Tíminn - 27.02.1988, Side 17
Laugardagur 27. febrúar 1988
Tíminn 17
llllHllllllllllllllillllllllli HROSSARÆKT llllllllllllllllllilllllllllllllllllllHllllllllllilllllllllllilHlilllllii^
Leifur Þórarinsson í Keldudal tekur við heiðursverðlaunum fyrir hryssuna
Nös 3794 frá Stokkhólma. Leifur er lengst til vinstri, og heldur við þá
gömlu. Þá koma afkvæmin: Sigurbjörn Bárðarson situr Drótt 6745, Helgi
Eggertsson Amor og loks er Eiríkur Guðmundsson á skeiðgarpinum Leist.
Jens Einarsson tók myndina.
Og enn ein „fjölskyldumyndin“ frá Keldudal; hér er það rauðblesótta
hryssan Hrund 6555 frá Keldudal - móðir Þjálfa, með þremur afkvæmum:
Frá vinstri: Venus frá Keldudal, rauð undan Fáfni frá Fagranesi;
Glaumur, glámblesóttur sonur Feykis frá Hafsteinsstöðum, Hrund og loks
Yngri-Nös.
I»,j.il l'i t'r.i krlduil.il
F Hr.ifn MLV fr.í llo! t smu I .i Ff Sn«»*f.i\ i f.f,) fr«i l’iif.istöónm Fff Dlosi Si«ifiis.ir. VI ri-Stóriujröf
Ffm A|l>crts-R.mók.i fr.i l,«íf«istöc'>im
Fm 'lorp i7s 1 fr.i Hol Ismnl.i *’>m^ Þröslur fr.i Roynist.ió
Fmm .. r .. ( -. Hrofn.i fr.i Armnl.i
M Hrimd f r.i Kf 1 «ii id.i 1 M f Þrös'ur ‘JOS fr.i Kirk.jnh.r Mff . Þ.ittor 1?? fr.i kirk.juhæ
Mfm qj0^ fr<l Kirkjuh«r
Mm n«>s )7'J4 fr.i Stokkhólm.i Mmr Kolh.ikur rr.i 1 lini
^mm Hi>s fr.i HJ.irnast iióum
er formóðir Nasar 3794 frá Stokk-
hólma. Hryssan var kennd við
eigandann, GunnlaugSigfússon frá
Ásgeirsbrekku í Skagafirði. Hafði
faðir hans, Sigfús Dagsson gefið
honum hryssuna, en hún var undan
brúnni hryssu er Sigfús átti og ekki
þótti nein kostaskepna, og gráum
fola frá Lóni í Viðvíkursveit, sem
var ágætishestur. Um Gunnlaugs-
Brúnku segir svo meðal annars í
Horfnum góðhestum: „Gunnlaug-
ur var laginn og hesthneigður og
mjög djarfur á hesti og þótti ríða
ógætilega, en þó var hann mjög
sjóndapur og nærsýnn og sá oft
illa, hvað framundan var. Hann
lagði mikla rækt við litlu Brúnku
og vandaði mjög uppeldi hennar.
Hann fór að temja hana unga og
kenna henni ýmsar íþróttir, t.d.
láta hana stökkva yfir slár, strengd-
ar snúrur og vírgirðingar. Þegar
hún var orðin vel fær í þessum
listum undir sjálfri sér, fór Gunn-
laugur að setjast á bak og venja
hryssuna við að stökkva með sig
yfir hindranir og torfærur. Við
tamninguna kom það fljótt í ljós,
að Brúnka var mjög fágætt merar-
efni. Fjörið var mikið, en ofríkis-
laust ogspilandi. Hún hafði mikinn
og góðan klárgang, gott brokk og
mikla töltferð. Á yfirferð var hún
jafnvíg á stökki og skeiði og af-
burða ferðhross. Allar voru hreyf-
ingar hennar svo fagrar og fjað-
urmagnaðar, að fáir voru svo
blindir, að þeir fyndu ekki til hrifni
og aðdáunar við að sjá til hennar.
Hún stökk með geiglausu þori og
jafnaðargeði yfir garða og girðing-
ar og hvers konar yfirstíganlegar
hindranir með Gunnlaug. á baki
sér. Hún var svo mikið ferðhross,
en þó einum til skeiðsins tekið, að
hún hafði aðeins einu sinni tapað
spretti fyrir fljótum hesti, en þar
voru brögð í tafli. Þetta atvikaðist
þannig, að vel ríðandi kunningi
Gunnlaugs bauð honum að hleypa
á móti sér eftir frekar mjórri brú,
en öðrum megin á brúnni í nokk-
urri fjarlægð stóð tryppi þversum.
Þegar þeir hleyptu gætti maðurinn
þess að vera ekki tryppismegin . á
brúnni. en Gunnlaugur sá ekki
tryppið fyrr en hann var nærri
kominn að því. - Svo hleypa þeir
og sú brúna skríður fram úr til að
byrja með, en svo kemur hún að
tryppinu og vindur sér yfir það, en
við stökkið tapaði hún skeiðinu í
bili, en náði sér þó fjótt á sprettinn
aftur. En fyrir þessa töf tapaði hún
sprettinum".
Þótt allmargir ættliðir séu á milli
Gunnlaugs-Brúnku og núvcrandi
vekringa frá Keldudal, er vissulega
freistandi að álykta sem svo, að
hinir aldeilis fágætu skeiðhestar
undan Nös frá Stokkhólma sæki
hæfileika sína alla leið til þessarar
formóður sinnar, sem eins og
Keldudalshrossin haföi feiknaröfl-
uga lend og afturbyggingu, en
minni frambyggingu.
Hryssurnar ráða úrslitum
Svo sem fyrr er að vikið, er það
athyglisvert við hrossarækt þeirra
Leifs í Keldudal og Sveins á Sauð-
árkróki, að báðir leggja þeirgrunn-
inn að árangursríkri ræktun fyrst
og fremst með einni afburða-
hryssu, og í allri hrossarækt sinni
leggja þeir mcira upp úr gæðum
hrossanna en fjölda. Hrossaeign
þeirra beggja er mjög lítil miðað
við það sem víða þekkist í Skaga-
firði og víðar um land, en gæðin
því meiri.
Athyglisvert er einnig að sjá, að
nær alltaf þegar fram hafa komiö
afburðahross úr ræktun þeirra, þá
er hryssan að baki viðurkenndur
gæðingur. Þetta á til dæmis við um
skeiðhestana frægu frá Keldudal,
einnig Amor frá Keldudal, Hrund
frá sama bæ og nú síðast er svo
stóðhestsefnið Þjálfi undan Hrund.
- Hið sama má oftast segja um
bestu hrossin frá Sveini Guð-
mundssyni og fjölskyldu hans:
StóðhestarnirKjarval 1025 ogOtur
1050 eru til dæmis undan hryssum,
sem hafa fengið hvað hæsta dóma
allra sýndra kynbótahrossa. - Þess-
um hryssum er svo haldið undir
stóðhesta, sem ekki eru síðri að
hæfileikum, og taldir eru passa vel
við hryssurnar, og árangurinn lætur
ekki á sér standa. Útkoman er
venjulega ný kynslóð verðmætra
kynbótagripa, sérstaklega þar sem
skyldleikarækt er beitt að ein-
hverju marki, enda eru erfðaeigin-
leikarnir þá fastari í sessi og við-
komandi gripur væntanlega verð-
mætari en blendingar.
Þessar staðreyndir segja hrossa-
ræktarmönnum margt, en einkum
þó það, að mestu máli skiptir að
koma upp góðum undaneldishryss-
um. Svo mikið framboð er nú
orðið á góðum stóðhestum, að
enginn vandi er að koma hryssum
til þeirra. Reynslan sýnir hins
vegar, að stóðhesturinn einn dugir
ekki til, ætli menn að ná verulega
góðum árangri. Því ættu menn að
kappkosta aö velja úr bestu hryss-
urnar, og koma þeim síðan áfram
til þeirra hesta, sem best eru taldir
hæfa hverju sinni. - AH
Norðurlandaráð
auglýsir lausa til umsóknar
stöðu aðstoðarframkvæmda-
stjóra skrifstofu Norðurlanda-
ráðs í Stokkhólmi
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þjóðþinga
og ríkisstjórna Norðurlanda. Á milli hinna árlegu
þinga Norðurlandaráðs leiðir og samræmir forsæt-
isnefnd ráðsins þann hluta samstarfsins sem
varðar þjóðþingin og nýtur við það atbeina skrif-
stofu forsætisnefndar Norðurlandaráðs, Tyrgatan
7, Stokkhólmi.
Við skrifstofu forsætisnefndar Norðurlandaráðs,
sem hefur stöðu alþjóðlegrar stofnunar, starfa
þrjátíu manns. Þar eru notuð jöfnum höndum
danska, norska og sænska og krafist er góðrar
kunnáttu í einhverju þessara mála.
Skrifstofunni stjórna aðalframkvæmdastjórinn,
tveir aðstoðarframkvæmdastjórar og upplýsinga-
stjóri. Starf það sem nú er auglýst felst m.a. í
skipulagningu og samræmingu á störfum ráðsins
og fundahöldum. Einnig mun viðkomandi fylgjast
með sérstökum nánar tilteknum málaflokkum.
Umsækjendur skulu hafa víðtæka reynslu af
opinberum störfum, atvinnulífi eða störfum félaga-
samtaka. Þekking á þjóðfélagsháttum á Norður-
löndum og norrænu samstarfi er æskileg.
Framkvæmdastjórar og upplýsingastjóri skrifstof-
unnar eru karlmenn, en leitast er við að fjöldi karla
og kvenna í stöðum þessum verði sem jafnastur.
í boði eru góð kjör en um þau fer skv. sérstökum
norrænum reglum.
Ráðningartíminn er fjögur ár og hefst 1. ágúst n.k.
Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá störfum vegna
starfa hjá Norðurlandaráði.
Nánari upplýsingar veita aðalframkvæmdastjóri
skrifstofunnar, Gerhard af Schultén, og aðstoðar-
framkvæmdastjóri hennar, Kjell Myhre-Jensen í
síma 9046 8 143420 og Snjólaug Ólafsdóttir í
síma 91/11560. Formaður starfsmannafélagsins
á skrifstofu Norðurlandaráðs er Tómas H. Sveins-
son.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar Norður-
landaráðs (Nordiska rádets presidium) og skula
þær berast skrifstofu forsætisnefndar Norður-
landaráðs (Nordiska rádets presidiesekretariat,
Box 19506, S-104 32 Stockholm) fyrir 16. mars n.k.
Til sölu
Stofuskenkur úr Ijósu tekki. Vel með farinn, góð
hirsla. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 91-75382.
Ratsjárstofnun
Ratsjárstofnun óskar eftir að ráða starfsmenn
vegna reksturs ratsjárstöðva hérlendis.
Umsækjendur verða að hafa lokið námi í rafeinda-
virkjun eða hafa sambærilega menntun.
Starfsmenn mega gera ráð fyrir að þurfa að sækja
námskeið erlendis og hér á landi. Námstími
erlendis hefst í apríl n.k. og stendur í um 2 mánuði.
Laun eru greidd á námstímanum.
Umsókn ásamt prófskírteini eða staðfestu afriti af
því, sakavottorði og heilbrigðisvottorði berist Rat-
sjárstofnun, Laugavegi 116, fyrir 16. mars n.k.
Umsóknareyðublöð liggjaframmi hjá Ratsjárstofn-
un.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ratsjárstofnun í
síma 623750.
Reykjavík, 26. febrúar 1988
Ratsjársfofnun