Tíminn - 10.02.1988, Page 4

Tíminn - 10.02.1988, Page 4
4 Tíminn Miðvikudagur 10. febrúar 1988 Pípureykingar minnkuðu um fjórðung í fyrra og yfir helming á s.l. 3 árum: PÚAD Á PÍPUNA Sala á píputóbaki hefur hrapað niður ár frá ári allan þennan áratug og sfðast um nær fjórðung á milli áranna 1986 og 1987. Sala reyk- tóbaks var 44,9 tonn 1980, dottin niður í 23,2 tonn 1986 og áfram niður í 18,3 tonn í fyrra. Haldi pípureykingar áfram að minnka með svipuðum hraða verða pípu- reykingamenn líklega áður en langt um líður álíka sjaldgæfir og þeir sem nú tyggja skro. Slíkir eru nú orðnir sárafáir því sala á munn- tóbaki var aðeins rúm 47 kíló í fyrra. Neftóbaksnotkun var um 12,5 tonn í fyrra sem var nokkur aukning frá árinu áður, en þá hafði hún hins vegar minnkað verulega frá árinu 1984. Sala á vindlum hefur verið nokkuð svipuð, milli 14 og 15 milljón stykki allan þennan áratug. Einhverjir þeirra sem hættu við pípuna virðast hafa hallað sér að sígarettunum í staðinn. Því eftir samdrátt sígaarettusölu á árunum 1985 og 1986 varð aftur nokkur aukning á árinu 1987, eða sem svaraði 1 pakka á hvern íslending yfir 15 ára aldri. Alls voru seldar rúmlega 22 milljónir pakka af síga- rettum á árinu sem leið, eða sem svarar 120,5 pökkum á hvern landsmann 15 ára og eldri, að meðaltali. Pessi skammtur var um 115 pakkar árið 1980,121 (álíka og í fyrra) árið 1981, komst hæst í 127 pakka árið 1984, minnkaði síðan niður í 119,5 pakka árið 1986 en jókst síðan aftur um einn pakka í fyrra, sem fyrr segir. Miðað við núverandi verð á sígarettum borga landsmenn sam- tals um 3.045 milljónir króna fyrir 22ja milljóna pakka ársreykingar. Það svarar til um 16.620 kr. fyrir hvern landsmann 15 ára og eldri að meðaltali, eða rúmlega 45 þús. kr. að meðaltali á hverja fjölskyldu af sömu stærð og vísitölufjölskyldan. Til samanburðar má nefna, að orkukostnaður (upphitun og rafmagn) í vísitölugrundvellinum er aðeins heldur hærri upphæð, eða um 48 þús. kr. á ári miðað við núverandi verðlag. Má því áætla að reykjarsvælan (sígarettur og annað reyktóbak) kosti þjóðina álíka mikið í beinum útgjöldum og allt rafmagn og hiti til heimilanna. Athyglivert er í þessu sambandi að engum fréttum hefur farið af mótmælum (ekki einu sinni les- endabréf í blöðum) þótt verð tóbaks hafi hækkað um 207% síðan árið 1984. Aftur á móti hefur mikið gengið á vegna þeirrar 50% verð- hækkunar sem orðið hefur á orku- kostnaði heimilanna á sama tíma. Á heimilum reykingamanna kemur þó t.d. 10% hækkun á tóbaksverði mun þyngra við pyngjuna en sam- svarandi hækkun hitaveitu og rafmagns. - HEI Fjarhagsaætlun Reykjavikur 1988: Aukið framlag til aldraðra ekki samþykkt Úrbætur í málefnum aldraðra, meirihlutinn ætlar í það verk. Þá barna og unglinga áttu ekki upp á lagði stjórnarandstaðan til að á árinu pallborðið hjá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins þegar atkvæða- greiðsla fór fram um ályktunartillög- ur stjórnarandstöðunnar í borgar- stjórn aðfaranótt föstudags, þegar fjárhagsáætlun fyrir borgarsjóð Reykjavíkur árið 1988 var samþykkt. Eins og skýrt var frá í Tímanum á laugardag skapar frestun framkvæmda við ráðhús og færslu Hringbrautar auk nokkurs sparnað- ar í borgarkerfinu og að hætt verði við byggingu veitingahúss á Öskju- hlíð, svigrúm fyrir að veita 600 milljónum í verkefni sem nýtast öldruðum, börnum og unglingum, en stjórnarandstaðan taldi að þeir hópar væru mjög afskiptir í fjárhags- áætlun meirihlutans, Stjórnarandstaðan lagði til að á þessu ári færu 66,5 milljónir króna til sjúkraálmu aldraðra við Borgar- spítalann í stað 1,6 milljóna sem Rannsókn á umfram- kostnaði Mælt var fyrir þingsályktunar- tillögu um að Alþingi kjósi rann- sóknarnefnd skipaða 9 alþingis- mönnum til þess að gera sérstaka athugun á því hverjir skuli sæta ábyrgð á umframkostnaði við byggingu flugstöðvar á Keflavík- urflugvelli. Tillagan er flutt af þingmönnum Alþýðubandalags- ins. Er sérstaklega lagt til að þing- nefndin kanni ábyrgð Matthíasar Á. Mathiesen þáverandi utanrík- isráðherra og Þorsteins Pálssonar þáverandi fjármálaráðherra á hversu framkvæmdin fór fram úr kostnaðaráætlun. Þá er spurt um ábyrgð formann byggingarnefnd- ar, byggingarstjóra, einstakra byggingarnefndarmanna, hönn- uða og framkvæmdafyrirtækja. Sagði Steingrímur J. Sigfússon að ekki væri hægt að láta hér staðar numið. Tillögunni var síð- an vísað til utanríkisnefndar. ÞÆÓ yrði hannað og hafin bygging á nýju hjúkrunarheimili fyrir aldraða svo hægt væri að taka það í notkun í ársbyrjun 1990. Þá lagði stjórnar- andstaðan til að keyptar yrðu leigu- íbúðir, þar af 12 sem leigðar yrðu til aldraðra. Öllum þessum tillögum var vísað frá þrátt fyrir þá neyð sem ríkir í málefnum aldraðra. Tillögu stjórnarandstöðunnar um að keypt yrði hús undir sambýli aldraðra var vísað til byggingarnefndar aldraðra. Þá vísaði meirihlutinn einnig frá tillögum um að 160 milljónum yrði varið til byggingar dagvistarheimila á árinu 1988, en eftir hugmyndum sjálfstæðismanna mun aðeins eitt dagvistarheimili opna á þessu ári. Um síðustu áramót voru rúmlega 1900 börn á biðlista eftir dagvistun- arplássi. Sömu leið fór tillaga um sérstakt átak í viðhaldi skólahúsnæð- is, en til er áætlun um framkvæmd viðhalds sem borgarstjórn hyggst ekki fara eftir. Tillaga um að 46 milljónum yrði varið til heilsugæslustöðvar við Hraunberg svo ljúka megi byggingu hennar á þessu ári var einnig vísað frá, þrátt fyrir orð borgarstjóra við afgreiðslu fjárhagsáætlunar síðasta árs þegar hann sagði að „með því framlagi sem fjárhagsáætlun borgar- innar gerir nú (1987), má gera stöð- ina fokhelda á þessu ári (1987) og opna hana árið 1988. Tillaga um að keypt verði hús í Grafarvogi undir æskulýðsstarf var felld, en tillögum um félagsmiðstöð í Seljahverfi, unglingahús í miðbæ Reykjavíkur, sundlaug í Árbæ og að sköpuð yrði aðstaða til skautaiðkana í borginni var vísað til íþrótta- og tómstundaráðs. Þá var tillaga Framsóknarflokks- ins um átak í trjárækt við stofnanir Reykjavíkurborgar felld. Sömu leið fór tillaga Alþýðuflokks um stórauk- ið framlag til Samtaka áhugafólks um unglingavandamálið, en auk Bjarna P. Magnússonar borgarfull- trúa Alþýðuflokksins greiddi aðeins Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins atkvæði með þeirri tillögu. Þá var tillaga Framsóknarflokks- ins um að húsaleiga sem íþróttafélög greiða borginni fyrir afnot af íþrótta- húsum, yrði endurgreidd að fullu eins og gert er í nágrannasveitarfé- lögunum, einnig felld. -HM Plastið í fjörunni bar kveðjur frá ýmsum landshlutum. Viljum við hafa landið okkar svona? Náttúruspjöll: Ótrúlegt magn af plasti á fjörum Að undanförnu hefur gífurlegt magn af plasti rekið á fjörur við sunnanverðan Steingrímsgjörð og víðar við Húnaflóa. Síðustu vikur hafa norðlægar vindáttir verið ríkj- andi á þessum slóðum, en við þær aðstæður er þarna jafnan land- burður af plasti. Sl. sumar áttu sjónvarpsmenn, með Ómar Ragnarsson ( broddi fylkingar, leið um fjörur við innan- verðan Húnaflóa. Hjá þeim vakn- aði þá sú spuming, hvort strendur landsins væru e.t.v. ekki eins hrein- ar og af hafði verið látið. f fram- haldi af þessu var plastmengun við botn Bitrufjarðar tekin til um- fjöllunar í fréttatíma sjónvarps. Kom þar m.a. fram, að landslög leyfðu ekki losun plastefna í sjó, en eftirliti með þessu væri greini- legá ábótavant. Þrátt fyrir ágæta umfjöllun sjón- varpsins um plastmengun á fjörum, virðast einhverjir halda áfram að fleygja plasti í sjó. Fréttaritari Tímans á Hólmavík átti leið um fjöruna við bæinn Húsavík við sunnanverðan Steingrímsfjörð, föstudaginn 5. febrúar sl. Plast- magnið í fjörunni var með ólíkind- um, og að sögn ábúenda í Húsavík hafði mest af plastinu borist á land í norðan strekkingi daginn áður. Túngirðingin í Húsavík liggur meðfram sjónum fyrir ofan fjöru- kambinn. Neðri hluti girðingarinn- ar var allur þakinn plasti, en nokk- uð af því var komið undir snjó, sem lagst hafði að girðingunni um nóttina. Efst í flæðarmálinu var önnur rönd af plasti, sumt hálfgraf- ið í sandinn, annað á leið upp að girðingunni undan vindinum. Állra mest virtist þó vera af plasti í sjónum skammt frá landi. Sjórinn var nánast „þungur“ af plasti sem maraði f hálfu kafi. En hvaðan kemur allt þetta plast? Þegar plastið var skoðað, kenndi þar margra grasa. Einna mest bar á innkaupapokum frá verslunum víða um land, jafnt frá Reykjavík, þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum og við Húnaflóa. Einnig var nokkuð um stærri poka, m.a. stóra svarta ruslapoka. Loks sást allmikið af ýmiss konar um- búðum, m.a. utan af samlokum, skyndihamborgurum, varahlutum, mjólkurvörum o.m.fl. Sumt af þessu var mjög nýlegt, en annað hafði greinilega velkst lengi í sjónum. Ljóst er að miklu af plastinu, sem rekur á fjörur við Húnaflóa, hefur verið fleygt í hafið af bátum. Það er þó ekki einhlítt, því að sumt af plastinu í fjörunni við Húsavík mátti greinilega rekja til byggingar- iðnaðarins. Til dæmis bar talsvert á plastumbúðum utan af steinull til einangrunar. Niðurstaðan úr fjöruferð frétta- ritarans er þessi: 1. Plastmengun í Húnaflóa er ótrúlega mikil. Þrátt fyrir þá um- ræðu, sem átt hefur sér stað að undanfömu, halda einhverjir áfram að fleygja plasti í sjóinn. Magnið virðist jafnvel fara vax- andi. 2. Plastið, sem berst á land, staðnæmist ekki allt í fjörunni. Sumt af því festist í girðingum nálægt sjó, annað fýkur lengra inn í landið og spillir þar gróðri og náttúrufegurð. 3. Margt bændafólk sem býr við sjóinn, leggur gífurlega vinnu í að tína plast af fjörum. Þess em mörg dæmi, að vikuvinna við slíka hreinsun hafi að engu orðið á einni nóttu í álandsvindi. Ofan á þessa miklu vinnu bætist allt það tjón og þau óþægindi sem plastmengunin veldur. Þess em dæmi að plastið sligi girðingar, og plastdræsur með- fram vegum eru hvorki heima- mönnum né ferðamönnum til ánægju og augnayndis. 4. Brýna nauðsyn ber til að stöðva losun á plasti í sjó. Hér þarfy að koma til samstillt átak allra sem hlut eiga að máli. Stefán Gíslason.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.