Tíminn - 27.04.1988, Page 3
Miövikudagur 27. apríl 1988
Tíminn 3
Dagaspursmál hvenær þjóöin fer á hausinn?:
Bankarnir halda fisk-
vinnslunni í rekstri
„Bankar hafa hjálpað til og um leið og þeir segja að þeir geti ekki
meira, þá er þetta stopp. Þannig að hvort að það eru dagar eða vikur
þangað til að fiskvinnslan stöðvast, það er afskaplega mikið undir
þeim komið. Ég hefði nú haldið að teygjan í því væri nú mjög farin
að minnka og ekki langt í að hún slitni,“ sagði Árni Benediktsson,
formaður Sambands frystihúsanna í samtali við Tímann.
Hann benti á að ef rekstur húsanna stöðvaðist, þá þýddi það missi
verulegs hluta þess gjaldeyris sem til landsins kemur.
„Við getum samt aldrei lent í því, því að það verður kippt í áður
en það gerist. Þessu verður bjargað, það er útilokað annað. Hvort
að öllum fyrirtækjum verði bjargað, veit maður ekki. Staða
fyrirtækja er misjöfn eins og í öllu,“ sagði Árni.
Félag vestfirskra fiskvinnslu-
stöðva hélt sex klukkustunda langan
fund um afkomu fiskvinnslunnar á
ísafirði á mánudag og var mjög
þungt í mönnum hljóðið eftir þann
fund. Menn báru þar saman bækur
sínar og niðurstaðan var ekki góð.
Tillaga kom fram um sameiginlega
lokun húsanna, en hún var ekki
samþykkt, líkt og gerðist 1968, þegar
ástandið var sem verst.
Aðeins hefur náðst samstaða um
sameiginlega lokun húsanna einu
sinni, en það var eins og áður sagði
árið 1968. Þá lokuðu öll húsin, nema
á Vestfjörðum, þar sem bankarnir
þar töldu sig geta haldið þeim uppi
lengur. Menn telja samt að ástandið
í dag sé mjög svipað, að öðru leyti
en því, að þá voru aflabrestir og
verðföll, en nú sé góðæri, verðfall og
verðbólga. Nú kom tillagan um lok-
un hins vegar fram á Vestfjörðum.
„Ef eitthvað er, þá er taprekstur-
inn nær 15% en 10% og ekki er enn
séð fyrir endann á verðföllum á
mörkuðum okkar,“ sagði Einar
Oddur Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Hjálms á Flateyri í samtali við
Tímann eftir fundinn.
„Það hlýtur öllum hugsandi mönn-
um að vera það ljóst, að eftir
verðfall á afurðum helstu útflutn-
ingsatvinnuvéganna á síðustu
vikum, fall dollarans og sívaxandi
kostnaðarhækkanir hér innanlands,
þá getur dæmið bara ekki gengið
upp. Þetta á að vera öllum augljóst
sem vilja sjá. Það þurfa öll fyrirtæki
í atvinnugreininni að draga saman
seglin á næstu vikum, verði ekkert
að gert,“ sagði Jón Páll Halldórsson,
framkvæmdastjóri hraðfrystihússins
Norðurtanga á ísafirði í samtali við
Tímann í gær.
„Menn eru kvíðafullir og þykir
útlitið svart. En þetta er ákaflega
dapurlegt fyrir þær byggðir sem
byggja á framleiðslustarfsemi. Það
hljóta samt að vera leiðir út úr
þessu. Ég bara gef mér það, en það
er geysilegt ójafnvægi milli þeirra
sem framleiða og selja gjaldeyri.
Þetta getur ekki gengið upp,“ sagði
Jón Páll ennfremur.
Á fundinn mættu m.a. fulltrúar
VSl og Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna, ásamt aðilum fisk-
vinnslunnar, og var niðurstaða
þeirra um afkomuna áþekk í veiga-
mestu atriðunum.
„Það kom fram tillaga um að
gefast upp, en hún var ekki
samþykkt. Ég var t.d. á móti henni,
því að það myndu of margir menn í
Reykjavík fagna því ef við gæfumst
upp. Það hefur verið taprekstur, en
nú tekur steininn úr,“ sagði Einar
Oddur.
Fundarmenn voru sammála um
að ekki næðist jafnvægi í málunum,
fyrr en gjaldeyrir yrði gefinn frjáls,
„eins og allt annað'1, svo vitnað sé í
orð Einars Odds.
„Við vitum þegar hvað skeður
þegar óskhyggja ræður skráningu
gengisins. Hvað varðar hugmyndir
um lokanir, þá gætu bankarnir hæg-
lega orðið fyrri til. Lokanir þýða
einfaldlega dauðadóm fyrir viðkom-
andi sjávarpláss," sagði Einar
Oddur.
En ástandið er ekki bara slæmt á
Vestfjörðum. Á Austfjörðum hafa
ntenn sömu sögu að segja.
„Mér líst bara illa á stöðuna.
Frystingin er rekin með stórum
halla, en við gefumst seint upp og ég
held að húsin hér fyrir austan séu
hvorki betur eða verr stödd en
annars staðar," sagði Magnús
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Eskifjarðar í samtali
við Tímann.
Hann benti þó á að menn væru við
það að gefast upp og ástandið mætti
því ekki lengi vera óbreytt.
Fiskvinnslumenn tala sumir um
að það sé aðeins dagaspursmál
hvenær fiskvinnslan stöðvast, en
fleiri benda þó á að það séu í raun
bankarnir sem ráða hve lengi rek-
sturinn getur haldið áfram. -SÓL
Öryrki rekur ástand sitt til ígerðar,
sem hann fékk eftir einfalda skurðaðgerð:
Ríkið og læknar voru
sýknaðir í borgardómi
Borgardómur hefur sýknaö ríkissjóö, Landspítalann og Pál
Gíslason, yfirlækni, af kröfum Elsu Einarsdóttur, sem höfðaði mál
vegna þess að hún telur að gáleysi og vanræksla eftir skurðaðgerð,
sem Páll Gíslason framkvæmdi, hafi valdið því að hún er nú 75%
öryrki og bundin hjólastól. Segir lögmaður hennar, að ástand hennar
hafi versnað síðan síðasta örorkumat var gert. Dómi borgardóms
verði ekki unað heldur áfrýjað til Hæstaréttar.
Elsa var skorin upp hinn 3. febrúar
1983, því að hún fann til doða eða
kulda í fingrum og tám. Aðgerðin er
að mati lækna tiltölulega einföld, en
taugahnoð, sem valda æðasamdrætti
og hafa áhrif á hvort manni er kalt
eða hlýtt, voru numin brott. Eftir
aðgerðina kvartaði Elsa sáran undan
verkjum, en ígerð í skurðsárum
fannst ekki fyrr en 22. febrúar, - 19
Tillaga minnihlutans um 42 þús-
und króna lágmarkslaun borgar-
starfsmanna var tekin til umfjöllunar
á borgarráðsfundi í gær. Menn biðu
með töluverðri eftirvæntingu eftir
fundinum. Talið var að Magnús L.
Sveinsson, forseti borgarstjórnar,
mundi taka forystu fyrir tillögunni
en þær vonir brugðust.
„Það voru mikil vonbrigði. Talið
var að Magnús mundi stuðla að þvf
að tillagan yrði samþykkt en hann
var ekki vígreifur á fundinum, frekar
dögum eftir að aðgerðin var
framkvæmd. Telur lögmaður Elsu
að kvörtunum hennar hafi verið illa
sinnt og að rannsókn hafi þegar í
stað átt að beinast að hugsanlegri
ígerð. í stað þess hafi verið athugað
hvort Elsa hefði fengið lungnabólgu
eða þvagfærasýkingu.
Elsa fer fram á 3.425.000 króna
bætur vegna tekjutaps, lyfja- og
daufur í dálkinn," sagði Alfreð Þor-
steinsson, sem sat fundinn fyrir
Framsóknarflokkinn, í samtali við
Tímann. Magnús hafði áður lýst yfir
stuðningi við tillöguna, sagðist
reyndar hafa verið á undan minni-
hlutanum með sams konar hug-
myndir.
Lyktir málsins urðu þær að borg-
arstjóri vísaði tillögunni til Starfs-
mannafélags Reykjavíkur til um-
sagnar. Það er því búið að salta hana
í bili. JIH
ferðakostnaðar og 6.200.000 króna
miskabætur að auki. Lögmaður
hennar rökstyður kröfurnar svo, að
hún hafi ekki verið „vanheilli en
almennt gerist" þegar hún kom á
sjúkrahúsið, en farið þaðan mikill
sjúklingur. Hún hafi orðið fyrir sárs-
auka, óþægindum og miklum kostn-
aði vegna málarekstursins. Þau
hjónin hafi slitið búskap, heimilið
hafi verið leyst upp, Elsa hafi þurft
að flytja í annað byggðarlag og þar
lent í húsnæðisvandræðum. Hún búi
nú við þröngan kost með einu barna
sinna.
Fjórir læknar og Læknaráð íslands
taka undir skoðun Elsu, að örorka
hennar sé afleiðing ígerðarinnar. En
þrír dómkvaddir læknar komast að
þveröfugri niðurstöðu og byggir
dómur borgardóms á áliti þeirra. í
þeirra matsgerð er lögð áhersla á, að
um sé að ræða „læknisfræðilega
óútskýrt ástand" og þeir geti ekki
fundið þeirri fullyrðingu stoð að
sýkingarnar sjálfar hafi valdið núver-
andi ástandi Elsu Einarsdóttur og
hafi ekki fundið þess dæmi í læknis-
fræðilegum heimildum að bráð bakt-
eríusýking sem valdi ígerð geti vald-
ið þeim sjúkdómi sem Elsa er haldin.
Vegna þessara sönnunargagna tel-
ur dómurinn að ekki sé nægilega
leitt í ljós, að skaðabótakrafa Elsu
eigi við rök að styðjast og því séu
stefndir sýknir af kröfunni. Var
málskostnaður felldur niður, en
gjafsóknarkostnaður Elsu Einars-
dóttur kr. 665.210 greiddur úr ríkis-
sjóði.
Dóminn kváðu upp Friðgeir
Björnsson, yfirborgardómari, og
meðdómendur Sigurður Guðmunds-
son, læknir, og Ragnhildur Ben-
ediktsdóttir, aðalfulltrúi. þj
Fjallað um tillögu minnihlutans um 42 þúsund
króna lágmarkslaun á borgarráðsfundi:
Magnús L. daufur
Búist við miðlunartillögu sáttasemjara í dag:
Verkfall út
þessa viku
Guölaugur Þorvaldsson, ríkissáttasenijari, og Guðmundur
Vignir Jósepsson, vararíkissáttasemjari, unnu hörðum höndum í
gær að mótun miölunartillögu í deilu vcrslunarmanna og
atvinnurekenda. Fastlega er gert ráö fyrir að deiluaðilum verði
kynnt tillagan síödegis í dag.
Að atlokinni framlagningu miðl-
unartillögu, sem í raun er ígildi
kjarasamnings með öllum viðkom-
andi ákvæðum, verður hún borin
undir atkvæði hjá félögum verslun-
armanna og atvinnurekendum.
Sáttasemjari ákveður í samráði við
samninganefndir deiluaðila, hve-
nær og með hvaða hætti atkvæða-
greiðsla um tiilöguna fer fram.
Verði miðlunartillagan felld er
ekki gott að vita hvernig framhaldi
mála verður háttað, en hinsvegar
kveða lög á um að sáttasemjara sé
heimilt að leggja fram eins margar
miðlunartillögur í deilunni og
þurfa þykir.
Hvemig svo sem mál þróast á
næstu dögum þykir sýnt að verkfall
verslunarfólks dragist fram á næstu
helgi a.m.k. Verslunarmenn hafa
ítrekað að ekki komi til greina að
aflétta verkfalli fyrren niðurstcður
úr atkvæðagrciðslu um miðlunar-
tillögu sáttasemjara liggja fyrir.
Ef raunin verður sú að miðlunar-
tillagan komi fram í dag, er talið
vera tæknilega unnt að greiða at-
kvæði um hana næstkomandi föstu-
dag og telja þau seinni part laugar-
dags. Hjá VR og Félagi verslunar-
og skrifstofufólks á Akureyri hefur
veriö rætt um að kynna tillöguna á
morgun.
Af hálfu atvinnurekenda greiðir
framkvæmdastjórn VSÍ og Vinnu-
málasambands samvinnufélaganna
atkvæði um miðlunartillöguna.
Samþykki verslunarmenn og
skrifstofufólk tillöguna er því
möguleiki á að verkfalli verði aflétt
á laugardag eða sunnudag. Verði
tillögunni hinsvegar hafnað verður
verkfalli fram haldið.
í löguni frá 1978 um sáttastörf í-
vinnudeilum segir að miðlunartil-
laga teljist felld ef minnst 50% af
greiddum atkvæðum eru á móti
henni, enda hafi minnst 35% at-
kvæðisbærra manna eða meira
greitt atkvæði. Sfðan scgir: „Á
móti hverjum cinum af hundraði,
sem tala greiddra atkvæða lækkar
niður fyrir 35%, þarf mótatkvæða-
fjöldinn að hækka um einn af
hundraði til að fella tillöguna. Ef
ekki hafa a.rn.k. 20% atkvæðis-
bærra nianna greitt atkvæði, telst
tillagan samþykkt. Þeir, sem vegna
fjarveru eða veikinda sannanlega
eru útilokaðir frá að neyta akvæðis-
réttar síns, teljast ekki atkvæðis-
bærir í þessu sambandi." óþh