Tíminn - 10.02.1988, Page 7

Tíminn - 10.02.1988, Page 7
Miðvikudagur 10. febrúar 1988 Tíminn 7 ræktunarsamningur og sleppingar. Bændurnir hafa í raun ekkert að gera við slíkan samning, þar sem þeir eru í góðum samböndum við fiskeldismenn og hafa við þá nokk- urskonar vöruskipti. Eftir nokkra daga var síðan haft samband við okkur og gengið frá málinu. Við vorum komnir með ána á leigu.“ Rekinn úr SVFR En það voru fleiri bréf sem voru opnuð í kaffisamsætinu í Ásgarði þennan dag. „Ég fékk eitt kort frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur (SVFR),“ segir Árni og hlær. „Pað var ekki jólakort. Við vorum ný- komnir inn, komum síðastir. Við heilsuðum öllum og fórum að ræða málin við þá sem mættir voru. Þá vindur sér að mér Friðrik Þ. Stefáns- son og segist vera með bréf til mín. Menn setti hljóða og fylgdust með, því ég reií það upp á staðnum og las. f>á var þetta uppsagnarbréf frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Ég varð mjög hissa á þessu og Bolli og Skúli urðu öskureiðir og þótti þetta grófleg móðgun. Það má eiginlega segja að ég hafi verið rekinn úr félaginu á líkum, því þeir vissu ekkert um það hvort ég væri á einhverju tilboðinu eða ekki, því ekki var búið að opna tilboðin þegar mér var afhent bréfið. Eðlilegast hefði mér þótt að fá bréfið í ábyrgð- arpósti sent heim, en mér þótti SVFR-menn ekki vandir að virðingu sinni í þetta skiptið." Er þetta ekki talsvert áfall fyrir mann sem veiðir jafn mikið og þú? „Vissulega. Þetta er svekkjandi. Ég hef haft allt gott að segja um SVFR og hef það reyndar enn. Mér líkar vel við flesta menn í stjórn félagsins og hef mikla trú á Jóni G. Baldvinssyni sem formanni. Hins- vegar er einn maður í stjórninni sem mér líkar ekki við og býst við að samstarfið milli hans og SVFR eigi eftir að fara í hnút síðar meir.“ En máttir þú ekki vita að þér yrði vikið af félagaskrá þegar þú bauðst í Laxá samanber hina frægu tólftu grein laga SVFR sem bannar félög- um að bjóða í ár á móti félaginu? „Jú, það er rétt. Ég viðurkenni að þetta var klaufalegt hjá mér. Hrein- legast og best hefði verið að segja sig úr því fyrir ári. Pá hefði ég getað starfað að mínum atvinnu- og áhuga- málum í friði, en einhvernveginn er þetta svona, mér þótti gaman að vera í félaginu og kann vel við þá sem í því eru,“ segir Árni. Hann segir að sér finnist ekki mikil eftirsjá í veiðimöguleikum þeim sem SVFR býður uppá. „Jú og þó, það er þá helst Norðurá sem ég kem til með að sakna. Þá hef ég veitt mikið í Stóru-Laxá. Ég tapa ekki miklu í sambandi við veiðimöguleika, en félagslegt tap er mikið.“ Veisla í Kjósinni Árna þykir hafa verið vegið að sér ómaklega þegar fréttabréf Stanga- veiðifélags Reykjavíkur rangfærði staðreyndir í sambandi við Laxá í Kjós. í fréttabréfinu var ranglega sagt að Árni hygðist fiölga stöngum í Laxá úr tíu í tólf. Árni telur upp fleira sem rangt reyndist í greininni. „Að birta svona ranghermi í blaði,- sem fer til um tvö þúsund laxveiði- manna, er ekkert annað en rógur. Mér finnst það alvarlegt mál þegar þrír ungir menn taka sig saman og hætta öllu sínu til að taka á ieigu á vegna áhuga og ástríðu, að einstaka menn í SVFR skuli ráðast á það framtak og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að rífa það niður.“ Árni segir sig hafa verið tilneyddan til að svara þcssu og því gaf veiðifé- lagið Lax-á út fréttabréf þar sem sannleikurinn var leiddur í ljós með fyrirhugaðan stangafjölda í ánni í sumar. „Við munum veiða með tíu stöngum, ekki tólf eins og SVFR greindi frá. Verðið hefur hækkað lítið sem ekkert milli ára og við ætlum ekki að okra á veiðimönnum eins og sagt var í fréttabréfinu. Þá bryddum við upp á nýjung, sem er að stinga maðkahollum inn í flugu- veiðitímann. Þá verður veisla í Kjós- inni.“ Atvinnurógur Er það rétt að á aðalfundi SVFR hafi félagsmenn beinlínis verið hvattir til að sniðganga Laxá? „Ég var nú ekki á fundinum, en eftir því sem mér skilst þá kom formaður Landssambandsins, Rafn Hafnfjörð, upp og hélt ræðu um 12. greinina og lýsti hann því yfir að sér þætti greinin óeðlileg og hún þyrfti endurskoðunar við. Eg held að næst- ur hafi stigið í pontu Þórólfur Hall- dórsson og var hann æstur mjög og ræddi um að skilyrðislaust ætti að reka þá félagsmenn sem gerðu tilboð í veiðiár á móti félaginu. Ég mótmæli þessu ekki. Þetta eru lög félagsins. Síðan skoraði hann á alla félags- SVFR. „Við funduðum um málið, Skúli, Bolli og ég. Við ákváðum að vera ,dannaðir‘ í okkar framkomu og láta Stangaveiðifélagið um grjót- kastið. Við hyggjumst halda áfram útgáfu fréttabréfs okkar og ekki láta SVFR segja öðrum hvað við erum að gera heldur ætlum við sjálfir að segja frá því. Við ákváðum að svara þeim ekkert. Við erum bara kurteisir áhugamenn um stangaveiði og telj- um þetta skítkast ekki svaravert.1' Eliiðaár í MosfeHssveit? Eitt af því sem Árna dreymir um og virðist vera að verða að veruleika er að rækta upp skemmtilega á í með hverju sumrinu sem líður og bráðlega verði hún hinn fullkomni veiðifélagi. Þó er viðbúið að Val- gerður verði lítið við árbakkann í sumar þar sem von er á litlum veiðimanni um mitt sumar. Árni segist spenntur, en þetta setti óvænt strik í reikninginn hvað varðar veið- ina. Árni var búinn að bóka dag í „Ásunum“. Væntanlegur erfingi hefur hinsvegar nú þegar það mikinn áhuga á veiðiskap að hann mun að öllum líkindum líta dagsins ljós þá viku sem fyrirhugað var að veiða í „Ásunum". „Þorgeir í Vinnufata- búðinni ætlaði með mér í „Ásana“. Ég hafði samband við hann og sagði honum frá þessu og jafnframt að við yrðum að hætta við túrinn. Þorgeir Árni og Vala slappa af í stofunni. Málverkið yfir þeim er athyglisvert, þar hefur listamaðurinn snúið við hlutvekunum. Laxinn leitar fórnarlamba og manneskjan er á undanhaldi. Tímamynd Cunnar menn að kaupa ekki leyfi af þeim mönnum sem hafa Laxá á leigu. Ég er gáttaður á þessum manni að láta þetta út úr sér. Ég þykist nú vita undan hvaða rifjum þetta er runnið en sé ekki ástæðu til að láta það uppi. Ég varð mjög hissa þegar ég frétti af þessari uppákomu. Nokkru síðar kom út fréttabréf SVFR og ég náði mér í blað vitandi að eitthvað hlyti að standa í því um skelminn Árna Baldursson, ég hafði verið aðalefni blaðsins fram að því. Þegar ég sá blaðið kastaði fyrst tólfunum. Greint var frá því að Rafn Hafnfjörð hefði farið í pontu og rætt málefnalega um tólftu grein laga. Punktur. Næst var greint frá því að Þórólfur Halldórsson hefði tekið til máls og greint frá því að hann hefði talað um tólftu grein laga. Ekki punktur. Rakið var ítarlega það sem Þórólfur sagði og klykkt út með því að vitna í áskorun hans til félags- manna, um að kaupa ekki veiðileyfi í Laxá í sumar. Þetta þykir mér ósvífið, og hlýtur að teljast atvinnu- rógur. Ég hef ekkert við yfirlýsingar Þórólfs að athuga. Hann er félags- maður og má segja sínar skoðanir umbúðalaust. Glæpurinn er hinsveg- ar meðhöndlunin sem þetta fékk í fréttabréfi SVFR.“ Árni getur ekki annað en glott þegar hann er spurður hvort ein- hverjir af SVFR mönnum hafi keypt leyfi. „Jú, jú. Blessaður vertu, þeir eru fjölmargir sem hafa keypt leyfi. Stangaveiðimenn í Reykjavík eru uppistaðan í þeim markaði sem ég horfi til.“ Hann segist mjög sáttur við þá niðurstöðu og ítrekar að hann beri ekki biturleika í brjósti til nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Árni hefur reyndar þegar fundið ána og hafið samningaviðræður við land- eigendur, sem m.a. er Mosfellsbær. Áin er Kaldakvísl í Mosfellssveit. Þar hefur Árni hugsað sér að sleppa miklu af seiðum og segist með sínum áformum geta komið upp nokkurs- konar Elliðaám Mosfellsbæjar. Nú ku málið komið langt og jafnvel á næsta ári segir Árni að gerlegt verði að sleppa fyrstu seiðunum. Með því yrði einn valkostur til viðbótar á Stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir stangaveiðimenn. Árni sagðist sér- staklega vilja geta bæjarstjórans í Mosfellsbæ sem hefði unnið gott starf í samningaviðræðum við aðra landeigendur. Árni segist sjá fram á það og stefna að því að gera veiðileyfasölu að atvinnu sinni og auðheyrt er á honum að hann ætlar að helga sig stangaveiðinni í framtíðinni. „Tíu ára gamall draumur er að rætast. Þetta er mín hugsjón, að rækta upp ár og umgangast þær,“ segir Árni um umsvif sín í laxveiðiheiminum. Draumnum fylgir ástríða Veiðiástríðuna kannast flestir veiðimenn við og viðurkenna sem strangan húsbónda, a.m.k. yfir sumarmánuðina. Ekki er ólíklegt að eiginkonur margra þeirra þekki hann einnig og líkar sjálfsagt misvel. Valgerður, sambýliskona Árna, þekkir sannarlega jjann húsbónda sem veiðiástríðan er. Hún hefur þó ákveðið að ganga í lið með honum frekar en berjast gegn honum. Árni segir hana ,verða betri- veiðimann hélt nú ekki. Hann sagði þetta ekki mikið mál, ég skyldi bara hafa Völu með mér og láta hana eiga á Blöndu- ósi meðan við veiddum," sagði Árni og hafði greinilega gaman af. Hvernig var það með þig Árni, valdirðu Völu með tilliti til sportsins? Fannstu hana í einhverju veiðihúsinu eða á einhverjum ár- bakkanum? „Nei, hún nennti aldrei í veiðitúra þegar við kynntumst. Hún hafði aldrei farið með foreldrum sínum. Hinsvegar þegar við kynntumst þá elti hún mig í veiðitúra um allt land. Ástin var svo mikil." Það hlæja ekki allir í herberginu. Valgerður tekur orðið. „Þetta er ekki rétt. Við vorum búin að vera saman í fjögur ár þegar ég sá fram á að ég yrði a.m.k. að prófa að fara með honum. Ég á langt í land með að verða góður veiðimað- ur og var einmitt að segja við Árna um daginn að ég yrði að læra að veiða af alvöru, annars nenni ég þessu ekki. Hann verður bara að kenna mér.“ Hvað er að þér Árni? Af hverju kennirðu konunni ekki að veiða? „Ætli ég sé ekki svona mikill eiginhagsmunaseggur. Ég er þó all- taf að bæta mig. Við förum saman í fleiri og fleiri veiðitúra og hún er sífellt meira og meira með stöngina og þarf bara um tvö ár í að verða góður veiðimaður." Verða viðskiptin ofan á? Aftur í alvöruna. Ertu ekki hræddur um að ástríðan og veiði- áhuginn verði undir nú þegar þú stendur orðið í miiljóna viðskiptum í kringum laxveiðina? „Nei. Ekki hjá mér. Ég er svo geggjaður stangaveiðimaður, að það snýst allt í kringum veiðina." Val- gerður kímir og samsinnir þessu. „Vissulega snýst þetta einnig um peninga en hugsunin á bak við þetta er fyrst og fremst sú að fá að vasast í þessu allan ársins hring. Ég kem því alltaf þannig fyrir að ég get veitt yfir sumartímann. Og það mun ég geta þó svo ég sé með Laxá í Kjós og fleiri ár. Frá því ég man eftir mér hef ég tekið mér frí þrjá til fimm mánuði á sumri í veiðiskap. Ég myndi sleppa öllu þessu brölti ef ég sæi fram á að ég yrði að hætta að veiða því ég hefði svo mikið að gera.“ Hvar ætlarðu að láta staðar numið? Hvaða markmið hefurðu sett þér? Mega menn búast við því að verði veiðiá auglýst til leigu að þá mæti Ámi Baldursson með tékkheft- ið á lofti? „Það sem gerist á næstunni er að ég hætti að taka litlar ár á leigu. Ég hef þegar tekið nokkrar slíkar á leigu og ræktað upp. Ég hef bara ekki orku í að keyra á milli lands- hluta til að byggja upp um tíu ár, byggja veiðihús við þær allar og sleppa seiðum og annað sem þarf að gera. Ég býst við að láta staðar numið við þær sex ár sem ég hef nú þegar og sækist frekar eftir stóru ánum.“ Langar í Víðidalsá Hvaða ár geta endanlega uppfyllt drauminn? Hvaða ár myndu seðja þig? „Auðvitað langar mig í ár eins og Laxá í Aðaldal og Selá í Vopnafirði, en það er óraunhæfur möguleiki því þessar ár eru í svo föstum skorðum. Þar hefur myndast hefð og jafnvel eignarhlutdeild einstaklinga sem leigja árnar. Þetta breytist ekki á næstu tveimur öldum. Hinsvegar leyni ég því ekki að mínar uppá- haldsár eru Selá og Laxá í Þing. Víðidalsá er meiriháttar." Árni hlær. „Þær ár sem ég vildi fá á leigu eru m.a. Víðidalsá, Hrútafjarðará, Miðfjarðará, Hofsá, en hún er bara í of föstum skorðum. Ormarsá á Sléttu er falleg á og ég segi hana vera vasaútgáfu af Laxá í Þing.“ Muntu gera ráðstafanir til að taka þessar ár á leigu? „Já ég mun gera þær.“ Hinsvegar segir Árni að hann ætli sér að fara rólega í sakirnar og ekki ráðast á forn vígi og skapa sér óvinsældir með því. Lifað hátt í laxveiðinni Hefur þú ekki lifað hátt í laxveið- inni með tilliti til aldurs? „Jú, það má sjálfsagt segja það. Ég veiði, grínlaust, níutíu daga á ári og hef gert það síðustu árin. Hins- vegar ætla ég ekki að veiða mikið í sumar fyrir utan Kjósina. Ég ætla tvisvar í Laxá í Aðaldal. Einu sinni í Nes, sem ég tel fallegasta veiðistað á landinu, ogeinusinni í Laxamýri. Víðidalsá er ein af fáum ám á landinu sem ég á eftir að veiða í og mig langar óskaplega til að veiða þar.“ Vala tekur eftir áhyggjusvip sem færist yfir andlitið á Árna og segir hlæjandi og hughreystandi í senn. „Þú átt örugglega eftir að komast í Víðidalsá, þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því.“ Það þarf að hafa gott skipulag á hlutunum til að hafa yfirsýn yfir pantaða veiðidaga, þegar menn veiða allt sumarið. Það tekur tíma að ganga þannig frá öllum endum að ekkert rakni upp. Árni fórnaði t.a.m. þremur dagbókum í fyrra, þegar hann raðaði niður veiðidög- um. Það var ekki fyrr en þriðja dagbókin var opnuð að hægt var að skrifa út endanlega útskrift af veiði- dagskránni. Þessi dagstund hjá Árna og Völu hefur ekki verið laus við skipulagn- ingu og þegar er veiðileyfasala sumarsins langt komin. Árni segist ánægður með viðtökurnar sem Kjós- in hefur fengið og kvíðir ekki sumr- inu en margir hafa spáð góðu lax- vciðisumri. Hér verður skilið við Árna en lesendur Veiðihornsins munu geta fylgst með honum og öðrum laxveiðimönnum í sumar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.