Tíminn - 27.04.1988, Qupperneq 15
Miðvikudagur 27. apríl 1988
Tíminn 15
MINNING
Jens Guðbrandsson
frá Höskuldsstöðum
Fæddur 3. júní 1918
Dáinn 15. apríl 1988
í dag, 27. apríl, verður Jens mágur
minn borinn til hinstu hvíldar. Við
þau leiðarskil er mér ljúft og skylt að
minnast hans nokkrum orðum.
Andlát hans bar að með snöggum
og óvæntum hætti er hann var á ferð
um Húnavatnssýslu, staddur á bæn-
um Miðhópi í Víðidal í fjárskoðun á
vegum Sauðfjárveikivama ríkisins.
Jens var Dalamaður að uppruna,
fæddur á Jörfa í Haukadal, elstur í
hópi 6 systkina. Foreldrar hans voru
hjónin Guðbrandur Árnason á Jörfa
og Ingibjörg Daðadóttir frá Litla-
Vatnshorni.
í þennan systkinahóp hefur dauð-
inn vegið hastarlega þessa vordaga.
Þann 21. mars s.l. andaðist systir
hans Ólöf Kristbjörg. Þau fjögur
sem eftir lifa eru: Árni búsettur á
Akranesi, 2. Guðbjörg fyrrv. hús-
freyja á nýbýlinu Ási í Laxárdalshr.
er hún reisti ásamt manni sínum
Hermanni Jóhannessyni frá Saurum.
Þau hafa nú látið af búskap og flutt
til Reykjavíkur. 3. Daði er rekur
húsgagnaverkstæði í Kópavogi,
kona hans er Eygló Halldórsdóttir
úr Reykjavík. Yngst er Svana er býr
í Kópavogi, gift Ásmundi Þorláks-
syni.
Haukadalurinn er fögur sveit og
sumarhlý, fjöllin há og rismikil með
klettaþiljum hið efra er skýla. vel
gróðri og manniífi byggðarinnar.
í mynni dalsins liggur Haukadals-
vatnið, spegilskyggnt á kyrrum
kvöldum, veiðisælt, og eykur enn á
sumarrómantík Dalbúa. Á Jörfa
höfðu forfeður hans búið allt frá
árinu 1810. Jörðin mun vera víðlend
og kostamikil fjárjörð, en nokkuð
erfið til smölunar. Aðdrættir munu
og hafa verið erfiðir áður en vegir
voru lagðir.
Þeir feðgar ráku gott og arðsamt
fjárbú á Jörfaárum sínum, talaði
Jens oft um það við mig hve gaman
hefði verið að búa með fé á Jörfa
áður en fjárpestimar fóru að herja á
stofninn. Féð var hraust og harðgert
beitarfé, er sótti stíft til fjalls á öllum
tímum árs, þurfti lítið heyfóður í
sæmilegum árum en skilaði oftast
góðum arði. Jens lauk búfræðinámi
frá Hvanneyri 19 ára gamall.
Vorið 1940 selur faðir hans Jörfa
og kaupir Höskuldsstaði í Laxárdals-
hreppi. Þar var annað góðbýlið til og
vel í sveit sett. Líklegast þykir mér
að sú ráðabreytni hafi mikið komið
til af því hve erfitt var með flutninga
að og frá búi vegna vegaleysis, en
þarna voru þau komin í nágrenni
Búðardals sem þá var orðinn versl-
unarmiðstöð héraðsins.
Um þetta leyti mun Jens hafa
tekið við búinu að hluta til og stóð
svo meðan þau sátu Höskuldsstaði
eða til ársins 1966 að enn var breytt
til. Jens varþáenn maðureinhleypur
en foreldrar hans gerðust öldruð og
annað kom og til. Hann hafði þá um
nokkur ár unnið mikið utan heimilis,
aðallega við múrverk og annað er að
byggingum laut. Búðardalur var á
þeim árum í hraðri uppbyggingu.
Hann hafði þá í félagi við Daða
bróður sinn lokið byggingu íbúðar-
húss í Kópavogi, seldi því jörð og bú
og flutti þangað suður. Fyrstu ár sín
þar starfaði hann hjá Fóðurblönd-
unni h.f. eða þar til hann réðist til
Tilraunastöðvarinnar að Keldum en
þar vann hann til lokadægurs, og er
mér kunnugt um, að hann naut þar
trausts yfirmanna sinna.
Starfi því fylgdu mikil ferðalög,
fór hann víða um sveitir að líta eftir
heilbrigði sauðfjár. Á þessum ferð-
um kynntist hann vel landi sínu,
fólki og fé og átti frá þeim margar
góðar minningar.
Það má því segja, að tengslin við
landbúnaðinn hafi aldrei að fullu
rofnað, þó búsetan flyttist úr sveit í
borg.
Flest eða öll vor fór hann vestur í
Dali og vann við sauðburð á stórbúi
vina sinna og sveitunga Magnúsar og
Elínar á Hrútsstöðum. í það fór stór
hluti af sumarfríinu, en í það var
ekki horft þegar skyldan bauö. Það
var ekki til siðs hjá hans kynslóð í
sveitinni að taka sér marga frídaga,
og það lífsviðhorf fylgdi honum inn
fyrir borgarmörkin.
Á Dalaárunum gegndi hann ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir sveit sína.
Sat um skeið í hreppsnefnd Laxár-
dalshrepps, í stjórn Kf. Hvamms-
fjarðar, sá um reikningshald fyrir
Ræktunarsamband vestur Dala svo
fátt eitt sé nefnt.
Árið 1968 hóf hann sambúð með
systur minni Ástu Ólafsdóttur frá
Þórustöðum í Bitru sem þá var ung
ekkja með tvö börn. Teljum við
venslafólk að það hafi verið vel
ráðið af beggja hálfu. Þau eignuðust
saman tvö börn, Brynjólf Bj arka, nú
17 ára, og Ingibjörgu nú 15 ára.
Þeirra missir er þvi mikill. Auk þess
ólust upp hjá þeim börn Ástu af
fyrra hjónabandi, Ólafur Friðmar
og Danfríður Kristín, sem nú hafa
bæði stofnað sín eigin heimili.
Jens heitinn var maður í hærra
lagi, fríður og liðlega vaxinn. kvikur
á fæti og göngugarpur mikill fram
eftir öllum aldri, en aldurinn bar
hann með afbrigðum vel, hafði jafn-
vel unglegt yfirbragð sem furðu má
kalla, þegar til þess er litið hver
vinnuþjarkur hann var og óhlífinn
við sjálfan sig.
Kröfugerðarmaður var hann eng-
inn nema gagnvart sjálfum sér.
Vinnulaun hans held ég hafi ekki
alltaf verið í samræmi við þau afköst
sem hann skilaði, en honum hélst vel
á því er hann fékk í hendur, var
hagsýnn en þó rausnarlegur og góður
heimilisfaðir.
Hvarvetna sem hann fór naut
hann trausts samferðarmanna sinna.
Slíks er gott að minnast við ævilok.
Elsku Ásta mín. Við á Sandhólum
og Þórustöðum vottum þér og börn-
unum innilega samúð í ykkar mikla
missi, um leið og við þökkum allar
yndislegu stundirnar á heimili ykkar
og utan þess, þær minningar eru
ljúfar og geymast.
Sömuleiðis færum við systkinum
hans og öðrum vandamönnum sam-
úðarkveðjur okkar. Hinum þökkum
við samfylgdina og blessum minn-
ingu hans.
Kjartan Ólafsson
í dag verður borinn til moldar í
Fossvogskirkjugarði Jens Ólafur
Guðbrandsson Helgubraut 31 Kópa-
vogi, starfsmaður Sauðfjárveiki-
varna á Keidum í meira en áratug.
Hann dó við störf út á landi að
loknum löngum vinnudegi 15. apríl
s.l. Andlát hans bar brátt að og var
því mikið áfall ástvinum hans og
samstarfsmönnum. Ekki var vitað til
þess að hann hefði kennt sér nokkurs
meins. Hann var heilsuhraustur alla
tíð og vel á sig kominn. Það er
huggun fyrir okkur sem eftir lifum,
að hann fékk hægt andlát. Hann
virðist hafa dáið í svefni og án
óþæginda. Banameinið var krans-
æðastífla. Jens var Dalamaður,
fæddist 3. júní 1918 á Jörfa í
Haukadal. Foreldrar hans voru
Guðbrandur Árnason bóndi þar og
síðar á Höskuldsstöðum í Laxárdal
og kona hans Ingibjörg Daðadóttir
Daðasonar bónda á Skinþúfu, síðar
á L-Vatnshorni í Haukadal. Jens var
elstur systkinanna. Næst elst var
Ólöf f. 2. maí 1919, sem bjó í
Reykjavík allan sinn búskap. Hún
dó aðeins 3 vikum á undan Jens.
Maður hennar var Ólafur Theodórs-
son úr Saurbæjarhreppi í Dalasýslu,
húsvörður hjá Eimskip. einnig
látinn. Guðbjörg Sigríður var þriðja
í röðinni f. 11. júlí 1920. Hún byggði
ásamt manni sínum Hermanni Jó-
hannessyni frá Saurum í Laxárdal
nýbýlið Ás úr Iandi þeirrar jarðar.
Næstur í systkinahópnum var Árni f.
7. júní 1922 verkamaður á Akranesi
og nú í seinni tíð í Borgarnesi og á
Mýrum. Daði húsgagnasmiður er
næst yngstur systkinanna fæddur 25.
okt. 1924. Kona hans er Eygló
Halldórsdóttir úr Reykjavík. Daði
og Eygló voru næstu nágrannar Jens
og fjölskyldu hans á Helgubrautinni
í Kópavogi. Þeir bræður byggðu þar
raðhús hlið við hlið. Yngst systkin-
anna var Brynhildur Svana fædd 16.
júní 1929 búsett í Reykjavík en áður
á Akranesi. Maður hennar er Ás-
mundur Þorláksson frá Akranesi
bílstjóri hjá M.S. Reykjavík.
Jens gekk í Bændaskólann á
Hvanneyri og tók við búi á Jörfa
1940 er foreldrar hans keyptu jörð-
ina Höskuldsstaði og fluttu þangað.
Hann fór síðan til foreldra sinna og
vann við bú þeirra allt þar til þau
fluttu suður 1966. Alla tíð meðan
Jens var fyrir vestan og einnig eftir
að hann kom suður vann hann mikið
að múrverki oft með Hermanni
mági sínum á Ási. Jens sat um skeið
í hreppsnefnd Laxárdals einnig var
hann kosinn í stjórn ræktunarsam-
bandsins og lengi var hann refaskytta
sveitarinnar. Árið 1968 stofnaði
hann heimili að Álfheimum 48 í
Reykjavík, hafði þá fundið lífsföru-
naut ágæta konu Ástu Kr. Ólafsdótt-
ur frá Þórustöðum í Bitru. Ásta
hafði verið gift Brynjólfi Kristjáns-
syni vegaverkstjóra frá Hólslandi í
Eyjahreppi en misst hann sviplega
úr bráðum sjúkdómi frá 2 ungum
börnum. Jens gekk þeim í föðurstað
og reyndist þeim frábærlega. Þau
eru Ólafur Friðmar f. 12. maí 1956,
sendibílstjóri hjá Sól hf. í Reykjavík
og Danfríður Kristrún f. 23. sept-
ember 1958. Bæði hafa þau stofnað
heimili og komist vel áfram. Börn
þeirra Jens og Ástu eru tvö Brynjólf-
ur Bjarki f. 14. júní 1971 nemi í
Iðnskólanum og Ingibjörg f. 14. maí
1973 nemi í Þinghólsskóia í Kópa-
vogi.
Seinni part ársins 1977 réðst Jens
til Sauðfjárveikivarna. Áður hafði
hann starfað um skeið hjá Fóður-
blöndunni hf. og Húsasmiðjunni.
Það var sá mæti maður Jón Krist-
jánsson frá Kjörseyri, sem kom
okkur í kynni við Jens og taldi að
hann myndi duga okkur vel sem
eftirmaður sinn. Jón reyndist
sannspár. Jens fékk almanna orð
fyrir hæfileika sína. Hann var
óvenjulega glöggur á fé og þannig
skapi farinn og laginn að hann náði
samvinnu við flesta menn, sem hann
þurfti að skipta við í starfi sínu en
það var m.a. ferðalög um landið og
skoðun á sauðfé vegna varna gegn
smitsjúkdómum. Öll störf sem hon-
um voru falin leysti hann með kost-
gæfni. Allt stóð hjá honum eins og
stafur á bók. Sæti þessa góða drengs
verður vandfyllt. Fyrir þetta vil ég
þakka um leið og ég flyt ástvinum
hans samúðarkveðjur.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á
afmælis- og eða minningar-
greinum í blaðinu, er bcnt
á, að þær þurfa að bcrast
a.m.k. tveim dögum fyrir
birtingardag. Þær þurfa að
vera vélritaðar.
REYKJAVÍK
Aðalfundur
Iðju, félags verksmiðjufólks verður haldinn á Hótel
Lind, Rauðarárstíg 18, miðvikudaginn 4. maí n.k. kl.
17:00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ákvörðun um upphæð félagsgjalda.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Reikningar Iðju liggja frammi á skrifstofu félagsins.
Iðjufélagar fjölmennið
Stjórn Iðju
Valdimar Stefánsson
murari
lést 25. apríl í hjúkrunarheimilinu Skjól.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Guðlaug Eiríksdóttir
Þverspyrnu, Hrunamannahreppi
sem lést á sjúkrahúsi Suðurlands 24. apríl verður jarðsett frá
Hrunakirkju laugardaginn 30. apríl kl. 14.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn
t
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
Soffíu Ásgeirsdóttur
frá Fróðá
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 29. apríl kl. 13.30.
Stella Halldórsdóttir Snorri W. Sigurðsson
Smári Halldorsson María Högnadóttir
Soffía U. Björnsdóttir Kristján Baidursson
og barnabörn
t
Útför föður okkar, tengdaföður og afa
Friðriks Guðmundssonar
fyrrum blfreiðastjóra
Nesvegi 64, Reykjavík
fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 28. apríl n.k. kl. 13.30.
SigríðurFriðriksdóttir Allen
Halldór Friðriksson
Erla Friðriksdóttir
Guðriður Friðriksdóttir
Árni Friðriksson
RichardG. Allen
Villa Gunnarsdóttir
Óskar Guðmundsson
Pétur Rafnsson
Liv Anna Kristoffersen
og barnabörn
t
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu samúð og vinarhug
og á einn og annan hátt heiöruðu minningu
Sigurjóns Sigurðssonar
Raftholti í Holtum
við andlát hans og útför
Hjalti Sigurjónsson og fjölskylda
Guðrún Sigurjónsdóttir og fjölskylda
Sigrún Sigurjónsdóttir
Hermann Sigurjónsson