Tíminn - 27.02.1988, Qupperneq 5

Tíminn - 27.02.1988, Qupperneq 5
Laugardagur 27. febrúar 1988 Tíminn 5 6% gengisfelling og aðrar ráðstafanir á mánudaginn f Seðlabanka íslands hefur verið unnið stíft að undanförnu við að vinna úr hugmyndum ríkisstjórnar- innar og funduðu ráðherrar í efna- hagsnefnd ríkisstjórnarinnar með Seðlabankamönnum í gær. Verið er að ræða um hvernig hrinda megi aðgerðum ríkisstjórnarinnar í framkvæmd. Eðlilega hefur verið lögð ríkust áhersla á hvernig koma megi útflutningsatvinnuvegunum til bjargar og einnig hvernig best og fljótast megi draga úr þenslu. Sam- kvæmt heimildum Tímans verður komin ný gegnisskráning í Seðla- bankanum strax eftir helgi og ýmsum hugmyndum hrint í framkvæmd er draga munu úr frekari fjárfestingum ýmissa atvinnugreina. Innan ríkisstjórnarinnar hafa komið fram ýmsar hugmyndir að aðgerðum til að draga úr þenslu og bæta stöðu útflutningsaðila. For- svarsmenn fiskvinnslufyrirtækja hafa farið fram á gengisfellingu sem er nálægt því að vera á milli 7-9% en það er meira en ríkisvaldið getur með góðu móti sætt sig við. Er því almennt talað um að gengisfellingin á mánudaginn verði um 5-6%, en ekki minni. f*á hefur Tíminn heim- ildir fyrir því að í viðræðum vinnveit- enda og ríkisins hafi niðurstaðan orðið sú að vinnslunni nægði alls ekki minni gengisfelling en 6% og að hærri tala en 6% væri óhugsandi miðað við forsendur þessara kjara- samninga. Á móti þessu hefur ríkisvaldið átt í óformlegum viðræðum við fisk- vinnslumenn um að fallið verði frá niðurskurði á endurgreiðslu upp- safnaðs söluskatts og nema þeir fjármunir um einum milljarði króna. Þá hefur verið sett fram sú krafa á hendur ríkinu að það falli frá því að nema úr gildi undanþágu frá launa- skatti sem komið var á 1986. Pá er einnig nokkuð ljóst að ríkisvaldið hefur verið krafið um raunverulegt aðhald á innlendar kostnaðarhækk- anir og er sérstaklega rætt um miklar hækkanir Landsvirkjunar. Af beinum afskiptum ríkisins af peningamálum má nefna þær hug- myndir að takmarka heimildir til lántöku erlendis við þá starfsemi sem felur í sér hagræðingu og gjald- eyrisöflun. Hækkun á bindingu banka og sparisjóða hefur kostað átök innan ríkisstjórnarinnar og kom m.a. fram í ræðu Steingríms Hermannssonar, utanríkisráðherra í Kópavogi, að honum þætti núver- andi 13% binding fullnóg. Þá hefur komið til greina að hækka lántöku- gjald á erlendar lántökur og frekari lækkun nafnvaxta. Rætt hefur verið um það að Seðlabanki beiti sér fyrir frekari nafnvaxtalækkun í framhaldi af skýrari forsendum verðlagsþróun- ar eftir undirritun samninganna. Mestu átökin virðast þó standa um frumvarp Jóns Sigurðssonar, við- skiptaráðherra, sem felur í sér hert- ari vinnureglur fyrir hinn svokallaða gráa markað. Til að draga beint úr fjárfestingum og þenslu hefur verið rætt um að hækka vexti á húsnæðislánum og fækka lánsloforðum, en við það er hörð andstaða af hálfu framsóknar- ráðherranna. Hugmyndir um tíma- bundinn fjárfestingarskatt er ein þeirra hugmynda sem líklega koma til framkvæmda eftir helgi til hliðar við alvarlegar viðræður við sveitar- félög um að þau dragi strax úr frekari framkvæmdum. KB Hjörtur Eiríksson, VMSS: Þung áhersla á ráðstafanirnar „Ég tel að menn geti verið sæmi- lega sáttir við samningana, en það var allan tímann þung áhersla á að Hjörtur Eiríksson: „Aðrir hópar fari ekki alltaf svo og svo uppfyr- ir.“ ráðstafanir yrðu gerðar til að bjarga útflutningsatvinnuvegunum og að stöðva þenslu," sagði Hjörtur Eir- íksson, framkvæmdastjóri Vinnu- málasambands samvinnuhreyfingar- innar. Sagðist hann telja að þessir samningar þýddu um 15 - 15,5% kostnaðarauka að öllu meðtöldu yfir samningstímann. Taldi Hjörtur að ráðstafanir rikis- stjórnarinnar væru forsenda þess að það takist að veita verkamönnum raunverulegar kjarabætur. I>á sagði hann að fullur skilningur hefði verið á því að veita Verkamannasamband- inu öruggar tryggingar fyrir því að aðrir hópar fari ekki alltaf svo og svo mikið uppfyrir þessa aðila í síðari samningum. „Ég vona að okkur takist að halda svona á málum í framtíðinni og að þessar hækkanir séu raunverulegar. Varðandi væntanlegar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar sagði Hjörtur að taka verði mið af því að ekki mætti hefta fjárfestingar í atvinnugreinum, sem væru til hagræðis eða gjaldeyris- aflandi. Benti hann á að undanfarið hafi farið fram allt of miklar fjárfest- ingar í útgerð, ef hann ætti að nefna eina grein sérstaklega. KB Guðmundur J. Guðmundsson: Aldrei haft betri tryggingar en nú „Þessi samningur er alls ekki allur þar sem hann er séður, en ég er samt voðalega gramur og sár yfir því að fiskvinnslufólk fékk ekki nógar aldurshækkanir,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, al- þingismaður og formaður Verka- Guðmundur J. Guðmundsson: „Þeir klifra ekkert upp eftir bakinu á okkur." Tímamynd: Gunnar mannasambands íslands, eftir að skrifað hafði verið undir samning- ana í Garðastræti. Taldi hann starfsaldurshækkanirnar einn veik- asta hlekk samninganna. Það sem Guðmundur var ánægð- astur með, var hversu vel tókst að leiðrétta kjör og aðstöðu ýmissa hópa og ná þannig fram leiðrétting- um á atriðum, sem barist hefur verið fyrir í áratugi. Nefndi hann ræstingarkonur, byggingarverka- menn og vinnuvélstjóra. Hann taldi ljóst að bónuskerfið væri þegar búið að ganga sitt skeið á enda og það yrði algerlega horfið eftir árið. „Og farið hefur fé betra.“ Samningnum mætti þess vegna líkja við Vestfjarðarleiðina. „Áherslan var aðallega á að ná fram ýmsum öðrum hlutum, en bara hörðum prósentum og því er þessi samningur lúmskari en oft áður, þó að ekki hafi náðst þær aldurshækkanir, sem menn von- uðu.“ Sagði Guðmundur að komið hefðu inn á fundinn mjög sterk skilaboð um stöðu vinnslustöðva og ekki bæri að neita því að þær upplýsingar hafi haft talsverð áhrif á að ekki samdist betur um aldurs- hækkanir. Opnir rauðir dagar Lagði Guðmundur áherslu á gildi þeirra tryggingar, sem nú fylgdu samningunum í fyrsta skipti. „Þessum samningum fylgja mjög góðar tryggingar, sem ekki hafa verið með áður. Hverju halda menn eftir? Hvernig tengist þetta verðbólgunni? Nú eru opnir dagar 1. júlí og 1. nóvember sem þýða það að þá verða allir kaupgjaldslið- ir samningsins lausir og hægt verð- ur að segja þeim upp einhliða. Hækki framfærsluvísitalan umfram það, sem sagt er í samningunum eða fari verðbólgan fram úr því sem sagt er í samningunum, mun- um við ekki hlífa stjórnvöldum eða viðsemjendum okkar.“ Þá sagði Guðmundur einnig að nýjustu tryggingarnar væru þær að ef með- alstór eða stór félög semja um meiri hækkanir en við höfum gert, sé hægt að segja upp samningum þessum. „Það klifrar enginn upp eftir bakinu á okkur, eins og þessi félög hafa gert á undanförnum árum. F.f félög semja almennt um hærra kaup en við höfum gert eru samningarnir lausir,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson, formað- ur Verkamannasambandsins. KB Þórarinn V. Þórarinsson: Við og ríkið verðum að halda öðru niðri „Við erum alls ekki ánægðir því að þessir samningar eru of háir miðað við rekstrarreikninga þessara fyrirtækja," sagði Þórarinn V. Þór- arinsson, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins. Sagði hann að þessir samningar þýddu 14 - 14,5% lágmarks útgjaldaaukningu fyrir fyrirtækin ef desemberuppbótin er talin með. „Það sem við vorum að glíma við var að við vorum að semja við fólk í starfsgreinum sem þurft hefur að sitja eftir í launaskriði síðasta árs, en verið að semja fyrir' þau fyrirtæki í grein sem er lakast sett í þjóðfélaginu, fiskvinnsluna." Sagði Þórarinn að þessir samning- ar væru gerðir í trausti þess að atvinnurekendum og ríkinu takist Þórarinn V. Þórarinsson: „Verka- menn hafa nú komist hinum megin að verðbólgunni.“ að halda aftur af þeim sem hafa fengið að njóta launaskriðs og hækk- ana langt fram yfir þessa hópa. „Annars stöndum við frammi fyrir stórvaxandi verðbólgu, byggðarösk- un og stórfelldu þjóðfélagslegu mis- vægi. Við höfum teygt okkur lengra en fyrirtækin þola og treystum á aðrar aðgerðir. “Sagði hann að vinnuveitendur hefðu orðið að gefa eftir með þessar kauphækkanir sem væru einar og sér verðbólguhvetj- andi. Sagði Þórarinn að þess vegna hefðu aðilar gengið frá samningi með mjög góðum öryggisventlum. Með því móti væru verkamenn í raun að koma þá einu leið sem fær væri að verðbólgunni. „Þeir hafa nú komist hinum megin að verðbólg- unni.“ Ríkisvaldið inn Ljóst er að ríkisvaldið kemur mjög inn í þessa samninga eins og fram kom í viðtalinu við Þórarin. Sagði hann að í fyrsta lagi þurfi ríkisvaldið að falla frá niðurskurði á endurgreiðslu söluskatts til útflutn- ingsatvinnuveganna. í öðru lagi sé engu lagi líkt að ríkið ætli að afnema samningsákvæðið um undanþágu frá launaskatti. í þriðja lagi verði ríkis- valdið að halda aftur af hækkun á opinberri þjónustu og nefndi hann sérstaklega nýlega 18% hækkun á raforkugjaldi frá Landsvirkjun. „Það er erfitt að hlýða því ríkisvaldi, sem er eins og vegprestar, er vísa veginn án þess að fara hann sjálfir." Um væntanlega gengisþróun vildi Þórarinn V. Þórarinsson ekki tjá sig að fullu. Sagði hann þó að það kæmi engum að gagni ef gengið yrði fellt um prósentustig er nálgist tíu af hundraði. „Það hefur ekki verið rætt um háar tölur varðandi gengisfell- inguna. Það hefur þó verið alveg ljóst að nauðsynlegt er að fá nýjan botn í fastgongisstefnuna. Það verð- ur líka að fá fram mun meira kostn- aðaraðhald." Sagði hann að verð- bólga eins og hún væri búin að vera undanfarna mánuði væri að ganga af atvinnuvegunum dauðum. Gengi yrði að ná stöðugu á þessu ári, þó nú sé gengisfelling í litlum mæli óum- flýjanleg. KB

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.