Tíminn - 27.02.1988, Side 13

Tíminn - 27.02.1988, Side 13
Tíminn 13 Laugardagur 27. febrúar 1988 FRÉTTAYFIRLIT SÖÚL - Stjórnvöld í Suður- Kóreu tilkynntu um lausn fjöl- margra pólitískra fanga og annarra fanga. Þetta var gert í tilefni þess að Roh Tae- Woo tók formlega við forsetaemb- ættinu. MOSKVA - Mikhail Gorbat- sjov Sovétleiðtogi hvatti til þess að menn héldu ró sinni í iýðveldunum Armeníu og Az- erbaijan, en búsundir manna í Armeníu haia að undanförnu tekið þátt í mótmælum og kraf- ist þess að landamæralinunni við Azerbaijan verði breytt. Leiðtogar kommúnista í Arm- eníu hafa hvatt stjórnina í Moskvu til að setja á stofn nefnd er kannaði deilurnar milli þessara suðlægu Sovétlýð- velda. JERÚSALEM - Hersveitir Israelsmanna skutu palest- ínskan ungling til bana, ara- bískur kennari var drepinn og að minnsta kosti sjö manns slösuðust í mótmælaaðgerð- um vegna komu George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkj- anna til fsraels. Shultz átti viðræður við leiðtoga ísraels- ríkis en í Damascus í Sýrlandi sagði Giulio Andreotti utanrík- isráðherra Ítalíu að hann og Hafez Al-Assad forseti Sýr- lands myndu reyna að fá Shultz til að styðja tillögur um friðarráðstefnu um málefni Mið-Austurlanda sem Samein- uðu þjóðirnar myndu hafa yfir- umsjón með. NIKÓSIA - franstjórn sagð- ist vera að skipuleggja flota- æfingar á Norður-lndlandshafi og var sagt að skip, flugvélar, þyrlur og hermenn myndu taka þátt í æfingunum á þessu al- þjóðlega hafsvæði. Tilgangur- inn með æfingunum er að auka hæfni flota írana til að verjast árásum erlendra ríkja. VARSJÁ - Vestræ'nirstjórn- arerindrekar í Póllandi sögðu að svo virtist sem rómversk- kaþólska kirkjan hefði gefið eftir í kröfum sínum á hendur pólskum yfirvöldum og það gæti flýtt fyrir því að stjórn Póllands og Vatíkanið tækju upp stjórnmálasamband. Samkvæmt heimildum stjórn- arerindrekanna hefur kirkjan hætt að krefjast þess að hún verði löglega viðurkennd en það hefur hún ekki verið síðan kommúnistar tóku völd í land- inu árið 1944. DACCA - Lögregla skaut á mótmælendur í suðurhluta Banaladesh og drap tvo og særði að minnsta kosti fimmtíu manns. Fólkið notaði heimatil- búnar sprengjur í mótmælum sínum sem beint var gegn þingkosningunum í landinu og Ershad forseta. Nú eru aðeins nokkrir dagar þar til kosið verður. Illllllllllllll! ÚTLÖND Miami Havana HAITi Caribbean Sea lARAGf COSTA RÍCA Panama Vestur-Þýskaland: Tapsárfjár- hættuspilari Fjárhættuspilari í Baden-Ba- den í Vestur-Þýskaiandi tapaði tveimur milljónum marka í rúll- ettu í spilavíti staðarins og tók því síður en svo vel. í gær keyrði hann á jeppa sínum í gegnum framdyr hússins og hélt áleiðis til salarins þar sem fjárhættuspilið fer fram. Lögreglan sagði að hinn 44 ára gamli maður hefði keyrt niður rúllettur og önnur tæki og síðan haldið til barsins og keyrt þar niður stóla og borð. Þar sprakk á jeppanum og maðurinn varð að stöðva. Engin slys urðu á fólki en maðurinn vann gífurlegar skemmdir með tiltæki sínu. Hann sagði við lögreglu þegar hún kom á staðinn að hann hefði orðið ofsareiður þegar hann tapaði svo miklu í rúllettunni. hb Forsetinn rak Noriega og var rekinn fyrir Eric Arturo Delvalle forseti Pan- ama sem var rekinn úr starfi á fimmtudagskvöld sagði í gær að hann væri ennþá forseti og fór fram á við Bandaríkjastjórn að hún hjálp- aði sér að halda embætti sínu. Delvalle sagði hinsvegar í viðtali við CBS sjónvarpsstöðina að hann vildi ekki að Bandaríkjastjórn not- aði her sinn til að skerast í leikinn í Panama. Mikið upplausnarástand ríkti í gær í landinu. Þingið samþykkti að vísa Delvalle úr embætti eftir að hann hafði lýst því yfir að hann hefði rekið Manúel Antonio Noriega úr starfi sínu sem yfirmaður hersins. Noriega er í raun æðsti valdamaður landsins en hann hefur verið harka- lega gagnrýndur að undanförnu eftir að bandarísk yfirvöld sökuðu hann opinberlega um að vera á mála hjá eiturlyfjakóngum. Fréttamenn spurðu Delvalle hvað væri best fyrir Bandarfkjastjórn að taka til bragðs og svaraði hann því til að hún ætti að koma á viðskipta- banni til að sýna að hún styddi við bakið á lýðræðisöflum landsins. Tveir bandarískir dómstólar kom- ust að þeirri niðurstöðu fyrir þremur vikum að Noriega væri flæktur í eiturlyfjasölu og flutninga. Hann var sakaður um að verja Medellín kókaínhringinn í Kólumbíu og hafa tekið við að minnsta kosti 4,6 millj- ónum dala í mútugreiðslur fyrir það. Noriega hefur neitað sökum sem dómstólarnir tveir, í Miami og Tampa f Flórídafylki, hafa borið á hendur honum. Hann segir Banda- ríkjastjórn standa að ófrægingarher- ferð gegn sér til að koma í veg fyrir að Panamastjórn fái full völd yfir Panamaskurðinum mikilvæga en samkvæmt samkomulagi sem undir- ritað hefur verið á það að gerast fyrir aldamót. Herforinginn hefur lengi verið grunaður um að standa í eiturlyfja- smygli og fréttir um vafasama fortíð hans hafa verið á kreiki alveg síðan hann þjónaði Ómari Torrijos fyrrum einræðisherra og stjórnaði G-2 leyni- þjónustudeild hersins. Torrijos lést á dularfullan hátt árið 1981 og fyrr- um náinn samstarfsmaður Noriega hefur sakað hann um að hafa átt þátt í þvf dauðsfalli. Herinn gerði byltingu árið 1968 og hefur síðan haft töglin og hagldirnar í stjórn landsins þótt borgaralegir forsetar hafi reyndar farið með völd að nafninu til. Alls hafa sex slíkir forsetar setið síðan 1968 en þrír þeirra hafa verið reknir síðan árið 1981. Noriega sjálfur varð yfirmaður hersins árið 1983 og hefur verið sem einvaldur í landinu síðan. Samskipti Reaganstjórnarinnar og Noriega og. hans manna hafa kólnað mjög á síðustu vikum en Frank Carlucci varnarmálaráðhcí ra Bandaríkjanna sagði þó í gær að of snemmt væri að tala um hernaðar- lega íhlutun. Hann vildi þó ekki segja að slíkt væri útilokað heldur talaði um að allt væri mögulegt eins og ástandið í Panama væri nú. Marlin Fitzwater talsmaður Banda- ríkjaforseta sagði aftur á móti á blaðamannafundi í Hvíta húsinu að hernaðarleg íhlutun væri ekki á dagskrá. Reagan Bandaríkjaforseti mun hafa ætlað að dveljast á sveita- setri sínu um helgina en Fitzwater sagði að forsetinn hefði frestað þeirri för, meðal annars vegna atburðanna í Panama. Að sögn Fitzwaters mun Reaganstjórnin fylgjast náið með framvindu mála í landinu yfir helg- ina. Um tíu þúsund manna bandarísk- ur her er í Panama til að verja Panamaskurðinn er tengir saman Kyrrahaf og Atlantshaf og Panama er eitt helsta vígi bandarísks hers í Rómönsku Ameríku. hb ' 1 Rorida 1 GUBA .IAMAJCA DOMJNiGAN REPUBLiG HONDURAS : USA hidftc Panamaborg Manúel Antonio Noriega her- foringi og i raun æðsti valda- maður Panama (i miðið) var rek- inn úr embætti sínu a fimmtu- dagskvöld af forseta landsins. Hann fór þó hvergi og let þess í stað reka forsetann. Noriega hefur verið mikið í sviðsljósinu og nýlega sökuðu bandarísk yf- irvöld hann um að vera á mála hjá eiturlyfjakóngum í Kólumbiu sem notuðu Panama sem milli- stöð fyrir eiturlyfjaflutninga sína til Bandarikjanna Upplausnarástand í Panama: Umsjón: Heimir Bergsson. Japan: HJÁLP í PRÓFRAUNUM Næstu vikur verða kannski mikil- vægasti tími í lífi meira en milljón japanskra menntaskólanemenda því framundan eru lokapróf og innganga í bestu háskóla landsins veltur á útkomu þeirra. Samkeppnin er gífurleg, fyrir suma eru prófin eins og dvöl hjá kölska og sjálfsmorð eru tíð hjá þeim sem ná ekki að standast kröf- urnar. Það veltur líka mikið á út- komunni, bæði vinna og jafnvel makaval geta ráðist af henni og því er ekki skrýtið að boðið sé upp á aðstoð í ýmiskonar formi þessa dag- ana. Nefna má stærsta hótel Japans, hótel New Otani í Tokyo. Það býður námsfólkinu upp á dvöl hjá sér og alis konar aukaþjónusta fylgir með sem hjálpa á til við undirbúning prófanna. Til dæmis er boðið upp á píanóherbergi fyrir tónlistarnema og hægt er að notfæra sér tölvukerfi þar sem farið er yfir próf síðustu ára og sérstök vandamál skoðuð. Það nýj- asta sem hótelið hefur fram að færa er herbergi þar sem skólafólkið getur hvílt sig á námi og setið í sérhönnuð- um stólum er titra í takt við vinsæl popplög. Þjónusta þessi á New Otani er nokkuð dýr, nóttin kostar sem svarar um sjö þúsund íslenskum krónum. Þá eru það vítamínin. Yoshiro Nakamatsu uppfinningamaður í Tokyo telur að át á vissum vítamín- um og steinefnum leiði til þess að heilinn starfi betur en áður. Naka- matsu heldur sérstaklega upp á B-2 vítamín sem hann segir að bæti minnið og selur skammt af því fyrir dulitla upphæð. „Lærðu japanska sögu með eyr- anu,“ er enn eitt hjálpargagnið. Þetta er hljóðband þar sem tönglast er á mikilvægum ártölum og nöfnum í japanskri sögu. „Þetta selst nokkuð vel,“ sagði talsmaður framleiðand- ans og bætti við að unga fólkið gengi með vasasegulband þessa dagana og hefði frekar sögukennsluna í heldur en dynjandi poppslagara. Ekki má gleyma trúnni á svolitla heppni. Hato rútufyrirtækið í Tokyo býður upp á ferðir til hofa í grennd- inni en andarnir þar eiga víst að boða mönnum heppni. Mikið er víst um að foreldrarnir taki krakka sína með í þessar ferðir, þau vilja allt gera til að afkvæmin komist upp í efri þrep þjóðfélagsstigans og hafa fyrir löngu sætt sig við að prófkerfið, þótt ómannúðlegt sé, sé ill nauðsyn. hb/Newsweek

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.