Tíminn - 12.02.1988, Page 5

Tíminn - 12.02.1988, Page 5
Föstudagur 12. febrúar 1988 Tíminn 5 Óttást að siglingaleiðir kunni að lokast norður fyrir land á næstu dögum: ísinn æðir nær landi sjómílu á klukkustund Hafís undan Norðurlandi hefur ekki orðið meiri né þéttari frá því síðla vetrar árið 1979. Þá voru og miklir kuldar, sem báru þann ávöxt, að þingmenn stofnuðu haf- ís- og harðærisnefndir og ýmislegt fleira í sambandi við það. Árið 1988 er nýtt hafísár, en ástandið minnir á það sem ríkti fyrir níu árum. „ís við ísland er f raun afbrigðilegt fyrirbæri,“ sagði dr. Þór Jakobsson, haffsfræðingur, í samtali við Tímann f gær, eftir fyrsta könnunarflug Landhelgis- gæslunnar meðfram ísröndinni. Gæslan varð m.a. að lóðsa skip úr íshrönglinu, en stakir stórir jakar eru á reki skammt undan landi og ísspangir austan til og norður af Eyjafirði. Könnunarflugið sóttist seint og var erfitt, en skyggni var vfða slæmt vegna éljagangs. Flogið var meðan birta leyfði. Tilkynningaskyldan sagði seint í gærkvöld að ekki væri ástæða til að óttast um neinn bát, sem væri á siglingu í nágrenni hafíssins. Skips- tjórnarmenn væru á varðbergi og héldu skipum sínum í hæfilegri fjarlægð. Dr. Þór Jakobsson sagði að ísinn væri afar varhugaverður og hafði Tilkynningaskyldan því við að bæta að jakarnir kæmu illa eða alls ekki fram á ratsjám og sæjust varla í rökkrinu. Hvass vindur hefur blásið í allan gærdag og er talið að hann haldi áfram að reka hafísinn nær landi. Búist er við að siglingaleiðir norður fyrir land geti lokast að verulegu leyti. Grímseyingar eru nú þegar innlyksa, en bátar komast ekki úr höfn. „Þetta er fs, sem hefur myndast á hafi og er kominn norðan að. Þess vegna er ekki að búast við neinum borgarísjökum. Hafísinn er sléttur og sést illa,“ sagði dr. Þór. „Fyrr í vetur var óhemju mikill ís á breiddargráðu á móts við Skorysbysund og Jan Mayen. Þar hafa verið miklir kuldar. Það sem nú hefur gerst, er að lægð hefur stöðvast austur af Jan Mayen og sömu vindar þess vegna blásið dögum saman. Norðan- og norð- vestanátt hefur verið ríkjandi undanfarið og rekið ísinn suður á bóginn. Hann staðnæmist við ísland, sem er líkt og þröskuldur í vegi hans.“ Svo kaldur er vindurinn að á íslandshafi myndast mikill nýr ís til viðbótar við gamla hafísinn, sem berst norðan að. Meginísjaðarinn var á 67 Vi breiddargráðu norður í gær, en færist nær landi sem nemur einni sjómílu á klukkustund. Spáð er áframhaldandi norðanátt fram yfir helgi. Það er því hætt við að hafísinn verði kominn ískyggilega nálægt Norðurlandi innan fárra sólarhringa. Það er óttast að hann verði landfastur við Melrakka- sléttu þegar í dag eða nótt, en þangað átti hann ófarnar um 20 Óendanleg ísbreiðan tcygir sig til norðurs. Mikil nýmyndun íss á sér stað undan ströndum landsins og bætist við þá ógn af hafís, sem rekur að fslandi frá Jan Mayen. Hér verður enginn fískur veiddur í bráð. (Tíminn: Pjetur) sjómílur í gær. Kl. 15:04 tilkynnti flugvél Landhelgisgæslu að skammt væri þar til sigling lokaðist við Rauðanúp. Ein ísspöng náði að landi kl. 15:00 í gæren a.m.k. þrjár misbreiðar spangir var að sjá 5 til 6 sjómílur norðaustur af Raufar- höfn. „Það er helst í kring um Mel- rakkasléttu sem siglingaleiðir lok- ast á næstunni," sagði dr. Þór. Hann sagði að alls staðar fyrir norðan land yrði að sigla með varúð, en hann byggist við að leiðir norður af Hornströndum héldust opnar. Um kl. 17:30 tilkynnti Esj- an á leið inn Skagafjörð að íshrafl væri talsvert inn að Drangey, og sæist það illa í ratsjá og væri hættulegt skipum. „Þegar ísinn færist að landi, þarf ekki mikið til að siglingaleiðir lokist. fsinn hrúg- ast upp við strendur landsins. Jafn- vel þótt hann virðist gisinn úti fyrir landi getur það breyst skjótt þegar ísinn staðnæmist við land. Þá þétt- ist hann fljótt. Þess vegna er stór- varasamt að vera á siglingu í ísnum og full ástæða til þess að vara við því. Það er aldrei að vita hvað hann kann að þokast nærri. Hann er nú þegar mjög nálægt landi.“ þj Jakar umhverfis Grímsey. Þeir eru stórvarasamir, en koma illa fram á ratsjá og sjást ekki í rökkri, því að ísinn er sléttur. (Tíminn: Pjetur) Myndin var tekin í könnunarflugi með Landhelgisgæslu í gær. Hafísinn æðir nær landi sem nemur einni sjómílu á klukkustund. Hann er mjög þéttur, svo sem sjá má, og óttast er að siglingaleiðir norður fyrir land lokist á næstu dögum. (Tíminn: Pjeiur) Grímseyingarumgirtir hafís Frá Hafliða Guðmundssyni, Grímsey: Grímsey er nú umlukin ís að austanverðu og lokaðist höfnin síð- degis í gær. Skömmu áður, eða um hádegið sluppu allir bátar út, nema þrír, og var þeim siglt til Akureyr- ar. Er þetta gert vegna lélegrar hafnaraðstöðu í Grímsey og hættu á að bátarnir brotni þegar kemur að því að ísinn gengur til baka, en þá er höfnin opin. Nú sem stendur er skyggnið afar lélegt í eýnni og því er ekki gott að sjá nema stutt út á spangirnar. Óhemju magn er nú sagt vera fyrir norðan Grímsey og allt er það samhangandi við hafísinn á Jan Mayen svæðinu. Telja menn að mikill ís eigi eftir að leggjast enn að Grímsey og telja heimamenn að þetta geti verið upphaf að langri stöðvun á vetrar- vertíð. Afar léleg aflabrögð hafa verið í Grímsey undanfarna mánuði og tala menn um að sjórinn hafi hreinlega verið dauður í allt haust. Ekki skar janúar sig úr að ráði. f ár fiskaðist um 56 tonn en í sama mánuði í fyrra náði aflinn þó ríflega 190 tonnum. Nóg er af vistum í Grímsey til að minnsta kosti tveggja vikna, en helst er það mjólkin sem gengur á. f þessari kuldatíð hefur það tvfveg- is gengið yfir að ekki hafa borist vistir í vikutíma í senn og var þá gengið ansi nærri mjólkurvistum handa yngri kynslóðinni. Þótti mönnum það verst. Eins og áður segir hafa menn litlar áhyggjur af ísnum sem er á leiðinni inn, samanborið við það þegar ísinn gengur til baka. Höfnin er illa opin í suður og er reynslan sú að þykkur ísinn hreinlega þjóti inn hafnarmynnið. Þarf ekki að tíunda það hverjar afleiðingarnar geta orðið fyrir mannvirki og þá báta sem eftir verða í eynni, þó svo að reynt verði að taka þá upp. Hér í Grímsey eru menn reyndar ýmsu vanir og ekki er mjög langt síðan hvítabirnir gerðu vart við sig í kjölfar hafísa. fsinn vestan Grímseyjar er að vísu ekki enn orðinn manngengur, en síðast þeg- ar hvítabjörn lét til sín sjást, var aðeins krap eitt lagst að landi enda syndir hann langar vegalengdir. Að fenginni reynslu eru eldri eyja- •skeggjar farnir að líta oftar en oft áður í átt að byssum sínum þó að þeir voni auðvitað að þeir þurfi ekki að grípa til þeirra.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.