Tíminn - 27.02.1988, Side 20
20 Tíminn
Laugardagur 27. febrúar 1988
lllllllllllllllll DAGBÓK lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Jass í Lækjartungli á sunnudag:
Kvartett Bjöms Thoroddsens
og strengjahljómsveitin „Class-
ic Nouveau"
Sunnudagskvöldið 28. febrúar kl.
22:00-01:00 verður leikinn jass í Lækjar-
tungli. Þar koma fram Kvartett Björns
Thoroddsens og strengjahljómsveitin
„Classic Nouvcau" . f kvartctt Björns
eru: Jóhann Ásmundsson (bassi), Kjartan
Valdimarsson (hljómborð), Martin Von
(trommur) og svo Björn Thoroddsen
(gítar).
Strengjahljómsveitin Classic Nouveau
er eingöngu skipuð konum er hafa numið
klassísk tónfræði. Einstæð jasshljóm-
sveit, eingöngu skipuð strengjahljóðfær-
um og óperurödd (contralt) syngur með.
Hljómsveitina skipa: Elsa Waage
(söngur), Eva Mjöll Ingólfsdóttir (fiðla).
Bergljót Haraldsdóttir (fiðla), Ásdís
Runólfsdóttir (viola) og Bryndís Björ-
gvinsdóttir (selló). Auk þess kemur fram
sem gestur bassaleikarinn Richard Corn.
Frá Félagi eldri borgara
Lokað verður í Goðheimum, Sigtúni 3,
sunnudaginn 28. fcbrúar vegna aöalfund-
ar félagsins á Hótel Sögu.
Opiö hús verður frá kl. 19:30 sunnu-
dagskvöld.
Hafnarfjarðarkirkja
Sunnudagaskóli kl. 10:30. Munið
skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14:00. Org-
anisti er Helgi Bragason.
Sr. Gunnþór Ingason
Laugardagur
27. febrúar
6.45 Veðurlregrír. Bæn, séra Hjalti Guðmundsson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur" Pétur Pét-
ursson sér um þáttinn. Fréttir sagðar kl. 8.00,
þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar kl.
8.15. Að þeim loknum heldur Pétur Pétursson
áfram að kynna morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónlist.
9.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Tor-
dýfillinn flýgur í rökkrinu" eftir Maríu Gripe og
Kay Pollack. Þýðandi: Olga Guðrún Árnadóttir.
Leikstjóri: Stefán Baldursson. Áttundi þáttur:
Þungur hlutur. Leikendur: Ragnheiður Arnar-
dóttir, Aðalsteinn Bergdal, Jóhann Sigurðarson, f
Valur Gíslason, Jón Hjartarson, Þorsteinn
Gunnarsson, Róbert Arnfinnsson, Guðmundur
Ólafsson, Sigríður Hagalín, Ellert Ingimundar-
son, Karl Ágúst Úlfsson, Jórunn Sigurðardóttir
og RagnheiðurTryggvadóttir. (Áðurflutt 1983).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Vikulok Brot úr þjóðmálaumræðu vikunnar,
fréttaágrip vikunnar, hlustendaþjónusta, viðtal
dagsins og kynning á helgardagskrá Útvarps-
ins. Umsjón: Einar Kristjánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.10 Hér og nú Fréttaþáttur í vikulokin.
14.00 Tilkynningar.
14.05 Sinna Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
15.00 Tónspegill Þáttur um tónlist og tónmenntir á
líðandi stund. Umsjón: Magnús Einarsson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál Guðrún Kvaran flytur þáttinn.
(Einnig útvarpað nk. miðvikudag kl. 8.45).
16.30 Leikrit: „Vanja frændi“ eftlr Anton Tsjekof
Þýðandi: Ingibjörg Haraldsdóttir. Leikstjóri: Mar-
ía Kristjánsdóttir. Persónur og leikendur: Ser-
ebrjakof prófessor... Róbert Amfinnsson. Jel-
ena, kona hans... Guðrún Gísladóttir. Sonja,
dóttir hans.. Edda Heiðrún Backman. María
Vojnitskaja... Herdis Þorvaldsdóttir. Vanja
frændi... Arnar Jónsson. Astrof læknir... Hjalti
Rögnvaldsson. Teljegín fyrrverandi landeig-
andi..Árni Tryggvason. Marína, gömul fóstra...
Margrét Helga Jóhannsdóttir. Vinnumaður/
vörður... Jóhann Sigurðarson. Reynir Jónasson
leikur á harmoníku. (Einnig útvarpað nk. þriðj-
udagskvöld kl. 22.30).
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar. Tónlist.
20.00 Harmoníkuþáttur Umsjón: Högni Jónsson.
(Einnig útvarpað nk. miðvikudag kl. 14.05).
20.30 Að hleypa heímdraganum Jónas Jónasson
ræðir við Guðrúnu Jónsdóttur. (Áður útvarpað
22. nóvember sl.)
21.20 Danslög
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma Séra Heimir Steinsson
les 23. sálm.
22.30 Útvarp Skjaldarvík Leikin lön frá liðnum
tíma. Umsjón: Margrét Blöndal. (Frá Akureyri)
23.00 Mannfagnaður á vegum Leikfélags Fljóts-
dalshéraðs. Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir. «
(Frá Egilsstöðum)
24.00 Fréttir.
24.10 Um lágnættið Sigurður Einarsson sér um
tónlistarþátt.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
02.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og saqt frá veðri,
færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
10.05 Nú er lag Gunnar Salvarsson tekur á móti
gestum í morgunkaffi, leikur tónlist og kynnir
dagskrá Ríkisútvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Léttir kettir Jón Ólafsson gluggar4 heimilis-
fræðin... og fleira.
14.30 Spurningakeppni framhaldsskóla önnur
umferð, endurteknar 1. og 2. lota: Menntaskól-
inn í Kópavogi - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Menntaskólinn á Laugarvatni -Fjölbrautaskóli
Suðurnesja Dómari: Páll Lýðsson. Spyrill: Vern-
harður Linnet. Umsjón: Sigurður Blöndal.
15.30 Við rásmarkið Fjallað um íþróttaviðburði
dagsins og fylgst með ensku knattspyrnunni.
Umsjón: Iþróttafréttamenn og Gunnar Svan-
bergsson.
17.00 Lög og létt hjal Svavar Gests leikur innlend
og erlend lög og tekur gesti tali um lista- og
skemmtanalíf um helgina.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Út á lífið Skúli Helgason ber kveðjur milli
hlustenda og leikur óskalög.
02.00 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagt
frá veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00,4.00,7.00,8.00,9.00,10.00,12.20,
16.00,19.00, 22.00 og 24.00.
Laugardagur
27. febrúar
14.55 Enska knattspyrnan. Bein útsending. Um-
sjónarmaður Bjami Felixson.
16.45 Ádöfinni
16.50 Vetrarólympíuleikarnir í Calgary. 5Ó km
ganga. Meðal keppenda er Einar Ólafsson.
Bein útsending. Umsjónarmaður Samúel örn
Erlingsson. (Evróvision)
17.00 Reykjavíkurskákmótið. Bein útsending frá
Hótel Loftleiðum. Umsjón: Ingvar Ásmundsson
og Hallur Hallsson.
17.15 Vetrarólympíuleikarnir í Calgary. Fram-
hald 50 km göngu. (Evróvision)
18.30 Smellir. Umsjón: Snorri Már Skúlason og
Skúli Heigason.
18.55 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Vetrarólympíuleikarnir í Calgary. Svig
karla. Meðal keppenda er Daníel Hilmarsson.
Umsjónarmaður Jón Óskar Sólnes. (Evróvision)
19.30 Annir og appelsínur. Endursýning
Menntaskólinn í Kópavogi. Umsjónarmaður Ei-
ríkur Guðmundsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Landið þitt - ísland. Umsjónarmaður Sig-
rún Stefánsdóttir.
20.45 Fyrirmyndarfaðlr (The Cosby Show). Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
21.15 Maður vikunnar.
21.35 Vetrarólympiuleikamir í Calgary Svig, ís-
knattleikur og stökk. Umsjónarmaður Arnar
Björnsson. (Evróvision)
22.40 Einfarinn (The Legend of the Lone Ranger)
Bandarísk bíómynd frá 1981. Leikstjóri William
A. Fraker. Aðalhlutverk Klinton Spilsbury, Mi-
chael Horse og Christopher Lloyd. Myndin
gerist í villta vestrinu um miðja síðustu öld.
Ungur piltur er á flótta undan illþýði sem þyrmir
engu lífi, hvorki hvítra manna né indíána.
Indíánadrengur kemur honum til hjálpar og
sverjast þeir um síðir í fóstbræðralag. Þýðandi
Baldur Hólmgeirsson.
00.15 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sunnudagsferð Fí
KI. 10:30 - Gullfoss í klakaböndum
Á morgun, sunnudaginn 28. febrúar,
verður farin dagsferð að Gullfossi, komið
við á Geysi og svæðið skoðað. Brottför er
frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bíl (kr. 1200).
Ki. 10:30 - Skíðagönguferð frá Stíflisdal
um Kjöl að Fossá. Gott skíðagönguland
(kr. 1000).
Kl. 13:00 Reynivallaháls. Gengið eftir
hálsinum vestan frá og komið niður hjá
Fossá í Kjós (kr. 800).
Keflavíkurkirkja
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Fjölskyldu-
guðsþjónustakl. 14:00. GuðlaugurGunn-
arsson kristniboði talar. Skátar, ferming-
arböm, KFUM og K sækja guðsþjónust-
una. Sóknarprestur
Bjarmi
l.tbl. 82. árg.
Ritstjórnargrein Bjarma að þessu sinni
heitir Biblíulestur. Þar er talað um Biblíu-
daginn sem var 7. febr. sl. Þá er hugleið-
ing eftir Katrínu Þ. Guðlaugsdóttur:
Jesús knýr á dyrnar.
Orð Guðs og þú eftir Ragnar Gunnars-
son kristniboða er undir fyrirsögninni: í
brennidepli - Guð talar. Fleiri greinar eru
í greinaflokknum “Guð talar“.
Þá er viðtal við Ingólf Gissurarson sem
hefur að fyrirsögn:" Viltu ekki beygja þig
fyrir Drottni?" Þá eru fréttir og frásagnir
af kristniboðsstarfinu í Eþíópíu og
Kenýu, og frá starfinu innanlands.
Utgefendur Bjarma eru: Kristilega
skólahreyfingin, Landssamband KFUM
og KFUK og Samband ísl. kristniboðs-
félaga.
Útboð
Norðurlandsvegur,
Víðidalsv. vestari -
Víðidalsv. eystri 1988
VEGAGERÐIN
V__________/
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd vegarkafla 6,5 magn 91.000
m3.
Verki skal lokið 15. október 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 29. febrúar n.k. Skila skal
tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann
14. mars 1988.
Vegamálastjóri
Til sölu
Kartöfluupptökuvél Grimme super árg. ’81.
Upplýsingar í síma 99-8453, eftir kl. 19.
m REYKJÞMIKURBORG 1*1
+4 -------------------" ^
Heimilishjálp
Starfsfólk óskast í heimilishjálp í heilsdagsstörf og
hlutastörf.
Hentugt fyrir húsmæöur og skólafólk sem hafa
tíma aflögu.
Upplýsingar í síma 18800.
Aðalfundur
Aðalfundur félags íslenskra kjötiðnaöarmanna
verður haldinn að Hótel Sögu 5. mars kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla formanns
2. Skýrsla gjaldkera
3. Lýst kjöri stjórnar
4. Kosning nefnda
5. Önnur mál
Stjórn FÍK
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við fráfall föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa.
Frímanns Á. Jónassonar
fyrrverandi skolastjóra
Ragnheiður Frímannsdóttir Krebs Ove Krebs
Birna S. Frímannsdóttir T rúmann Kristiansen
Jónas Frímannsson Margrét Loftsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
t
Móðir okkar
Maren Eyvindsdóttir
Hæðarenda, Grímsnesi
lést 26. febrúar í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi
Börnin
Nýtt líf-1. tbl. 11. árg.
Á forsíðu þessa blaðs er mynd af
Rögnu Sæmundsdóttur, íslenskri fyrir-
sætu í París. Myndin er tekin af Grími
Bjarnasyni.
Mörg viðtöl og greinar eru í blaðinu,
fremst er viðtal sem Þorsteinn G. Gunn-
arsson átti við Unni Maríu Ingólfsdóttur
fiðluleikar. sem býr ásamt eiginmanni
sínum Thomas Stankiewicz arkitekt og
dótturinni Katrínu Maríu í Bern í Sviss.
Fyrirsögn á viðtalinu er: „Þeir trúa á aga
- við á ástina!"
Einum litningi ofaukið nefnist grein
eftir Ragnheiði Davíðsdóttur og henni
fyigir viðtal við foreldra lítillar stúlku sem
er mongólíti. Mörg fleiri athyglisverð
viðtöl eru í þessu tímariti um hin marg-
víslegustu efni, svo sem kynlíf, sifjaspell,
leikferil mæðgna o.fl.
Þáttur er í blaðinu þar sem birtar eru
nokkrar myndir og nöfn „best klæddu” -
„og verst klæddu" íslenskra kvenna og
karlmanna.
Þá er mikið fjallað um tísku og er t.d.
viðtal við hinn heimsþekkta tískuhönnuð
Jil Sander, sem Ragnheiður Davíðsdóttir
skrifar.
Smásaga eftir Valborgu Bentsdóttur.
Húskveðja, er í ritinu, einnig matarþátt-
ur: Heilsubrauð og hollir ostar og upp-
skrift að barnapeysu.
Útgefandi er Frjálst framtak lif., en
blaðið er unnið í Prentsmiðjunni ODDA
hf.
TÖLVUMÁL
- f réttabréf Skýrslutæknif élags
íslands
Febrúarblað Tölvumála er nýkomið út.
Þetta er 13. árgangur. Af efni blaðsins má
nefna: Breytum skipulaginu - aukum
útbreiðsluna er fyrirsögn á grein Stefáns
Ingólfssonar. Þá er sagt frá aðalfundi Sl
1988 og síðan kemur grein Stefáns -
Metnaðarlaus Háskóli. Þá skrifar Helga
Sigurjónsdóttir grcin: Ráðstefna um
stöðu norrænna kvenna í tölvuheiminum,
en Helga er kerfisfræðingur hjá Verk- og
kerfisfræðistofunni hf.
Halldór Kristjánsson verkfræðingur
skrifar um Tölvuráðgjöf - er þörf á
uppstokkun ?
Umsjón með Tölvumálum hefur Kol-
brún Þórhallsdóttir en ábm. er Stefán
Ingólfsson.
Sunnudagsferðir Útivistar
Sunnudagur 28. febr. kl. 13:00:
1. Þingvellir í vetrarbúningi. Gengið
um Hvannagjá, Stekkjargjá og Almanna-
gjá að Öxarárfossi í klakaböndum og
víðar. Létt ganga. (Kr. 800.)
2. Skíðaganga um Mosfellsheiði og
nágrenni. Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Helgarferðir 4.-6. mars: 1. Þórsmörk.
góuferð og sólarkaffi. Gist í Básum. 2.
Tindfjöll í tunglskini, göngu- og skíða-
ferð. Uppiýsingar og farmiðar á skrifstof-
unni Grófinni 1, símar: 14606 og 23732.
Orgeltónleikaröð í
Hallgrímskirkju
Þröstur Eiríksson leikur á orgeltónleik-
um í Hallgrímskirkju á morgun, sunnu-
daginn 28. febrúar kl. 17:00. Þröstur
kynnir og leikur verk eftir Dietrich Buxte-
hude. Þetta eru fyrstu tónleikarnir í
sérstakri röð orgeltónleika sem haldnir
verða i Hallgrímskirkju síðasta sunnudag
í mánuði frá febrúar til maí, en þá munu
nokkrir organistar leika verk svokallaðra
norður-þýskra barokkmeistara. Jafnfram
munu. þeir flytja stutta kynningu um
tónskáldin og verk þeirra. Tónleikar
þessir eru liður í starfi Listvinafélags
Hallgrímskirkju.
Félagsvist Breiðfirðinga-
félagsins
Breiðfirðingafélagið verður með
félagsvist í Sóknarsalnum, Skipholti 50A
sunnudaginn 28. febrúar kl. 14:30. Mæt-
um öll og tökum með okkur gesti.
Kaffiveitingar.
Neskirkja • Fræðslufundur
Fræðslufundur verður á morgun,
sunnudaginn 28. febr. kl. 15:15, ísafnað-
arheimili kirkjunnar. Sigurður Pálsson
guðfræðingur fjallar um “Trúarlegt upp-
eldi bama“ . Umræður' að erindi loknu.
Kaffiveitingar. Fundurinn er öllum
opinn.