Tíminn - 12.02.1988, Side 8

Tíminn - 12.02.1988, Side 8
8 Tíminn Tímiim MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aöstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Auglýsingaverð kr. 400 prdálk- sentimetri. \ Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 600.- Hvert stefnir Alþýðuflokkurinn? Menn hljóta að velta því fyrir sér hvort Alþýðuflokkurinn sé að „spila sig út“ sem félagshyggjuflokkur og verða markaðshyggj- unni að bráð. Ef marka má skrif Alþýðublaðsins á miðvikudaginn, þar sem fjallað er um hænsna- búskapinn í landinu, auk yfirlýsinga Jóns Sigurðssonar viðskiptaráðherra um sama mál- efni, er ekki annað sýnna en að Alþýðuflokk- urinn hafi það að metnaðarmáli að vera málsvari gamal-kapitalískrar milliliðastarf- semi og leggi sig fram um að fjandskapast við framleiðendur. Að Alþýðuflokkurinn undir stjórn Jóns Sigurðssonar sé boðberi markaðs- hyggju í vaxtamálum leynir sér alls ekki. Þannig rekur hver sönnunin aðra um það að Alþýðuflokkurinn hyllist til að skipa sér í fylkingu þeirra þjóðfélagsafla sem hafa hreina markaðshyggju að leiðarljósi, jafnt í peninga- málum sem verslunarmálum. Viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, fer síð- ur en svo dult með stefnu sína í vaxtamálum, sem er einfaldlega sú, að vextir skuli vera samningamál á peningamarkaðnum, óháðir öllu eftirliti af opinberri hálfu. í augum Jóns Sigurðssonar eru það eitt réttir vextir sem um semst á markaðnum, alveg án tillits til þess hvers konar „markaður“ íslenski peninga- markaðurinn er. Viðskiptaráðherra skiptir það engu máli í þessu sambandi, að íslenski peningamarkaðurinn er ekki „opinn og frjáls“ heldur lokaður og með einokunaraðstöðu gagnvart lántakendum. Viðskiptaráðherrann hrekst því út í þá villu að vernda einokunar- starfsemi í peningamálum í þeirri trú að hann sé að halda uppi frjálsum viðskiptum. Viðskiptaráðherra endurtekur í sífellu þá setningu, að ekki sé hægt að lögbinda vexti eða lækka þá með neins konar valdboði. Þó bregður svo við, að í umræðum um vaxtamál á Alþingi á þriðjudaginn segir viðskiptaráð- herra, að ríkisstjórnin muni beita sér af alefli fyrir lækkun vaxta, ef gerðir verði „skynsam- legir kjarasamningar,“ eins og ráðherrann orðar það, svo að verðbólgan minnkaði. Með þessu er ráðherrann raunverulega að segja að ríkisvaldið geti undir vissum kringumstæðum gripið inn í vaxtamál, haft áhrif á hvað lántakendur þurfa að greiða í vexti. Ef ríkis- stjórnin ætlar að hafa slík áhrif, hvort heldur verðbólga er meiri eða minni, þá hlýtur hún að gera það með valdboði en ekki fortölum. Föstudagur 12. febrúar 1988 UM LOFTIN Mótmæli starfsmanna Flugleiöa gegn því að Verslunarmannafélag Reykjavíkur lciti hagstæöustu til- boða erlendis í flugferðir fyrir fé- tagsmenn sína hafa vakið athygli. Þarna er um það að ræða að svo virðist sem erlcnt flugfélag sé til- liúið til að taka að sér að flytja reykvíska verslunarmcnn út í sumarlcyfi og hcim aftur fyrir lægra gjald en Flugleiðir bjóða. Eftir þvi sem ráða má af fréttum fjölmiðla munar hér jafnvel töluverðum upp- hæöum, scm dregur vitaskuld drjúgt hjá launafólki. Gæti þessi munur jafnvel þýtt að ýmsir komist til útlanda í sumarfrí, sem ella yrðu að sitja heima. Þessu hafa starfsmcnn Flugleiða mótmælt. Þeir benda réttilega á að með þessu móti sé veríð að taka frá þeim atvinnutækifæri. Þykir þeim hart að þcirra eigið stéttarfélag skuli hafa forgöngu um þetta, og lái þcim raunar hvcr sem vill. Verkalýösfélög cru nú einu sinni ekki til þcss stofnuð að vinna gegn hagsmunum félagsmanna sinna. \ Ijósi þess er hún kannski skiljanleg hótun þeirra Flugleiðastarfsmanna um að scgja sig úr VR og stofna sitt eigiö stéttarfélag. Samkeppnin En að hinu er líka að gæta að á herðum fyrirtækis á borð við Flug- leiðir hvflir sú skylda að standa sig i samkeppninni. Segja má að þetta fyrírtæki hafi nánast einokunarað- stöðu í fólksflutningum til og frá landinu. Hér er þó ekki vcrið að tala um cinokun sem þvingað sé upp á landsmenn að óvilja þeirra, heldur þvert á móti. Þjóðin licfur ; verið nokkuð sammála um það í áranna rás að hér þyrfti að byggja upp öfliigt innlent flugfélag. Lega landsins er slík að öruggar sam- göngur í lofti, til og frá landinu og í höndum innlendra aðila, eru okkur niikilvægar. Af þcssari ástæðu er það vafa- laust sem íslensk stjórnvöld hafa jafnan leitast við það, með fullu samþykki landsmanna, að standa við bakið á Flugleiöum þegar að þeint hefur kreppt. En á móti kemur að Flugleiöafólk verður að skilja að það verður sjálft að leggja sig fram um að standa sig í sam- keppninni. Ef upp kemur einstakt tilvik, þar sem hópur fólks getur fengiö ódýrari þjónustu annars staðar, þá eru svör fyrirtækja í viðskiptalífinu að gera betur og bjóða a.m.k. jafngóð kjör og keppinauturinn. Þcssu veröa Flug- leiðir vitaskuld að sæta líkt og önnur fyrírtæki, og skiptir þá engu sá velvilji sem félagið vissulega nýtur meðal landsmanna. Ökuljósin j Nú nálgast óðum sá tími að ný umferðarlög taki gildi, og eitt af ákvæðum þeirra er að nú skulu allir ökumenn aka með full Ijós, áríð um kríng og jafnt að nóttu sem degi. Á það hefur verið bent að það verður óneitanlega dálitið ank- annalegt að þurfa kannski að aka með fullum Ijósum hér niður Laugaveginn í Reykjavík á hcið- björtum júnídegi, og ijöldamörg önnur tilvik iná finna þar sem Ijósanotkunin er vægast sagt al- gjörlega út í hött, ef ekki ankanna- leg. Ekki verður hér dregið úr því að vafalaust er þessi ákvörðun nauö- synleg og til bóta að bestu manna yfirsýn. En hitt er annað mál að það er alltaf neyðarbrauð að þurfa að taka fram fyrir- hendurnar á fólki, í þessu tilviki ökumönnum, og skylda það til að fylgja ákveðn- um reglum. Óneitanlega væri æski- legra að geta haft Ijósanotkuninu frjálsa áfram, þannig að fólki værí sjálfu falið að meta það hvenær nauðsynlegt er að nota Ijós og hvenær ckki. Ástæðan hér liggur hins vegar trúlega í þeim landlæga ósið, sem hér ríkir, að aka helst alltaf ívið hraðar en þörf er á. Það er opinbert leyndarmál að reglur um ökuhraða eru hér ekki virtar nema að tak- mörkuðu leyti. Ef með einhverjum ráðum tækist að ná þjóðarsam- stöðu um að minnka hraöann, þá væri heldur ekki nauðsynlegt að skikka menn nauðuga viljuga til að aka með fuilum Ijósum niður Laugaveginn um Jónsmessuleytið. Garri. VÍTTOG BREITT flllllll! Ahætta og óskhyggja Hér á landi hefur verið stundað- ur áhættubúskapur í 11 aldir og treyst á guð og gæfuna hvort fólk skrimti eða veslaðist upp af hor þegar illa áraði. Hafís, eldgos, gras- og fiskileysi ollu oft þungum búsifjum og viðskiptakjörin voru rysjótt eins og veðráttan. Samt tókst kynslóðunum að tóra og hafa skilað af sér hugumstórum og at- hafnasömum uppum sem ávaxta sitt pund með stórfelldum lántök- um innan lands og utan og fjárfesta í tækni og framkvæmdum og bjóða náttúrufari og markaðslögmálum birginn og kenna fjármagnskostn- aði einum um þegar óskhyggju- dæmin þeirra ganga ekki upp. Nokkurra daga frost á Fróni valda fiskeldisstöðvum miklu tjóni og fjölmiðlar hamast hver í kapp við annan að mála skrattann á vegginn og nefna háar upphæðir sem tapast vegna þess að eldisfisk- ur króknar í kvíunum. Fyrir Norðurlandi er rekís að nálgast strendur og þegar er farið að spá alls kyns tjóni og tekjumissi sem af honum kann að leiða. Samtímis berast fréttir um að offramleiðslan á seiðum nemi nokkrum milljónum. Stærst, mest og dýrast á Nordurlöndum Mikið fjaðrafok er nú vegna kjúklinga- og eggjaframleiðslu og er eitthvert rugl þar á ferðinni milli framboðs og verðlags. j Fyrir örfáum árum kynntu stoltir kjúklingaframleiðendur nýtt og fullkomið sláturhús, gott ef ekki hið stærsta og fullkomnasta á Norðurlöndum, eða jafnvel víðar. Undur færibandaslátrunarinnar voru flutt heim í stofur fyrir tilstilli sjónvarpsins og voru um tíma álíka vinsælt fréttaefni og kviðristir hval- ir eru um þessar mundir. Mjög dró úr hænsnaáti vegna þessarar sér- kennilegu kynningar. Síðar var komið upp fullkomnustu eggja- flokkunarverksmiðju á Norður- löndum og gott er ef mannshöndin átti þar hvergi að koma nærri, rétt eins og í mikilvirkustu og full- komnustu gosdrykkjaverksmiðju á Norðurlöndum, sem nú kvað held- ur aðgerðalítil. Öll er þessi framleiðslugeta á einhverjum misskilningi byggð og af því stafar fjaðrafokið. Refaræktin gengur skrykkjótt og ætti engum að koma á óvart því refarækt er áhættubúskapur og hef- ur verið það lengi, lengi. Eftir- spurnin og verðlagið er háð tísku- sveiflum, og er það nú fyrst að fréttast til Islands þegar það er komið í mikla lægð. Verðlag á minkaskinnum hefur aftur á móti ávallt verið miklu stöðugra. Torskilin lögmál Útgerð og fiskvinnsla eru ein- hverjar áhættusömustu atvinnu- reinar sem um getur og hafa slendingar ávallt búið við miklar sveiflur í fiskveiðum og á mörkuð- um. Síldin kemur og síldin fer og jafnvel þegar hún kemur aftur er markaðurinn horfinn og hún því verðlaus. Ekki þarf lengi að glugga í útgerðarsöguna til að sjá að þar kemur krakk á krakk ofan og guðdómleg góðæri inn á milli og var margur mætur maðurinn millj- ónamæringur eitt árið og þrota- maður hið næsta. Réðu því ýmist náttúru- eða markaðslögmál og eru hvorutveggja álíka oft torskil- in. Tíðarfarið og hafísinn ættu ekki að koma íslendingum á óvart né að atvinnugreinar hljóti nokkurn skell af þegar veður harðna og ísinn leggst að. Hitt er skrýtnara hvað mönnum gengur illa að kalkúlera takmark- aðan markað og haga fjárfesting- um og framleiðslugetu í einhverju samræmi við kaupgetu og eftir- spurn. Reyndur verslunarmaður segir í viðskiptakálfi Moggans í gær, að verslunarhúsnæði í Reykjavík sé þegar orðið þrisvar sinnum meira en þörf er á og að við borðum ekkert meira þótt fleiri verslanir selji okkur matinn. Bendir margt til að verslunin sé að verða mikil áhættugrein af svip- aðri ástæðu og hænsnaræktin og ropvatnsframleiðslan. En þótt hafísinn leggist að, fisk- urinn krókni og fjármagnskostnað- urinn sligi alla offjárfestingu höld- um við áfram að tóra og bíðum vonglöð eftir næsta góðæri og kjar- asamningunum haldgóðu. OÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.