að heimamenn máttu horfa á báta brotna í spón skammt undan landi og
gátu drukknandi mönnum enga björg veitt. Sú var raunin þegar
Ingvarsslysið varð við Viðey árið 1906 og 20 menn fórust.
Á sunnudegi 29. janúar 1928 var Slysavarnafélag fslands stofnað í
Bárubúðinni.
„Við erum öfundaðir af Tilkynningaskyldunni,“ segir Hannes Hafstein,
forstjóri Slysavarnafélags íslands, á 60 ára afmæli félagsins. (Timinn: pjetur)
Mikið vatn hefur runnið til sjáv-
ar síðan og fékkst Hannes Haf-
stein, forstjóri SVFÍ, til að taka á
móti blaðamönnum á heimili sínu
og rekja sögu félagsins í stuttu máli
á þessum tímamótum.
„Þessi mál um sjóslysavarnir og
björgunarmál höfðu verið lengi á
döfinni og oft til umræðu og þá
vanalega í kjölfar hinna hörmulegu
sjóslysa sem voru í lok síðustu
aldar og í byrjun þessarar," sagði
Hannes um upphafið. „Skipulögð
starfsemi á þessum vettvangi hófst
ekki fyrr en með stofnun Björgun-
arfélags Vestmannaeyja árið 1918.
Það var þeirra markmið að safna fé
til kaupa á skipi til landsins, til
eftirlits og gæslu á miðum Eyja-
manna. Þeir reru þá á litlum bátum
og urðu fyrir hrikalegu manntjóni
á þessum árum. Það var verkefni
þessa nýja skips að aðstoða báta-
flotann og stugga við hinum
óboðnu gestum, sem erlendir
togarar voru, en þeir voru ansi
aðgangsharðir á fiskislóðir við
Vestmannaeyjar. Þetta gæslu- og
björgunarskip var nefnt Þór. Með
stofnun Landhelgisgæslu 1926 varð
Þór okkar fyrsta varðskip."
Á rökstólum í Halaveðri
Árið 1925 urðu þáttaskil í þess-
um efnum. Fiskifélag íslands sat
þá á rökstólum í Reykjavík þegar
hið skelfilega Halaveður gekk yfir.
Björgunarmál höfðu oft áður verið
til umræðu en í þetta sinn var tekið
fast á þeim. Fiskifélagið skipaði
nefnd til að gera tillögur um slysa-
varnir og þá var Jón heitinn Berg-
sveinsson ráðinn, til að kynna sér
málin erlendis. Hann lagði tillögur
nefndarinnar síðar fyrir Fiskifélag-
ið og í framhaldi af því var boðað
til borgarafundarins í Bárubúð-
inni. Jón E. Bergsveinsson var
ráðinn fyrsti starfsmaður hins ný-
stofnaða félags.
„Upphaflega átti að stofna
björgunarfélag, en þegar rætt var
nánar um tilgang félagsins, var
ákveðið að kalla það Slysavarna-
félag íslands. Það er vegna þess að
tilgangur félagsins varð þegar tví-
þættur. í fyrsta lagi á félagið að
sporna við slysum eða útbreiðsla
fræðsluefnis um slysavarnir al-
mennt og í öðru lagi björgun og
hjálparstörf alls konar.
Jóni E. Bergsveinssyni verður
aldrei nógsamlega þakkað það
óeigingjarna og fórnfúsa braut-
ryðjandastarf sem hann innti af
hendi.“
„Jón forseti" ferst
Björgunarmiðstöð var þegar sett
á fót á vegum SVFÍ, sem svaraði
kalli í neyðartilvikum á sjó og
landi. Þegar árið 1928 var félaginu
beitt til að stofna slysavarnadeildir
um allt land. Fyrstu slysavarna-
deildinni var komið á laggirnar í
júnímánuði þetta sama ár í Sand-
gerði. Þetta var fyrsta deildin sem
stofnuð var innan SVFÍ og var
nefnd Sigurvon.
„Fjórum vikum eftir að SVFÍ
var stofnað varð hörmulegt sjóslys
við Stafnnes, þegar togarinn Jón
forseti fórst. Félagið fékk því strax
rismikið verkefni í hendur og menn
réðu ráðum sínum um til hvaða
ráða bæri að taka þegar slys yrði á
þessum slóðum. Upp úr þessu var
5 ákveðið að koma fyrir línubyssu
eða fluglínutæki á Stafnnesi og
koma þannig á björgunarstöð í
Sandgerði.
Árið 1929 fékk félagið sína
fyrstu miklu gjöf, sem var breskur
björgunarbátur, sem heitir Þor-
steinn.“
Honum var valinn staður í Sand-
gerði og byggt yfir hann bátshús,
sem enn stendur. Báturinn er enn
þá til og verið er að útbúa minja-
safn um gripinn. Björgunarstöðin
með bát og línubyssu var vígð í
júnímánuði 1929.
Á næstu árum var ein deild
stofnuð eftir annarri um allt land
þar til hafði myndast samfelld
keðja. Merk þáttaskil urðu í apríl
1930 þegar Bandalag íslenskra
kvenna gekk til liðs við SVFÍ með
styrkjum og fjáröflun.
„Án þess að á nokkurn sé hallað
þá hafði Slysavarnafélagið eignast
þann bakhjarl sem mest og best
hefur dugað. Þær hafa verið það
duglegar við að afla félaginu fj ár. “
Konurnar hófu dreifingu á ullar-
fatnaði, sem þær höfðu sett í
vatnsþéttar umbúðir, og fylgdi
björgunarbátum um borð í
skipum. Þær hafa alla tíð síðan séð
svo um, að ullarfatnaður sé til taks,
þegar mest á ríður.
Línubyssa bjargar
38 Frökkum
- Uppgangur félagsins var mjög
ör en hvenær sannaði það fyrst
ágæti sitt? '
„Línubyssum var komið fyrir
þar sem því var við komið, til að
skjóta streng út til skipa og geta
dregið menn til lands í björgunar-
stól eftir honum,“ svaraði Hannes.
„Það var 31. mars 1931 að bjargað
var með fluglínutæki hér við land
fyrsta sinni. Það var þegar slysa-
varnadeildinni Þorbirni auðnaðist
að bjarga allri áhöfninni, 38
mönnum, af franska togaranum
Cap Fagnet, sem strandað hafði í
foráttubrimi á Hraunsfjörum aust-
an Grindavíkur."
Það einkennilega við þetta var
að viku áður hafði Jón E. Berg-
sveinsson kennt meðferð línubyss-
unnar í Grindavík. Á glæstum ferli
hefur slysavarnadeildin í Grinda-
vík bjargað 201 manni, íslenskum
og erlendum, úr sjávarháska. Alls
telur Hannes Hafstein að á þessum
60 árum hafi félög innan vébanda
SVFl bjargað hátt á þriðja þúsund
manns.
„Margir telja að strand skipa
heyri fortíðinni til og að leysa megi
slíkt með tækninni. Ég er nú ekki
beint þeirrar skoðunar. Skips-
strönd eiga sér nú ekki alltaf stað í
blíðviðri og t.d. 1983 drógu sveitir
okkar í land 37 menn. Við þurfum
alltaf að vera undir það búnir að
mæta þessum vanda.“
SVFÍ á heiðum uppi
Það er einnig leitað til SVFÍ
þegar t.d fólk týnist á heiðum uppi
og hálendi. SVFÍ bindur sig ekki
einvörðungu við sjóslys, þótt sá
hafi verið upphaflegur tilgangur
félagsins. Á vegum SVFI hafa
verið stofnaðar umferðaröryggis-
nefndir um allt land.
„Við tengjumst ef til vill frekar
sjávarsíðunni, en 1937 varð breyt-
ing á starfsvettvangi og ákveðið
var að taka upp slysavarnir á landi.
Það var ráðinn til þess sérstakur
maður og það væri aðallega í
sambandi við umferðarfræðslu
barna og unglinga auk skyndihjálp-
arkennslu." sagði Hannes. „Það
hefur hins vegar verið snar þáttur
í starfsemi félagsins frá upphafi að
fylgjast með bátum á miðunum og
leita um leið og þeirra er saknað.
Strax og útvarpið hóf útsendingar
var það notað til að koma tilkynn-
ingum til sjófarenda, líkt og gert er
með Tilkynningaskyldunni í dag.“
I ofsaveðri í febrúar 1941 urðu
íbúar í Reykjavík aftur vitni að
sjóslysi líkt og 1906. En þá voru
þeir ekki lengur vanmáttugir sjón-
arvottar. Tvö millilandaskip rak þá
á land og tókst að draga í land og
bjarga 43 mönnum á línu, sem
skotið var til skipverja.
„Þá voru tækin til reiðu og vanir
og þjálfaðir menn, sem kunnu með
þau að fara. Þetta sýnir glögglega
mismuninn frá því sem var.“
Reiðubúnir þegar
kallið kemur
SVFÍ gekkst fyrir byggingu skip-
brotsmannaskýla, en saga þeirra er
vitanlega eldri en félagsins sjálfs.
Nú eru skýlin 46 í öllum fjórðung-
um landsins, þar sem er skjólfatn-
aður og upphitunartæki auk fjar-
skiptabúnaðar. Hin síðari ár hafa
verið reist skýli við fjallvegi einnig.
Slysavarnafélagið hefur stækkað
og rekstur þess orðið umfangsmeiri
en var. Það skiptist í raun í þrjá
hluta; skrifstofa SVFÍ og deildir
hennar um allt land, Tilkynninga-
skyldan og Slysavarnaskóli sjó-
manna, sem nokkuð hefur verið
sagt frá í fréttum, en það rekur
skólann um borð í skipinu Sæ-
björgu. Þar er t.d. fullkomnasta
aðstaða á landinu til að æfa reyk-
köfun og hefur slökkviliðið getað
notfært sér hana. Sæbjörg heitir í
höfuðið á skipi, sem kom til lands-
ins á vegum SVFÍ 1938, og var
síðar eitt af skipum Landhelgis-
gæslunnar eftir endurbætur 1946.
Hún var lengst af við bátagæslur á
Faxaflóa.
Hannes sagði að íslendingar
væru öfundaðir erlendis af Til-
kynningaskyldunni og hinu góða
samstarfi sem íslenskir sjómenn og
fjölskyldur þeirra hafa átt gegnum
hana við strandstöðvar Landsfm-
ans. Nú er verið að tölvuvæða
Tilkynningaskylduna, en til hennar
berast hundruð tilkynninga dag
hvern. Þegar mest var bárust 1800
tilkynningar á einum sólarhring.
Og betur má ef duga skal.
„Það sem er einkennandi fyrir
Slysavarnafélagsmenn er sjálf-
boðastarf þeirra. Þeir eru fúsir að
fara á nóttu sem degi og virkum og
helgum dögum þegar kallið
kemur.“
Hannes sagði það nauðsynlegt
að leitast við á öllum tímum að búa
björgunarmenn þeim tækjum sem
best þykja hverju sinni. Hann benti
á að stöðugt væri verið að betrum-
bæta björgunarbátakost SVFÍ og
einnig að vilji væri fyrir því að festa
kaup á þyrlu. Það væri þó ekki á
dagskrá enn sem komið væri, en
SVFl stóð einmitt að kaupum á
fyrstu þyrlunni til landsins. „Þær
hafa löngu sannað ágæti sitt við
björgunarstörf," sagði Hannes.
Unglingadeildir SVFÍ
Það verða encin hátíðahöld á
afmælisdegi SVFl. „Strákarnirætla
að lyfta sér upp á Hótel Sögu um
hclgina,“ sagði Hannes. Hátíðin
vcrður á landsþinginu í maí í vor.
En í tilefni 60 ára afmælisins
verður ritgcrða- og teikningasam-
keppni í samráði við barnabiaðið
ABC, scm tengist starfsemi SVFÍ,
og eru vegleg verðlaun í boði.
Reynt verður að höfða til unglinga
og fá þá frekar til starfs við félagið.
„Þeir hafa gaman af að taka í
spottann og strengja á klónni,“
sagði Hannes.
Hann kynntist sjálfur Slysa-
varnafélaginu þegar hann var lítill
strákur, eins og hann segir, en
faðir hans, Júlíus Hafstein, sýslu-
maður á Húsavík, var eldheitur
slysavarnamaður og sat um tfma í
stjórn SVFÍ fyrir Norðurland og
lét mikið til sín taka á því sviði auk
þess sem hann er m.a. þekktur
fyrir að hafa barist fyrir eflingu og
stækkun Landhelgisgæslu.
„Maður fékk þetta þannig í sig
nokkuð snemma. Ég hóf störf hjá
SVFÍ um mánaðamót október og
nóvember 1964 og var fyrst í slysa-
vörnum á Iandi. Á haustmánuðum
1965 var ég beðinn að taka yfir
erindrekastarf í sjóslysavörnum og
leit og björgunarstörfum. Við það
var ég allar götur til ársins 1973 að
ég tók við þvf starfi sem ég gegni í
dag. Fyrst hét það framkvæmda-
stjóri en nú forstjóri."
Nú þegar eru tólf unglingadeildir
reknar á vegum SVFÍ. Hinn 7.
febrúar nk. verður svo skemmti-
dagskrá í Háskólabíói. Margar
slysavarnadeildir hafa opið hús nú
um helgina til að kynna tæki sfn og
búnað og gera grein fyrir starfsem-
inni. Raunar er þetta ár allsherjar-
afmælisár, ef svo má að orði
komast. SVFf verður 60 ára, Sjó-
mannadagurinn 50 ára, Tilkynn-
ingaskyldan 20 ára, Björgunarfélag
Vestmannaeyja 70 ára og hægri
umferð á götum 20 ára. Allt snertir
þetta Slysavarnafélagið að öllu eða
miklu leyti.
Hannes Hafstein hefur rætt um
brautryðjendur Slysavarnafélags-
ins, upphaf starfseminnar og til-
gang hennar. Hann segir að verk-
efni hennar séu óþrjótandi og að
menn verði ávallt að hafa augun
opin fyrir nýjum möguleikum til að
sporna við slysum. Raunar er ósk
hans til allra landsmanna á þessum
tfmamótum SVFÍ að þetta ár 1988
megi verða slysalaust ár. Er þar
tilgangur starfs hans meitlaður í
örfá orð. þj