Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 6. maí 1988
Aðalfundur SH hófst í gær:
Tæplega milljón punda
tap á Bretlandsmarkaði
Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hófst á Hótel Sögu
í gær. Fundurinn var vel sóttur og voru fundarmenn á þriðja hundrað
víðs vegar að af landinu.
Jón Ingvarsson, stjórnarformaður SH, lagði fram skýrslu stjórnar,
og kom þar fram að verulegt tap hefði orðið á dótturfyrirtækinu
Icelandic Freezing Plants Ltd. í Grimsby og hefði tapið numið
980.000 sterlingspundum, þar af530.000 pund vegna rækjuviðskipta.
A öðrum stöðum varð hagnaður.
Tímamynd Gunnar
16,3% fram-
leiðsluaukning
Þannig nam hagnaðurinn af
rekstri Coldwater Seafood Co. í
Bandaríkjunum 970.000 dollurum,
þó að 7% samdráttur hefði orðið í'
sölu. Heildarframleiðsla frystihúsa
SH jókst um 16,3% frá árinu áður
og jókst heildarframleiðsla frysti-
togaranna um 58% frá fyrra ári.
Þorskframleiðsla dróst hins vegar
saman um 7,3%.
I skýrslu stjórnarformanns, kom
einnig fram að SH hefði flutt út 52%
af heildarútflutningi frystra sjávara-
furða frá íslandi á síðasta ári, og var
nánast hinn sami að magni til, en
verðmætaaukning var 7%
Útflutningur jókst um
94% til Japans
Af heildarútflutningi sölusamtak-
anna fóru 86.000 tonn, eða 93%, til
sex landa í þremur heimsálfum.
31.100 tonn fóru til Bandaríkjanna,
21.700 til Japans, 11.900 til
Bretlands, 7.800 til Sovétríkjanna,
7.300 til Frakklands og 6.200 til
Vestur Þýskalands. Útflutningur til
Bandaríkjanna dróst saman um 14%
milli ára, um 38% til Sovétríkjanna-
og um 20% til Bretlands. Hins vegar
jókst útflutningurinn til Japans um
94%. Japan varð því annað stærsta
viðskiptaland SH á síðasta ári.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
minnkaði heildarframleiðsla frysti-
húsa innan SH um 1.500 tonn, eða
8% og munar þar mestu um samdrátt
í framleiðslu loðnu og loðnuhrogna.
í ræðu sinni benti Jón á nauðsyn
þess að koma stjórn á gámaútflutn-
inginn og tók undir orð Kristjáns
Ragnarssonar, formanns LlÚ. Auk
þess sagði Jón að skipulagslaus út-
flutningur hefði slæm áhrif á rekstur
fyrirtækisins í Bretlandi.
Útflutningsleyfin
f>á fór Jón inn á útflutningsleyfi
Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráð-
herra.
„Þessi ákvörðun (að veita sex
nýjum aðilum útflutningsleyfi,
innsk. blm.) mæltist að vonum illa
fyrir hjá heildarsamtökum framleið-
enda. Það sem einkum vakti athygli
varðandi leyfisveitingarnar var
þetta. I fyrsta lagi var sölusamtökun-
um sem í eru yfir 90% framleiðenda
á frystum fiski, ekki gefið tækifæri til
að fjalla um málið áður en leyfin
voru veitt. í öðru lagi ráða þessi
aðilar sem leyfin fengu aðeins yfir
magni sem er innan við 1% af
framleiðslu frystra botnfiskafurða
landsmanna. í þriðja lagi er ákvörð-
un ráðherra tekin gegn vilja alls
meginþorra framleiðenda og lítt
skiljanleg i ljósi þess árangurs, sem
Frá aðalfundi SH sem lýkur í dag.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, sagði
á aðalfundi fyrirtækisins í gær, að
það virtist vera komið í tísku að tala
illa um fiskvinnsluna.
íslensku sölusamtökin hafa náð í
markaðsstarfsemi í Bandaríkjunum
undanfarna áratugi. Loks vekur það
athygli að viðskiptaráðherra skuli
taka ákvörðun um svo veigamikla
breytingu á því fyrirkomulagi sem í
gildi hefur verið til fjölda ára með
góðum árangri, aðeins nokkrum vik-
um áður en þessi málaflokkur var
fluttur til utanríksiráðuenytisins."
Jafnvægisleysi
í efnahagsmálum
Jón benti á, að nýir framleiðendur
hafi áallt fengið frjálsan aðgang að
samtökunum, en nú þurfi samtökin
að endurskoða það fyrirkomulag til
að mæta samkeppni í útflutningi til
Bandaríkjanna.
Þá fó>- Jón inn á vanda fiskvinnsl-
unnar og deildi hart á ríkisstjórnina
fyrir jafnvægisleysi í peninga- og
efnahagsmálum og ákveðni í fast-
gengisstefnu.
Rógur um fisk-
vinnslu í tísku
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, fór
næstur í ræðustól og sagði þá m.a.
að það virtist nánast vera komið í
tísku að tala illa um fiskvinnsluna.
Hann sagði að margir teldu sig hafa
leyfi til að leggja fiskvinnsluna í
einelti og sagði það þjóðhættulega
iðju.
„Hvers vegna kemur nú enn og
aftur upp þessi neikvæða umræða
um fiskvinnsluna? Það er vegna
þess, að þjóðin lifir af henni og gerir
því til hennar meiri kröfur en nokk-
urrar annarrar atvinnugreinar í
þessu landi. Menn koma saman hér
og þar og ræða um vanda fiskvinnsl-
unnar og nauðsyn þess, að halda
ráðstefnur um aukna framleiðni í
fiskvinnslunni, um nauðsyn tækni-
breytinga í fiskvinnslunni og guð má
vita hvað í fiskvinnslunni. En hvað
gera þessir sömu sérfræðingar í því
að ræða um aukna framleiðni hjá
hinu opinbera, í bankakerfinu, í
þjónustugeiranum, í versluninni? Er
ekki kominn tími til að við fisk-
vinnslumenn höldum ráðstefnu um
nauðsyn þess að auka framleiðni alls
staðar í kringum okkur líka?“ sagði
Friðrik í ræðu sinni.
Vonbrigði með samninga
Friðrik sagðist hafa orðið fyrir
vonbrigðum með að fiskvinnslufólk
hefði ekki náð fram skattfríðindum
í kjarasamningum, en sagðist trúa
að innan tíðar yrði það aftur eftirsótt
að vinna við fiskvinnslu hér á landi
og endaði á því að hvetja fundar-
menn til að hefja fiskvinnsluna aftur
til virðingar hér á landi.
Aðalfundinum verður framhaldið
í dag og lýkur í kvöld. -SÓL
Kraftaverk
gerast enn
„Fundur í framkvæmda-
stjórn vcrkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins, haldinn mið-
vikudaginn 4. maí 1988, lýsir
yfir fullum stuðningi við þá
meginkröfu Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur að lægstu
laun séu ekki undir 42 þúsund
krónum á mánuði. Jafnframt
samþykkir fundurinn að efna
til kjaramálaráðstefnu laugar-
daginn 14. maí nk.“
Er þetta ekki fullseint í rass-
inn gripið, - nú þegar búið er
að semja og svona?
Rúmfrek ríkisstjórn
Á flóamarkaði Þjóðviljans
birtist eftirfarandi auglýsing,
sem vafalaust er beint til Jó-
hönnu Sigurðardóttur, félags-
málaráðherra.
„Vegna ríkisstjórnar Þor-
steins Pálssonar vantar okkur
lítið, íbúðarhæft húsnæði á
Vatnsendahæð, sumarbústað-
ur kæmi vel til greina. Erum á
götunni.“
Frægt tóbaksnef.
Gömlu nefin
gleymast ei
Verkföll lýsa innri manni.
Sigurður Þorsteinsson var einn
að vinna á ESSO bensínstöð-
inni í Borgarnesi og afgreiddi
ferðalanga ekki um annaö en
bensín. Hann vísaði mörgu
ferðafólki frá, sem var á leið í
sumarbústaði. Blaðið Borg-
firðingur tók þennan staðfasta
verkfelling tali og spurði, hvort
hann hefði ekki freistast til að
gera undanþágur og afgreiða.
„Nei,“ svarar Sigurður Þor-
steinsson. „Ekki nema bara
þegar gamlir menn hafa komið
af dvalarheimilinu og beðið
um neftóbaksdós. Það er eina
undantekningin, og það hefi*-
verkfallsvörðum verið tilkynnt
um.“
Flugmálafélag íslands:
Meistaramót
ívélflugi
í sumar, nánar tiltekið 1. og 2. júlí, mun Flugmálafélag íslands,
standa fyrir Norðurlandameistaramóti í vélflugi, þess fyrsta sem
haldið er hér á landi, og fer það fram á Helluflugvelli.
Meistaramótið er haldið á hverju
ári og hafa Noregur, Danmörk,
Svíþjóð og Finnland skipst á um að
halda mótið fram til þessa, en nú
bætist ísland í hópinn. Mótið er hið
40. í röðinni og jafnframt fyrsta
fjölþjóðlega vélflugmótið sem hald-
ið er á íslandi.
Keppt verður eftir alþjóðlegum
keppnisreglum FAI og skiptist
keppnin í tvo hluta. Sá fyrri, flug-
leiðsöguhlutinn, felst í flugáætlunar-
gerð og leiðarflugi og eru lagðar
ýmsar þrautir fyrir keppendur, t.d.
að bera kennsl á ýmis kennileiti. Sá
síðari, lendingarhlutinn, felst í fjór-
um tegundum marklendinga, bæði
með og án hreyfiafls.
Keppendur eru þrír frá hverju
Norðurlandanna og er keppt milli
einstaklinga og sveita.
Samhliða Norðurlandameistara-
mótinu er einnig keppt um íslands-
meistaratitilinn, Shellbikarinn, og
verður sú keppni einungis milli ís-
lensku keppandanna.
íslenska liðið skipa þeir Almar
Sigurðsson, Jón E.B. Guðmunds-
son, Orri Eiríksson og til vara er
Ágúst Ögmundsson. Þjálfari er Otto
Tynes og liðsstjóri Jón Grímsson.
-SÓL
Arekstrar
í hálkunni
Snjókoman í gærmorgun kom
flatt upp á íbúa suðvesturhorns-
ins og í hálkunni í Reykjavík
urðu 16 árekstrar, sem lögregla
hafði afskipti af. Enda margir
búnir að rífa vetrardekkin undan
bílum sínum, því að fimm dagar
eru liðnir, síðan bannað var að
aka á nagladekkjum.
Eftir hádegi voru sex árekstrar
tilkynntir til lögreglu, en þá var
hálka horfin af götum og engan
snjó að sjá nema í fjöllum. Tvö
minniháttar slys urðu í umferð-
inni í gær. þj
Brunamálastofnun ríkisins:
OPID HÚS HJÁ
SLÖKKVILIÐUM
Opið hús verður hjá slökkviliðum
landsins á morgun. Tilefnið er að
kynna almenningi störf slökkviliða
og sýna notkun á tækjabúnaði þeirra
eftir því sem við verður komið.
Ý msar uppákomur verða hj á sunt-
um slökkviliðanna og einnig fræðsla.
Unnið hefur verið að myndasam-
keppni er varðar slökkviliðin í 1., 2.
og 3. bekk grunnskóla víða um
landið. Viðurkenningar fyrir bestu
myndirnar verða afhentar hjá við-
komandi slökkviliði þennan dag.
Stefnt verður að því að hafa einn
kynningardag árlega hjá slökkvilið-
um landsins í framtíðinni og einnig
reglubundna fræðslu í brunavömum
í grunnskólum í samráði við mennta-
málayfirvöld.