Tíminn - 06.05.1988, Page 20

Tíminn - 06.05.1988, Page 20
Sparisjóösvextir og yf irdráttup á téKKareiKnirgunn SAMVINNUBANKI (SLANDS HF Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Okeypis þjónusta 686300 Tíminn HRESSA KÆTA STRUMPARNIR Tíminn Svefndrukkinn virðisauki flakkar milli þingdeilda Alþingis: BÆNDUM HRYS HUGUR Nú bætist bókhaldið við hjá bændum. Gott verður þá ef kaupamaðurinn er vanur tölum, t.d. með reynslu af viðskiptafræði. Það iná ætla að nýjasti skattapakki ríkisstjórnarinnar, virðisaukaskatturinn, verði staðfestur sem lög fyrir þing- lausnir í næstu viku. Þessa dagana sitja þingmenn beggja deilda Alþingis sveittir yfir málinu og sýnist sitt hverjum, j eins og gengur. Verði fyrir- liggjandi frumvarp samþykkt að stofni til óbreytt, taka lögin gildi frá og með 1. júlí á næsta ári. Virðisaukaskattur hefur í för með sér fjölgun framteljenda sem nemur um 14 þúsundum. Stærstur hluti þeirra, nálægt 5000, kemur úr landbúnaðin- um. Ástæðan er einföld, bú- rekstur er eina atvinnugrein í landinu sem til þessa hefur yfirleitt ekki verið háð bók- haldsskyldu samkvæmt ákvæð- um laga um bókhald. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að lágmarksbókhald bænda samfara upptöku virðis- aukaskatts lúti að peningastreymi í búrekstrinum. Það vill segja að menn eru skyldaðir til að bókfæra þær tekjur, sem þeir innheimta virðisaukaskatt af og að sama skapi þurfa bændur að bókfæra þau gjöld sem þeir greiða virðisaukaskatt ofan á. Gert er ráð fyrir að þeir sem landbúnað stunda, skili innheimt- umönnum ríkissjóðs virðisauka- skatti ásamt virðisaukaskatts- skýrslu tvisvar á ári. Skýrslu vegna fyrri hluta ársins, ásamt skattinum, skal skila í síðasta lagi 1. september ár hvert og vegna síðari hluta ársins 1. mars ár hvert. í frumvarpinu er og ákvæði um að skattstjóra sé heimilt að fallast á beiðni þeirra, sem stunda land- búnað, um aukauppgjör á virðis- aukaskatti ef í ljós kemur að þeir eigi kröfu á endurgreiðslu virðis- aukaskattsins vegna kaupa á fjár- festingar- og rekstrarvörum. Virðisaukaskattsfrumvarpið, eins og það er lagt fram á Alþingi, ber óneitanlega vott um að varð- andi landbúnaðinn séu margir óhnýttir endar. Sérfræðingar í ráðuneyti fjármála staðfesta að svo sé, a.m.k. þurfi mörg atriði í frumvarpinu um þessa atvinnu- grein frekari útfærslu við. Það kemur því tæplega á óvart að ákveðið hefur verið að skipa milli- þinganefnd, þar sem sæti eiga full- trúar stjórnarflokkanna og em- bættismenn, sem hefur það hlut- verk að athuga einstök álitamál og nauðsynlegar hliðarráðstafanir. Af einstökum atriðum sem nefndinni er ætlað að skoða eru viðskipti bænda og afurðastöðva og mat á skattprósentu virðisaukans. I frumvarpinu er gert ráð fyrir 22% skatthlutfalli yfir línuna, í stað 25% í núgildandi söluskattskerfi. Talsmenn bændasamtakanna hafa dregið réttmæti einxiar skattpró- sentu fyrir landbúnaðinn mjög í efa og telja að það mál verði að skoða mun betur en gert hefur verið. Gert er ráð fyrir að milliþinga- nefndin skili sínum tillögum með haustinu. Virðisaukinn erfiður í framkvsmd „Við höfum skoðað þessi mál gaumgæfilega og tókum ekki neina afstöðu gegn skattinum sem slíkum. Við getum í sjálfu sér ekki verið á móti frumvarpinu með þeim rökum að við teljum bændur ekki færa til þess að annast nauð- synlegt bókhald, sem virðisauka- skattinum fylgir. En við bendum hinsvegar á að þetta er erfitt í framkvæmd og það þarf að leggja mikla vinnu í að kenna mönnum inn á þetta nýja kerfi, einfaldlega vegna þess að menn eru misjafn- lega vanir að fást við tölur. Við höfum bent á ýmsa veikleika í frumvarpinu eins og það er nú lagt frant. Við gagnrýnum fyrst og fremst að einungis er gert ráð fyrir einu skatthlutfalli á vörum og síðan eru bændur settir undir pólitíska ákvörðunartöku hvað varðar endurgreiðslu á virðisaukaskattin- um,“ sagði Gunnlaugur A. Júlíusson, hagfræðingur hjá Bún- aðarfélagi íslands. Gunnlaugur segir það vissulega veikleika að ekki hafi enn verið mótaðar neinar heildartillögur um framkvæmd á innheimtu virðis- aukaskatts í landbúnaði. „Það eina sem liggur fyrir er að bændur eiga að gera þetta upp tvisvar á ári. Þó er heimild til að setja sérstakar reglur um sauðfjárbændur, vegna þess að þeir fá greitt einungis einu * sinni á ári og eru því stærstan hlut úr ári í mínus.“ Ótti við skriffinnsku Af viðtölum við bændur virðist ljóst að mörgum þeirri hrýs hugur við aukinni skriffinnsku sem virðis- aukanum óneitanlegá fylgir. Þeir eru og margir hverjir smeykir við þetta nýja skattafyrirkomulag. Gunnlaugur Júlíusson segir það deginum Ijósara að til kynningar á þessum nýja skatti þurfi a.m.k. eitt ár. „Skattasérfræðingar dönsku búnaðarsamtakanna hafa brýnt fyrir okkur að slíka gífurlega skatt- kerfisbreytingu þurfi að kynna mjög rækilega áður en hún taki giidi. Ég viðurkenni það fúslega að við höfurn verulegar áhyggjur af kynningarþættinum. En að honum getum við vitanlega ekki farið að huga fyrr en lagasetningin liggur klár fyrir. Og ég tel að opinberi geirinn verði að hafa frumkvæðið að því að leiðbeina mönnum, því það er jú hann sem skikkar bændur til að vera sínir starfsmenn,“ sagði Gunnlaugur. Ráðuneytið í startholum Indriði H. Þorláksson, skrif- stofustjóri í fjármálaráðuneytinu segir að ekki liggi enn fyrir mótaðar tillögur um hvernig bændum verði kynntar þessar skattkerfisbreyting- ar. „Menn eru einungis famir að huga að skipulagningunni almennt. Það verður komið á sérstakri sam- starfsnefnd allra framkvæmdaaðila og síðan starfshópum sem sinna einstökum þáttum, þ.á m. kynn- ingarþættinum, tölvumálunum og fleiru," sagði Indriði. Viðskipti bænda og afurðastöðva Eitt þeirra atriða sem gert er ráð fyrir að svokölluð milliþinganefnd fjalli um, eru viðskipti bænda og afurðastöðva. Þetta lýtur fyrst og fremst að sauðfjárbændum, vegna þess að hjá þeim eru greiðslur fjármagnaðar að mestu leyti með lánum. „Ég hef ekki enn fengið skýringar á því hvernig að þessu verður staðið,“ sagði Gunnlaugur. Indriði Þorláksson segir að þessi viðskipti séu ákveðið vandamál sem sé í raun af tvennum toga. Annar hluti þess snúi að misgengi inn- og útstreymi peninga, sem skapist af aðfangakaupum sauð- fjárbænda fyrri part árs, t.d. kaup á áburði, en síðan fái þeir greitt fyrir afurðir á einum tímapunkti á haustin. Hitt atriðið snúi að af- urðastöðvunum, á þann hátt að vegna þess að þær þurfi að greiða bændum út á tímabilinu september til október, og virðisaukaskattur- inn bætist þar ofan á, skapist aukin þörf afurðastöðvanna fyrir afurða- lán. „Lausnin sem menn hafa séð í þessu hvorutveggja er annarsvegar að fjölga uppgjörstímabilum, þannig að bændur geti fengið inn- skattinn uppgerðan mjög fljótt, annaðhvort á tveggj a mánaða fresti eða á séruppgjörum, og hinsvegar að í stað skila afurðastöðva til bændanna, standi þær ríkissjóði skil á þessum skatti og þá með sama greiðslufresti, eftir áramót, og bændur hefðu þurft að skila skattinum.“ Hvað með laxveiðileyf in? Einn lausu endanna með virðis- aukaskattinn lýtur að hlunninda- tekjum bænda, t.d. tekjum af sölu laxveiðileyfa. Vandamálið í þessu snýr ekki síst að mati á því hversu mikið er selt úr landi og hversu mikið selt innlendum aðilum. Laxinn er eitt dæmi um óhnýttan enda. Þeir eru margir fleiri, eins og gefur að skilj a með víðtækar breyt- ingar á skattalögunx. En það er ekki öll nótt úti. Samkvæmt alman- aki er nú maímánuður 1988. Sam- kvæmt frumvarpinu skcllur virðis- aukaskattur á þann 1. júlí 1989. Það má ýmislegt gera á þessum tíma, ef vilji og dugur er fyrir hendi. óþh mmmm

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.