Tíminn - 27.04.1988, Side 19

Tíminn - 27.04.1988, Side 19
Miövikudagur 27. apríl 1988 Tíminn 19 SPEGILL lllllllll llllllllllllllllllllUIIIIIIIIIIII llilimií Bestu hárgreiðslur kvikmyndanna ^ \Ti1 *ii linfn L/mym A Tr'i m nifior • i nyrri utgaf u Brigitte Bardot (litla myndin) var með síða, gullna lokka. Hún er líka sexí fyrirsætan með síða liðaða hárið við hlið hennar, - en nýtísku hárgreið- slumeistari hefur breytt hinni upphaflegu greiðslu Bardot eins og honum finnst að nútímakonan eigi að greiða sér Nú nýlega hafa komið fram nýjar útgáfur af hárgreiðslu kvikmynda- stjarna fyrri ára. Hvernig sem hárið er, - stuttklippt, í meðallagi eða sítt, - þá er hægt að stæla gömlu greiðslurnar með góðum árangri. Pað er hárgreiðslumeistarinn Bruno Dessange í New York, sem hefur byrjað á því að endurnýja gömlu hárgreiðslurnar. „Hárgreiðslufólk, - og þar á meðal ég" - segir Dessange,“er orðið þreytt á því að klippa konur eins og karla. Stutt hár er ágætt, en það passar ekki að hafa hárgreiðsl- una svo að segja eins fyrir bæði kynin." Síðan segir Dessange frá því hvernig jafnvel sé hægt að breyta stuttum drengjakolli, eins og Kim Novak var með á sínum tíma, í stutta og frísklega nútíma greiðslu. Við sjáum hér nokkrar myndir til skýringar máli hárgreiðslumeistar- Kim Novak (litla myndin) var með stuttan drengjakoll og greiddi hárið þétt að höfðinu. Ljóshærða módelið er líka stuttklippt, en með nýtískulegri greiðslu Jane Russell (litla myndin) hafði permanent í hárinu og greitt í lokka. Sýningardaman dökkhærða er líka með permanent og millisítt hár eins og Jane, - en hárið er greitt frjálslegar Veronica Lake (litla myndin) er enn minnisstæð mörgum, og ekki síst fyrir hina sérstæðu hárgreiðslu - sem huldi annað augað. Hér sýnir Dessange sína útfærslu á Lake-greiðslunni Nú er Cosby öldin önnur Fyrirmyndarfaðirinn Bill Cosby hefur alls staðar orðið vinsæll, ásamt fjölskyldu sinni og það nánast með ólíkindum. Gamanleikarinn Bill Cosby var í fyrra hæstlaunaði leikari í heimi, með yfir hálfan þriðja milljarð króna í tekjur. Þannig hefur það þó ekki alltaf verið. Bill, sem nú er 49 ára, man ósköp vel, þegar hann fékk 200 krónur á dag fyrir leik sinn og var alltaf hálfsvangur. Eina manneskj- an, sem ekki er orðlaus yfir allri velgengninni, er móðir hans, sem segir: -Bill hefur alltaf verið iðinn. Hann hefur unnið allan sólarhring- inn til að öðlast viðurkenningu. Strax sem strákur gaf hann í skyn, að hann ætlaði að verða eitthvað mikið. Sjálfri þykir mér vænst um velgengnina, en hugsa ekki svo mikið um peningana sem fylgja. Nefna má að sjálfur Sylvester Stallone hafði í tekjur í fyrra tíunda hluta tekna Cosbys og Eddie Murphy ekki nema 34. hluta. Tekjur Jane Fonda voru heldur rýrar, bara 640 milljónir. Andstætt móður sinni, kann Bill vel að meta hverja krónu, sem hann vinnur fyrir, ekki af því hann sé samansaumaður náungi, heldur man hann allt of vel þrengslin og nauðina heima hjá móður sinni í Fíladelfíu. Hann og systkini hans urðu að lifa á þeim fáu krónum, sem hún fékk " fyrir að þvo tuskurnar af ríka fólk- inu. Þess vegna gleymir hann ekki heldur, hvað hann var stoltur og glaður daginnsemhann kom heim og gat sagt við móður sína: - Jæja, nú þarftu aldrei framar að þvo þvotta, ég sé fyrir þér hér eftir. Nú þegar Bill er að nálgast fimmtugt, lítur hann gjaman í speg- ilinn og segir sem svo: -Ég botna ekkert í, hvað ég er orðin ellilegur. Hvaðan koma allar þessar hrukkur? Kannske ég hafi bara unnið of mikið? Hversu mikil sem vinnan hefur annars verið, hefur Bill reynt að láta hana aldrei bitna á fjölskyldu sinni, eiginkonunni Camillu og börnunum . fimm. Þau eiga ekki að búa við heimilisföður, sem má ekki vera að því að sinna þeim, bara af því hann er ríkur. Sjálfur leið hann fyrir fátækt móð- ur sinnar og auk þess á hann fjöl- skyldunni mikið að þakka. Hún er nefnilega fyrirmyndin að þáttunum, sem verða undantekningarlaust vin- sælir um allan heim: Fyrirmyndar- föðurnum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.