Tíminn - 06.05.1988, Qupperneq 19
Tíminn 19
Föstudagur6. maí 1988
nomn
hennar
CHER
Kvikmyndin „Moonstruck“ færði Cher hinn eftirsótta Oscar.
Hér er hún ásamt Nicolas Cage sem leikur á móti henni í þeirri
mynd
-sem fékk Oscar fyrir leik
sinn í myndinni Fullt tungl
(Moonstruck), sem nú er
synd í Rita segir að húsmóðir sín hafi
, , fengið egypskan hönnuð til að
D j D/'"'V Dieikna breytingar á húsinu, svo allt
’ '-'D'JnVJ yrði ekta egypskt. Síðan voru líka
hafðar til hliðsjónar bækur með
myndum frá Egyptalandi.
Fyrir fjórum árum urðu vinslit
þeirra Egyptans og Cher út af
smáupphæð, sem henni fannst
hann hefði platað sig um. Hann
hætti störfum og í eitt ár var ekki
unnið í húsinu.
„Petta ár var erfitt fyrir frú
Allman," segir Rita. „ Hún trúði
því að egypski arkitektinn hefði
lesið bölbænir og formælingar yfir
húsinu, svo það væru álög á því.
Frúin flutti úr húsinu á tímabilinu
með börnin, og hún sagði mér að
ég þyrfti ekki að búa þar heldur.
Hún skyldi leigja fyrir mig annars
staðar."
Ráðskonan bjó þó áfram þessa
mánuði í húsinu, en hún sagði að
ýmislegt mjög undarlegt hefði
komið fyrir sig, sem hún gæti ekki
útskýrt,- Þessi óhugnaður hætti þó
eftir nokkurn tíma, sagði Rita.
Cher auglýsti húsið til sölu, en
fékk ekki tilboð sem henni líkaði.
Hún ákvað þá að gera aðra tilraun
til að Ijúka breytingum á húsinu og
fékk innanhússarkitekt til verksins.
Nú finnst Cher sem allt sé eins og
best verði á kosið, og er mjög glöð
yfir því að hafa ekki selt höllina
sína.
öscarsverðlaunahafinn Cher
segist hafa lifað í fyrra lífi í Egypta-
landi á tímum Faróanna. Hún er
reyndar af armenskum ættum og
að hálfu leyti Cherokee-indfáni.
Sjálf segir Cher að hún hafi líka
sígaunablóð í æðum.
Nú á síðari árum hefur blossað
upp áhugi Cher á öllu egypsku.
Árið 1980 keypti hún sér stórt og
mikið hús á hæð utan við Hollyw-
ood. Par hefur verið unnið að
endurnýjun utanhúss og innan í
mörg ár, en nú er allt komið í það
horf sem Cher líkar, - og allt eins
egypskt og hægt er að hafa það í
Hollywood. Meira að segja er
fjögurra metra hár sphinx (ljóns-
stytta með mannshöfuð) í garðin-
um hennar.
Blaðamaður náði viðtali við Ritu
Ramirez, ráðskonu Cher, sem hef-
ur verið hjá henni í mörg ár.
Ráðskonan kallar leikkonuna allt-
af frú Allman, - því að Cher var gift
seinni eiginmanni sínuni Greg
Allman rokk-hljómsveitarmanni
þegar Rita tók við ráðskonustöð-
unni.
Cher í forsalnum, sem er að verða eins og
listasafn, því að leikkonan er sífelit að bæta
egypskum munum í safn sitt.
Cherburg er hún stundum kölluð „egypska“ höllin hennar Cher.
Cher og sonur hennar, Elijah Blue, að „mússísera" í setustofunni sem
mest er notuð. „Hér er heimilið okkar,“ segir Cher.