Tíminn - 12.02.1988, Síða 3

Tíminn - 12.02.1988, Síða 3
Föstudagur 12. febrúar 1988 Tíminn 3 Slys og ytri orsakir ástæða 70% dauðsfalla hjá ungum karlmönnum: Dauðsföll tíðari meðal ungra manna en kvenna Slys og aðrar ytri orsakir eru ástæðan fyrir dauða um og yfir 70% allra drengja og ungra karlmanna sem týndu lífi á árunum 1981-86, oftast vegna umferðarslysa eða sjálfsvíga. Af alls 353 drengjum og körlum 1-34 ára sem dóu á árunum 1981-1986 létust 254 af völdum slysa og annarra ytri orsaka en „aðeins" 99 vegna allra sjúkdóma samanlagt. Virðist þetta gefa til kynna að leita þurfi eða leggja áherslu á aðra þætti til björgunar fleiri mannslífa en t.d. fjölgun eða fullkomnari sjúkrastofn- anir. Slys og aðrar ytri orsakir voru orsökin fyrir dauða yfir 10% allra karla sem dóu á þessum árum, eða alls 543 karlmanna. Þar af voru 176 sjálfsmorð, morð og annað ofbeldi. Framangreindar tölur er að finna í tölum Hagstofunnar um manna- dauða hér á landi á árunum 1981- 1986. Alls létust á þeim árum 5.321 karl og 4.408 konur. „Mannfórnir“ Af þeim 543 körlum sem létust af völdum ytri orsaka var af hátt í helmingurinn (220) ungir menn, þ.e. 15-34 ára. Dauðsföll kvenna af sömu orsökum voru alls 208 á þessu tíma- bili, eða hlutfallslega yfir en helm- ingi færri en í hópi karla. Sömuleiðis er sá munur milli kynjanna að meira en helmingur þessara 208 kvenna var kominn yfír 60 ára aldur, en aðeins innan við fjórðungur karl- anna hafði náð þeim aldri. Alls 191 sjálfsmorð og 12 morð Algengustu ytri orsakir þessara 751 dauðsfalla voru: Flutningaslys 272, þar af 145 umferðarslys (101 karl), 91 á vatni eða sjó og 28 í flugslysum. Alls 191 létust vegna sjálfsmorðs eða sjálfsáverka (þ.a. 146 karlar), 35 vegna áverka sem ekki er vitað hvort stafaði af slysi eða ásetningi og 12 vegna mann- dráps af ásettu ráði annars manns. Af þessum samtals 238 látnum vegna ofbeldis voru 176 karlar og 62 konur. Þá létust 107 vegna slysafalls, 26 vegna slysaeitrunar, 11 vegna elds- voða og 97 vegna ýmissa - þar af 7 vegna óhappa við læknismeðferð, óeðlilegra viðbragða sjúklings eða síðkominna fylgimeina og 4 vegna lyfja er ollu meini við lækningar. Aalgengustu afleiðingar ofan- greindra ofbeldisverka og slysa (sem drógu fólk til dauða) voru beinbrot 185, höfuðkúpubrot og innvortis áverkar 142, aðrir áverkar 229 og eitranir í 135 tilfellum. Frá 45 ára aldri deyr helmingur karla úr hjartasjúkdómum Það er ekki fyrr en eftir 45 ára aldur að fleiri karlar deyja af völdum sjúkdóma heldur en framangreindra ytri orsaka, en þá taka hjartasjúk- dómarnir við sem helsta dánarorsök. Af þeim 332 körlum sem létust á aldrinum 45-54 ára dó tæplega helm- ingurinn, eða 141, vegna hjartasjúk- dóma eða annarra sjúkdóma í blóð- rásarfærum, samanborið við aðeins 29 af alls 159 konum sem létust á sama aldri. Eftir 55 ára aldur eru blóðrásarsjúkdómarnirorsök um 54- 57% allra dauðsfalla meðal karla. Þriðjungurinn náði ekki 65 ára aldri Tæplega þriðjungur allra karla sem létust (1.632) var undir 65 ára aldri og voru þeir tvöfalt fleiri en konur á sama aldri. Ríflega þriðjungur þeirra dó af völdum hjarta- og æðasjúkdóma, ríflega fjórðungurinn vegna ytri orsaka, rúmlega fimmti hluti vegna krabba- meins og aðeins 10% vegna allra annarra sjúkdóma, auk þeirra sem dóu á 1. ári. Konurnar miklu lífseigari Konurnar eru stórum lífseigari en karlarnir frá því eins árs aldri er náð og allt þar til þær verða að láta undan „elli kerlingu'* eftir hálfní- rætt, en nær þriðjungur hafði náð þeim aldri fyrir andlátið. „Aðeins" rúmlega 800 konur létust undir 65 ára aldri á þessum 6 árum. Hátt í helming þeirra lagði krabbameinið að velli, sem er álíka fjöldi og meðal karlanna á sama aldri. Um fjórum sinnum færri konur dóu hins vegar úr hjartasjúkdómum (158) og slysum og öðrum ytri orsökum á svo „góðum" aldri. Það er ekki fyrr en eftir 75 ára aldurinn - um 20 árum síðar en hjá körlunum - að hjarta- og æðasjúkdómarnir eru orðnir or- sök yfir helmings dauðsfalla meðal kvenna. Enginn fær lengur að deyja úr elli í þessu sambandi sýnist ástæða til að vekja athygli á, að í skýrslum fær ekki lengur nokkur maður einfald- lega að deyja úr elli. Gefist hjartað upp - þó það hafi slegið eins og klukka í brjósti einhvers á 2. öld - skal það skjalfest sem sjúkdómur þegar kemur að skýrslugerðinni. HEI Benedikt Blöndal hæstaréttardómari Forseti íslands hefur samkvæmt tillögu dómsmálaráðherra skipað Benedikt Blöndal, hæstaréttarlög- mann, til að vera dómari í Hæstarétti íslands frá og með deginum í gær að telja. Alls sóttu níu lögfræðingar um stöðuna, en í samræmi við 5. gr.l. um Hæstarétt íslands óskaði dóms- málaráðherra eftir umsögn Hæsta- réttar um dómaraefnin. Hæstiréttir lagði til að skipaður yrði einhver einn úr hópi þeirra Benedikts, Hjart- ar Torfasonar og Sveins Snorrason- ar, en talið er að starfsreynsla þeirra komi Hæstarétti að mestu gagni við núverandi aðstæður. Allir umsækj- endur fullnægðu þó skilyrðum laga til að gegna embætti hæstaréttar- dómara. Þj Erling Aspelund til Sambandsins Erling Aspelund hefur verið ráð- inn fulltrúi forstjóra Sambandsins. Hann tekurtilstarfa 15. febrúarn.k. Hlutverk Erlings í fyrstunni verð- ur m.a. að skipuleggja starfsmennt- un í tengslum við hin nýju tölvukerfi Sambandsins. Jafnframt mun hann vinna að skipulagningu á þjálfun og fræðslu starfsfólks með auknu nám- skeiðahaldi í tengslum við Sam- vinnuskólann í Bifröst. Loks mun Erling vinna að nýjum stöðlum í starfsmannamálum, hafa umsjón með gerð starfslýsinga og fram- kvæmd frammistöðumats. Erling, sem er fæddur 28. febrúar 1937, hefur sl. þrjátíu ár starfað hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum og hefur auk þess verið mjög virkur í félagsmálum ýmiss konar. Hann er kvæntur Kolbrúnu Þórhallsdóttur og eiga þau fjögur börn. Margir fisksalar en fáar matvörubúðir lækkuðu fiskverðið: Fiskur 10-17% ódýr- ari í fiskbúðunum Fiskinn sinn, a.m.k. annan en ýsu, skyldi fólk jafnaðarlega kaupa hjá fisksölunum frekar en í stór- mörkuðum og öðrum matvöru- verslunum, sem algengt er að selji hvert kíló á 40-80 krónum hærra verði, eða 10-17% dýrari að meðal- tali. Algengasta verð á stórlúðu í sneiðum var t.d. á bilinu 380-390 kr. hjá fisksölunum en á bilinu 450-490 kr. í matvöruverslunum. Ódýrust fékkst lúðan þó á 370 kr. en dýrust á 525 kr., sem er 155 kr. munur á kílói. M.a.s. ýsuhakkið var að meðaltali um 5% ódýrara hjá fisksölunum. Þeir sem kaupa annan fisk en ýsu ættu að gæta vel að sér, því mjög mikill munur, eða 44-67%, var á lægsta og hæsta verði sömu fisktegunda milli ein- stakra fiskseljenda. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun Verðlags- stofnunar á fiskverði hjá 21 fisksala og 11 matvöruverslunum í kjölfar 8% lækkunar á hámarksverði á ýsu þann 29. janúar og tilmæla til fiskseljenda um að lækka einnig verð annarra fisktegunda. Niður- staðan er í fyrsta lagi sú að verð ýsu og ýsuflaka lækkaði sumstaðar nokkuð niður fyrir hið nýja há- marksverð. Ýsuhakkkið lækkuðu nær allir fisksalarnir en aðeins þriðjungur matvöruverslananna í könnuninni. ítarlegur verðsamanburður milli allra verslananna var gerður á 5 fisktegundum: Rauðsprettuflök- um, stórlúðu, ýsuhakki, reyktri ýsu og saltfiskflökum. Margir fisk- salanna höfðu í febrúar (auk ýsu- hakksins) lækkað verð þessara „frjálsu" fisktegunda, gjarnan um 2-8%, en fáar matvörubúðirnar, að Fjarðarkaupi undanskildu, sem sýndi 6-27% verðlækkun á þeim 3 tegundum sem þar var hægt að bera saman. Eftir lækkunina var meðalverð þessara 5 fisktegunda á bilinu 317 kr. til 365 kr. hjá þeim 12 fisksölum sem áttu þær allar. í sex matvöru- búðum var meðalverðið frá 349 kr. til 406 kr. á hvert kíló. Lægsta meðalverðið fisksalanna var á Rán- argötu 15 og hjá Sæbjörgu en hæsta í Sævali á Frakkastíg og Hafrúnu í Skipholti. Af matvöru- búðunum virtist Hólagarður með hæsta verðið. - HEI Lægsta og hæsta verð í könnun 2. febrúar Lægsta Hæsta Mismunur Heil ýsa1) verð verð í prósentum 148 160 8,1% Ýsuflök með roði2) 273 280 2,6% Rauðsprettuflök 220 360 63,6% Stórlúða í sneiðum 365 525 43,8% Vsuhakk 248 359 44,8% Reykt ýsa 298 458 53,7% Saltfiskflök, útvötnuð 250 418 67,2% " Hámarksveri er 159 kr./kg HamarksverS er 280 kr./kg

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.