Tíminn - 27.02.1988, Side 23

Tíminn - 27.02.1988, Side 23
Laugardagur 27. febrúar 1988 Tíminn 23 Gleymdur faöir Þú mátt vera stoltur af syni þínum, hann hef- ur svo sannarlega gertþað gott,seg- irfólkgjarnan við Frank Stallone. Hann er62 ára og faðir leikarans Silvesters Stall- one. Hann ansar þessu sjaldnast, , þó hann er ekki sérlega stoltur af syni sínum. - Syl- vester er orðið nákvæmlega sama um okkur hér, segir hann. Frank Stallone og síðari kona hansbúaíPotom- ac í Bandaríkjun- um, þar sem þau reka lftið býli. - Ég hef ekki séð Sylvester í bráð- um tvö ár, segir hann. - Hann hringdi seinast fyrir hálfu öðru ári. Ekki hefur Frank neina hug- mynd um, hvers vegna sonur hans kemur svona fram. Raunar kom sonurinn því þannig fyrir, að faðir hans fékk smáhlutverk í „Rocky“- mynd, en Frank auðgaðist ekkert á því. Árum saman hefur hann ekið á sama, gamla mótorhjólinu og í íbúðarhúsinu er ekki vottur af íburði af neinu tagi. Orðið „íburður" er hreint ekki til í mínum orðaforða, segir Frank og lætur í það skt'na, að sonur hans sé of upptekinn af konum og frægð, til að megna að hugsa um annað. - Ég ætlast ekki til að fá neina peninga frá syni mínum, þeir Frank Stallone, faðir kvikmyndahetjunnar heims- kunnu, er bóndi og lætur sér annt um dýrin og náttúruna, einkum hesta. Hann skilur ekki fálæti sonar síns. gleddu mig ekkert sérstaklega. En ef hann gæti, þó ekki væri nema einu sinni komið í heimsókn og boðist til að hjálpa mér við eitt- hvað, yrði ég verulega ánægður, segir faðirinn. - Hugsa sér ef Sylvester stæði allt í einu hérna á þröskuldinum og segði: - Pabbi, nú skal ég mála fyrir þig húsið. Það yrði merkasti dagur ævi minnar. .....wiwiiiiinffl1*1"1"1" ........ j SDC^T fXÆJfl Frægð og vinsældir ganga fyrir, segir leikarinn ungi, Michael J. Fox Courteney Cox tók við af Tracy í Fjölskylduböndum. Hér sjást þau saman Michael og hún í sjónvarpsþáttun- um. „Skrautlegur skandall" var það kallað í blöðunum, þegar rætt var um háa fjárupphæð sem greidd var á laun til lítils hunds fyrir leik hans í uppfærslu leikritsins „Maria Stuart." Hundurinn Pascha, sem er vel vaninn smáhundur af Chihuahua-kyni, hefur fengið 44.000 danskar krónur fyrir að koma fram í einu atriði í leikritinu, en þar spígsporar hann um sviðið og skríður svo undir pils eigandans, Maríu drottningar. Leikhússtjórinn segir í blaðaviðtali, að sér finnist að hundinum sé ekkert of mikið borgað. Pascha og eigandi hans fá 1000 krónur (danskar) fyrir hverja sýningu. En þetta eru víst smáupphæðir miðað við annað sem endurskoðendur eru að gagnrýna við kostnaðarreikn- inga yfir ýmsar sýningar leikhússins, og eru þar nefndar sýningarnar Töfraflautan eftir Mozart og ballettsýningin Amleth. Bréfum frá skattborgurum í Danmörku rignir yfir blöðin, því að það er eins og sagan um hundinn hafi verið dropinn sem fyllti mælinn. Mr egar Michael J. Fox ákvað að hætta við - eða fresta því - að ganga í hjónaband með „sambýlis-kær- ustu" sinni, Tracy Pojlan, brást hún hin versta við-og grét í tvo daga, - segir einn vinur þeirra. Pau Michael og Tracy höfðu leikið saman í hinum vinsælu amerísku sjónvarpsþáttum „Fjölskyldubönd- um“ (Family Ties) og orðið ástfangin. Þau eru bæði 26 ára og vildu gjarnan stofna heimili. En svo fór ýmislegt úr skorðum hjá þeim. Fyrst lenti Tracy Pollan í illindum við stjórnendur þáttanna, því að hún vildi fá kauphækkun og ýmis fríðindi, en henni var sagt, að hún væri ekki „stjarnan“ i' þáttunum heldur Michael og varð úr þessi sú togstreita að Tracy lét af störfum hjá framleiðendunum. Michael fékk nýjan mótleikara í Fjölskylduböndum, en þau Tracy héldu samt áfram sambandi sínu og fór svo að hún flutti í hús Michaels sem hann á uppi í hæðunum fyrir ofan Hollywood. Þau ákváðu að gifta sig um jólin, og átti athöfnin að fara fram hjá foreldrum Michaels í Vancouver í Kanada. En svo kom umboðsmaður hins unga leikara í spilið og fjármálasérfræðingur hans. Þeim kom saman um, að það væri mjög óheppilegt fyrir frama Michaels að hann gengi í hjónaband nú. Sjónvarpsþættirnir væru sérstaklega vinsælir hjá ungu fólki og mætti búast við að vinsældir þeirra hröpuðu niður úr öllu valdi ef ungu stúlkurnar misstu áhugann á aðalleikaranum, hinum unga og ógifta Michael J. Fox. Þetta var rætt fram og aftur og að lokum gengust þau Michael og Tracy inn á það, að láta sér nægja að vera áfram trúlofuð, en fresta giftingu og barneignum. Það er ýmislegt lagt í sölurnar fyrir frægð og frama! Michael og Tracy Pollan eru áfram trúlofuð, en hún er óánægð yfir frestun hjónabandsins. Chihuahua-smáhundur eins og sá sem er á launaskrá hjá „Því kon- unglega“. Hið konunglega leikhús í Kaupmannahöfn, en stjórnendur þess þykja eyða og spenna peningum skattborgara. HUNDUR Á HÁUM LAUNUM - hjá Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.