Tíminn - 16.03.1988, Blaðsíða 15

Tíminn - 16.03.1988, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 16. mars 1988 Tíminn 15 MINNING Maren Eyvindsdóttir Fædd 9. maí 1915 Dáin 26. febrúar 1988 Amma okkar í sveitinni er dáin. í>að skeði snöggt, þannig óskaði hún sér líka að það yrði, því hún vildi ekki vera upp á aðra komin í ellinni á neinn hátt. En hún amma var frísk og sívinn- andi alveg þangað til fyrir örfáum vikum. Amma var þannig skapi farin að okkur fannst hún aldrei verða gömul. Þegar við vorum lítil sagði hún okkur spennandi sögur, sem hún skáldaði jafnóðum, þær voru kannski um litlar kisur eða hvolpa sem höfðu villst að heiman og fundu ekki mömmu og pabba en alltaf enduðu sögurnar vel og við drógum andann léttar. Svo fórum við oft í gönguferðir með ömmu út á tún að tína blóm, í berjamó og svo upp í gil að skoða lækinn. Amma var mjög lífsglöð kona og reyndi að gera gott úr flestum málum. Hún var mjög fljóthuga og verkin urðu að ganga fljótt bæði innan húss sem utan og þýddi ekkert gauf, því þá gat amma orðið reið. En gott var líka að fá hrósið þegar henni fannst vel gert. Mikið fannst okkur flatkökurnar, kleinurnar og sunnu- dagssteikurnar góðar hjá henni. Ein mesta skemmtun ömmu var að taka ljósmyndir og dró hún oft upp myndavélina á ótrúlegustu stöð- um og tíma, því hún leit oft hlutina frá öðru sjónarhorni en aðrir. Amma var gift Sigurfinni Guð- mundssyni afa okkar hann dó 21. 4. 1984. Þau voru samhent og unnu mikið allt sitt líf, en kunnu líka að gera sér glaðan dag og njóta lífsins. Við kveðjum nú ömmu með söknuði og þökkum henni allar góðu stund- irnar. Sigurgeir, Maja og Sigurfinnur. Ingunn Björnsdóttir Svínafelli Fædd 24. maí 1896. Dáin 4. mars 1988. Við daglega umhyggju alls, fyrir óskir, löngun og þörf hún beitir sér eins og best er unnt og býr undir framtíðarstörf SJ. Hinn 4. þ.m. andaðist í Landspítal- anum Ingunn Björnsdóttir fyrrver- andi húsfreyja í Svínafelli í Öræfum, 91 árs að aldri. Faðir Ingunnar, Björn Sigfússon, var af Hákonarstaðaætt á Austur- landi. Þeir ættingjar eru niðjar Pét- urs Péturssonar, sem um aldamótin 1800 hóf búskap á Hákonarstöðum á Jökuldal. Hann var langafi Ingunn- ar. Móðir Ingunnar, Pórunn Þor- steinsdóttir, var ættuð úr Suðursveit, komin af merku bændafólki. Hjónin Eyjólfur Runólfsson og Ingunn Gísladóttir bjuggu á Reyni- völlum í Suðursveit um langt skeið. Ingunn Björnsdóttir fæddist austur á Jökuldal, en hjónin á Reynivöllum tóku hana í fóstur, þegar hún var ung, enda var húsfreyjan á Reyni- völlum frænka hennar og nafna. Ingunn Björnsdóttir ólst upp á Reynivöllum til 16 ára aldurs. Eftir það var hún nokkur ár vinnukona á Kálfafelli hjá hjónunum Pórði Jóns- syni og Guðrúnu Eyjólfsdóttur. Rúmlega tvítug fluttist hún þaðan og þá í fyrstu að Svínafelli. Dvöl hennar þar var þó eigi löng að sinni, því að ferðinni var heitið lengra. Dálítinn tíma starfaði Ingunn í Vest- mannaeyjum og eitt sumar var hún í kaupavinnu á Maríubakka í Fljóts- hverfi. Að því búnu fluttist hún aftur að Svínafelli, og þá var þar eigi tjaldað til einnar nætur, því að æ síðan til æviloka var þar lögheimili hennar. Samt þurfti hún síðustu misserin að dveljast í Skjólgarði á Höfn og að allra síðustu lá leið hennar í Landspítalann í Reykjavík. Þegar Ingunn fluttist að Svínafelli, hafði Lárus Magnússon tekið við búi á Böltajörðinni, en faðir hans var þá látinn fyrir fáum árum. Faðir og móðir Lárusar áttu bæði ættir að rekja til séra Jóns Steingrímssonar á Kirkj ubæjarklaustri. Lárus Magnússon og Ingunn Bjömsdóttir giftust sumarið 1923 og bjuggu í Svínafelli rúmlega 40 ár, þó síðari hluta þess tíma með aðstoð barna sinna. Lárus féll frá 1967, þá orðinn aldurhniginn. Þessum hjón- um varð þriggja barna auðið og skulu þau hér nafngreind: Sigurður í Svínafelli, dáinn 1950, 26 ára gamall. Magnús bóndi í Svínafelli, kvæntur Svöfu Jóhannsdóttur frá Hofi. Laufey kona Ragnars Stefáns- sonar þj óðgarðsvarðar í Skaftafelli. Á starfstíma Lárusar og Ingunnar var búskapur og framkvæmdir á jörð þeirra með sama sniði og annars ■ . i', i.,i i‘ ’i.o ..... ..... . rnnnOri'i u't r.rrra staðar í sveitinni. Snemma á búskap- artímanum réðust þau í það sökum vissra atvika að flytja bæinn úr brekkunni ofan á sléttlendið og byggja þar öll bæjarhús að nýju. Síðar á ævinni byggðu þau ásamt börnum sínum steinsteypt íbúðarhús á sama stað. Ræktun á jörðinni hefur verið stóraukin og vélar keypt- ar til margs konar nota. Ingunn Björnsdóttir átti heima í Svínafelli um 65 ára tímabil. Þessi staður varð henni kær, enda eru landgæði jarðarinnar nokkur, um- hverfi bæjarins fagurt og veðurfar þar heima með því skjólsamasta, sem þekkist á sveitabæjum landsins. Það gildir þó um þetta heimili hið sama og aðrar byggðir, að mörg er búmannsraunin. Við landbúnað þarf jafnan árvekni og atorku og sú starfsemi er stundum ekki áfallalaus. Og í einkalífi verða menn oft að reyna bæði skin og skúrir. Fráfall Sigurðar í blóma aldurs hlaut að verða þessari fjölskyldu í Svínafelli þungbært áfall. Hann var farinn að veita foreldrunum mikilsverða að- stoð í störfum og hafði forgöngu um að kaupa jarðarpart í Svínafelli og stækka þannig ábýlisjörð fjölskyld- unnar. Hann var að upplagi þrek- mikill, en naut ekki lengi krafta sinna, heldur varð svo árum skipti að stríða við sjúkdóm, sem reyndist ólæknandi. En hverju sem var að mæta má segja um Ingunni hið sama og fyrrum var sagt um aðra merka konu: Hún var ekki hót að kvarta hinsta fram á sólarlag. Verksvið Ingunnar var fyrst og fremst á heimilinu í Svínafelli. Þar vann hún verk sín í kyrrð, eins og löngum hefur verið venja um ís- lenskar húsmæður. Hún lét sér annt um heimili sitt og fjölskyldu og þar duldist hvorki umhyggja hennar né reisn í framkomu. Þar vildi hún beita sér eins og best er unnt og búa undir framtíðarstörf. En hún bland- aði sér lítið í félagsmál eða önnur störf utan heimilis, var þó ávallt reiðubúin að rétta öðrum mönnum hjálparhönd, ef þörf krafði. Með sextíu ára starfi í Svínafelli átti þessi húsfreyja eigi lítinn þátt í að efla þar traust heimili. Þannig var framlag hennar til sveitarfélagsins mjög mikilsvert. Því lögmáli verður eigi undan vikist, að æviskeiði allra manna eru takmörk sett. Ingunn hafði fyrir aldurs sakir í reynd látið af störfum nokkrum árum áður en hún lést. Við ævilokin er hennar minnst með virð- ingu og þökk. P.Þ. HH REYKJKJÍKURBORG ffl T Aautovi Stödun Borgarverkfræðing- urinn í Reykjavík Tæknifræðingur óskast til starfa á Mælingadeild Reykjavíkurborgar nú þegar eða frá 1. júní n.k. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborg- ar og St. Rv. Upplýsingar gefur Ragnar Árnason, Skúlatúni 2, sími 18000. Aðalfundur „Framnes" h.f. verður haldinn mánu- daginn 28.03.1988 í húsi félagsins, Hamraborg 5, Kópavogi, og hefst kl. 20.30. Dagskrá samkvæmt 16. gr. félagslaga. Þá verður einnig til umræðu húsnæðismál félagsins. Hluthafar, eða löglegir umboðsmenn þeirra, mætið vel og stundvíslega. Önnur mál. Stjórnin v-'ii'. rCii r-k * y-í i. •.* » j . J . j »- ^ V i J • ■ * • \ . ii I J / C. ii.i- ..* ‘ •- '■ iö v) ir;tir.d r;/2od uí)20í ýnrx'i' 'v</ :0! .!>’ raí.UK i Rabbfundir LFK í kjördæmum Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir rabbfundum í kjör- dæmunum í samvinnu við konur á hverjum stað. Fundir verða sem hér segir. VESTFIRÐIR: ísafjörður, föstudag- inn 18.3. kl. 20.30. Önundarfjörður, laugardaginn 19.3. kl. 13.00. Bolungarvik, laugar- daginn 19.3. kl. 16.00. Allar velkomnar. Unnur Magdalena Borgnesingar - nærsveitir Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 18. mars n.k. kl. 20.30. Síðasta kvöldið í 3ja kvölda keppni. Góð verðlaun. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness Fundur með öldruðum og heilbrigðisráðherra 19. mars n.k. á Hótel Lind. Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra flytur Halldórsson upplestur Baldvin Fólki gefst kostur á að bera fram spurningar. ALLIR VELKOMNIR. ávarp. Baldvin Guðmundur Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Reykjavík Húnvetningar Guðni Valgarður Almennur fundur um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga verður haldinn á Hótel Blönduósi fimmtudaginn 24. mars n.k. kl. 20.30. Frummælendur verða Guðni Ágústsson alþingismaður og Valgarður Hilmarsson oddviti. Allt áhugafólk um framtíð landsbyggðarinnar hvatt til að koma. Framsóknarfélag Austur-Húnvetninga V* Inga Þyrí Arndís * • Dagbjört 91-641714 99-6396 93-86665 Norrænt kvennaþing Norrænt kvennaþing verður haldið í Osló 31. júlí - 7. ágúst n.k. að tilstuðlan ráðherranefndar Norðurlandaráðs. LFK mun í samvinnu við miðflokkakonur á Norðurlöndunum standa fyrir verkefni er nefnist KONUR OG STÖRF í DREIFBÝLI: Undirbúningshópur LFK hefur tekið til starfa og eru þær sem hafa áhuga á að taka þátt í undirbúningi og/eða koma með okkur á þingið í Osló beðnar um að hafa samband sem fyrst við Margréti í síma 91-24480 kl. 9-12 eða einhverja úr undirbúningshópnum. LFK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.