Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 14

Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 14
14 Tíminn Föstudagur6. maí 1988 Valgerður Guðni Borgfirðingar - Borgfirðingar Framsóknarfélag Borgarness efnir til almenns borgarafundar um byggðamál, sem haldinn verður miðvikudaginn 11. maí í Samkomu- húsinu í Borgarnesi kl. 20.30. Frummælendur alþingismennirnir Valgerður Sverrisdóttir og Guðni Ágústsson. Dagskrá: 1. Ræður framsögumanna. 2. Fyrirspurnir og almennar umræður. Allir velkomnir. Framsóknarfélagið í Borgarnesi Dráttarvélar Sannarlega peninganna virði. R a ÞJÓNUSTA HF. — Véla JÁRNHÁLSI 2 — SIIVII 83266- 686655 BILALEIGA með útibú allt í kringum landið, gera þér mögulegt að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 SÍPöntum bíla erlendi? interRent Bílaleiga Akureyrar + Hjarlanlegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og heiðruðu minningu móður okkar, tengdamóður og ömmu Guðlaugar Eiríksdóttur Þverspyrnu, Hrunamannahreppi Sérstaklega þökkum við starfsfólki sjúkrahúss Suðurlands fyrir góða umönnun og hlýju síðustu árin. Eiríkur Jónsson Sigurjon Jonsson Sigriður Jónsdottir Kristinn Jónsson Erna Sigurðardóttir Guðmundur Jónsson Sigrún Kristbjörnsdóttir Sigrún Jónsdóttir Guðrún Jónsdóttir Jón Jónsson Stefán Jónsson Bára Sigurðardóttir Ásta Jónsdóttir Valgeir Jónsson Guðrún K. Þorsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn + Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa Andrésar Magnússonar bónda í Vatnsdal, Fljótshlið Guð blessi ykkur öll Þorgerður Guðrún Sveinsdóttir Kjartan Andrésson Magnús Andrésson Elvar Andrésson Sveinn Andrésson Sigurður Andrésson Ólafur Andrésson Sigurleif Andrésdóttir Guðríður Andrésdóttir Matthildur Andrésdóttir Elísabet Andrésdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Auður Karlsdóttir Svanhvít Guðmundsdóttir Ólafía Sveinsdóttir SigurðurGíslason EiríkurÁgústsson Dofri Eysteinsson Sigurlín Óskarsdóttir SAMVINNUMÁL Rúllupökkun, nýjung í heygeymslu t>eir þéttbýlisbúar, sem átt hafa leið um sveitir landsins á allra síð- ustu árum, hafa naumast getað kom- ist hjá því að veita athygli rúllubögg- unum svo nefndu. Pað er nefnilega löngu liðin tíð í sveitum núna að öllu heyi sé ekið lausu á vögnum heim í hlöðu. Máski fer senn að líða að því að sú aðferð fari að þykja álíka gamaldags þar og að binda heyið í bagga með handafli, lyfta því á klakk og teyma svo heybandslestina heim. f staðinn er heyið núna vafið upp í sérstökum vélum sem skila því í stórum böggum, sem nefndir eru rúllubaggar. I fljótu bragði svipar þeim til hestabagganna gömlu, nema hvað þessir eru margfalt stærri. Þeir eru líka þyngri en svo að nokkur hestur geti borið, enda meðhöndlað- ir með vélarafli. Og rúllubaggana þarf að geyma, og gjarnan utandyra. Ekki er óal- gengt að bændur noti heyið úr þeim til að gefa búfé jafnframt beit í haga, eða þá að þeir vilji nota þá til að spara sér pláss í hlöðunni. Til þess þarf að pakka þeim inn. Og nú er alveg nýverið komin á markaðinn hér sérstök vél til að pakka böggunum inn í plast. Slíkt tæki, rúllupökkunarvél, skoðuðum við á dögunum hjá Búnaðardeild Sambandsins sem flytur það inn. Þetta tæki var kynnt á landbúnaðar- sýningunni í fyrra, og hjá Gunnari Gunnarssyni forstöðumanni fengum við þær upplýsingar að strax á síðasta ári hefðu selst tíu slíkar vélar, og það sem af er árinu í ár væri þegar búið að selja vel yfir tuttugu til viðbótar. Mega það kallast góðar viðtökur á tímum samdráttar í land- búnaði og þar með í búvélasölu. Rúllupökkunarvélin er til í tveim- ur gerðum, annarri á þrítengi en hinni á hjólum og með lyftiarmi til að lyfta böggunum upp á vélina. Báðar eru til þess að tengja við dráttarvélar. Vélin vinnur þannig að hún snýr böggunum og vefur jafn- framt utan um þá plasti sem hún dregur jafnóðum af rúllu. Plastinu vefur vélin þétt utan um heyið í skaraða vafninga og strekkir á því um leið, þannig að umbúðirnar verða loftþéttar. Með því móti getur heyið geymst óskemmt í langan tíma eða allt þangað til hentar að gefa það. Að pökkun lokinni er rúllu- böggunum svo velt af tækinu með vélarafli. Stærri gerðina af vélinni, þá með lyftiarminum, má aka með að bögg- unum og lyfta þeim sfðan upp á hana til pökkunar. Hún hentar því vel þar sem menn vilja pakka inn rúllubögg- um úti á víðavangi. Hin gerðin hentar hins vegar trúlega betur þar sem verið er að pakka rúlluböggum heima við hlöðuna. Bútæknideildin á Hvanneyri próf- aði þessa vél í fyrra og hittiðfyrra, og var umsögn hennar mjög jákvæð. Við prófunina þar kom m.a. fram að það tekur um það bil fjórar til fimm mínútur að pakka inn einum bagga, og afköstin geta verið 10-15 baggar á klukkustund, dálítið misjafnt eftir aðstæðum. Ef pakkað var með 75% skörun og vafið fjórfalt, sem virðist mega teljast alltraustur umbúnaður, kom í ljós að utan um einn bagga fór mjög nálægt einu kílói af plasti, eða rétt rúmlega 70 metrar. Ein plast- rúlla, sem kostar núna um 3.500 krónur, dugði þannig utan um 23-26 rúllubagga. -esig Gunnar Gunnarsson við nýju rúllupökkunarvélina. (Tímamynd: Gunnar) nSéH f l l í r lllll! LESENDUR SKRIFA Ætlar efri deild að duga honum?: Fjandinn og bölvaður bjórinn Það fór eins og Fjandinn vænti, þegar neðri deild Alþingis greiddi atkvæði um bjór á dögunum. Bjór- þursarnir báru hærri hlut. Tuttugu og þrír gáfu Andskotanum tungur úr sjálfum sér! (í sálirnar var hann sennilega búinn að næla áður). í meirihluta hópnum voru sjö ef ekki átta ráðherrar. Tíminn minn hefur vanrækt að nafngreina ráð- herra og aðra þingmenn, sem við þessa atkvæðagreiðslu sýndu alþjóð, að þeir vilja auka hérlendis of- drykkju og alla hörmung, er af henni leiðir. Vill Tíminn halda hlífiskildi yfir skömmum þeirra? Eg bið hann að sanna mér annað. Þótt þetta vesalings vandræða þingfólk, vilji - flest fremur af flónsku en fólsku - steypa yfir land sitt bölvun bjórsins, hefur það sann- að vanhæfni sína til setu á þingi og í ríkisstjórn. Því má enginn þjóðholl- ur maður kjósa það oftar á þing. Það þarf að verða varanlega þjóðfrægt af þessu bjórvillu skammarstriki. Framsóknarmenn hafa í sjötíu vetur verið vökumenn lands og þjóð-1 ar - og eru það margir enn. Fram- sóknarmenn voru lengstum þing- laukar - og eiga að vera það enn! Það má ekki fela forystu þeirra bjórbelgjum né heldur öðrum þjóð- félags meinakindum. Allir sem vilja og vita betur, verða að taka höndum saman - og byrja strax, að undirbúa val og framboð hyggnari og þjóðhollari manna en bjórþambaranna. Nú stöndum við hvor andspænis öðrum: Andskotinn og eg - og bíðum eftir atkvæðagreiðslu um bjór í efri deild. Eg er dálítið dapur og kvíðinn. Held þó enn í æfilanga trú mína á hamingju lands og þjóðar - og þá von að góðar vættir forði henni enn frá böli bjórsins. Andskotinn glottir kampakátur og nærri sigurviss. Meirihluti neðri deildar gaf honum fyrir fáum dögum sálir og tungur sínar og hét honum her manns niðja sinna, fæddra og óborinna. Hann trúir því að sam- þykkt bjórsins, sé nú senn í höfn. Ætlar efri deild að duga honum? Á sumarmálum 1988 Helgi Hannesson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.