Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn Föstudagur 6. maí 1988 Samvinnuskólinn Bifröst Undirbúningsnám á Bifröst Frumgreinadeild Samvinnuskólans veitir undirbúning fyrir rekstrarfræðanám á há- skólastigi. Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á fram- haldsskólastigi án tillits til námsbrautar, t.d. í iðn-, vél-, verkmennta-, fjölbrauta-, mennta-, fiskvinnslu-, búnaðar-, sjómanna- eða verslunarskóla o.s.frv. Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvu- greinar, enska, íslenska, stærðfræði, lög- fræði, félagsmálafræði og samvinnumál. Námslýsing: Áhersla lögð á sjálfstæð, raun- hæf verkefni, auk fyrirlestra og viðtalstíma o.fl. Námstími: Einn vetur, frá september til maí. Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir, skólaheimili, félagsaðstaða og mötuneyti á Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.s.frv. Kostnaður: Fæði, húsnæði, þjónusta og fræðsla áætluð um 32.000,- kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur. Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skóla- stjóra Samvinnuskólans á Bifröst fyrir 10. júní. Umsókn á að sýna persónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og uppiýsingar um fyrri störf. Ekki sérstök umsóknareyðublöð. Veitt er innganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Samvinnuskólinn á Bifröst, 311 Borgarnesi, sími: 93-50000. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Óskum að ráða fræðslustjóra frá 1. júlí 1988. Æskileg menntun: Almenn hjúkrunarfræði með nám og/eða reynslu í hjúkrunarkennslu. Starfið gerir kröfur til samskipta- og skipulagshæfileika. Umsóknarfrestur er til 1. júní n.k. Um er að ræða 100% starf, vinnutími frá 08.00- 16.00 virka daga. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri kl. 13.00- 14.00 alla virka daga. Óskum að ráða aðstoðarmann á Meinafræði- deild í 40% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veitir yfirlæknir Meinafræðideildar. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 96-22100. Útboð Rafveita Hafnarfjarðar óskar eftir tilboðum í 3x1900 m af pex-einangruðum jarðstreng fyrir 132 kv með 300 mm2 alleiðara. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Rafveitu Hafn- arfjarðar gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Rafveitustjóra fimmtudag- inn 19. maí 1988 kl. 11.00 Rafveita Hafnarfjarðar Framkvæmdir viö lengingu hafnargarðsins. Tímamynd: ÖÞ Unnið að hafnarframkvæmdum á Sauðárkróki: 60 metra lenging á hafnargarðinum Frá fréttaritara Tímans, Erni Þórarinssyni, Fljótum. Nú er unnið að miklum fram- kvæmdum við höfnina á Sauðár- króki. Þar er ætlunin að lengja garðinn sem skýlir höfninni unt allt að 60 metra, en við það vonast menn til að aðstaðan í höfninni lagist til mikilla rnuna en þar er oft mjög ókyrrt í norðanátt og skip stundum legið undir skemmdum af þeim sökum. Vinna við þessar framkvæmdir hófst skömmu eftir áramót og var þá ekið tæpum 30 þús. tonnum af grjóti utan af Skaga til Sauðárkróks. Nú fyrir skömmu var síðan byrjað að lengja hafnargarðinn og er efni í hann sótt yfir í Hegranes en grjótinu Mikil aukning hefur verið á skrán- ingu námsmanna hjá atvinnumiðlun- inni undanfarin ár, en síðasta sumar skráðu tæplega 650 námsmenn sig og af þeim fengu 343 vinnu í gegnum atvinnumiðlunina, ýmist allt sumar- ið eða í styttri tíma. Að sama skapi fjölgaði skráningu atvinnurekenda hjá miðluninni á síðasta ári um tæpan helming, en auk þess voru atvinnutilboð fleiri hjá hverjum at- vinnurekenda, eða að meðaltali þrjú. Fjölbreytt störf eru að jafnaði í boði, bæði hvað varðar lengd vinnu- tíma og tegund starfa, en algengust eru þó störf á skrifstofum, sölu og lagerstörf, mannvirkjagerð, af- sem beðið hefur á hafnarsvæðinu síðan í vetur, síðan hlaðið utan á garðinn. Það er Króksverk hf. sem annast þessa efnisflutninga sem skapað hafa vörubifreiðaeigendum í héraðinu verulega atvinnu á tíma sem oft áður hefur verið ákaflega daufur fyrir þá stétt. Að sögn Harðar Ingimarssonar formanns hafnarstjórnar á Sauðár- króki fer umferð skipa um Sauðár- krókshöfn sívaxandi og er ekki óal- gengt að þar fari 18-20 skip um á mánuði, og er nú svo komið að mikil nauðsyn er á auknu viðleguplássi í höfninni og verður stefnt að því á næstunni að bæta úr því. Vonast Sauðkrækingar til að mæta skilningi greiðslustörf, útkeyrslustörf og ým- iskonar þjónustustörf, auk skamm- tímaverkefna, framtíðarstarfa og starfa þar sem sérþekkingar er krafist. Atvinnumiðlun námsmanna er rekin af Stúdentaráði Háskóla íslands, en auk SHÍ stendur Banda- lag íslenskra sérskólanema, Félag framhaldsskólanema og Santband ís- lenskra námsmanna erlendis að miðluninni. Aðsetur Atvinnumiðlunar námsmanna er á skrifstofu Stúdenta- ráðs Háskóla íslands, í húsnæði Félagsstofnunar stúdenta og er hún opin milli kl. 9 og 18, síminn er 621080 og 621081. fjárveitingavaldsins á næstu misser- um vegna þessa nauðsynjamáls. Þess má geta að á fjárlögum þessa árs er veitt 20 millj. króna til hafnar- framkvæmda á Sauðárkróki. Studia Islandica: irsk áhrif á Islandi Út er komin bókin, sem á ensku heitir Gaelic Influence in Iceland. Historical and Lit- erary Contacts. A Survey og Research (Keltnesk áhrif á ís- landi. Söguleg og bókmennta- leg tengsl. Yfirlit rannsókna), og er hún eftir Gísla Sigurðsson M.Phil. Bókin er 46. bindið í ritröðinni Studia Islandica, sem gefin er út í samvinnu Bókmenntafræðistofnunar Háskóla íslands og Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Bókin er 172 bls. prentuð í Prenthúsinu. í bókarkynningu segir m.a.: „Af efnisþáttum má nefna vit- neskju og kenningar um kynni víkinga af írum, Kelta á ís- landi, blóðflokkarannsóknir, keltnesk áhrif og keltnesk minni í einstökum bókmennta- verkum svo sem Fornaldarsög- um, Eddukvæðum, Snorra- Eddu. fslendingasögum og kenningar um keltnesk áhrif í dróttkvæðum." Höfundurinn, Gísli Sigurðs- son, stundaði nám við H.Í., í Kanada og á írlandi og hefur í vetur veitt forstöðu sérstakri deild í íslenskum fræðum við Manitóbaháskólann í Kanada. - BG Atvinnumiðlun námsmanna: 100 námsmenn komnir á skrá Atvinnumiðiun námsmanna tók til starfa 2. maí síðastiiðinn og verður hún starfrækt í maí og júní, eins og undanfarin ár, en þetta er ellefta starfsár hennar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.