Tíminn - 16.03.1988, Síða 7

Tíminn - 16.03.1988, Síða 7
Miðvikudagur 16. mars 1988 Tíminn 7 Rúmlega 13 rúmmetra nýbyggingar á hvern borgarbúa á mesta byggingarári í sög u Reykjavíkur: Meira byggt af verslunum en íbúðum í Reykjavík 1987 Þótt lokið liafl verið við fleiri íbúðir í Reykjavík árið 1987 heldur en nokkurt ár á milli 1975-1985 var þó ennþá nieira byggt af verslunum og skrifstofum heldur en íbúðum í borginni þetfa ár. AIIs var lokið byggingu á rúmiega 321 þús. rúmmetrum verslunar og skrifstofuhúsnæðis auk 251 þús. rúmmetra af húsnæði sem byggingarfulltrúi flokkar sem iðnaðar - verslunarhús og vörugeymslur. Til samanburðar má nefna að í 321 þús. rúmmetrum hefðu rúmast um 1.13ð Qölbýlishúsaíbúðir af sömu stærð og þær 579 slikar íbúðir sem lokið var smíði á í Reykjavík í fyrra. Alls var lokið smíði á 890 íbúðum, samtals rúmléga 340 þús. rúmmetrar að stærð. Fjórfalt meira verslunarhúsnæði en næstu 10árá undan Segja má að yfirlit byggingarfull- trúa Reykjavíkur um byggingar á síðasta ári geri meira en að stað- fcsta allan almannaróm um gífur- lcga þenslu á flestum sviðum bygg- ingamarkaðarins árið 1987. þrttt „verslanahallirnar" slái þar lang stærsta metið- - jafnvcl svo að tala megi, um grundvallarbreytingu. Þótt „aðeins" séu taldir þeir 321 þús. rúmmctrar sem eru í hreinu verslunarhúsnæði, en verslunum í iðnaðarhúsnæði sleppt, er þar um nær fjórfalt meira rými að ræða en byggt hefur verið yfir sömu starf- semi að meðaltali á ári síðustu 10 ár. Árið 1987 kom í kjölfar annars metárs á þessu sviði. Á árunum 1986 og 1987 hafa samtals risið um 514 þús. rúmmetrar verslunar og skrifstofuhúsnæðis. sem er álíka mikið og næstu 7 þar á undan, þ.e. árin 1979-1985 samtals. Sömuleiðis má benda á að næstu 10 ár á undan (1977-1986) var t.d. jafnaðarlega byggt ríflega þrefalt meira af íbúðarhúsnæði heldur en af verslunar- og skrifstofuhúsnæði í borginni, í stað álíka mikils eða meira af verslunum á sfðasta ári, þ.e. ef verslanir í iðnaðarhúsnæði væru taldar með. Árið 1987 var algert metár í byggingarsögu Rcykjavíkur, sem fyrr segir. Samtals var iokið bygg- ingu á 1.228.472 rúmmetrum ýmisskonar húsnæðis. Þettu svarar til rúmlcga 13 rúmmetra á hvern einasta borgarbúa. Ef niiðað væri við 12.000 kr. byggingarkostnað á rúmmetra að meðaliali hafa borg- arbúar fjárfest hátt í 15 miiljarða króna í húsbyggingum á þessu eina ári, cða sem svarar nær 160 þús. krónum á hvcrt mannsbarn í Reykjavík. 1 Framangrcint virðist nokkuð mikið á „skjön” við hinar miklu umræður s.l. árs um skort á pening- um til húsbygginga. Á hinn böginn mætti álykta að borgarbúar kjósi frcmur að kaupa einhvcrn verslun- arvarning frekar cn hús, því slík geysileggróska í vcrslunarbygging- um stæðist vart án margra og góðra viðskiptavina. Umtvöfalt meira byggt en á meðalári Hinir rúmiega 1,2 millj. rúm- metra sem lokið var smíði á í fyrra er um tvöfalt meira en byggt var að meðaltali á árunum 1977-1985 (637 þús. rúmmetrará ári að meðaltali), en árið 1986 var fyrsta árið scm nýbyggingar komust yfir eina mill- jón rúmmetra. Rúmur fjórðungurinn íbúðir f grófum dráttum skiptast bygg- ingarnar þannig að tæplega 28% voru íbúðarhúsnæði eða rúmlega 340 þús. rúmmetrar voru íbúðar- húsnæði (390 þús. rúmmetrar 1986). Um 321 þús. rúmmetrar, eða rúm 26%, vcrsiunar- og skrif- stofuhúsnæði og251 þús. rúmmetr- ar iðnaðar- verslunarhús og vöru- geymslur (144 þús. rúmmetrar 1986). Þá koma um 215 þús. rúm- metrar í flokkinn: Skólar. hótcl, íþróttahús og flcira (131 þús. 1986) og 101 þús. rúmmetrar í bílskúr- um, geyinslum, hcsthúsum og því um iíku. Á árinu var lokiö smíði 890 íbúða. Það var 136 íbúðum færra en árið 1986, en hins vegar um 258 íbúðum fleira en að meðaltali á árunum 1976- 1985. Aðeins 3 ár í sögunni hefur verjð lokið við fleiri fbúðir f borginni, þ.e. 1986, 1974 og 1972. íbúðir þessar skiptust þannig að 303 voru í einbýlis- eða raðhúsum, þar af 43 úr timbri eða timburcin- ingum, en 579 voru í fjölbýlishús- um. Mcðalstærð fjölbýlishúsafbúð- anna var 284 rúmmetrar og yfir- gnæfandi meirihluti þeirra var 2ja og 3ja herbergja íbúðir. Byggjendur einbýlis- og raöhúsa virðast farnir að kunna sér nokkuð meira höf varðandi stærð þeirra en á undanförnnuni árum. Meðal- stærð þeirra var nú 535 rúmmetrar, sem er um 40 rúmmetrum minna en á siöasta ári. Um helmingur húsanna eru 5 herberga íbúðir, en 53 með 6-7 herbergjum og I hús stærra. Til samanburðar má gcta að á árunum 1981-1983 var lokiö smíði 124-150 íbúða 6 hcrbergja og stærri ártegu (t.d. 30% af öllum íbúðum sem lokið var 1982) og 105 voru af þeirri stærð í fyrra. Á árinu 1987 var hafin bygging á 804 íbúöum cn 1.456 í fyrra. Nú um áramótin vorir l.(K)2 íbúðir í smíðum, þar af 539 fokheldar eða meira. - HEI Kosningamar í Háskólanum í gær: Tilraunaboranir BP á Rockall-svæðinu: Vaka fékk sjö en Röskva sex Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, náði meirihluta í stúd- entaráðskosningunum sem fram fóru í Háskóla íslands í gær og fékk sjö fulltrúa kjörna. Röskva, félagshyggjulistinn sem bauð fram á móti Vöku fékk hins vegar sex fulltrúa í stúdentaráð. Um helm- ingur þeirra 4000 stúdenta sem atkvæðisrétt höfðu tók þátt í kosn- ingunum, eða 2098. Listi Vöku fékk samtals 956 atkvæði en listi Röskvu 933. Jafnframt var kosið um tvo fulltrúa í háskólaráð, og fengulistarnirhvorsinn fulltrúann Áburðarverksmiðjan: Borgarráð vill bíða Borgarráð samþykkti á fundi sín- um í gær, að taka undir ályktun Almannavarna Reykjavíkur um rekstur Áburðarverksmiðju ríkisins. Ennfremur telur borgarráð rétt að bíða með að ráðast í byggingu á nýjum, kældum ammóníaksgeymi fyrir verksmiðjuna þar til hag- kvæmnisathugun sem til stendur að gera af hálfu ríkisvaldsins, og óskað hefur verið að verði hraðað, hefur átt sér stað. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull- trúi Framsóknarflokksins, lagði fram bókun þess efnis að hún tæki heilshugar undir allar tillögur sem miði að því að tryggja öryggi borgar- búa. „Pað er ljóst að borgaryfirvöld verða að taka með festu á málum Áburðarverksmiðju ríkisins, vegna þeirrar miklu hættu sem af henni stafar, eins og fram kemur í skýrslu starfshóps félagsmálaráðherra í janúar s.l. v-_______•»*> Við lestur skýrslunnar vaknar sú spurning hvort ekki stafi hætta frá fleiri fyrirtækjum í borginni, sem eru með hættuleg efni. Hér áður fyrr voru gerðar aðrar öryggiskröfur til fyrirtækja, auk þess sem mörg þeirra voru þá reist í útjaðri byggðar, en eru nú komin inn í miðja byggð,“ segir í bókun Sigrúnar. Þá bendir hún á að víðar í Reykja- vík sé mikil slysahætta, og nefnir norður-suður flugbraut Reykjavík- urflugvallar sem dæmi. Af henni er mikil flugslysahætta fyrir miðbæ Reykjavíkur, og telur Sigrún spurn- ingu hvort borgaryfirvöld eigi ekki að beina því til flugyfirvalda að nota norður-suður flugbrautina aðeins í neyðartilfellum, þar til flugvöllurinn hefur verið fluttur. „Framsóknarflokkurinn hefur lagt til að innanlandsflugið verði flutt til Keflavíkur m.a. vegna þessarar slysahættu, en meirihluti borgar- stjórnar lagðist gegn þeirri tillögu," segir Sigrún í bókun sinni á borgar- ráðsfundi í gær. -SÓL Bretar ófúsir til viðræðna Eyjólfur Konráð Jónsson, for- maður utanríkisnefndar Alþingis og þingmennirnir Kristín Einarsdóttir og Guðmundur G. Þórarinsson, áttu t fyrradag og aftur í gær, viðræður við Lindu Shalker, aðstoöarutanrík- isráðherra Breta, um deilu um yfir- ráð yfir Hatton-Rockall-svæðinu. í þessum viðræðum staðfesti Shalker það sem Tíminn greindi frá síðastlið- inn laugardag, að BP hefði verið úthlutað leyfi til tilraunaborana á Lousy- og Rockall-hafsvæðunum. Steingrímur Hermannsson, utan- ríkisráðherra tjáði Tímanum í gær að formleg tilkynning hefði ekki borist Utanríkisráðuneytinu um þetta mál. “Mér skilst að á fundum Eyjólfs Konráðs, Kristínar og Guö- mundar meö aðstoðarutanríkisráð- herra Breta hafi lítill samkomulags- vilji komið fram og að ráðherrann hafi talið kröfur íslendinga og Dana ósanngjarnar. Við leggjum mikla áherslu á það að scst verði niður og rætt um málið. En það hafa Bretar ekki viljað gcra,“ sagði Steingrímur. Hann sagði að einhliða ákvörðun Breta um rétt til olíuborana á þessu svæði vera mjög vafasama. „Við teljum að samkvæmt hafréttarsátt- málanum og þeirri lýsingu sem þar er gefin á rétti þjóða, þá eigum við fullt eins mikinn rétt og þeir. Við höfum lagt áherslu á að þjóðirnar komi sér saman, en Bretar virðast ekki fúsir til þess,“ sagði Steingrímur Hcrmannsson. óþh Deilur um sýningarrétt milli HSÍ og Félags fyrstudeildarfélaga: RÚV eða Stöð 2? Upp eru komnar deilur milli HSÍ og Félags fyrstudeildarfélaga um hver eigi að sýna frá þeim bikarleikj- um sem eftir eru. Forsaga málsins er sú, að HSÍ samdi við ríkissjónvarpið um sýning- arrétt á 1. deildarleikjum, lands- leikjum og leikjum í bikarkeppn- inni. Samkvæmt reglugerð HSI á stjórnin síðan að leita umsagna og samþykkis aðildarfélaganna í þessu sambandi. „Við sömdum með semingi samn- inginn fyrir 1. deildina, en höfnuðum alfarið samningnum um bikarkeppn- ina. Ástæðan fyrir því að 1. deildar- félögin gera það, er sú að af þeim 8 liðum sem eftir eru, eru 6 lið úr fyrstu deild, þannig að það eru ekki nema tvö lið úr öðrum deildum eftir í keppninni," sagði Kristján Örn Ingibergsson, formaður handknatt- leiksdeildar K.R. í samtali við Tím- ann í gær. Félag fyrstudeildarfélaga náði síð- an munnlegu samkomulagi við Stöð 2, sem síðar var staðfest, um að svo framarlega sem fyrri samningurinn gengi til baka, en í honumer gert ráð fyrir einokun ríkissjónvarpsins, fengi Stöð 2 að sýna frá bikarkeppn- inni. Aðilar úr Félagi fyrstudeildarfé- laga áttu síðan fund með hluta stjórnar HSÍ um þetta mál í gær- kvöldi. „Þar var þeim gerð grein fyrir því að við gætum ekki samþykkt samn- inginn við ríkissjónvarpið eins og hann var lagður fyrir okkur. Við buðum upp á það að samningur sjónvarpsins stæði, að tveimur liðum undanteknum. Annars vegar hyrfi einokunarrétturinn út og hins vegar að grciðslur sem rynnu af hendi frá ríkissjónvarpinu til félaganna scm tækju þátt í bikarkeppninni, en ekki til fræðslustarfs HSÍ, eins og þeir vildu,“ sagði Kristján Örn. Stjórn HSÍ mun því í dag reyna að endursemja við ríkissjónvarpið, út frá þessum breyttu forsendum. „Þau lið sem eftir eru í bika- rkeppninni úr fyrstu deild, eru á þeirri skoðun að cf ríkissjónvarpið samþykkir ekki samninginn með áorðnum breytingum, þá fær ríkis- sjónvarpið ekki að sýna, því við fáum töluvert hærri upphæðir með samningnum við Stöð 2,“ sagði Kristján Örn. Jón Hjaltalín Magnússon, for- maður HSÍ, sagði í samtali við Tímann að viðræður væru í gangi við báðar stöðvarnar og líklega yrði niðurstaðan sú að báðar stöðvarnar sýndu frá leikjunum. -SÓL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.