Tíminn - 16.03.1988, Side 20

Tíminn - 16.03.1988, Side 20
ir a tel rdráttur reikningum SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF auglýsinguna fyrir þig Okeypis þjónusta 686300 Timinn Tíminn Breytingar á akstursleiöum í gamla austurbænum: Einstefna upp Laugaveginn Nú liggur fyrir Umferðarnefnd Reykjavíkur tillaga þess efnis að miklar breytingar verði á skipulagi umferðar í mestöllum austurbænum vestan Snorrabrautar. Nokkrar breytingartillögur voru lagðar fyrir borgarráðsfund í gær, m.a. ein þess efnis að hluti Laugavegarins við Hlemm, verði gerður að einstefnu í öfuga átt miðað við það sem nú er, nema hvað strætisvagnar megi ganga áfram í sömu átt. Þórarinn Hjaltason, verk- fræðingur Umferðardeildar, sagði í samtali við Tímann í gær, að þessi breyting væri aðeins ein af mörgum sem tillögur væru um. T.d. væri fyrirhugað að hafa einstefnu austur Njálsgötu og Grettisgötu og nota Bergþórugötu meira sem umferð- argötu og opna leið yfir Snorra- braut, ásamt því að setja upp umferðarljós. Þá er fyrirhugað að breyta fleiri götum í Þingholtinu í einstefnugötur og taka upp skábíl- astæði, en það myndi auka umferð- aröryggi og fjölga bílastæðum, sem mikill skortur er á á þessu svæði. Einnig er ætlunin að loka leið- inni yfir Snorrabraut frá Grettis- götu og Njálsgötu, enda sagði Þór- arinn að honum þætti það óeðlilegt að umferð inn á Laugaveginn færi inn á Njálsgötusvæðið. Njálsgatan væri mikil slysagata og einstefna á henni myndi fækka slysum og opna leið fyrir vinstri beygju af Snorra- brautinni á Laugaveginn. „Vandamálið er það, að ef við bætum þessari vinstri beygju inn á núverandi ástand, þá erum við að gera það auðveldara að nálgast Laugaveginn frá austurenda Snorrabrautar. Það þýðir að fleiri myndu sækjast eftir því að fara inn á hann en er í dag. Því væri meiri hætta á því að gatnamótin stíflist, og það gerist nú dálítið oft núna, þó að það sé algengara við gatna- mótin Hverfisgata-Snorrabraut," sagði Þórarinn. Til að koma í veg fyrir þá stíflu, verða Ijósin á gatnamótum Lauga- vegar og Snorrabrautar og Hverfis- götu og Snorrabrautar samstillt í stefnu Snorrabrautar. Þá verða gerðar breytingar á stillingu Ijós- anna á þessu svæði. Sigrún Magnúsdóttir, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, lagði fram tillögu á fundinum í gær, að þessi Laugavegskafli yrði frekar gerður að göngugötu, en að breyta aksturstefnu á honum. Sú tillaga var ekki samþykkt. Til að þessi Laugavegsbreyting geti orðið að veruleika, þarf að sníða af Hlemmtorgi, svo að strætisvagnar geti tekið beygjuna inn á Laugaveginn. Tillagan um breytinguna var sam- þykkt á borgarráðsfundi í gær, með þremur atkvæðum gegn einu, en meirihluti ráðsins klofnaði í afstöðu sinni. Málið verður því sent borgarstjórn til nánari um- fjöllunar. Gert er ráð fyrir að þessar breyt- ingar, ef þær verða afgreiddar í borgarstjórn, taki gildi í sumar eða haust. Fleiri tillögur um breytingar liggja fyrir. M.a. er gert ráð fyrir að bílastæði á miðeyju Snorra- brautar verði lögð niður í áföngum. Bílastæðin myndu verða flutt upp að húsunum, þar sem pláss væri fyrir hendi. Þá er búið að samþykkja tillögu þess efnis að setja upp umferðarl- jós á horni Hverfisgötu og Rauðar- árstígs. Um leið verður afnumið beygjubann á því svæði. -SÓL Timamynd Gunnar Fyrsti rallbíllinn sem ræstur verður í ár: Porschinn dularfulli kominn Eitt skæðasta leynivopn í komandi rallkeppnum var leyst út úr tolli í gærkvöldi og verður strax hafíst handa við að koma honum í skráningarhæft ástand. Ekki er það seinna vænna þar sem fyrsta rall ársins, Tomma- rallið, hefst 25. mars n.k. Þetta er Porschinn hans Jóns Hall- dórssonar. Hann er af svipaðri gerð og sá Porsche sem hann og félagi hans, Guðbergur Guð- bergsson, kepptu á í fyrra og er hann af 911 seríunni. Það sem valdið hefur væntanleg- um keppinautum þeirra hvað mest- um heilabrotum að undanförnu er hversu mörg hestöfl eru undir skott- lokinu. Það fékkst að sjálfsögðu ekki uppgefið hjá innflytjandanum og eigandanum, en Tíminn hefur að sjálfsögðu aflað sér nokkurra upp- lýsinga um málið. Hámarks hestafla- tala í ralli á íslandi er 300 ha. og verður vélin að vera undir því. Hins vegar þekkist það að menn séu með vélar yfir 200 ha. og þykja það engin ósköp. Þessi vél er vel á þriðja hundraðið og kemur hún bílnum á hundrað km hraða á klukkustund á rétt rúmlega fimm sekúndum. Þar sem eftir því var sérstaklega óskað er látið við þessar upplýsingar sitja að sinni. Bílinn keypti Jón í Þýskalandi, þegar hann var á ferð þar fyrir skömmu, af Hartmut Jane. Jane hefur unnið til nokkurra verðlauna á þessum bíl og nteðal annars orðið annar í nokkrum keppnum í Þýska- landi. Þar sem framleiðslumagn Porsche 911 er undir tilskildu lág- marki fyrir þá sem keppa vilja til þýskalandsmeistara, var bíllinn til sölu. Hann er af árgerðinni 1975, en honum var ekki breytt fyrr en fyrir fáeinum árum. Fyrsta rallkeppni ársins er eins og að framan segir Tommarallið og verður bíllinn númer eitt þar sem þeir félagarnir unnu þá keppni í fyrra. Hann verður því fyrsti bíllinn sem ræstur verður til rallkeppni í ár og er um leið með skæðustu tækjum þessarar gerðar. KB Guðbergur Guðbergsson og Jón Halldórsson sögðu að það væri allt ■ lagi að setjast strax á þakið á keppnisbílnum, þar sem þeir væru ekki í nokkrum vafa um að hreppa íslandsmeistartitilinn í ár. Porsche 911 kominn í hús í Grafarvoginum. Tímamynd Gunnar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.