Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 9
Föstudagur6. maí 1988 Tíminn 9 Þórarinn Þórarinsson: Semja Rússar og Þjóðverjar um takmörkun hefðbundinna vopna? INNAN fárra vikna munu þeir Reagan og Gorbatsjov hittast í Moskvu og verður það í fyrsta sinn sem Reagan kemur til Sovétríkjanna. Fyrirhugað hefur verið, að þeir undirriti þar samning um helmingsfækkun langdrægra eldflauga, búnar kjarnorku- sprengjum. Hæpið er nú talið, að þeirri samningagerð verði lokið fyrir þann tíma, þótt unnið verði að henni af miklu kappi og báðir leiðtogarnir hafi áhuga á að hún takist. Það, sem mest strandar á, er sameiginlegur ótti við eftirlit, sem talið er nauðsynlegt til að fylgjast með því að samningarnir verði haldnir. Sérfræðingar beggja óttast, að eftirlitið geti orðið til þess, að mótaðilar geti komist á snoðir um ýmis hernaðarleg leynd- armál. Sérstaklega er Bandaríkja- mönnum andstætt að leyfa Rússum að skoða ýmsan vopnabúnað á kafbátum og ofansjávarskipum, t.d. stýriflaugar. Vel getur svo farið, að engum samningum um takmörkun lang- drægra flauga verði lokið fyrir fundinn í Moskvu. Fundurinn get- ur eigi að síður orðið gagnlegur og orðið til að bæta sambúð risaveld- anna og auðvelda samninga um afvopnun síðar. Sitthvað bendir til, að Sovétríkin hafi ekki minni áhuga á öðrum afvopnunarsamningi eða takmörk- un hefðbundins herafla í Evrópu, eða að gera Evrópu - frá Atlants- hafi til Úralfjalla - að samfelldu friðarheimili allra þjóða þar, eins og Gorbatsjov hefur orðað það. Samkomulagið verði miðað við það, að ekkert ríki hefði yfirburði, sem gerði því mögulegt að hefja árás. ÞETTA var aðalumræðuefnið á utanríkisráðherrafundi Varsjár- bandalagsins í Sofíu, sem haldinn var í lok mars s.l. I langri ályktun, sem fundurinn samþykkti, var lögð á það höfuðáhersla, að sem fyrst yrði náð samkomulagi um samdrátt hefðbundins herafla í Evrópu, og að markmiðið væri óklofin Evrópa, sem væri „evrópskt friðar og sam- vinnu-heimili“ allra þjóða sem þar búa, eins og Gorbatsjov hefur orðað það. í rússneskum blöðum hefur mik- ið verið rætt um það að undan- förnu, að nauðsynlegt sé að ræða nánar um samdrátt hefðbundins herafla í Evrópu en hingað til. Af hálfu Atlantshafsbandalagsins hafi verið lögð mest áhersla á, að Rússar hefðu fleiri skriðdreka, en ekki hlustað á að Natóríkin hefðu nýrri og fullkomnari skriðdreka og betri skriðdrekavarnir. Nú verði menn að setjast niður og gera þessi mál upp og finna raunhæfan grund- völl fyrir afvopnun. Þá benda rússnesku blöðin á, að margir vestrænir stjórnmálamenn dragi upp sem dekksta mynd af Sovétríkjunum. Rússneskurblaða- maður hefur nýlega bent á, að hér sé um að ræða úrelt viðhorf frá tímum kalda stríðsins. Hann segir: „Fundir Míkhaíls Gorbatsjovs með Zbigniew Messner frá Póll- andi, Willy Brandt, Alessandr.o Natta og leiðtoga Júgóslavíu, gefa tækifæri til að ræða nýjar hug- myndir um sameiginlegt „heimili Evrópu". Fyrri hugmyndir voru mest- megnis hin gamla mynd af „rúss- neska birninum", sem vakti ótta og skelfingu meðal Evrópubúa. Vest- rænar kvikmyndir sýndu sovéskar „and-hetjur“ sem Asíubúa, enda þótt landfræðilega, sögulega og menningarlega sé ekki hægt að aðskilja Rússland frá Evrópu, eða stilla því upp sem andstæðu hennar. . „Við lítum fyrst og fremst á okkur sem Evrópubúa," sagði Míkhaíl Gorbatsjov nýlega á fundi með Alessandro Natta leiðtoga ítalska kommúnistaflokksins. Þessi ummæli eru vitni þess að Moskva vill tilheyra Evrópu. Margir frétta- skýrendur hafa bent á að evrópsk áhrif í utanríkisstefnu Kremlar hafi farið vaxandi undanfarið. Þetta má rétt vera, þó ég verði að viður- kenna að það er erfitt að finna skilin á milli evrópskar utanríkis- stefnu, bandarískrar og annarra stefna og strauma í utanríkismál- um. Ég verð að viðurkenna að við höfum lagt fram mjög margar til- lögur sem snerta málefni Evrópu. Stöðvun tilrauna með kjarnorkus- prengingar bætti mjög vistfræðilegt og sálrænt ástand á meginlandi Evrópu, enda þótt sú stöðvun væri fyrst og fremst boðskapur til Bandaríkjanna, til Hvíta hússins. Fyrsti afvopnunarsamningur, sem gerður hefur verið og undirritaður var í Washington í desember s.l. gerir allt líf Evrópubúa eðlilegra. Hinar öflugu eftirlitsaðgerðir sem kveðið er á um í INF samningnum, ná einnig til Evrópu. Og að lokum eru það þær hugmyndir sem nú eru til umræðu - afvopnun eiturefn- avopna, fækkun hefðbundinna vopna, aðgerðir til að efla traust á sviði hermála - allt þetta tekur einnig til Evrópu og öryggis hennar. Hið sama má segja um sameigin- legt heimili Evrópubúa, hugmynd sem leiðtogi Sovétríkjanna ræddi við Zbigniew Messner, viðmælend- ur sína í Belgrad og loks við Willy Brandt. Hvers konar heimili? í fyrsta lagi nútímalegt, það er þægilegt fyrir alla sem þar búa, notalegt heimili þar sem íbúarnir beita ekki hver annan valdi. Þar eiga ekki að vera vopnabúr eða vígvellir. Þar á að vera vettvangur samvinnu en ekki vopnaviðskipta." SITTHVAÐ hefur komið fram í rússneskum fjölmiðlum sem bendir til þess, að Rússar telji bætta sambúð þeirra og hinna fyrri fjandmanna þeirra, Þjóðverja, lyk- ilinn að friðarheimili frá Atlants- hafi til Úralfjalla. Heimsóknir jafnólíkra manna og Franz Josefs Strauss og Willys Brandt, sem báðir hafa lofað Perestrojkuna, geta átt þátt í því. í þessu sambandi er athyglisvert að lesa í eftirfarandi grein eftir rússneskan fréttaskýr- anda um vaxandi áhrif Vestur- Þjóðverja innan Nató: „í júlímánuði næstkomandi mun Vestur-Þjóðverji í fyrsta sinn í nálega 40 árá sögu Nató skipa æðsta sess í metorðastiga skrif- stofukerfis bandalagsins, en þá á Manfred Worner, varnarmálaráð- herra Vestur-Þýskalands, að taka við af Carrington lávarði sem fram- kvæmdastjóri Norður-Atlantshafs- bandalagsins. Þetta er lykilstaða innan Nató og sá sem henni gegnir hefur veruleg áhrif á stefnu banda- lagsins í málum Evrópu og í heims- málunum. Á síðustu árum hefur staða Vest- ur-Þýskalands innan Nató styrkst mikið. Yfir 20 vestur-þýskir hers- höfðingjar og aðmírálar gegna nú stöðum yfirmanna innan banda- lagsins. Að auki hefur verið búin til staða fasts aðstoðaryfirmanns her- afla Nató í Evrópu handa fulltrúa Það gæti orðið áfangi í hugmynd Gorbatsjovs um friðarheimili milli Atlantshafs og Úralfjalla. vestur-þýska hersins. Árið 1984 var valdsvið hans fært út og tekur nú til mála eins og kjarnavopna- áætlunar, sem breskur hershöfð- ingi fór áður með. Þetta braut óskrifaða hefð sem þó hafði verið stranglega fylgt, en samkvæmt henni var Vestur-Þjóðverjum ekki leyft að skipa stöður sem ábyrgð á kjarnavopnum tengdist. Árið 1986 varð Wolfgang Alten- burg, fyrrum yfirhershöfðingi í vestur-þýska hernum, formaður hermálanefndar Nató, sem fer með yfirstjórn hermála bandalagsins. Mikilvægi þessarar stöðu má ráða af þvf að undir hermálanefndina heyra æðsti yfirmaður herja banda- lagsins í Evrópu, æðstu yfirmenn herafla Nató á Atlantshafi og Ermarsundi og hernaðaráætlana- hópur Bandaríkja-Kanada svæðis- ins. Árið 1984 var vestur-þýski vara- aðmírállinn Klaus Thater útnefnd- ur herráðsforingi herafla NATO í norðanverðri Evrópu, en þá stöðu skipaði Breti áður. Tveim árum síðar var hann leystur af hólmi af Claus Jurgen Steindorff, varaað- mírál. Þetta ber að skoða í sam- hengi við þá ákvörðun að láta vestur-þýskar hersveitir taka við hlutverki kanadískra hermanna í stríðsleikjunum í Noregi. Eftirtaldar staðreyndir staðfesta aukna hlutdeild Vestur-Þjóðverja í yfirstjórn flota Nató: Árið 1982 var vestur-þýskur liðs- foringi í fyrsta sinn settur yfir hinn fjölþjóðlega flota á Ermarsundi. 1984 var fulltrúi vestur-þýska flot- ans í fyrsta sinn skipaður í yfir- stjórn fastaflota Nató á Atlants- hafi. Vestur-þýski varnarmálaráð- herrann sagði í sambandi við þá útnefningu að hún væri „mjög mikilvægt pólitískt skref“. Um útnefningu Manfred Worn- er sem framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins sagði Helmut Kohl kanslari að hún væri tímabær og að Sambandslýðveldið hefði enga ástæðu til að þjást af „minni- máttarkennd" vegna þess að það væri í fylkingarbrjósti og bæri meginþungann af vörnum Evrópu. Það er Natóríkjanna að skipa í stöður innan bandalagsins en heim- urinn, einkanlega Evrópubúar, hefur ástæðu til þess að vænta þess að Vestur-Þýskaland - en leiðtogar þess segja að þeir skilji nauðsyn þess að draga úr hernaðarlegu andspæni í Evrópu og skapa traust milli austurs og vesturs - muni nota áhrifamátt sinn innan Nató þannig að raunverulega miði í þá átt að þessum markmiðum verði náð. Tíminn mun sýna hvort hinn nýi framkvæmdastjóri Nató, sem ekki var nein friðardúfa hér á árum áður, muni fylgja þessari stefnu.“ Hér lýkur grein hins rússneska blaðamanns. Áður hafði mátt bú- ast við öðrum tón. Margt getur hins vegar bent til þess, að auðvelt geti reynst Rúss- um og Vestur-Þjóðverjum að ná samkomulagi um takmörkun hefð- bundins herafla í Mið-Evrópu. Þjóðverjar hafa meiri áhuga á því en aðrar Evrópuþjóðir vestan- tjalds, því að land þeirra yrði vígvöllur ef til styrjaldar kæmi í Mið-Evrópu. Af þeim ástæðum voru þeir tregastir Nató-þjóða til að fallast á áætlunina um endurnýj- un skammdrægra kjarnorkuflauga þar. Það sýnir líka viðhorf þeirra, að vinsælasti stjórnmálamaður þeirra samkvaérht skoðanakönnun- um er nú Genscher utanríkisráð- herra, sem er mesti hvatamaður bættrar sambúðar við Austur- Evrópu. Önnur grein eftir blaðamann APN bendir til þess að Rússar hafi trú á samhingsviljáÞjöðverja. Hún’! fer hér á eftir: „Samkvæmt vestur-þýskum blöðum hefur vestur-þýska stjórn- in kynnt fyrir Nató hugmyndir sínar um fækkun hefðbundinna vopna í Evrópu. Þetta þýðir að Bonnstjórnin leggur áherslu á vandamál í sambandi við hefð- bundin vopn. Slíku frumkvæði er aðeins hægt að fagna í tengslum við nýleg jákvæð umskipti á af- stöðu Vestur-Þýskalands til vissra þátta afvopnunarmála. Ef dæma má af opinberum yfirlýsingum er Bonnstjórnin mjög áhugasöm um fækkun hefðbundinna vopna. Það væri því eðlilegt að vænta jákvæðr- ar afstöðu hennar til vandamálsins. En naumast er hægt að kalla hug- myndina sem kynnt var Nató því nafni. Hugmyndin gerir ráð fyrir veru- legri einhliða fækkun skriðdreka, brynvarinna farartækja, sjálfknú- inna byssupalla og nokkurra fleiri vopna af hálfu Varsjárbandalags- ins en sýndarfækkunar af hálfu Nató. Hinni illræmdu „skrifdreka- ógnun“ er á ný skipað í fyrirrúmið. Vissulega hafa Varsjárbanda- lagsríkin yfirburði yfir Nató í heild- arfjölda skriðdreka, en það er ekki allur kjarni málsins. Vestræn ríki geta ekki annað en viðurkennt að Nató hefur áþreifanlega yfirburði yfir Varsjárbandalagið að því er varðar nýjustu gerðir skriðdreka, að ekki sé talað um eldflaugar gegn skriðdrekum. Hugmyndin hefur hlutdræga af- stöðu til samsvörunar hefðbund- inna vopna og sleppir vissum mikil- vægum þáttum hernaðarlegra og pólitískra staðreynda í Evrópu nú í dag. Afleiðingin er sú að hún brenglar myndinni af styrk herja í því skyni að sanna „yfirburði" Varsjárbandalagsins á sviði hefð- bundinna vopna. Aðferðirnar og markmiðið eru gamalkunn: Að fá Sovétríkin til þess að hefja einhliða afvopnun á þeim sviðum þar sem ’ þau standá framar og halda yfir- burðum Nató á mikilvægum sviðum, svo sem flotastyrks og flughers." Þrátt fyrir vissa gagnrýni, er tónninn í greininni engan veginn neikvæður og getur opnað leið til raunhæfra samninga ‘

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.