Tíminn - 29.01.1988, Side 20
Sparisjóösvextir
á tékkardkninga
hávaxtakjörum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Ókeypis þjónusta
k v
686300 Timinn
Tímiim
Bakarar lofa Verðlagsstofnun að draga umframhækkun brauða til baka:
Töpuðu orustunni en
vinna þó verðstríðið
Niðurstaðan í verðstríði Verð-
lagsstofnunar og bakarameistara
um brauðaverð verður væntan-
lega sú
- varðandi þá hlið sem að neyt-
endum snýr - að mörg brauð
muni nú lækka eitthvað lítillega í
verði, en hækka að sama skapi
aftur næstu vikur. Má því segja
að Verðlagsstofnun hafi „unnið
orustuna en tapað (verð)stríð-
inu“.
Landssamband bakarameist-
ara lofaði Verðlagsstofnun í gær,
að beina þeim tilmælum til fél-
agsmanna sinna að draga til baka
verðbreytingar á brauðum um-
fram þau 10,4%, sem söluskatts-
hækkunin gaf tilefni til - fremur
en að láta Verðlagsstofnun skella
á sig verðstöðvun og verðlags-
höftum. Á móti fengu bakara-
meistamir svo yfirlýsingu frá
Verðlagsstofnun, um að þeirsem
sýnt geti fram á þörf fyrir þessar
hækkanir geti hækkað sín brauð
aftur í samráði við stofnunina.
Kannanir sem Landssamband
bakarameistara hefur gert að
undanförnu sýna, að þeirra mati,
ótvírætt, að full ástæða hafi verið
til þeirra verðhækkana sem flestir
bakarameistarar gerðu samhliða
nýju söluskattshækkuninni.
Bakarameistarar eru bjartsýnir á
að verðlagsstjóri sannfærist um
það einnig.
Á fréttamannafundi í gær var
m.a. yfirlýsing frá Sveini bakara
sem sýnir glöggt hvað um er að
ræða. En Sveinn átti sem kunnugt
er metið með 43% hækkun á
fransbrauði milli desember og
janúar s.l. Sveinn bendir á hinn
bóginn á, að allt frá ágúst 1986 til
desember 1987 hafi hann aðeins
hækkað smásöluverð á brauðum
um 14,6%. Þar innifalinn sé 10%
söluskatturinn þann 1. ágúst s.l.,
þannig að bakarí hans hafí aðeins
fengið 4,2% hækkun í sinn hlut á
sama tíma og framfærsluvísitalan
hækkaði um 30%. Þrátt fyrir
umframhækkun þann 8. jan. s.l.
háfi bakaríið á s.l. 17 mánuðum
aðeins fengið tæplega 12% hækk-
un í sinn hlut umfram 25% sölu-
skattinn sem kom (í tvennu Iagi)
á þessu tímabili.
-HEI
Skrifstofustjóri borgarverkfræðings um
skyldur borgarinnar vegnaTjarnargötu 20:
Er ekki skylt að
tryggja aðgengi
Vegna þess húsið að Tjarnargötu
20 var byggt áður en núverandi
byggingarreglugerð var samþykkt
þarf Reykjavíkurborg ekki að sjá til
þess að aðgengi að ellimáladeild
félagsmálastofnunar sem nýlega var
flutt í húsið sé fært hreyfihömluðu
fólki. Þetta er inntak umsagnar skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings um
kæru Öryrkjabandalags Islands til
byggingarnefndar Reykjavíkurborg-
ar vegna flutnings ellimáladeildar
félagsmálastofnunar að Tjarnargötu
20.
Samkvæmt faglegri greinargerð
sem Baldur Andrésson arkitekt
gerði fyrir Öryrkjabandalagið full-
nægir Tjarnargata 20 í engu þeim
þörfum sem húsnæði þarf að full-
nægja til að hreyfihamlaðir geti kom-
ist um húsið, e« stór hluti þeirra sem
eiga erindi við ellimáladeild er
hreyfihamlaður. I ljósi þessa kærði
Öryrkjabandalag íslands málsmeð-
ferð borgaryfirvalda við flutning elli-
máldeildar til byggingarnefndar
Reykjavíkurborgar og fór fram á
úrbætur.
Á fundi byggingarnefndar í gær
var umsögn skrifstofustjóra borgar-
verkfræðings lögð fram og var niður-
staða hans sú að mál þetta væri
byggingarnefnd óviðkomandi. Telur
skrifstofustjórinn að ekkert sé því til
fyrirstöðu að flytja elliináladeildina
í húsnæðið að Tjarnargötu 20 þrátt
fyrir að Ijóst sé að það hús á langt í
land með að fullnægja núverandi
kröfum um aðgengi fyrir hreyfihaml-
aða.
Meirihluti byggingamefndar sam-
þykkti umsögn skrifstofustjórans
gegn atkvæðum minnihlutans. Því
tók byggingarnefndin ekki afstöðu
til kæpmnar. -HM
Kortsnoj féll á tíma
Jóhann vann
Jóhann Hjartarson sigraði Kort-
snoj í fjórðu einvígisskákinni í St.
John í Kanada í gærkvöldi. Það
ótrúlega gerðist að Kortsnoj féll á
tíma í 34. leik og sögðu viðstaddir
að svo virtist sem gömlu kempunni
hafi verið brugðið þegar hann sá
hvernig komið var. Skákin var
gífurlega sviptingasöm einkum
seinni hlutinn. Jóhann stýrði svörtu
mönnunum og tefldi hann skákina
af frufnleika allan tímann og kom
Kortsnoj oft á óvart þannig að
Kortsnoj notaði meiri tíma en hollt
var. Hann lenti í miklu tímahraki,
sem endaði með því aðhann féll á
tíma.
Jóhann er kominn með 3 vinn-
inga og dugar því jafntefli (annarri
hvorri skákinni sem eftir er til þess
að vinna einvígið. Kortsnoj sem er
baráttumaður í skákinni mun nú
eflaust leggja allt í sölurnar til að
vinna í síðustu skákunum.
Verslunarskólinn flytur „Fame“
Á laugardag klukkan 14, gefst
íslendingum kostur á að sjá flutt
lög úr söngleiknum Fame á Hótel
íslandi. Hér eru þó ekki á ferðinni
upprunalegu söngvararnir, heldur
munu nemendur og kór Verslunar-
skóla íslands, undir stjórn Jóns
Ólafssonar, endurflytja hluta af
þessari sýningu, sem sett var saman
í tilefni af 56. Nemendamóti
skólans.
Inn á milli atriða er síðan léttum
gleði- og skemmtiatriðum skotið
inn, en skemmtunin er samtals á
annan tíma.
Meðal laga sem flutt verða, eru
lög eins og Body Electric, Red
Light, Hot Lunch Jam, Dogs in the
Yard og Is it O.K. if I call you
mine? Þá syngur kórinn einnig
létta rokksyrpu og eitt frægasta
lagið úr söngleiknum Rocky Horr-
or Picture Show, Time Warp.
Nemendamót Verslunarskólans
er ein viðamesta sýning sem fram-
haldsskóli setur á laggirnar og hafa
sýningar skólans hvarvetna vakið
athygli og aðdáun þeirra sem séð
hafa. Vakin skal athygli á því að
aðeins verður þessi eina sýning.
-SÓL
Verðlagsráð frestar ákvörðun um verðlagningu olíuvara og ákveður nýtt ýsuverð:
Ýsa lækkar um 8%
Á fundi verðlagsráðs í gær var
ákveðin 8% lækkun á ýsukílóinu.
Hámarksverð á kíló er eftir lækkun
krónur 280. Einnig var samþykkt að
fela Verðlagsstofnun að beina þeim
tilmælum til fisksala að þeir lækki
aðrar fisktegundir samsvarandi.
„Við höfum ástæður til að ætla að
fisksalar muni fara eftir þessum
tilmælum Verðlagsstofnunar. Við
vitum um a.m.k. einn stóran aðila
sem mun gera það, og trúlega fylgja
þá hinir á eftir,“ sagði Georg Ólafs-
son, verðlagsstjóri.
Á þessum fundi Verðlagsráðs var,
að beiðni formanns þess, ákveðið að
fresta ákvörðun um endurskoðun á
verðlagningu olíuvara til næsta fund-
ar Verðlagsráðs, í næstu viku.
Þeir tugir lítra bensíns, sem helg-
arrúntar landsmanna gleypa, verða
því á gamla verðinu um þessa helgi.
óþh