Tíminn - 10.02.1988, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 10. febrúar 1988
Tíminn 3
Sérstæö athöfn í tannlæknadeild:
Teningum kastað
um námsárangur
í Tannlæknadcild Háskóla fs-
lands reyndi í fyrsta skipti á reglu-
gerðarákvæði um aft hlutkesti
skyldi skera úr um hvort ncmandi
fengi að ganga upp til vorprófs á
fyrsta ári eða félli út. Þrír nemend-
ur voru mcð hníljafna einkunn
eftir janúarprófín og var þeim
skipað að kasta upp tcningum um
það hvert þeirra félli út. Að sögn
Guðjóns Axelssonar deildarfor-
seta eru menn furðu lostnir að sú
staða kom upp að þrír nemendur
. voru með nákvæmlega jafna mcða-
leinkunn að loknuin janúarpróf-
um. Nemandinn sem féll út lcitar
nú réttar síns eins og kostur er með
aðstoð lögfræðings. Hann vildi
ekki láta nafns síns getið, né heldur
vildi hann tjá sig á nokkurn hátt
um málið.
Tfminn hefur fyrir því heimildir
að tuttugu nemendur hafi þreytt
prófið, en aðeins nt'u náð tilskildri
lágmarks einkunn. Af þessum níu
átti að velja sjö nemendur, sam-
kvæmt áralangri venju, til að halda
áfram á fyrsta ári, en hinir neyðast
til aö skrá sig að nýju á fyrsta ár í
haust.
Sjó af tuttugu áfram
Það hefur lengi tíðkast að tak-
marka fjölda þeirra sem stundað fá
nani 1 Tannlæknadeild Háskólans
og eru rökin fyrir því á þá leiö, aö
ekki séu til nógu margir tannlækna-
stólar við deildina til að fram geti
farið verkieg kennsla síðar á náms-
ferlinum. Að sögn Guðjóns Axels-
sonar dcildarforscta er frá þessum
takmörkunum gcngiö í reglugcrð
háskólans í þeim kafla er varðar
tannlæknadeildina. Þar er einnig
sagt, að ef sú staða kemur upp að
tveir cða fleiri nemendur fái sörnu
einkunn skuli varpa um það hlut-
kesti hver fær að halda áfram á
fyrsta ári.
Formlegt teningakast
Athöfn þessi fór fram á föstudag
í húsnæði tannlæknadeildar við
Vatnsmýrarvcg. f veikindaforföll-
um deildarforseta var það varafor-
seti deildarinnar sem stýrði athöfn-
inni að viðstöddum þcim þrcmur
sem náðu sömu vegnu meðaleink-
unn, auk vitna úr kennaraliði deild-
arinnar. Fór athöfnin þannig fram
að lesið var upp úr reglugeröinni
það ákvæði er við átti og síðan var
nemcndunum gert að taka við
tening til að kasta honum upp.
Teningurinn gekk á milli nemenda
eftir öfugri stafrófsröð. Samkvæmt
þeim tölum er tcningurinn sýndi
var ncmendum síðan raðað form-
lega í sæti sex til átta. Þeir nemend-
ur, sem lentu í sjötta til sjöunda
sæti fengu að halda áfram námi á
fyrsta ári viö deildina, en þeim sem
lenti í áttunda sætí var tilkynnt að
liann væri fallinn á fyrsta ári, en
jafnframt að honum væri heimilt
að hefja nám að nýju við deildina
næsta haust. Mun athöfnin hafa
valdið lítillegu taugaáfalli meöal
þrcmenninganna.
Sá nemandi sem lenti í áttunda
sæti mun hafa haft sambatid við
lögfræðing tim leið og honum var
tilkynnt um niðurstöður prófanna
og áður en hann mætti í hlutkestið.
Mun það hafa verið afráðið að
hann freistaði gæfunnar og mætti
cins og honum var reyndar fyrir-
boðið af deiidarforseta. Hann leit-
ar nú frekari rcttar síns, cnda er
mikið í húfi. en vill ekki láta neilt
eftir sér hafa í fjölmiðlum og virðir
Tíminn það.
Prófraunir
Prófin, sem um er að ræða eru
mjög crfið. eins og gefur aö skiija,
en þar standa námsgreinarnar Al-
menn efnafræöi og Inngangur að
líffræöi og lífeöiisfræði uppúr hvað
varöar hörku. Fyrirlestrar í báðum
þessum greinum eru sóttir utan
tannlæknadeildar og kemur íagiö
ekki frekar við sögu tannlækna-
námsað lokinni þessari úrtaksönn.
Viðbrögð deildarforseta
Harmaði Guðjón mjög að grtpa
hafi þurft til þessa ákvæðis ogsagði
hann að nú rcyndi á þetta ákvæði í
fyrsta skipti síðan það var
samþykkt. Þegar gengið var frá
reglugerðinni var mikið um það
rætt mcð hvað hætti skera ætti úr
um mál af þessu tagi. Kom til
greina, að sögn Guðjóns, að láta
einkunn úr stúdentsprófi ráða, en
í seinni tíð væru þau af það ólíkum
toga að það mun ekki hafa komiö
til greina. Þá hafi verið um það rætt
hvort ekki ætti að iáta niöurstööur
úr cinu próft ráða við siíka uppá-
komu, en það hafí verið fellt á
þcim forscndum að siíkt væri ekki
nógu réttlátt. Núverandi fyrir-
komulag með hlutkesti hafi á
endanum orðið ofaná. Sagði Guð-
jón ;iö þetta væri að sjálfsögðu
mjög erfitt mál, en menn hefðu
ekki lundið neina betri lausn til
þessa, scm væri fullkomlega réttlát
að mati dcildarmanrfa.
KB
Tcningunum kastað við hús tannlæknadeildar.
Timamynd Pjetur
Frumvarp um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga:
Andstaða er
fyrir austan
Bæjarstjórnir Neskaupstaðar og
Seyðisfjarðar hafa ályktað gegn
frumvarpi til laga um breytingar á
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga, eins og það liggur nú fyrir
Alþingi. Bæjarstjórnarmenn telja að
ef þetta frumvarp verði samþykkt
óbreytt á Alþingi, verði sveitarfélög-
um ekki tryggt nægilegt fjármagn til
að standa undir auknum verkefnum.
Lagt er því til að afgreiðslu frum-
varpsins verði frestað og það endur-
unnið í samráði við sveitarstjórnar-
menn og landshlutasamtök þeirra.
Rúmlega 2000 fá húsnæðislán í ár:
8.720 umsóknir
nú óafgreiddar
í svari félagsmálaráðherra við
fyrirspurn Hjörleifs Guttormsson-
ar um húsnæðismál kcmur fram að
á sextán mánuðum, 1. scptember
1986 til .11. desember 1987, voru
lagðar inn 12.230 umsóknir hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins vegna
þeirra fjögurra lánaflokka sem
skuldabréfakaup lífeyrissjóða og
iðgjaldagreiðsiur umsækjenda ná
til. Þar af liggja fyrir 11.740 um-
sóknir um lán til nýbygginga og
eldri íbúða.
Fyrri hluta ián til nýbygginga og
eldri íbúða voru veitt til 3020
umsækjcnda á árinu 1987. Því má
ætla að hjá stofnuninni liggi nú
fyrir 8720 óafgreiddar umsóknir
vegna húsnæðiskaupa.
Pá kemur einnig fram að sótt
hefur verið um lán úr Byggingar-
sjóði verkamanna til bygginga alls
949 íbúða, þó fullyrt sé í svarinu að
sumar þeirra umsókna séu óraun-
hæfar vegna fjölda Jbúða.
í svari við hversu mörg lán verða
afgrcidd á þessu ári kemur fram að
gert er ráð fyrir að>fgreiða fyrri
hluta láns til 2100 til 2300 íbúða.
Peim umsækjcndum. sem eiga að
fá þessi ián, hefur þcgar verið
svarað, cn það eru þeir sem sóttu
um fyrir Bdagmarsmánaðar 1987.
Miðað við fjölda óafgreiddra
umsókna samkvæmt svarinu, sem
felur í sér óglöggar tölur, verða um
6500 umsækjendur að bíða til árs-
ins 1989, en ekki liggja fyrir upplýs-
ingar utrt fjármagn Byggingarsjóðs
ríkisins á því ári. scm er að mestu
leyti háð skuldabréfakaupum líf-
eyríssjóðanna.
Á þessu árt er áætlað að gera
samninga um framkvæmdalán úr
Byggingarsjóði verkamanna á yfir-
standandi ári til byggingar 500 til
600 íbúða, cn skipting þeirra hefur
ekki verið ákveðin.
Þá er minnt á í svarinu að í
lánsfjárlögum cr heimild tii að
eyða 273 milljón kröna til að
byggja kaupleiguíbúðir á þessu
ári, en frumvarp um fyrirkomulag
þcss máls hefur enn ckki verið
afgreitt úrþingflokkum sjálfstæðis-
manna og framsóknarmanna.
PÆÓ
\
Haukur Ingibergsson, framkvæmdastjóri Bifreiðaeftirlitsins:
Myndbandið breytir
ekki afstöðu okkar
„Þetta myndband breytir engu
um afstöðu okkar. Það breytir ekki
efnisatriðum,“ sagði Haukur Ingi-
bergsson, framkvæmdastjóri Bif-
reiðaeftirlits ríkisins í samtali við
Tímann, en eins og greint var frá í
blaðinu í gær, hefur Ingvar Helga-
son hf., umboðsaðili Subaru á
íslandi, sent Bifreiðaeftirlitinu og
Jóni Sigurðssyni, dómsmálaráð-
herra, myndband, sem sýnir „flóð-
abílana" svo kölluðu, á kafi í sjó í
Drammen í Noregi í október,
Aðspurður sagði Haukur, að sú
staðreynd að lögfræðingurinn
norski, sem vottaði að bílarnir
hefðu ekki lent í sjóflóði, hefði
dregið yfirlýsingar sínar til baka,
skipti ekki máli, enda væri það
ekki mikið atriði.
Ekki reyndist unnt að fá sjón-
armið Jóns Sigurðssonar, dóms-
málaráðherra, í þessu máli, þar
sem hann gat ekki svarað spurning-
um blaðamanns, sökum anna.
Júlíus Vífíll Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Ingvars Helgasonar
hf., sagðist ekki skilja sjónarmið
framkvæmdastjóra Bifreiðaeftir-
litsins, og spurði:
„Hvað þurfa þeir eiginlega að fá
í hendurnar til að sannfærast?"
Viðbrögð Margeirs Margeirs-
sonar, eins fjórmenninganna sem
flytja inn flóðabílana voru:
„Þetta mál hefur verið þeim til
vansa. Varðandi þennan lögfræð-
ing, þá segi ég að við réðum aldrei
lögfræðing til eins eða neins. Hann
vann þarna að samningum og gaf
okkur upplýsingar um þetta. Ég
hef aldrei séð manninn, hef aðcins
hringt í hann. Bílarnir rétt blotna
í motturnar og búið er að mæla
sýni af svæðinu. Ég vil stráknum
ekkert illt (Júlíusi Vífli) og ég held
að það væri best fyrir hann að
málið væri þagað í hel.“
Flóðbílarnir eru nú allir komnir
til landsins, og ef marka má orð
framkvæmdastjóra Bifreiðaeftir-
litsins, virðist stríðinu lokið. -SÓL
FERMINGARVEISLUR
Tilboð á hagstæðu verði
Kransaterta - Jarðarberjaterta
Parísarterta - Þýsk súkkulaðiterta
Rjóma- eða marsipanterta
2 smákökutegundir
Brauðterta - Snittur
Verð pr. mann kr. 600,-
Pantið tímanlega í
síma 15355 - Kv.s. 43740
Gefum magnafslátt fyrir 40 manns
z
BRAUDSTOFAN ]
z:
MOSFELLSBAKARI
I GLEAM MÉR E1 /
------*---
\
\-