Tíminn - 27.04.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 27. apríl 1988
Bandarískur sjóliðsforingi:
Kaninn margoft
hundsað kjarn
orkubann Dana
Bandaríkjamenn hafa margoft
hundsað kjarnorkubann Dana ef
marka má orð fyrrverandi sjóliðs-
foringja úr bandaríska flotanum í
danska sjónvarpinu. Maðurinn,
John Bush að nafni, segist hafa
verið í bandaríska flotanum í tutt-
ugu og sex ár, þar af tíu ár á
kafbátum sem höfðu kjarnavopn
innbyrðis. „í þrjú ár var ég kafbáta-
foringi á Simon Bolivar sem er
kjarnorkuknúinn kafbátur og hafði
kjarnavopn innanborðs."
„Áttatíu prósent bandarískra
herskipa hafa kjarnavopn um
borð. Ef herskip er hæft til þess að
sigla með kjarnavopn, þá er það
vopnað kjarnavopnum," sagði
Bush í danska sjónvarpinu. „Við
höfum aldrei vitað til þess að
kjarnavopnum hafi verið skipað úr
herskipum áður en þau halda til
hafnar í öðrum löndum. Því er það
ljóst að þau- skip sem geta borið
kjarnavopn og halda til hafnar í
Danmörku hafa án efa kjarnavopn
innanborðs."
Eins og kunnugt er boðaði Poul
Schlúter forsætisráðherra Dana til
kosninga eftir að danska þingið
samþykkti að skipherrum erlendra
herskipa, sem koma til danskra
hafna, verði tilkynnt bréflega hver
stefna Danmerkur er í kjarnorku-
málum, en frá því 1963 hefur
stefna Dana verið sú að skip sem
búin eru kjarnavopnum megi ekki
halda til hafnar í Danmörku né
sigla um danska lögsögu. Telur
Schlúter að þessi ákvörðun þings-
ins skaði stöðu Danmerkur innan
Nato, enda hafa Danir aldrei spurt
hvort Natoskip séu búin kjarna-
vopnum er þau heimsækja
Danmörk.
Bush sagði að danska stjórnin
ætti að spyrja eigin flota um það
hvort bandarísk herskip séu búin
kjarnavopnum er þau halda til
danskra hafna. „Danski flotinn
myndi svara því til að hann teldi að
kjarnavopn væru yfirleitt innan-
Tíu ár liöin frá valdatöku
kommúnista í Afganistan:
Najibullah
forseti sýnir
herstyrk sinn
í gær voru tíu ár liðin frá því
kommúnistar náðu völdum í Afgan-
istan og var mikil hersýning haldin í
Kabúl af því tilefni. Greinilegt var
að Najibullah forseti Afganistan
vildi sýna skæruliðum og umheimin-
um herstyrk stjórnarhersins og þann
ásetning sinn að halda völdum eftir
að sovéski herinn hverfur frá land-
inu.
Á hersýningunni mátti meðal ann-
ars sjá tíu nýja sovéska T62 skrið-
dreka sem aldrei hafa verið sýndir á
hersýningu áður og mikið magn af
nýtískulegum sovéskum vopnum. Þá
flugu þungvopnaðar sovéskar þyrlur
og MIG orrustuþotur yfir borgina.
Hundruð þúsunda fólks var flutt
með langferðabílum til að geta barið
hersýninguna augum, en samkvæmt
fréttaskeytum var áberandi hve stór
hluti þeirra var börn, unglingar og
gamalmenni. Þá bar mikið á konum
sem klæddar eru vestrænum fötum,
en ekki hefðbundnum klæðnaði
múslíma, en þessar konur eru meðal
dyggustu stuðningsmanna Najibul-
lah. Þær óttast mjög að ef skæruliðar
múslíma ná völdum verði þær
neyddar til að leggja niður nútíma
klæðaburð.
Vestrænir embættismenn undruð-
ust mjög að Sovétmenn sendu til-
tölulega lágt settan embættismann
sem aðalgest hátíðarhaldanna og
bendir það til þess að Sovétmenn
ætli að umgangast Afgana á sama
hátt og önnur ríki þriðja heimsins
eftir að Sovétmenn hafa kallað her-
lið sitt heim.
Sovéskir hermenn sem ræddu við
fréttamenn í Kabúl um helgina segja
að skæruliðar séu nú mun sterkari og
betur vopnum búnir en nokkru sinni
áður. Má því ætla að átök verði
gífurleg eftir að sovéski herinn
hverfur úr landinu.
Þess má geta að afganskir stjórn-
arhermenn hafa dregið sig frá nokkr-
um þorpum sem þeir höfðu á valdi
sínu og er talið að það sé gert til að
styrkja varnir stjórnarhersins annars
staðar áður en hildarleikurinn hefst
fyrir alvöru að nýju.
ÚTLÖND
borðs í bandarískum herskipum
sem komi til danskra hafna.“
Bandaríkjamenn og Bretar hafa
þá stefnu að hvorki játa né neita
tilvist kjarnavopna í herskipum
sínum. Því hafa embættismenn
bandaríska sendiráðsins í Kaup-
mannahöfn hvorki staðfest né vís-
að orðum Bush á bug.
Fyrrverandi kafbátaforingi á bandariskum kjarnorkukafbáti fullyrðir að
bandarísk herskip sem halda til hafnar í Danmörk séu almennt búin
kjarnorkuvopnm.
UMSJÓN:
Hallur
Maqnússon
BLAÐAMAÐUR
TEL AVIV -Tveir ísraelskir
hermenn og þrír skæruliðar
létust í átökum þegar hópur
vopnaðra manna reyndi að
laumast yfir landamærin til
ísraels frá Líbanon í dagrenn-
ingu. Talsmaðúr ísraelska
hersins sagði að skæruliðarnir,
sem ekki hafa verið borin
kennsl á, hafi skotið skrið-
drekaflaugum og kastað hand-
sprengjum að ísraelskri her-
sveit sem kom auga á þá rétt
innan israelsku landamær-
anna.
WASHINGTON - Efna-
hagslíf í Bandaríkjunum virðist
nú að einhverju leyti vera að
jafna sig eftir verðhrunið í októ-
ber. Skráning verðbréfa hefur
almennt hækkað um 2,3%
fyrstu þrjá mánuði þessa árs.
It’s fresh... it’s fast... free deliv-
ery. Það er hætt við að þessar
engilsaxnesku setningar færu fyrir
brjóstið á íslenskum málverndunar-
sinnum ef þær myndu prýða íslenska
skyndibitastaði. En þessi orð prýða
fyrsta bandaríska pizzuvagninn sem
selur pizzur í Moskvuborg við miklar
vinsældir um þessar mundir.
Það er bandaríski kaupsýslumað-
urinn Shelley Zeiger sem reið á
vaðið í Moskvu, að sjálfsögðu með
góðfúslegu leyfi sovéskra yfirvalda.
Hann flutti inn til Sovétríkjanna
amerískan vörubíl sem innréttaður
er sem pizzería og selur nú Astro-
pizzur rétt eins og á götum New
Jersey borgar.
Fyrirtækið sem rekur pizzabílinn í
Moskvu nefnist Dialog og er að
hluta til í eigu bandaríska fyrirtækis-
ins Astropizza og að hluta til í eigu
sovéskra aðila.
„Hvers vegna að missa af gróða-
vænlegum viðskiptum sem einnig
geta þjónað okkur sem góð auglýs-
ing?“ sagði Pyotr Zrelov, hinn
sovéski framkvæmdastjóri Dialog er
blaðamenn News from Moscow
spurðu hann um nýjungarnar.
Fyrsti bandaríski pizzustaðurinn í
Moskvu er á hjólum. Hann hefur
notið mikilla vinsælda hjá Moskvu-
búum.
FÍLADELFÍA - Kjósendur
í forkosningunum í Fíladelfíu
virtust ætla að fylkja sér um
Michael Dukakis og tryggja
honum yfirgnæfandi sigur á
aðalkeppinaut sínum Jesse
Jackson í forvali demókrata. Á
sama tíma er talið að George
Bush varaforseti tryggi sér þá
kjörmenn sem upp á vantar til
að hafa hreinan meirihluta á
flokksþingi repúblikana sem
velur forsetaframjóðanda
flokksins.
SEOUL - Ásakanir um að
stjórnarflokkurinn í Suður-
Kóreu hafi beitt öflugu tölvu-
kerfi við kosningasvindl brá
skugga á þingkosningarnar
sem fram fóru í gær. Tveim
stundum eftir að kjörstöðum
var lokað var tilkynnt að 73%
landsmanna hefðu tekið þátt í
kosningunum, en það er 12%
minni kjörsókn en var i kosn-
ingunum árið 1985.
RÓM - Yfirvöld hafa bannað •
sölu á öllum greipávöxtum á
Rómarsvæðinu eftir að eitur-
efni fundust í nokkrum greip-
ávöxtum sem fluttir voru inn frá
ísrael. Eiturefni hafði verið
sprautað í ávextina í mót-
mælaskyni við stefnu stjórn-
valda í Israel.
MOSKVÁ - Leiðtogi komm-
únistaflokksins í Osseita í
suðurhluta Kákasus var rekinn
úr starfi eftir að bæjarbúar
höfðu haldið mótmælafundi
gegn honum þrjá daga í röð. í
dagblaði ungliðahreyfingar
sovéska kommúnistaflokksins
var sagt að mótmælin hefðu
brotist út eftir að taugaveiki
braust út vegna lélegs aðbún-
aðar í vatnsbólum bæjarins.
MOSKVUBÚAR GÆDA SÉR
A BANDARÍSKUM PIZZUM