Tíminn - 10.06.1988, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.06.1988, Blaðsíða 8
„ Láttu ekki þ irliggja! HELGIN m Tími vorhreingern- inga í húsagörðum, almenningsgörðum og á strætum borgar- innar er runninn upp. Borgarstarfsmenn jafnt sem einstakling- ar keppast við að laga til í kring um sig og gera umhverfið feg- urra, borgarbúum og sjálfum sér til yndi- sauka. Gamla kjörorðið „Hrein torg, fögur borg“ er enn við lýði, en ný kjörorð eins og „Láttu ekki þitt eftir liggja!“, „Góðan daginn, hreinsum bæinn“ og „Vertu ekki sóði, góði“ eru komin til sögunnar eftir hug- myndasamkeppni sem borgar- yfirvöld gengust nýlega fyrir til að hvetja til bættrar umgengni í borgarlandinu. Samhliða hug- myndasamkeppninni um sla- gorðin fór fram samkeppni um ný ruslaílát sem koma mætti fyrir á almenningssvæðum í borginni. Kjörorðið „Láttu ekki þitt eftir liggja!" sem hlaut fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppn- inni felur í sér tvenns konar merkingu, annars vegar áskorun til borgarbúa að leggja borgaryf- irvöldum lið í hreinsun og fegrun borgarinnar, en hins vegar minnir það vegfarendur á að skilja ekki eftir sig rusl á förnum vegi. Tíminn lagði á dögunum borg undir fót til að athuga hvernig vorhreingerningin gengi. Víða var fólk að reyta arfa sem hafði vaxið upp úr öllu valdi og setja blóm niður í staðinn til að lífga upp á umhverfið, á öðrum stað var verið að mála og enn öðrum stað að slá. Ekki var eingöngu fagra sjón að sjá í þessari ferð, eins og t.d. í brekkunni frá Höfðabakka að Gullinbrú í Grafarvogi, þar sem mikið af rusli hafði dottið af bílum sem voru að flytja rusl á haugana og bílstjórarnir höfðu ekki hirt um að binda niður. Þeir ættu að hugsa um kjörorðið góða, “Láttu ekki þitt eftir liggja!“. -ABÓ Kjörorðið góða „Láttu ekki þitt eftir liggjai" hlaut fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni borgaryflrvalda til að hvetja til bættrar umgengnl t borgarlandinu. Höfundurinn Jón Þorvatdsson lætur ekki sitt eftir liggja og brosir kampakátur við verðlaunaafhendinguna. (Tímunynd pjetur) Við Stjórnarráðið voru þær stöllur Atma Dögg Jóhannsdóttir t.v. og Lára Sigurþórsdóttir að slá og raka, en Kristján IX. Danakonungur fylgdist grannt með að stelpurnar notuðu rétt handtök við verkið, því hann hefur fylgst með mörgum sláttumanninum í gegn um tíðina og ætti að vera farinn að kunna handbragðið. (Tímamynd Gunnar) Sigurð Rúnar hittum við á Hrefnugötu þar sem hann var að dytta að húsinu sfnu, eins og hann sagði. Sigurður var að leggja síðustu hönd á að mála húsið, en sagði að hann mundi að því loknu ætla að fara í sveltina og njóta náttúrunnar. (Tímamynd Gmv) Pétur B. Lutherson og Birgitte Lutherson hlutu fyrstu verðlaun fyrir ruslaílát sem koma á fyrir á almenningssvæðum í Reykjavfk. Þá er bara að vona að þú borgarbúi góður látir ekki þitt eftir liggja og notir þessi handhæau ilát. rnmemvnd pietur) SMJORLIKISGERÐ< SÍMI 96-21400 • AKUREYRI A Austurvelli voru þessar blómarósir ásamt verkstjóranum sfnum Ólafi Lárussy ni í óða önn að setja niður stjúpur og önnur litrík blóm til Idga upp á grámyglu hversdagsleikans. Svo er bara að bfða og sjá hversu lengi blómin fá að vera í friði fyrir ungu riddurunum sem vilja færa elskunni blóm að lokinni dansæfingu á björtum sumarnóttum. (Tímamynd Pjetur) Laugardagur 11. júní 1988 Laugardagur H.'júní 1ð88‘ HELGIN Vorhreingerning í Reykjavík: Það eró fló hringja ekki í ömmu dAkur- eyri ó nfmffilinu hennor íminn er tilvalin leið til að eiga t persónuleg samskipti við œttingja m og vini í öðrum landshlutum. Síminn er líka skemmtilegur og þœgilegur samskiptamáti. Vissir þú, að það er ódýrara að hringja eftir kl. 18 og enn ódýrara að hringja um helgar. Dagtaxti er frá kl. 08 til 18 mánudaga til föstudaga Kvöldtaxti er frá kl. 18 til 23■ Ncetur- og helgartaxti er frá kl. 23 til 08 virka daga og frá kl. 23 á föstudegi til 08 nœsta mánudag. Fyrir þá sem staddir eru á landsbyggðinni, en þurfa að sinna erindum við fyrirtœki og stofnanir á höfuðborgarsvœðinu, er síminn einfaldasta og fljót- virkasta leiðin. Síminn er til samskipta. Því ekki að nofann meira! Dœmi um verð á símtölum: Lengd símtals 6 mín. 30 mín. Reykjavík — Keflavík Dagtaxti kr. 38,08 kr. 180,88 Kvöldtaxti kr. 26,18 kr. 121,38 Nætur- og helgartaxti kr. 20,23 kr. 91,63 Reykjavík — Akureyri Dagtaxti kr. 55,93 kr. 270,13 Kvöldtaxti kr. 38,08 kr. 180,88 Nætur- og helgartaxti kr. 29,16 kr. 136,26 Einar Þorvarðarson er markvörður íslenska landsliðsins í handknattleik og á að baki yfir 170 landsleiki. Einar lcikur jaíhframt með íslands- og bikarmeisturum Vals. POSTUR OG SÍMI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.