Tíminn - 10.06.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 10.06.1988, Blaðsíða 4
4 HELGIN Laugardagur 11. júní 1988 Bryan Hawker berst fyrir því aö fá að hafa krakkana sína Cleminu og Danny hjá sér í Bretlandi. En í Papúa Nýju Gíneu berst Kati fyrir því að fá börnin til sín. Hún er hér fyrir miðju, milli tveggja vina sinna.. Skilnaðiryfir landamæri hafa margvísleg vand ræði í för með sér Samt sem áður getur svo farið að áður en langt um líður kunni faðir þeirra að búa svo um hnútana að þau hverfi sporlaust. Ástæðan er sú að móðir barnanna, sem er upprunnin á einhverju afskekkt- asta svæði jarðarinnar vill nú fá þau til sín í Papúa á Nýju Gíneu. Faðir þeirra má ekki til þess hugsa og hefur frekar í hyggju að laumast burt frá Englandi og setjast að í leyni á einhverjum ókunnum stað, ásamt börnunum að sjálfsögðu. Ólík menning togast á um börnin Saga þeirra Cleminu og Dannys Hawker er að vísu einstök en hún er samt dæmi um alþjóðlegt vanda- mál sem sífellt verður algengara, þ.e. skilnað hjóna af ólíku þjóðerni og menningu og deilur um forræði barnanna í kjölfarið. Saga foreldra þeirra er hins vegar óvenjuleg, jafnvel nú á tímum síaukinna ferðalaga fólks til náms, hvíldar eða vinnu sem æ oftar leiðir til hjónabanda aðila af ólíkum menn- ingarsvæðum, sem aftur leiðir til þess að enn fleiri slík hjónabönd mistakast. Þessi þróun veldur yfirvöldum í ýmsum löndum æ meiri vandræð- um og dómstólarnir eiga sífellt erfiðara með að úrskurða í deilu- málum um forræði og umgengnis- rétt við börnin. Nú nýlega tóku tveir þingmenn í breska þinginu upp baráttu í því skyni að aðstoða mæður barna sem numin væru brott til útlanda í forræðisdeilum. Sumir álíta að í slíkum málum eigi 500 breskir foreldrar hlut og fæstir þeirra hafi ráð á því að standa í kostnaðarsöm- um málarekstri fyrir erlendum dómstólum. Danny og Clemina eru gott dæmi um þau vandamál sem lögfræðing- ar og lagasmiðir um víðan heim þurfa að kljást við. Hvernig er eiginlega unnt að tryggja börnun- um bestu hugsanlegar aðstæður þegar foreldrar þeirra kjósa að lifa hvort í sínu lagi, hvort á sínu menningarsvæði og kannski þús- undir kílómetra á milli? Ævintýraleg fortíð föðurins Bryan Hawker, faðir Cleminu og Dannys, fór í skyndi frá Bret- landi til Ástralíu 1963. Þá var Harold Macmillan forsætisráð- herra í Bretlapdi, lestarránið mikla nýafstaðið og ræningjarnir höfðu komist undan með tveggja og hálfr- ar milljóna sterlingspunda ráns- feng sinn. Bryan var í byggingar- vinnu í austurhluta London og átti og verða sífellt algengari í ástarsambandi við eiginkonu glæpamanns. Honum leist ekki á blikuna og ákvað að láta sig hverfa. Leið hans lá til Papúa á Nýju Gíneu að lokinni Ástralíudvölinni. Nýja Gínea erland andstæðnanna, í bæjunum hefur nútíminn haldið innreið sína mcð kjörbúðum, um- ferðarhnútum og háskóla, en til sveita heldur gömul menning velli. Ættflokkadeilur eru algengar í ill- færum fjöllunum og mannát er ekki óþekkt. Bryan fór að stunda innhverfa íhugun og ákvað að setjast að á einhverjum afskekktum stað. Fyrir 10 árum kom hann til Mindima, þorps í fjöllunum í Chimbuhéraði, og baðst leyfis að setjast að. íbú- arnir féllust á beiðni hans. Honum var m.a.s. vel tekið og segir nú að hann hafi fundið að þeir hafi tekið honum eins og hann er. „Þeir skömmuðust sín ekki fyrir mig,“ segir hann. Þorpið var ekki beint í alfara- leið, það var dagsferð að komast á næsta veg, sem var varla meira en ruðningur. En þorpsbúar voru frekar hreyknir af Evrópumannin- um sínum og afhentu honum til eignar eigin strákofa. Þeir fengu honum líka unga stúlku, Kati, til að matreiða fyrir hann. En þegar Kati var orðin 15 ára fékk hún blæðingar í fyrsta sinn og þá var úrskurðað að hún væri orðin nógu þroskuð til að seljast sem brúður. Bryan bauð hæsta verðið og keypti Kati fyrir 10 svín, 45 kjúk- linga og 200 sterlingspund í reiðu- fé. Þau eignuðust tvö börn og hjónabandið gekk vel í byrjun. En þá lenti Bryan í slagsmálum. Fjölskylda hans, þ.m.t. Kati, móð- ir hennar, barnungur systursonur og lífvörður, var neydd til að yfirgefa Mindima. Þar með fór hjónabandið út um þúfur. Móðirin vildi ekki vera í Bretlandi Þau földust í afskekktu fjallahér- aði og Kati þjáðist af heimþrá. Þegar Danny var fæddur fóru þau í tveggja vikna skemmtiferð til Bretlands en Kati vildi ekki vera þar um kyrrt. Hún fór aftur til Papúa og settist að í hverfi sveit- unga sinna frá Chimbu í Port Moresby, höfuðborg Nýju Gíneu. Bryan aftur á móti fór til Kerema, runnavaxins svæðis á ströndinni, kynntist annarri konu og tók að berjast fyrir því að fá forræði Dannys og Cleminu. Nú segir Bryan að hann hafi farið að skipta sér af menningu og umhverfi Katiar á þeim tíma sem hann hafi ekki sjálfur verið reiðu- búinn að taka upp siði hennar til æviloka. „Ég var barnalegur," seg- ir hann. „Ég hugsaði sem svo að hún væri svo ung að hún myndi hafa ánægju af fallegum hlutum og að hafa peninga til að kaupa fyrir og fljúga með flugvél alla leið til Englands. En hún sagði bara: Ég er Chimbu og verð alltaf Chimbu Baráttan um börnin hófst í Papúa Kati var fyrst úthlutað forræði barnanna til bráðabirgða þangað til barnaverndaryfirvöld gáfu þá skýrslu að börnin fengju ekki næga umönnun. f október 1986 var úr- skurðað hjá þjóðardómstóli í Wai- gani að Bryan skyldi hafa forræðið en Kati umgengnisrétt um hverja helgi. En Bryan vildi snúa aftur til Bretlands. f júlí sl. fékk hann leyfi til að taka börnin með sér frá Papúa á Nýju Gíneu um tíma þar sem hann þurfti að leita lækninga vegna skaddaðs hnés. Hann lét ekki uppskátt að hann hefði ekki hugsað sér að koma aftur. Nú hefur Kati tekist að fá nýjan dómsúrskurð þar sem Bryan er skipað að skila Danny og Cleminu aftur. Bryan hefur ekki neitt slíkt í huga og segist hafa gengið í gegn- um of mikið til að gefast upp núna. 'I sa

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.