Tíminn - 29.01.1988, Síða 12
12 Tíminn
FRÉTTAYFIRLIT
BEIRÚT - Sýrlenskar her-
sveitir er leituðu að vestur-
þýskum gísl réðust inn í stöðv-
ar Hizbollah (flokks Guðs) sem
nýtur stuðnings írana. Sýr-
lendingarnir leituðu að Ralph
Schray sem rænt var á mið-
vikudag, greinileaa í þeim til-,
gangi að reyna ao neyða vest-
ur-þýsk stjórnvöld til að láta
lausa tvo Líbana úr hópi shjíta,
bræðurna Abbas Ali og Mo-
hammed Ali Hamadi.
LUNDÚNIR - Heilbrigðis-
ráðherrar ríkja er samtals telja
um 95% af fólksfjölda í heimin-
um hvöttu til sameiginlegra
aðgerðagegn hinum banvæna
sjúkdóm eyðni. Þetta var fyrsta í
alþjóðlega ráðstefnan þar sem
fjallað var um leiðir í baráttunni .
gegn eyðni.
SAN JOSE - Skæruliðar í >
Nicaragua og fulltrúar stjórnar
Sandinista héldu fund í Costa
Rica og voru þetta fyrstu við-
ræðurnar þar sem aðilarnir tal- ,
ast beint við. Ekki var þó talið
að deiluaðilar kæmust nær
samkomulagi um að binda
enda á borgarastríðið í Nicar-
agua sem staðið hefur í sex ár.
MOSKVA - Rúmlega
hundrað gyðingar, sem leita
eftir að fá að flytjast burt frá
Sovétríkjunum, komu saman í
Moskvu til að mótmæla hæga-
gangi í meðferð umsókna
sinna. Meðlimir alþjóðlegra
mannréttindasamtaka voru
viðstaddir mótmælaaðgerðirn-
ar.
BONN - Forráðamenn vest-
ur-þýska bílafyrirtækisins
Porsche sögðu lækkandi gengi
dalsins hafa haft slæm áhrif á
framgang fyrirtækisins í
Bandaríkjunum.
HAAG - Málverk eftir Vinc-
ent van Gogh sem ekki hafði
verið vitað um var uppgötvað á
heimili aldraðar konu í bænum
Groningen í norðurhluta
Hollands. Málverkið var af
manni með blómvönd og hafði
hangið í stofu konunnar í mörg
ár.
SOFÍA - Todor Zhivkov,
hinn 76 ára gamli leiðtogi Búlg-
aríu, sagðist ætla að láta af
starfi sínu sem formaður kom-
múnistaflokksins einhvern
tíma á næstu árum. Vestrænir
stjórnarerindrekar sögðu þó að
Zhivkov myndi halda áfram að
gegna stöðu sinni þangað til
einhver gangur væri kominn í
umbótaáætlunina sem stjórn-
völd hafa samið og ber keim af |
glasnoststefnu Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga.
MALIN, írlandi - Lögregl-
an á írlandi fann mikið magn
vopna á eyðilegri strönd á
norðvesturhluta eyjunnar. Tal-
ið er að vopnin hafi verið ætluð ,
írska lýðveldishernum. j
^ llllllllllllillllllllll ÚTLÖND ^ irl^ v!;'
Föstudagur 29. janúar 1988
Garrí Kasparov gagnrýndur í sovésku dagblaði:
„BARN BREYTINGA"
KOMIÐ ÚT AF
GLASNOSTVEGINUM
Garry Kasparov heimsmeistari í
skák var sakaður um tvöfalt siðgæði
í grein sem birtist í sovésku blaði í
gær. Þetta er í fyrsta skipti sem
heimsmeistarinn er opinberlega
gagnrýndur á svo beinskeyttan hátt
þar í landi.
Greinin birtist í dagblaðinu Sovi-
etsky Sport og var höfundur hennar
Viktor Baturinsky fyrrum embættis-
maður í sovéska skáksambandinu.
Baturinsky fjallaði þar um bók
Kasparovs „Barn breytinga" sem
gefin var út í Vestur-Þýskalandi í
síðasta mánuði og sagði að ummæli
hans þar hefðu verið allt önnur en
hann hefði látið frá sér fara í sovésk-
um fjölmiðlum.
Baturinsky sagði að í bókinni væri
gefið í skyn að stjórn landsins sem
ól hann upp og gaf honum tækifæri
til að þroska óvenjulega hæfileika
sína strax frá unga aldri hefði í raun
verið á móti honum og reynt að
hefta för hans.
„Það er gefið í skyn að hann hefði
þurft að stjórna baráttu gegn sov-
ésku skákmafíunni (sem ég tilheyri)
og guðföður hennar Karpov,“ sagði
Baturinsky og vitnaði þar til Anatoly
Karpovs fyrrum heimsmeistara.
Hinn 24 ára gajnli Kasparov er
þekktur fyrir hviklynda framkomu
og að vera óhræddur að láta álit sitt
í Ijós. Þar er hann ekki líkur helsta
keppinaut sínum Karpov sem er
þekktur fyrir rólega og jafnvel kald-
lynda framkomu.
Kasparov varð heimsmeistari árið
1985, sá yngsti til að ná þeim titli, og
batt þar með enda á tíu ára veldi
Karpovs. Hann varði síðan titil sinn
í síðasta mánuði eftir jafnt og spenn-
andi einvígi við Karpov sem fram fór
í Sevillu á Spáni.
Kasparov er einlægur stuðnings-
maður Gorbatsjovs Sovétleiðtoga og
breytinga þeirra sem hann hefur
staðið fyrir. Skákmeistarinn ungi
hefur þar af leiðandi ekki verið
gagnrýndur í fjölmiðlum þótt þeir
hafi reyndar frekar tekið afstöðu
með hinum rólega Karpov. Eftir að
einvíginu lauk í síðasta mánuði var
Kasparov þó gert hátt undir höfði í
fjölmiðlum þar eystra og birtu bæði
Tass og Izvestia viðtöl við hann.
í greininni í gær sakaði hinsvegar
Baturinsky skákmeistarann unga um
að halda sig ekki við glasnost eða
opnunarstefnu Gorbatsjovs heldur
skjóta langt yfir markið í gagnrýni
sinni.
„Þú getur rökrætt og gagnrýnt
margt, þar á meðal skákstíla, en þú
mátt ekki móðga, niðurlægja og búa
mönnum til skoðanir," sagði Batur-
insky um gagnrýni Kasparovs á
Karpov og sovéska skáksambandið.
hb
Garrí Kasparov hefur verið mikið í sviðsljósinu í fjölmiðlum bæði austan
tjalds og vestan
Svíþjóð
Lítil leynd
yfir njósnum
stórveldanna
Talsmaður hersins í Svíþjóð
sagði í gær að hermönnum hefði
verið skipað að fylgjast með hvort
sölumenn er færu húsa á milli í
bæjum er væru hernaðarlega
mikilvægir, væru erlendir njósn-
arar eður ei.
Þessi tilskipun kemur í kjölfar
frétta um að njósnarar stórveld-
anna væru orðnir það ósvífnir að
þeir þættust vera málverkasalar
eða annað álíka og fylgdust þann-
ig með ferðum sænskra herja og
embættismanna.
„Það er ótrúlcgt hvað er njósn-
að á augljósan hátt um okkur.
Leyndin, sem stórveldin sýna
venjulega, er bara ekki til
staðar," sagði einn talsmanna
sænska hersins fyrir stuttu. Hann
bætti við að erindrekar stórveld-
anna virtust beita svipuðum að-
ferðum í Svíþjóð og þeir gerðu í
sumum ríkjum þriðja heimsins.
Sænsk stjórnvöld hafa af þessu
áhyggjur enda vandamál á ferð.
Þau vilja draga úr njósnum og
hafa t.d. lagt til að ferðir grun-
samlegra erlendra flutningabíla
um landið verði takmarkaðar.
Embættismenn í Svíþjóð segja
að það sé furðu algcngt að njósn-
arar hafist við í þessum farartækj-
um með öll sín tól og tæki. hb
Fyrrum samstarfsmaður Manúels
António Noriega hershöfðingja og
valdamesta manns í Panama hefur
sakað hann um að ráða „algjöru
glæpaveldi sem ekkert gefur eftir
öðrum slíkum í heiminum.“
José Blandón, yfirmaður sendi-
ráðsskrifstofu Panama í New York
og tryggur stuðningsmaður Noriega
þangað til nýlega, kom fram með
ásakanirnar í síðustu viku. Hann
ræddi þá við þingmenn í Washington
og sagði Noriega reka starfsemi sem
næði meðal annars yfir eiturlyfja-
smygl, peningafölsun, vopnasölu og
sölu á ólöglegum vegabréfum.
Noriega hafði fengið Blandón til
þess síðasta haust, eftir mikil mót-
mæli í Panama, að semja áætlun sem
gæti gert hershöfðingjanum kleift að
láta af völdum á virðulegan hátt og
án þess að þurfa að svara fyrir
ásakanir um eiturlyfjasmygl og kosn-
ingasvindl. Þegar til kom neitaði
Noriega hinsvegar að samþykkja
ráðagerðina og rak Blandón úr starfi
Noriega yfirmaður hersins í Panama: Sakaður um að nota herinn og stunda
glæpsamlegt athæfi í skjóli valds síns
sínu.
Þar mcð hafði Noriega eignast
hættulegan óvin og bandarísk stjórn-
völd hafa nú veitt Blandón og fjöl-
skyldu hans vernd fyrir byssumönn-
um herforingjans. Blandón gæti orð-
ið mikilvægt vitni í réttarhöldum
sem fram fara í Miami en þar er
dómstóll að kanna ásakanir um að
Noriega hafi tekið fé frá eiturlyfja-
sölum í Miami fyrir að vernda smygl-
ara er aðsetur höfðu í Panama.
Dómararnir hafa verið heldur
svartsýnir á það hingað til að nægar
sannanir væru fyrir hendi til að hægt
væri að bendla Noriega við þessa
eiturlyfjaverslun. Blandón gæti hins-
vegar komið fram með nýj ar sannan-
ir, sérstaklega ef satt reynist að hann
búi yfir skjölum og hljóðupptökum
sem gætu rennt stoðum undir alvar-
legar ásakanir lians. Time/hb
ÚTLÖND
ÚM3JÓN:
Heimir
BLAÐAMAÐUR