Tíminn - 27.04.1988, Síða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 27. apríl 1988
Nýbygging Hjónagarða við Suðurgötu:
smábama?
ítölsk innigötustemmning í nýbyggingu hjónagarða við Suðurgötu
í Reykjavík, virðist ætla að verða að einhverju deiluefni milli
væntanlegra íbúa og hönnuða. Að sögn nokkurra íbúanna var talað
við fulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins í gær og honum kynnt
málið. Segja væntanlegir íbúar að gangstéttarlagning á göngum
fyrstu hæðar muni verða heilsuspillandi og mjög erlið í þrifum í
framtíðinni. Að sögn arkitektsins, Guðmundar Gunnlaugssonar,
koma mótmæli stúdenta mjög á óvart og reyndar allt of seint, þar
sem þegar er farið að leggja gangstéttarhellurnar. Auk þess bendir
hann á að mótmæli þessi séu á röngum forsendum reist og
ókunnugleika varðandi frágang á gólfinu.
Gangurinn á að líta út eins og
verið sé að ganga um utan dyra við
hlið blóma og í mikilli birtu. Engin
steypt plata er í gólfi gangsins og
segir arkitektinn að það spari háar
upphæðir að leggja bara gangstéttar-
hellur ofaná malarfyllingu. Istaðinn
fyrir mikla einangrun er reynt að
tryggja eðlilegan gólfhita með vatns-
hitalögn undir hellunum.
Þegar Guðmundur var að því
spurður hvort ekki yrði erfitt að
þrífa, sagði hann að mjög auðvelt
verði að sópa gangana, hvort heldur
sem er, upp í fægiskóflu eða lít í
blómabeðin. Þá bendir hann á að
allar stéttarnar verði vandlega húð-
aðar með sílikonefni þannig að
steinninn á ekki að verða opinn.
Þegar búið væri að ganga þannig frá
stéttunum lægi það fyrir að hann
gæti ekki talist heilsuspillandi.
Tíminn ræddi einnig við verk-
stjóra nýbyggingarinnar, Árna Sig-
tryggsson. Sagði hann að þeim bygg-
ingarmönnum þætti full seint af stað
farið með athugasemdir stúdenta.
Búið væri fyrir löngu að bjóða
verkið út og verktaki þess væri þegar
byrjaður að undirbúa hellulögnina.
Reyndar átti hann að vera búinn
með verkið fyrir rúmri viku, en það
hefur tafist um sinn vegna þess að
hellurnar voru ekki steyptar í sam-
ræmi við kröfur verksins. Sagðist
hann telja að ef breyta ætti frá því
að leggja þarna gangstéttarhellur,
yrði það mjög dýrt verk.
Stúdentar þeir sem hafið hafa upp
mótmæli gegn þessari hönnun, eru
þeir stúdentar sem búa nú á gömlu
hjónagörðum. Flestir þeirra koma
til með að flytja yfir þar sem íbúðirn-
ar eru yfirleitt stærri í nýbygging-
unni. Hafa þeir eins og að framan
greinir, leitað til Heilbrigðiseftirlits-
ins. Er það einkum gert, þar sem
margir íbúanna telja að heilsufari
barnanna verði stefnt í hættu. Telja
þeir að opinn múrinn á gangstéttun-
um muni valda veikindum vegna
ryks og óhreininda og að ekki verði
nokkur leið að þrífa gangstéttina
inni í húsinu. í nýju byggingunni
munu um tvö hundruð börn búa að
staðaldri samkvæmt útreikningum.
Bjóst einn viðmælenda Tímans við
að farið yrði af stað með undirskriftir
vegna þessa og að líklegt yrði að þar
myndu flestir rita nöfn sín í mót-
mælaskyni. KB
Frá aðalanddyri Hjónagarðanna nýju við Suðurgötu í Reykjavík. Nokkuð er í land með „ítalska innigötustemmn-
ingu“ ennþá. Víða verða blóm og opin beð á göngunum til að brjóta upp einhæfa gangamynd. Timamynd Gunnar
Veldur „ítalskt" innistræti
veikindum
Neyðist borgin til að
auka hlutafé í Granda?
Málefni Granda hf. voru rædd á borgarráðsfundi í gærdag og
var borgarstjóri átalinn harðlega fyrir upplýsingaleynd þá er hvílt
hefur yfir rekstri fyrirtækisins gegnum árin. Fulltrúar minnihluta
lögðu fram bókun þar sem ofangreind vinnubrögð eru harðlega
átalin.
Alfreð Þorsteinsson fulltrúi Framsóknarflokksins á fundinum
lagði fram fyrirspurn í þremur liðum, varðandi Granda hf. og
fyrirhugaðar aðgerðir Keykjavíkurborgar vegna þeirrar stöðu
sem upp er komin. Alfreð óskaði eftir skriflegu svari við
fyrirspurninni.
Félag ungra framsóknarmanna við Djúp:
Efnahagsástandið
er orðið óþolandi
Geysileg ólga er í ungu fólki úti á landi vegna efnahagsástands-
ins. Fyrir skömmu var haldinn stofnfundur Félags ungra fram-
sóknarmanna við Djúp á ísaflrði og kom þessi óánægja þar vel í
ljós í málflutningi fundarmanna. Fundurinn var mjög vel sóttur
en stofnfélagar eru nú 30 talsins. Samþykkt var á fundinum að
hægt yrði að skrá sig sem stofnfélaga hjá einhverjum stjórnarmeð-
í stuttum inngangi að spurningum
sínum segir Alfreð m.a.: „Að sögn
forstjóra Granda hf. var gripið til
þessara uppsagna til að minnka fyrir-
sjáanlegt 70 milljóna króna tap á
rekstrinum. Engu að síður stefnir í
tugmilljóna króna taprekstur
Granda hf. að óbreyttu, en fyrir
liggur, að fyrirtækið jók skuldir
sínar á síðasta ári og má ekki við
frekari skuldasöfnun. Auk uppsagna
starfsfólks hafði Grandi hf. áður
neyðst til að selja einn af togurum
sínum, og kann svo að fara að grípa
verði til þess að selja fleiri skip, ef
fram fer sem horfir. Vegna þess að
hér eru miklir atvinnuhagsmunir
Reykvíkinga í húfi er spurt:
1. Hyggst Reykjavíkurborg, sem er
langstærsti hluthafi í Granda hf.,
grípa til einhverra aðgerða til hjálpar
fyrirtækinu, t.d. með því að auka
hlutafé sitt í því?
2. Auki Reykjavíkurborg hlutafé
sitt í Granda hf., er þá nokkur
eðlismunur á slíkri hjálp og aðstoð-
inni við Bæjarútgerð Reykjavíkur á
sínum tíma?
3. Er borgarstjóri reiðubúinn til að
beita sér fyrirþví, að borgarfulltrúar
fái tækifæri til að fylgjast betur með
rekstri Granda hf. með tilliti til
þeirra miklu hagsmuna, sem í húfi
eru?“
Búist er við svari frá borgarstjóra
á næsta fundi borgarráðs sem verður
þriðjudaginn 10. maí.
Bókun fulltrúa minnihlutans er
harðorð og reyndar í þá veru sem oft
hefur verið greint frá í Tímanum, en
eins og lesendum Tímans mun kunn-
ugt hafa upplýsingar um stöðu
Granda hf. verið vandfengnar og
hefur þá ekki skipt máli hvort blaða-
menn eða borgarstjórnarmenn eiga
í hlut.
í bókuninni er það átalið harðlega
að aðeins nokkrum vikum eftir að
reikningar Granda hf. voru kynntir
í borgarráði skuli hafa verið gripið
til fjöldauppsagna hjá fyrirtækinu,
án þess að ráðinu væri þá gerð grein
fyrir stórfelldum rekstrarerfiðleik-
um.
Því næst er fjallað í bókuninni um
hvernig staðið er að upplýsingaflæði
til fulltrúa borgarbúa. „Reykjavík-
urborg á stóran meirihluta í Granda
hf. og borgarstjóri skipar meirihluta
stjórnarmanna. Þrátt fyrir sam-
þykktir um að reglubundið skuli
gera borgarráði grein fyrir rekstri
fyrirtækisins, þarf jafnaðarlega að
ganga eftir upplýsingum um hag
þess,“ segir í bókuninni. Fulltrúar
minnihlutans ítreka eindregin til-
mæli sín frá 8. apríl fyrir tveimur
árum, um að borgarfulltrúar fái
a.m.k. ársfjórðungslega skýrslu um
rekstur og afkomu Granda hf. -ES
hma þar til í lok júní.
Á fundinn mættu Gissur Péturs-
son formaður Sambands ungra
framsóknarmanna og Egill Heiðar
Gíslason starfsmaður Framsóknar-
flokksins og greindu þeir frá starf-
semi flokksins. Síðan var rætt um
hið pólitíska ástand og var það mál
manna að byggðamál væru líkt og
olnbogabarn núverandi ríkis-
stjórnar og loforð sem gefin væru
um byggðamál væru svikin jafn-
harðan. Þá væri óreiðan í vaxta- og
gengismálum að ganga svo að
framleiðslufyrirtækjunum að vart
þyrfti að spyrja að leikslokum. Af
þessu tilefni samþykkti fundurinn
ályktun en þar segir m.a.:
„Ríkisstjórnarflokkarnir verða
að vakna af Þyrnirósarsvefni sínum
vegna þróunarinnar í efnahagsmál-
um. Ástandið er orðið óþolandi.
Rótgróin atvinnufyrirtæki víða um
land ramba á barmi gjaldþrots
vegna vaxta og gengisstefnunnar
meðan fjármagnsmarkaðir í
Reykjavík fitna eins og púkinn á
fjósbitanum.
Stefnuleysið í efnahagsmálum
er hrein móðgun við allan þann
mikla fjölda fólks sem starfar við
undirstöðuatvinnugreinarnar,
sjávarútveg og landbúnað, eða í
tengslum við þær.“
Guðmundur Birgir Heiðarsson
Súðavík, var kosinn formaður fé-
lagsins en eftirtaldir voru kosnir í
stjórn og skiptir hún með sér
verkum á fyrsta stjórnarfundi;
Guðmundur Konráðsson ísafirði,
Sigríður Káradóttir Bolungarvík,
Geir Sigurðsson ísafirði og Eiríkur
Ragnarsson ísafirði.