Tíminn - 27.02.1988, Qupperneq 4

Tíminn - 27.02.1988, Qupperneq 4
4 Tíminn Laugardagur 27. febrúar 1988 Varnarliðið auglýsir eftirfarandi starf til umsóknar: Starf deildarstjóra keiluspilshallar á Keflavíkurflug- velli. Viökomandi skal hafa umsjón með keilusal Varnar- liðsins, sjá um fjárhagsáætlanagerð, innkaup, mannahald, uppröðun keppnisliða, markaðsöflun o.fl. Umsækjandi hafi reynslu í umsjón með tóm- stundastarfsemi eða hafi menntun á sambærilegu sviði. Reynsla við stjórnunarstörf ásamt reynslu við fjárhagsáætlunargerð æskileg. Mjög góðrar enskukunnáttu krafist. Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna utan venjulegs vinnutíma, svo og um helgar. Umsóknir berist Varnarmálaskrifstofu Utanríkis- ráðuneytisins, ráðningardeild, Brekkustíg 39, Njarðvík, eigi síðar en 11. mars n.k. Nánari upplýsingar veittar í síma 92-11973. Frá Ijósmæðraskóla íslands Kennsla hefst í Ljósmæðraskóla íslands fimmtu- daginn 1. september 1988. Inntökuskilyrði eru próf í hjúkrunarfræði og að umsækjandi hafi hjúkrunar- leyfi hér á landi. Umsóknir sendist skólastjóra Ljósmæðraskóla íslands, Kvennadeild Landspítalans, fyrir 1. júní n.k., ásamt prófskírteinum og heilbrigðisvottorði. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru veittar í skólanum á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 13.00 og 16.00. Reykjavík, 22. 2.1988 Skólastjóri Norrænn styrkur til bókmennta nágrannalandanna Ráöherranefnd Noröurlanda hefur skipaö sérlega nefnd til aö ráðstafa fé því sem árlega er veitt til að styrkja útgáfu á norrænum bókmenntum í þýðingu á Norðurlöndum. Fyrsta úthutun nefndarinnar á styrkjum í þessu skyni 1988 fer fram í júní. Norrænn styrkur til þýðinga á bókmenntum nágrannalandanna Þá mun nefndin einnig í júní úthluta styrkjum til þýöinga á árinu 1988. 75.000 danskar krónur eru til umráða, er þeim fyrst og fremst ætlað að renna til þýðinga úr færeysku, grænlensku, íslensku og samisku á önnur norðurlandamál. Umsóknareyðublöð ásamt leiðbeiningum fást hjá Menntamálaráðu- neytinu í Reykjavík, eða frá skrifstofu Ráðherranefndar Norðurlanda í Kaupmannahöfn. Umsóknarfrestur fyrir báða þessa styrki rennur út 1. apríl 1988. Umsóknir sendist til: Nordisk Ministerrád Store Strandstræde 18 KD-1255 Kobenhavn K, Danmark Útboð Vesturlandsvegur í Hvalfirði, 4. áfangi Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Lengd vegarkafla 3,64 km, fylling og burðarlag 21.000 m3 og klæðning 24.000 m2. Verki skal lokið 10. júlí 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis- ins í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 2. mars n.k. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 14. mars 1988. Vegamálastjóri VEGAGERÐIN Forsvarsmenn VMSÍ, Guðmundur J.Guðmundsson, formaður og Karvel Pálmason, varaformaður. Helstu samningsatriði að loknum fundi VMSÍ og VSÍ- Grunnhækkunin 13,45%, strik J og stómátíðir Samið hefur veríð um kauptaxa og önnur launakjör á milli Yinnuveitendasambandsins og Verkamannasambandsins að nokkrum aðilum undanskildum. Samningurinn gildir til 18. mars á næsta árí og felur í sér um 13,45% beinar grunnkaups- hækkanir á samningstímanum öllum. Eftirvinna hefur verið afnumin. Lægstu byrjunarlaun eru nú 31.500 krónur á mánuði og um 34.000 á mánuði miðað við tólf ára starfsreyn- slu. Þá eru lægstu laun ríflega 34.000 fyrir sérhæft fiskvinnslu- fólk, en tæplega 37.000 fyrir fólk í sömu grein eftir 12 ára starf. Desemberuppbót er nú komin inn og er föst krónutala, 4.500 krónur fyrír fólk í heilu starfi. Strax við gildistöku samninganna hækka laun verkamanna um það sem nemur 5%, eða um 1.525 krónur á grunnlaun lágmarkslauna. Aðrír launatengdir liðir hækka að sama skapi um 5,01%. Næsta hækkun verður 1. júní en hún nemur 3,25% og aftur verður hækkun 1. september um 2,5%. Síðasta hækkunin á samningstímanum verður í febrúar á næsta ari og nemur hún 2%. Önnur strik eru í samningnum. Þau eru kölluð rauð strik og marka þau nýmæli að samningurinn verður sjálfkrafa uppsegjanlegur. Dagsetn- ingar rauðu strikanna eru 1. júlí og 1. nóvember. Miðað er við að verð- bólgan fari ekki yfir 16% á árinu og að framfærsluvísitalan fari ekki fram yfir 261 stig 1. júlí eða 272 stig 1. nóvember. Til samanburðar má geta þess að verðbólga síðustu 12 mánaða varð 25,4%. Eftirvinnukaup heyrir sögunni til Eftirvinnugreiðslur eru felldar út úr myndinni með samningum þess- um og er þar náð fram gömlu baráttumáli verkamanna. Strax að lokinni dagvinnu tekur nú við nætur- vinna. Næturvinnukaupið nemur 1,0385% af mánaðarkaupi, en það þýðir að það sé um 80% hærra en tímakaup í dagvinnu. Starfsaldurshækkanir Starfsaldurshækkanir eru ekki mjög miklar og mun minni en kröfur verkamanna námu. Hér er um að ræða nýtt starfsaldurskerfi með fimm þrepum. Eftir eins árs vinnu hækka laun starfsmanns um 2%, eftir þrjú ár hækka þau um 3%, eftir fimm ár um 6%, eftir sjö ár um 7% og eftir tólf ára vinnu hækka laun starfsmannsins um 8%. Það sem er nýtt við þessa þrepaskiptingu er hækkunin við fimm ára starfs- reynslu, en í staðinn er felld niður starfsaldurshækkun eftir fimmtán ár. Náskylt þessum ákvæðum eru ákvæði samningsins um námskeiða- álag fiskvinnslufólks og starfsaldurs- hækkanir þeirra. Námskeiðaálagið hækkar í 2.700 krónur úr 1.688. Starfsaldurskerfið var bætt, þrepum fjölgað og aldursálag hækkað. Þá hækka fatapeningar úr 126 kr. í 180 kr. á viku. Þá lengist orlof fisk- vinnslufólks um einn dag eftir 10 ára starf hjá fyrirtæki. Stórhátíðarálag og kaffitími Stórhátíðarálag hefur nú komist inn í samningana og nemur það 1,375% af mánaðarkaupi í tíma- kaup. Hátíðarálag hefur verið þekkt í nokkrum greinum en það er nýmæli í samningum verkamanna. Lág- marksgreiðslur fyrir vinnu- útkall er nú fjórar klukkustundir en hefur verið þrjár til þessa. Felur samning- urinn í sér ýmsa breytingu á vinnu- tilhögun og meðal þeirra er niður- felling á kaffitíma við upphaf eftir- vinnu. Á flestum vinnustöðum var þessi kaffitími ekki tekinn, en þess í stað fengu verkamenn greiddar um 25 mínútur aukalega. Upphaf dagvinnutímans er nú breytilegra en áður var og er hverju félagi heimilt að semja um það sérstaklega hvenær á milli kl. 07 og 08 á morgnana dagvinna hefst. Fjórir fulltrúar ekki með Fjórir fulltrúar í samninganefnd Verkamannasambandsins rituðu nöfn sín ekki undir þegar staðið var upp frá borðum um fimmleytið í fyrrinótt. Þessir fulltrúar voru Aust- firðingarnir Sigurður Ingvarsson og Björn Grétar Sveinsson á Höfn í Hornafírði, Jón Kjartansson í Vest- mannaeyjum og Sigurður Clausen á Akranesi. Þess má geta að í Vest- mannaeyjum hafa Snótarkonur þeg- ar boðað verkfall með viku fyrirvara. KB

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.