Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.05.1988, Blaðsíða 8
8 Tíminn Föstudagur6. maí 1988 Timinn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsólfharflokkurinn og Framsóknarfélögin í Fteykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aðstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason Steingrímur G íslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Auglýsingaverð kr. 465,- pr. dálksentimetri. Verð í lausasölu 60,- kr. og 70,- kr. um helgar. Áskrift 700.- Þjóðarvandi Hin miklu umskipti sem hafa orðiö á afkomu útflutningsgreina á síðustu mánuðum er alvarlegt mál, sem bregðast verður við hið fyrsta. Um það er ekki deilt að stöðvun vofir yfir fjölda fiskvinnslu- stöðva víðast hvar á landinu. Fyrsta fiskvinnslufyrirtæki sem varð til þess að draga verulega saman starfsemi sína var Grandi h/f í Reykjavík. Þótt Grandi sé stórt fyrirtæki og hafi veitt mörgu fólki vinnu, þá er fiskvinnsla hlutfalls- lega ekki stærri atvinnugrein í Reykjavík en svo, að uppsagnanna hjá Granda gætir ekki á sama hátt og þegar fiskvinnslustöðvar úti um landsbyggðina verða að draga saman seglin. Þar með er ekki sagt að uppsagnirnar hjá Granda h/f séu ekki alvarlegt mál. Þessar uppsagnir koma afarhart víð reykvískt verkafólk. Miðað við fjölda þess fólks í Reykjavík sem vinnur eiginleg verkamannastörf og er háð daglaunavinnu, þá er samdrátturinn hjá Granda h/f alvarlegt vandamál á vinnumarkaði og snertir afkomu fjölda heimila. Samdráttur eða stöðvun fiskvinnslufyrirtækja úti um landsbyggðina er þó enn stærra vandamál en samdráttur í reykvísku fiskiðjuveri. Sjávarút- vegsgreinar eru meginuppistaðan í atvinnulífi landsbyggðarinnar. Sumir kaupstaðir og kauptún eru svo gersamlega háðir útgerð og fiskvinnslu að þar kemst ekkert annað að. Sjávarútvegurinn er lífæð staðanna. Nú horfir þjóðin fram á það að aðalatvinnutæki sjávarplássanna eru komin að því að stöðvast. Slíkt ástand varðar ekki forráðamenn og eigendur þessara fyrirtækja eina, þetta er ekki eingöngu mál starfsmanna fyrirtækjanna, sem eru að missa atvinnu sína, þetta er ekki einkamál sveitarfélag- anna sem í hlut eiga og sjá grundvellinum kippt undan tilveru sinni. Þetta ástand er ekki einkamál eins eða neins. Það ástand, sem er að skapast í fiskvinnslunni, varðar alla þjóðina og þjóðarafkomuna. Hér er ekki um neinn barlómsvæl að ræða. Hin versnandi rekstrarafkoma fiskiðnaðarins stafar af augljósum ástæðum og er háð öflum, sem stjórnvöld geta ekki haft áhrif á nema að vissu marki. Ástæðan til hallarekstrar fiskvinnslunnar stafar af verðfalli afurða, verðfalli Bandaríkjadollars og vaxandi verðbólgu og kostnaðarhækkunum innanlands. Miðað við það að gjaldeyrisöflun og erlend viðskipti grundvallast á útflutningi sjávarafurða, þá verður þjóðin öll að vera meðvituð um, hvert þetta ástand er að leiða og viðbúin því að taka á sig byrðar, sem er óumflýjanlegur fylgifiskur þess að útflutningsframleiðslan ber sig verr en áður. Miðað við neyslustig og lifnaðarhætti megin- þorra þjóðarinnar ættu slíkar byrðar að vera léttbærar. Þeim sem minna mega sín verður að létta byrðina með félagslegum ráðstöfunum. GARRI llilll 'lllllllllli All og spíri Það er mikið taiað um það nú á dögum að efla þurfl atvinnulíflð utan höfuðborgarsvæðisins. Eng- inn efast um réttmæti þessa, ekki síst vegna þess að hver maður sér í hendi sér að það gengur ekki til lengdar að byggja höfuðborgar- svæðið upp á eintómri þjónustu við aðra hluta landsins, á sama tíina og þar stcfnir allt í erflðleika og samdrátt. En hvað á þá að gera? Vitaskuld verður að efla hefðbundnar grein- ar, landbúnað og sjávarútveg, svo og þann framleiðsiuiðnað sem á þessum greinum byggir. Um það eru allir sammála. Þar verður að skapa framleiðendunum og iðnfyr- irtækjunum heiibrigðan og eðlileg- an rekstrargrundvöll til að þessir aðilar geti haft viðunandi afkoinu af störfum sínum. Annað gengur ekki. Það dugar ekki að láta þjón- ustugreinunum syðra haldast uppi að mergsjúga undirstöðuna sem allt líf þeirra sjálfra byggist i raun- inni á. Þetta er riljað upp hér í tilcfni af tveimur fréttum sem komið hafa hér í Tímanum nú í vikunni um ónotaða möguleika í nýjum grein- um. Það segir sig sjálft að vilji menn viðhalda byggð í landinu öllu þá er það frumskilyrði að hafa augun opin fyrir öllum nýjiim at- vinnutækifærum sem bjóðast. Glerállinn Að því er sagði í Timanum á laugardaginn kemur gleráll sunnan úr Þanghaflnu hér upp að suður- og suðvesturströndinni í geysistór- um torfum. Lítið mun að vísu vera vitað um lífshætti álsins í smáatrið- um, en fróðustu mcnn telja þó að það sé aðeins lítill hluti glerálsins sem nokkru sinni gangi hér upp i árósa, en stærsti hluti hans drepist hér úti fyrir ströndinni. Á það er bent í fréttinni að tiltölulega lítið mál eigi að geta verið að fanga glerálinn lifandi hér við suðurströndina og taka hann til eldis. Ekki síst þar sem við höfum mikið af jarðhita, sem einmitt er nú þegar farið að nota hér við flskeldi með góðum árangri. Állinn hefur að vísu ekki mikið verið nýttur til átu hér innanlands. Þvert á móti er engu líkara cn að íslendingar hafí í áranna rás frekar haft ótrú á þessari skepnu. Eitt- hvað rámar þann er hér ritar í fornar þjóðsögur af skepnu sem nefndist hrökkáll, og gott ef hún átti ekki að eiga það til að veljast utan um fætur fólks sem var við heyskap í mýrum, með heldur óskemmtilegum afleiðingum. En menn mega ekki láta gamlar kerlingabækur glepja fyrir sér. ÁII þykir mesti herramannsmatur víða í útlöndum, og viljum við ekki éta hann sjálf þá má alltaf flytja hann út og gera ræktun hans að gjaldcyr- isskapandi atvinnugrein. Ekki veit- ir af, og hér gildir sama sagan og annars staðar að fara verður rólega í sakirnar, byrja smátt og gæta þess að fara ekki af stað af slíku offorsi að kollsteypan verði að meiri hátt- ar slysi ef illa gengur í fyrstu tilraun. Spírinn Hin fréttin kom svo hér í blaðinu í fyrradag og var um ónotaða möguleika okkar til þess að fram- leiða vínanda úr kartöflum og niysu. Það leiðir af baráttu okkar gegn áfengisbölinu að hér er harð- bannað að framleiða spíra eða vínanda hvers konar. Aftur á móti vill svo til að við flytjum inn talsvert af spíra til áfengisgerðar og iðnaðar, á sama tíma og manni er sagt að tiltölulega auðvelt sé að framleiða hann hér innanlands úr umframkartöflum og mysunni sem hent er í mjólkurbúununt. Hér verður ekki betur séð en að forvitnilegt mál sé komið upp til umræðu. Það er vissulega stór munur á því hvort mönnum er veitt hömlulaust leyfi til að heimabrugga landa í öllum koppakirnum eða hvort hráefni, sem til er í landinu, er nýtt til fullnustu til þess að framlciða úr því iðnaðarvöru sem þörf er fyrir og eftirspurn eftir bæði hcima og erlendis. í þessari frétt er þess einnig getið að fram- leiðslu af þessu tagi geti til dæmis verið tilvalið að reka í þeim mjólk- urbúum, sem vegna samdráttar í mjólkurframleiðslu fullnýti ekki öll sín tæki. Hér hefur verið hreyft tveimur áhugaverðum málum sem full ástæða er til að athuga bctur. Núna er mikið talað um leiðir til þess að efla atvinnulífíð úti á landsbyggð- inni og gera það fjölbreyttara. Um það gildir hið fornkveðna að þar hefur oft verið þörf en nú er nauðsyn. Um álaræktina á það sérstaklega að hún virðist kjörin til að verða aukabúgrein hjá bændum, einkum sunnan og suð- vestanlands, líkt og fískirækt cr reyndar víða að verða og orðin. En um hvort tveggja þetta á að hér virðast vera möguleikar á nýrri atvinnu og auknum tekjum fyrir dreifbýlið. Allt slíkt þarf að skoða. Garri. VÍTTOG BREITT Siðvæðing í viðskiptum Mjög róttækar breytingar eru nú að verða á fasteignaviðskiptum með gildistöku nýrra laga þar um og breyttum og bættum viðskipta- háttum milli fasteignasala og við- skiptamanna hans. Fasteignasalar þurfa nú að vera löggiltir til starf- ans og sú leppsmennska sem tíð- kaðist í fasteignaviðskiptum á nú að heyra fortíðinni til. Félag fasteignasala hefur kynnt þær breytingar sem orðnar eru og hefur látið gera eyðublöð þar sem fasteignasalinn og seljandi gera samning um sölumeðferð. Þar eru einnig margs konar upplýsingar sem væntanlegur kaupandi þarf á að halda. Með nýju lögunum og bættum viðskiptaháttum í sölumeðferð fasteigna er stigið stórt skref fram á við og er leitast við að tryggja hagsmuni allra aðila sem best, þ.e. seljanda, kaupanda og fasteigna- sala. En þegar allt kemur til alls eiga allir þessir sameiginlegra hags- muna að gæta þegar fasteignir ganga kaupum og sölum og engir prettir eða einhvers konar undan- skot eru höfð í frammi. Seint á ferð Eiginlega er furðulegt að lög- gjafinn og sómakærir fasteignasal- ar skuli ekki hafa breytt svona viðskiptaháttum fyrir löngu. Marg- ir hafa farið illa út úr fasteignavið- skiptum vegna svika og alls kyns vanefnda, orðið fyrir fjárhagstjóni og alltof mörg dæmi eru um að fólk hafi misst aleiguna vegna svika fasteignasala eða annarra sem mál- um hafa tengst. Formleysa og slappleiki hafa ein- kennt fasteignaviðskipti á margan hátt. Upplýsingar um hús og íbúðir á söluskrá hafa verið alitof litlar og oft rangar. Dæmi um subbuskap- inn er að stærðir á fasteignum hafa verið auglýstar eftir geðþóttamæli- kvörðum seljenda. Fasteignasalar hafa oft ekki aðra hugmynd um stærðarhlutföll en seljandi segir þeim og íbúðir sagðar mældar brúttó, nettó eða einhvern veginn öðru vísi. Nú standa aftur á móti vonir til að stærðir auglýstra fsteigna verði rétt upp gefnar og að aðrar sjálfsagðar upplýsingar fylgi svo að væntanlegir kaupendur þurfi ekki að vera hræddir um að kaupa köttinn í sekknum. Víðar þarf að siðvæða Margs kyns skringilegheit önnur hafa loðað við fasteignaviðskipti. Sömu hús og íbúðir eru til sölu hjá fjölmörgum fasteignasölum og eru þeir allir að auglýsa sömu eignimar samtímis og svo kemur kannski upp úr dúrnum að húsin eða íbúð- imar eru alls ekki til sölu, heldur langaði eigandann bara til að vita hvaða tilboð hann gæti fengið í eign sfna. Svona fíflskapur og margur ann- ar leggst nú vonandi af með til- komu nýrra laga og siðbót meðal fasteignasala. Þau siðaskipti felast ekki síst í því að reglur um löggild- ingu em strangari en áður og þess að að vænta að eftir verði í stéttinni þeir fasteignasalar sem vandari em að virðingu sinni og kunni að gæta hagsmuna allra viðskiptaaðila, en slóðar og braskarar hverfí til annar- ra starfa. Þegar nú er gerð alvarleg tilraun til að siðbæta fasteignaviðskipti, þar sem Félag fasteignasala hefur lagt sitt af mörkum til að gera þau ömggari og nútímalegri, er tími til kominn að löggjafinn og vonandi fleiri aðilar fari að snúa sér að bílasölum. Þar er óplægður akur að koma á löggildingu þeirra sem selja notaða bíla og síðan að þeir setji sér sómasamlegar starfsreglur eins og fasteignasalar hafa gert. Bílaviðskipti eru á margan hátt fyrir neðan allar hellur. Það getur verið erfitt að fá nauðsynlegar upplýsingar um bíla sem em til sölu og frágangur og ábyrgð á sölusamningum er hvergi nærri eins og skyldi. Nú til dags er mikið lánað til tiltölulega langs tíma af söluverði notaðra bíla. Veltur þá á ýmsu hvort seljandi er „heppinn" með kaupanda eða ekki. Að vera heppinn með kaupanda er ekkert annað en að seljandi fær umsamdar greiðslur með skilum. En hér á engin heppni við heldur verður að standa við viðskiptaskilmála og einhver verður að vera ábyrgur fyrir að svo sé gert. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.