Fréttablaðið - 24.02.2009, Síða 6
6 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
Á þessum stað í gær var talað
um sparperur. Þar birtust því
miður rangar upplýsingar. Hið
rétta er að Húsasmiðjan selur
Philips Genie-sparperur, en
Bónus selur Philips Essential-
sparperur. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Philips eru Essent-
ial-sparperurnar gefnar upp
með 6.000 tíma endingu, en
Genie með 8.000 tíma. Genie-
peran er mun fyrirferðarminni
og passar þess vegna í mun
fleiri lampa.
Hita-/kuldaþol peranna er mis-
munandi. Essential er gerð
fyrir ræsingu frá -5°C, en
Genie er gerð fyrir ræsingu
frá -20°C. Genie-peran þolir
þess vegna að vera í útiljósum.
Oft á tíðum er erfitt að bera
saman verð á sparperum því
taka verður tillit til eiginleika
perunnar, svo sem líftíma,
stærð, ræsigetu og fleira.
Genie 18w E-27 sparpera
frá Philips kostar 695 krónur
í Húsasmiðjunni og hefur gert
það í einhvern tíma. Umboðs-
maður neytenda birti vit-
laust verð og bar saman ólíkar
perur. Ég harma mistökin og
vonast til að hafa betur kveikt
á perunni í framtíðinni.
Neytendur: Leiðrétting
Hið rétta um sparperur Húsasmiðjunnar
SAMFYLKINGIN Í SUÐVESTURKJÖRDÆMI
Framboð til prófkjörs vegna
alþingiskosninga 2009
Frestur til að skila framboðum til prófkjörs
Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi vegna
komandi alþingiskosninga rennur út
föstudaginn 27. febrúar n. k. klukkan 18:00
Yfi rlýsingu um framboð skulu fylgja meðmæli eigi
færri en 10 og eigi fl eiri en 20 fullgildra félaga í Sam-
fylkingunni. Skal það gert bréfl ega, merkt:
Formaður Kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi, Hrauntungu 50, 200 Kópavogi.
Hver frambjóðandi prófkjörsins skal greiða
40.000 kr. þátttökugjald þegar framboð er lagt fram.
Nánari upplýsingar á samfylking.is
og í símum 896-5115 og 822-8384
Stjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi
EFNAHAGSMÁL Höfuðstóll húsnæðis-
skulda íslenskra heimila og heildar-
skuldir íslenskra fyrirtækja verða
lækkaðar um fimmtung nái tillög-
ur Framsóknarflokksins í efnahags-
málum fram að ganga.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, lagði einnig mikla áherslu á að
stýrivextir Seðlabankans lækkuðu
sem fyrst þegar hann kynnti tillög-
ur flokksins fyrir fjölmiðlafólki á
Alþingi í gær.
Niðurfelling 20 prósenta skulda
fyrirtækja og húsnæðisskulda
heimila mun ekki hafa í för með sér
kostnað fyrir íslenska ríkið, segir
Sigmundur Davíð.
Forsenda fyrir niðurfellingunni
er að húsnæðislán viðskiptabank-
anna verði færð í Íbúðalánasjóð.
Þær afskriftir sem verða á lána-
söfnunum við flutninginn gera það
að verkum að sjóðurinn tapar ekki á
því að fella niður 20 prósent af öllum
húsnæðislánum, segir Sigmundur.
Nýju bankarnir fengu lánasöfn
gömlu bankanna með 50 prósenta
afslætti, og því tapar ríkið ekki á
skuldaniðurfærslunni heldur erlend-
ir kröfuhafar í bankana, segir í til-
lögum framsóknarmanna. Ríkið
gæti þó þurft að kaupa húsnæðis-
lán lífeyrissjóða og sparisjóða, og
fella niður fimmtung, til að jafn-
ræði verði með skuldurum, segir í
tillögunum.
Kostnaður við það yrði innan við
tíundi hluti þeirrar upphæðar sem
áformað er að verja í endurfjár-
mögnun bankanna, sem eru 385
milljarðar króna.
Sigmundur segir að erlendir
kröfuhafar í bankana séu þegar
búnir að afskrifa fjárfestingar sínar
hérlendis. Þeir reikni með að allt fé
þeirra hér á landi sé tapað, og verði
því ánægðir fái þeir eitthvað til
baka af peningum sínum. Þeir ættu
því ekki að gera athugasemdir við
slíka niðurfellingu.
Framsóknarmenn ætluðu að
kynna stjórn og stjórnarandstöðu
tillögurnar í gær. Birkir Jón Jóns-
son, varaformaður flokksins, segir
að þingið ráði því hvaða framgang
tillögur flokksins fái. Lögð verði
fram þingmannafrumvörp um ein-
stök mál, og flokkurinn sé tilbú-
inn að vinna með hverjum þeim
sem vilji vinna tillögunum braut-
argengi.
Sjálfstæðismenn eru með 26 þing-
menn og framsóknarmenn 7. Flokk-
arnir eru því með meirihluta til að
ná málum sem báðir eru sammála í
gegnum þingið. brjann@frettabladid.is
Skuldir verði felldar
niður og vextir lækki
Framsóknarflokkur vill fella niður 20 prósent skulda fyrirtækja og húsnæðis-
lána heimila. Stýrivextir lækki strax. Eru tilbúnir að koma tillögum í gegn með
stjórn eða stjórnarandstöðu. Gætu myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokki.
Helstu tillögur Framsóknarflokks:
■ Stýrivextir verði lækkaðir strax,
hugsanlega í um 12 prósent.
■ Öll húsnæðislán heimila og
skuldir fyrirtækja verði færðar
niður um 20 prósent.
■ Hámarkslán Íbúðalánasjóðs verði
30 milljónir króna, en þá verði
hámarks lánshlutfall 70 prósent.
Hlutfallið verði áfram 80 prósent
fyrir lán að 20 milljónum króna.
■ Samið verði við erlenda eigendur
jöklabréfa og annarra krónueigna.
■ Settur verði á fót uppboðsmark-
aður með krónur.
■ Nýju bankarnir verði stofnaðir
fyrir 1. apríl næstkomandi. Kröfu-
hafar fái hlut í nýju bönkunum.
■ Eigur Íslendinga erlendis verði
rannsakaðar og skattlagðar.
Eigendur hafi frest til að gefa þær
upp og gera hreint fyrir sínum
dyrum.
STÝRIVEXTIR LÆKKI MIKIÐ STRAX
TILLÖGUR Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins,
kynnti tillögur í efnahagsmálum fyrir fjölmiðlafólki ásamt þingmönnunum Siv
Friðleifsdóttur (til vinstri), Birki Jóni Jónssyni og Eygló Harðardóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í fjögurra og hálfs árs
fangelsi fyrir hrottalega líkams-
árás á barnsmóður sína og jafn-
framt að hafa nauðgað henni.
Hann var einnig dæmdur til að
greiða henni 1,2 milljónir króna í
miskabætur.
Maðurinn réðst fyrst á konuna
í eldhúsi íbúðar og misþyrmdi
henni með höggum og spörk-
um. Síðar sama dag réðst hann
aftur að henni með margvísleg-
um hrottalegum misþyrmingum
og beitti hana svo kynferðislegu
ofbeldi.
Konan hlaut verulega áverka
við athæfi mannsins. - jss
Fjögurra og hálfs árs fangelsi:
Barði og nauðg-
aði barnsmóður
Notaðir þú fæðubótarefni á
síðasta ári?
Já 23%
Nei 77%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Viltu að Varnarmálastofnun
verði lögð niður?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
STJÓRNMÁL „Sjálfstæð-
ismenn eru hreinlega
að leggja trúverðug-
leika sinn í rúst með
því að leggjast allir sem
einn í vörn fyrir seðla-
bankastjóra sem ekki
hefur reynst starfi sínu
vaxinn,“ segir Össur
Skarphéðinsson iðnað-
arráðherra spurður um
framgöngu sjálfstæðis-
manna sem gengu hart
fram þegar þingfundi var frestað
í gær. „Ég veit vel hvað
þetta fólk sagði þegar
ég var með þeim í ríkis-
stjórn.“ Inntur eftir frek-
ari skýringu bætir hann
við: „Það voru ekki aðeins
ráðherrar Samfylkingar
í fyrri stjórn sem töldu
þörf á því að skipta um
í yfirstjórn Seðlabank-
ans.“
U m f r a m g ö n g u
Hösk uldar Þórhallsson-
ar, annars fulltrúa framsóknar-
manna í viðskiptanefnd, í gær
segir hann: „Mér finnst það alveg
eðlilegt að Framsókn syngi sína
aríu til þess að minna á að þeirra
er þörf til að verja þessa ríkis-
stjórn.
Ég tel hins vegar að þessi aría
hafi ekki verið samin af for-
manni flokksins heldur sé þarna
um sóló að ræða hjá Höskuldi og
þar held ég að hann sé á rangri
braut. Flokkurinn kýs örugglega
að minna á mikilvægi sitt með
öðrum hætti.“ - jse
Iðnaðarráðherra gagnrýnir sjálfstæðismenn fyrir að verja Davíð Oddsson:
Össur segir sjálfstæðismenn
rústa trúverðugleika sínum
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
KJÖRKASSINN